DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Bronze Summer Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri á ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 221-3
DROPS Design: Mynstur ai-314
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-400-400-450-500 g litur nr 02, hveiti

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 1 lykkju sléttprjón (lykkja með prjónamerki) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalína. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 90-94-98-102-106-110 lykkjur á hringprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir allar lykkjur í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5 og setjið 1 prjónamerki hér, héðan er nú mælt.

Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Teljið 11-12-13-14-15-16 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 21 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 22-24-26-28-30-32 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 21 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, það eru 11-12-13-14-15-16 lykkjur í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= hálft bakstykki).
Prjónið síðan sléttprjón yfir lykkjurnar á framstykki og bakstykki og A.1 (= 21 lykkjur) yfir lykkjur á hvorri ermi, JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 122-126-130-134-138-142 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.2 (= 25 lykkjur) yfir lykkjur í A.1, sléttprjón yfir framstykki og bakstykki eins og áður og haldið er áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 22-25-27-29-33-36 sinnum hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki = 274-302-322-342-378-406. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er prjónað áfram án útaukninga þar til stykkið mælist 20-23-25-27-31-34 cm frá prjónamerki.

Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 34-38-41-44-49-53 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 69-75-79-83-91-97 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 68-76-82-88-98-106 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 69-75-79-83-91-97 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 34-38-41-44-49-53 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 148-164-176-192-216-236 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 27-26-26-26-24-23 frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) yfir allar lykkjur. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 69-75-79-83-91-97 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 75-81-85-91-101-109 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-10-12 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við prjónamerkið og haldið áfram með A.2 og sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2-1½-1-1 cm millibili alls 10-11-13-16-19-21 sinnum = 55-59-59-59-63-67 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 38-36-34-33-29-26 cm frá skiptingu – eða að óskaðri lengd (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 11 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.2 = 44-48-48-48-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með sokkaprjónum nr 4. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið. Það eiga ekki að myndast göt.
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið. Það eiga að myndast göt
symbols = PRJÓNIÐ 5 LYKKJUR SLÉTT SAMAN ÞANNIG: Prjónið 5 lykkjur slétt, lyftið þeim til baka yfir á vinstri prjón, lyftið næst ystu lykkjunni yfir ystu lykkjuna, þannig að þessi lykkja liggi utan um síðustu lykkjuna, endurtakið þar til allar 4 lykkjurnar hafa verið lyft yfir (= 4 lykkjur færri), lyftið til baka síðustu prjónuð lykkjunni yfir á hægri prjón
symbols = PRJÓNIÐ 5 LYKKJUR SNÚRAR SLÉTT SAMAN ÞANNIG: Prjónið 5 lykkjur slétt, lyftið næst síðustu lykkjunni sem var prjónuð yfir síðustu lykkjuna, þannig að þessi lykkja liggi utan um síðustu lykkjuna, endurtakið þar til allar 4 lykkjurnar hafa verið lyft yfir (= 4 lykkjur færri)
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið sléttar lykkjur af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Bronze Summer Sweater

Weronika, Poland

Bronze Summer Sweater

Anna, Finland

Bronze Summer Sweater

Tanja, Denmark

Bronze Summer Sweater

Maria, Norway

Bronze Summer Sweater

@langatlaulaa, Finland

Bronze Summer Sweater

Tuuli, Estonia

Bronze Summer Sweater

Maria, Norway

Bronze Summer Sweater

Agata, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (125)

country flag Cecilia wrote:

Buenas tardes, hermoso el patron, hay un error al retomar los puntos de la manga, dice aguja 4mm y seria aguja de 5mm, saludos

01.04.2024 - 23:25

country flag Anna wrote:

Hej! Hur tänker ni att man ska fortsätta arbetet när man har ökat raglan 29 (strl XL) gånger? Ska det alltså stickas utan raglan en bit innan jag tar av för ärm? Ska jag sticka alla maskor - halvt bakstycke, ärm (A2), framstycke, ärm (A2) och halv bakstycke - tills det mäter 27 cm (XL) från markör och SEN efter det plocka av maskor för ärmar? Eller ska jag direkt efter sista ökning för raglan ta av för ärmar?

05.03.2024 - 16:14

DROPS Design answered:

Hei Anna. Etter siste økning til raglan (du har da 342 masker) fortsetter du videre som før, slik du skriver over (halvt bakstycke, ärm (A2), framstycke, ärm (A2) och halv bakstycke ) til arbeidet måler 27 cm fra merket. mvh DROPS Design

11.03.2024 - 08:55

country flag Ajla Hamzic wrote:

Hej, Jag får inte ihop maskantalet efter övningarna. Jag stickar storlek L, började med 98 m, som fördelas 13+1+21+1+26+1+21+1+13. Sen ökar jag 4 maskor i början på A1. Plus 8m x 27 ökningsvarv (=216). Så 98+4+216 = 318. Men enligt mönstret ska jag ha 322. Vart missar jag 4 maskor? Jag såg samma fråga i en annan kommentar men förstår inte svaret, känns som att 4m räknas med 2 gånger.

