DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Breaking Sunlight

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 213-36
DROPS Design: Mynstur w-794
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-400-450-500-550-600 g litur 17, natur
100-100-100-100-100-150 g litur 61, lime

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING-1 (á við um berustykki):
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1.,3.,5. og 7. prjónamerki.
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan 2.,4.,6. og 8. prjónamerki.
Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í áferðamynstur, þ.e.a.s. 1. Útaukning er prjónuð í garðaprjóni, 2. útaukning er prjónuð í sléttprjóni o.s.frv. Þegar áferðamynstrið hefur verið prjónað til loka eru útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

RENDUR:
RÖND 1: Prjónið 13-13-14-14-14-14 cm með litnum natur og prjónið áferðamynstur þannig: Prjónið * 1 lykkju slétt, 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur.
RÖND 2: Prjónið sléttprjón og rendur þannig: Prjónið * 2 umferðir með litnum lime, prjónið 4 umferðir með litnum natur *, prjónið frá *-* í 15-15-15-16-16-16 cm, stillið af að endað sé með heila rönd (á bara við þegar prjónað er með litnum lime).
RÖND 3: Prjónið afgang af stykki með litnum litnum natur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 80-80-88-88-96-96 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum natur. Prjónið 1 umferð slétt.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið * 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur.
Prjónið 2 umferðir svona. Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= ca mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Stykkið er nú prjónað í RENDUR – sjá útskýringu að ofan.
Í næstu umferð eru sett 8 prjónamerki í lykkjurnar (öll prjónamerki eru sett í slétta lykkju) þannig:
Setjið 1. prjónamerki í 7.-7.-9.-9.-9.-9. lykkju.
Setjið 2. prjónamerki í 13.-13.-15.-15.-15.-15. lykkju.
Setjið 3. prjónamerki í 27.-27.-31.-31.-33.-33. lykkju.
Setjið 4. prjónamerki í 33.-33.-37.-37.-39.-39. lykkju.
Setjið 5. prjónamerki í 47.-47.-53.-53.-57.-57. lykkju.
Setjið 6. prjónamerki í 53.-53.-59.-59.-63.-63. lykkju.
Setjið 7. prjónamerki í 67.-67.-75.-75.-81.-81. lykkju.
Setjið 8. prjónamerki í 73.-73.-81.-81.-87.-87. lykkju.

Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1 (= 8 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. lykkjufjöldi á undan 1. prjónamerki, á milli 2. og 3. prjónamerkis, 4. og 5. prjónamerkis, 6. og 7. prjónamerkis og eftir 8. prjónamerki heldur áfram að vera eins.
Lykkjur sem auknar eru út eru prjónaðar á milli 1. og 2. prjónamerkis, 3. og 4. prjónamerkis, 5. og 6. prjónamerkis og 7. og 8. prjónamerkis.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 15-17-19-23-24-27 sinnum, í 4. hverri umferð 1 sinni og í 6. hverri umferð 1 sinni = 216-232-256-288-304-328 lykkjur.
Stykkið mælist ca 19-21-23-27-28-31 cm frá prjónamerki. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 21-23-24-27-28-31 cm.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið yfir fyrstu 31-33-36-41-44-49 lykkjur eins og áður, setjið næstu 46-50-56-62-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-8-8-10-10 lykkjur undir ermi, prjónið 62-66-72-82-88-98 lykkjur eins og áður, setjið næstu 46-50-56-62-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-8-8-10-10 lykkjur undir ermi og prjónið 31-33-36-41-44-49 lykkjur eins og áður.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 140-148-160-180-196-216 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-8-8-10-10 lykkja undir ermum í hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 70-74-80-90-98-108 lykkjur á milli prjónamerkja. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum.
Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri).
Aukið svona út með 4 cm millibili alls 3 sinnum = 152-160-172-192-208-228 lykkjur.
Þegar fram- og bakstykki mælist 20-20-21-21-21-20 cm frá skiptingu, aukið út 10-11-11-12-11-12 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = 162-171-183-204-219-240 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið).
Fellið af með sléttum lykkjum með litnum lime þegar stroffið mælist 4 cm – sjá AFFELLING!

ERMI:
Setjið 46-50-56-62-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-70-74-76 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-8-8-10-10 lykkja undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum hvoru megin við það. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og röndum.
Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri).
Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2-1½-1-1 cm millibili alls 6-7-9-11-12-12 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Þegar ermin mælist 24-23-22-20-19-16 cm frá skiptingu, aukið út 0-1-2-0-1-2 lykkjur = 42-45-48-48-51-54 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn með litnum lime. Þegar stroffið mælist 6 cm er fellt af með sléttum lykkjum með litnum lime.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.10.2020
Leiðrétting: BERUSTYKKI:.. Setjið 2. prjónamerki í 13.-13.-15.-15.-15.-15. lykkju.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Breaking Sunlight

Michela, Italy

Breaking Sunlight

Svetlana Cox, United States

Breaking Sunlight

Ana, Spain

Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (66)

country flag Jane Hegewald wrote:

Tak for foreløbig svar 36. Men er stadig i tvivl. En vrid RET og en vrid GLATSTRIK er det det samme

25.05.2020 - 13:12

country flag Jane Hegewald wrote:

Syntes strukturmønstret er svært, har lært lidt ved at læse svar nr. 32. 1 omgang ret og 1 omgang 1ret og 1 vrang. Men er det så på retpinden der skal tages ud ( slås om). Hvordan strikker man så næstepind. 1. Udtagning strikkes ret 2. Udtagning strikkes i glatstrik. Og hvordan strikkes så drejet.? Venlig hilsen jane hegewa

18.05.2020 - 14:29

DROPS Design answered:

Hei Janne. Når det står at kastene skal strikkes vridd (drejet), strikkes det i bakre maskebue slik at det ikke blir hull/kun et lite hull. Strikker du kastet i den fremste maskebue (som man vanligvis gjør blir det hull). God Fornøyelse!

