DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Blue Nostalgia

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri á ermum. Stærð S – XXXL.

DROPS 199-3
DROPS Design: Mynstur sk-026
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-300-300-350-400 g litur 13, ljós gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 og 80 cm fyrir kant með garðaprjóni.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 100 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 10.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3 til A.5). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og ermar):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 100-106-110-116-120-126 lykkjur á hringprjón 3,5 með Sky. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-8-8-10-10-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 110-114-118-126-130-134 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 15-16-17-19-20-21 lykkjur (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 yfir 21 lykkjur (= ermi), prjónið 2 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 30-32-34-38-40-42 lykkjur sléttprjón (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 yfir 21 lykkjur (= ermi), prjónið 2 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón yfir þær 15-16-17-19-20-21 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). Nú eru 118-122-126-134-138-142 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með þetta mynstur. Þ.e.a.s. á ermum er aukið í hvorri hlið eins og útskýrt er í A.1. Í næstu umferð er uppslátturinn á ermum prjónaður slétt (= gat) og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í A.1. Á fram- og bakstykki er aukið út með uppslætti á undan/á eftir 2 lykkjum í sléttprjóni í hvorri hlið (það eiga að vera 2 lykkjur sléttprjón á milli hverra laska útaukningar). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (= ekki göt) og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð. Aukið út um alls 8 lykkjur í hverri útauknings umferð (= 4 uppslættir + 4 lykkjur fleiri í A.1).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka 1 sinni á hæðina eru 230-234-238-246-250-254 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með mynstur alveg eins, þ.e.a.s. mynstrið endurtekur sig eins og útskýrt er í A.1. Í hvert skipti sem prjónaðar hafa verið 20 umferðir eru nú pláss fyrir 1 mynstureiningu fleiri með gatamynstri á breiddina á hvorri ermi.
Þegar aukið hefur verið út alls 24-27-29-32-34-38 sinnum eru 302-330-350-382-402-438 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18-20-22-24-25-28 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan.
Prjónið síðan í sléttprjóni og mynstri eins og áður, en án útaukningar. Þ.e.a.s. yfir 69-75-79-85-89-97 lykkjur í A.1 er prjónað þannig: Prjónið A.2 (= 2 lykkjur), 2-0-2-0-2-1 lykkjur sléttprjón, byrjið á umferð merktri með ör í þinni stærð og prjónið A.3 (= 10 lykkjur), A.4 yfir næstu 40-50-50-60-60-70 lykkjur (= 4-5-5-6-6-7 mynstureiningar með 10 lykkjum), A.5 (= 11 lykkjur), 2-0-2-0-2-1 lykkjur sléttprjón og A.6 (= 2 lykkjur).
Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 23-25-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 41-45-49-54-59-65 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), setjið næstu 69-75-77-83-83-89 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 82-90-98-108-118-130 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 69-75-77-83-83-89 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 41-45-49-54-59-65 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 184-200-220-240-264-288 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 10-10-12-12-14-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar lykkjum er fækkað/fjölgað. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA = 4 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona með 3 cm millibili alls 4 sinnum = 168-184-204-224-248-272 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 14 cm frá skiptingu. Nú er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 = 4 lykkjur fleiri.
Aukið svona út með 2 cm millibili alls 7 sinnum = 196-212-232-252-276-300 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 30-30-31-31-31-31 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið laust af, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með hringprjón 4. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 69-75-77-83-83-89 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 79-85-89-95-97-103 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar lykkjum er fækkað. Byrjið umferð við prjónamerki. Byrjið í réttri umferð í mynsturteikningu þannig að mynstrið haldið áfram frá berustykki og prjónið þannig:
Prjónið 4-2-4-2-3-1 lykkjur sléttprjón, A.3 (= 10 lykkjur), A.4 yfir næstu 50-60-60-70-70-80 lykkjur (= 5-6-6-7-7-8 mynsturteikning 10 lykkjur), A.5 (= 11 lykkjur) og 4-2-4-2-3-1 lykkjur sléttprjón. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3.-3.-3.-2.-2.-2. hverri umferð alls 14-15-15-16-15-16 sinnum = 51-55-59-63-67-71 lykkjur. Þær lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað eru prjónaðar í sléttprjóni, en passið uppá að þegar lykkjum er fækkað í mynstri verður einnig að slá uppá prjóninn. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 21-19-19-17-15-14 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið laust af, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með sokkaprjón 4. Ermin mælist ca 22-20-20-18-16-15 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn (= gat)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = sýnir 1 mynstureiningu á hæðina og hvernig gatamynstur er staðsett yfir hvert annað
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Blue Nostalgia

Synnøve, Australia

Blue Nostalgia

Sylwia, Norway

Nostalgia sweater

Hilde, Norway

Yellow Nostalgia

Silvia Pauly, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (119)

country flag Hélène wrote:

Je suis rendue a diviser les manches et le corps . J’ai 97 mailles pour les manches et je dois mettre en attente 89 mailles. Est-ce que je transfère A2 sur le devant et A6 sur le dos? Merci

16.12.2023 - 17:36

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, les 4 premières mailles de la manche et les 4 dernières mailles de la manche vont être attribuées au dos/devant et seront donc tricotées en jersey, ainsi, vous avez bien le bon nombre de mailles pour chaque pièce. Bon tricot!