27.02.2024 - 14:57

DROPS Design answered:

Hej Ajla. Kom ihåg att A.1 stickas över varje ärm så du ökar 4 m på ena ärmen för A.1 och 4 på den andra. 98+8+216=322. Mvh DROPS Design

28.02.2024 - 07:49

country flag Helena wrote:

När jag stickar A1 varv 1 har jag 21 maskor till ärmen. Med raglan ökar jag till 23 inom ärmen, men enligt mönstret ska jag ha 25. Det går inte ihop. Har sett att ni svarat någon ovan att man ökar 4 maskor på varv 1, men två av dem hamnar på fram resp bakstycket, inte ärmen.

15.02.2024 - 13:12

DROPS Design answered:

Hej Helena, de 4 masker du tager ud ifølge A.1 havner i A.1 så der nu er 25 masker :)

23.02.2024 - 10:57

country flag Sofie Beyers wrote:

Na het breien van rij 1 van telpatroon A1 eindig je met een R. Je moet echter ook met een R beginnen in rij2. Maar dan komen de R over elkaar en de AR ook. Volgens het telpatroon is dit niet. Verder zit je dan al met 17 steken tussen de 2 AR steken. Je meerdert in het midden van het patroon maar de steken moeten er langst de buitenkant bij?

24.01.2024 - 21:04

DROPS Design answered:

Dag Sofie,

In de eerste naald van A.1 meerder je 4 steken in totaal, waardoor je op 25 steken komen. De 2 averecht van de volgende naald aan beide kanten, komen boven de averechte steken van de eerste naald.

28.01.2024 - 19:17

country flag Karin wrote:

Hei Jeg har strikket i mange år og føler med dreven, men på møsnter A1 forstår jeg ikke hvordan det skal gjøres. Det mangler jo masker for å få andre omgang til å gå opp. Blir ikke klok av forklaringen som er gitt de andre med samme spørsmål heller. Håper dere kan gi en god beskriveles i str. M og kanskje endre på oppskriften da mange ikke forstår hva som menes. Mvh Karin

13.01.2024 - 20:24

DROPS Design answered:

Hej Karin, jo, på første (nederste) pind i A.1 laver du 4 omslag ifølge diagrammet, så du får 25 masker, så du kan fortsætte diagrammet ned over ærmet. Plus at du samtidig tager ud til raglan, det gør du før og efter hver raglan overgang = 8 udtagninger til raglan.

16.01.2024 - 12:13

country flag Minna Avrin wrote:

Jag har från början 98 maskor, stlk L. Att öka 8 vartannat varv ger 24 m under A1 plus de 4 som ska ökas på första varvet i A1, ger totalt 126 maskor. Men enligt mönstret ska jag ha 130 maskor när A1 stickats en gång. Vad har jag missat?

16.12.2023 - 17:20

DROPS Design answered:

Hei Minna. Har du husket de 4 maskene du satte de 4 merkene i? Tell 13 masker, sett 1 merketråd i neste maske, tell 21 masker (= erme), sett 1 merketråd i neste maske, tell 26 masker (= forstykke), sett 1 merketråd i neste maske, tell 21 masker (= erme), sett 1 merketråd i neste maske, det er 13 masker på pinnen etter siste merketråd. 13+1+21+1+26+1+21+1+13= 98 masker. Så 4 + 4 masker i første omgang i A.1 + 24 raglansmasker = 98+8+24=130 masker. mvh DROPS Design

18.12.2023 - 09:07

country flag Saija wrote:

Mistä langasta tämä kannattaisi tehdä, jos ei haluaisi niin helposti nyppyyntyvää, kuin Air, mutta kuitenkin mielellään kevyen/ilmavan? Sain yhden paidan Air-langasta ja olin yllättynyt miten nopeasti (1-2 käyttökerran jälkeen) paita oli nyppyyntynyt.

01.12.2023 - 21:42

DROPS Design answered:

Voit vaihtaa esim. DROPS Alpaca Bouclé -lankaan tai DROPS Brushed Alpaca Silk -lankaan.

05.12.2023 - 18:02

country flag Jenny wrote:

Jeg strikk Str: M .Etter strikk A.1. Maske blir 16+1+33+1+32+1+33+1+16, total er 134, er ikke 126, hvor har jeg strikk feil?

31.10.2023 - 10:26

DROPS Design answered:

Hej Jenny, str M: 94 m = 12,1,21,1,24,1,21,1,12. Du tager 4 masker ud i A.1x2=8m og 8 masker ud til raglan 3 gange = 24=126 masker (15,1,3,25,3,1,30,1,3,25,3,1,15=126m)

31.10.2023 - 11:34

country flag Jenny wrote:

Takk for svar! Strikker 1. omgang av A.1 øker du med 4 x 2 masker iflg. A.1. Men strikk A.1. først omgang da blir 25 masker på A1. Hva har jeg gjørt feil?

30.10.2023 - 11:48

DROPS Design answered:

Hej Jenny, hver udtagning på 1.pind i A.1 er en ny maske, du starter med 21 masker, tager ud på første omgang og har nu 25 masker. Diagrammet på hvert ærme strikkes nu over 25 masker :)

31.10.2023 - 08:44