25.05.2020 - 11:32

country flag Katarzyna Sorokosz wrote:

Jak wykonac ścieg strukturalny ?

16.05.2020 - 14:32

DROPS Design answered:

Witaj Kasiu! Ścieg strukturalny jest wykonywany następująco: 1 oczko prawe i 1 oczko ściegiem francuskim itd. A bardziej opisowo: 1-sze okr. ściegu strukturalnego: przerobić całe okrążenie na prawo. 2 -gie okrążenie: powtarzać na okrągło: 1 oczko prawe i 1 oczko lewe. 3-cie okrążenie: całe na prawo. 4-te okrążenie: 1 oczko prawe i 1 oczko lewe (pamiętaj aby oczka lewe znajdowały się dokładnie ponad oczkami lewymi okr. 2). Itd. Pozdrawiamy!

18.05.2020 - 10:43

country flag Maria Monica wrote:

Grazie. Ci sono riuscita. Non e molto chiara la spiegazione ma alla fine ho capito come si esegue. 👍 Saluti

14.05.2020 - 15:30

country flag Maria Monica Urbani wrote:

Buongiorno. Bellissimo modello. Ho appena iniziato la riga punto legaccio con l aumento yarn over. Il giro seguente sarà a maglia rasata. Come lavoro la maglia aumentata per trovarmi giusta con il pattern? Non capisco... Grazie se potrete rispondere Saluti Monica

13.05.2020 - 16:39

DROPS Design answered:

Buongiorno Monica, in che punto del modello si trova? Nel paragrafo SUGGERIMENTO PER GLI AUMENTI trova l'indicazione su come vanno lavorati gli aumenti nei ferri successivi. Buon lavoro!

13.05.2020 - 18:06

country flag Lone Bergh Hansen wrote:

Jeg kan ikke forstå strukturmønstret: Der står: 1.stribe således: Strik *1 maske ret, 1 maske retstrik, strik fra * til * over alle masker. Retstrik forklares således: strik en omgang ret og 1 omgang vrang. Hvordan omsætter jeg omgange til masker? Det forvirrer mig nok mest at der står retstrik som masker mens det er forklaret som omgange. Og jeg kan ikke få indtagninger på hver anden omgang til skiftevis at være i glatstrik og retstrik.

05.05.2020 - 20:16

DROPS Design answered:

Hej Lone, jo du strikker skiftevis 1 maske ret (glatstrik), 1 maske retstrik. Det vil sige på første omgang strikker du ret hele vejen rundt, på næste omgang strikker du 1 ret, 1 vrang hele vejen rundt, du gentager disse 2 pinde. God fornøjelse!

06.05.2020 - 08:07

country flag Anki Jürs wrote:

Tack för svaret men den biten ni beskrev hade jag klart för mig det var när man kom förbi detta och skall börja med Rand 1 som jag är osäker på vad man menar i beskrivningen, tror jag har kommit på det, Varannan maska slätstickning, varannan rätstickning tills man är klar med Rand 1, rand 2 enbart slätstickning

28.04.2020 - 07:02

DROPS Design answered:

Hej Anki, ja det stemmer, varannan slätstickning, varannan rätstickning God fornøjelse! :)

28.04.2020 - 14:17

country flag Anki Jürs wrote:

Blir inte klok på hur rand 1 skall stickas, skall det vara rätstickning, eller fortsatt resår 1 r och 1 a, rand 2 står där tydligt att det skall vara slätstickning, men rand 1 blir jag inte klok på

27.04.2020 - 13:07

DROPS Design answered:

Hei Anki. Først legger du opp 80-80-88-88-96-96 masker, så strikker du 1 omgang med kun rett masker (=første omgang). Neste omgang (2. omgang) begynner du med vrangborden (1 rett, 1 vrang , 1 rett, 1 vrang osv omgangen ut). Strikk 1 omganger til (=2 omganger med vrangbord). Da har du strikket en omgang med bare rettmasker og 2 omganger med vrangbord der det er strikket rett masker over rettmasker og vrang masker over vrangmasker. God Fornøyelse!

27.04.2020 - 13:48

country flag Magda Nowak wrote:

Witam! Właśnie robię tę bluzkę i stanęłam. Nie napisane od którego rzędu lub po ilu centymetrach zaczynać wrabiać paski.

17.04.2020 - 15:25

DROPS Design answered:

Witaj Magdo! Przepraszam za późną odpowiedź. W części WYKORZYSTYWANE TECHNIKI patrz PASKI. Tam znajdziesz odpowiedź. Jeśli będziesz w przyszłości miała pytania, proszę zaznacz w formularzu PYTANIE, a nie KOMENTARZ, wtedy szybciej odpowiemy. A propos, czy już zagłosowałaś na nową kolekcję DROPS Jesień/Zima, zapraszamy serdecznie!

07.06.2020 - 15:44

country flag Irina Pagliainga wrote:

Bin eben fertig geworden. Habe die Farbe wiess gewählt mit roten Streifen. Es ist super geworden! Danke für dieses tolle Model und leicht verständliche Anleitung.

15.04.2020 - 17:04