18.12.2023 - 08:30

country flag Ulla Nieminen wrote:

Ohje on hankala ja monimutkainen. Kun olin neulonut A1 loppuun, muuttui ohje ihan käsittämättömäksi. Tein neuleen valmiiksi maalaisjärjelläni.

06.11.2023 - 15:51

country flag Ulla Nieminen wrote:

Olen nyt neulonut kertaalleen A1:n. Mutta en ymmärrä, mitä tarkoittaa, että jatka samaan tapaan, kunnes silmukoita on ( L- koko) 350. Mitä kohtaa katson kuviosta A1? Siinähän on alussa 21 silmukkaa ja olen nyt 51 silmukassa.

26.10.2023 - 15:56

DROPS Design answered:

Hei, piirrosten A.1 mallikerrat neulotaan toistensa yläpuolella. Eli aloita 1.kerros piirroksen A.1 edellisen kerroksen yläpuolella ja neulo piirroksen mukaan kuten aiemmin. Kerroksen uudet mallikerrat ovat kerroksen alussa ja lopussa.

02.11.2023 - 17:24

country flag Lucie wrote:

Bonjour, merci pour votre réponse, mais ce n'est toujours pas clair pour moi. Vous décrivez comment commencer au marqueur mais quand je commence mon tricot je suis 5 mailles après puisque je viens de relever les mailles, je dois donc déduire ces 5 mailles de votre explication?

10.10.2023 - 10:47

DROPS Design answered:

Bonjour Lucie, relevez les mailles sans les tricoter, ce sera ainsi plus simple de commencer au milieu de ces 10 mailles. Bonne continuation!

10.10.2023 - 16:18

country flag Lucie wrote:

Bonsoir, j’en suis aux manches : je ne comprends pas comment commencer mon tour au fil marqueur au milieu des 10 mailles relevées , alors que je suis déjà 5 mailles après (puisque je viens de relever les 10 mailles). Pouvez-vous m’aider?

09.10.2023 - 22:18

DROPS Design answered:

Bonjour, Il suffit de placer ce marqueur au milieu des 10 mailles relevées. Les noveaux tours commenceront au marqueur. Bon tricot!

10.10.2023 - 09:02

country flag Paola wrote:

Ho difficoltà a interpretare la prima riga delllo schema A1. Io lo leggo così: * 2 gett., 2 dritti, diminuzione, 1 rovescio, dimin., 2 dritti *, ripetere 1 volta da * a * finire con 2 gett. Totale 20 maglie. Dove ho "perso" la 21ma maglia? Grazie

29.09.2023 - 21:38

DROPS Design answered:

Buongiorno Paola, in mezzo ai due gettati iniziali e finali c'è una maglia diritto. Buon lavoro!

30.09.2023 - 12:36

country flag Evelyn wrote:

Hallo, ich bin jetzt an folgenden Punkt in der Anleitung angelangt: Weiter glatt rechts und im Muster wie zuvor stricken, jedoch ohne Zunahmen. Bedeutet dies (ohne Zunahmen), dass ab diesen Abschnitt keine Raglanzunahmen mehr gestrickt werden? Danke!!!

30.05.2023 - 14:04

DROPS Design answered:

Liebe Evelyn, ja genau, die Ärmel stricken Sie mit Lochmuster wie zuvor und Vorder- + Rückenteil stricken Sie glatt rechts wie zuvor, aber Zunahmen sind jetzt fertig - Ärmel stricken Sie wie im nächstren Satz beschrieben, bis die Arbeit die gewünschte Länge misst. Viel Spaß beim stricken!

30.05.2023 - 16:09

country flag Marica Richnau wrote:

Hej, stickar just nu Blue Nostalgia i L. När man kommer till den del där man slutar med ökningar, så står det i beskrivn att man stickar över A1 - sticka A2(=2 maskor), 2 maskor slätstickn i min storl. Därefter sticka A3, A4, A5, 2 mask slätst o A6. Maskantalet stämmer inte med mönstret när jag stickar vidare. Får ju mindre maskor i början o slutet. Ska jag göra ett omslag som det var i början på arbetet. (Samma fråga som Eva 10.02.2023)

26.04.2023 - 11:46

DROPS Design answered:

Hej Marica, du har 79 m i A.1 som stickas så här: Sticka A.2 (= 2 m), 2 m slät börja på varvet markerat med pil i din storlek och sticka A.3 (= 10 m), A.4 över de nästa 50 m (= 5rapporter à 10 m), A.5 (= 11 m), 2 m slät och A.6 (= 2 m). 2+2+10+50+11+2+2=79m

26.04.2023 - 15:19

country flag Jennifer Carvalho wrote:

Which, how and where do 1 add the repeat pattern after I am finished with the A1. "Continue this pattern onwards, i.e. the pattern repeats itself as shown in A.1. Each time you have worked 20 rounds there will be room for 1 more repeat of lace pattern in width on each sleeve."

24.04.2023 - 03:57

DROPS Design answered:

Hi Jennifer, The repeats of A.1 are above each other, so start row 1 above the last row in A.1 and work the same stitches. The new repeats in width will be at the end/beginning of the round. Happy knitting!

24.04.2023 - 06:45

country flag Jennifer Carvalho wrote:

Which, how and where do 1 add the repeat pattern after I am finished with the A1. "Continue this pattern onwards, i.e. the pattern repeats itself as shown in A.1. Each time you have worked 20 rounds there will be room for 1 more repeat of lace pattern in width on each sleeve."

24.04.2023 - 03:55

DROPS Design answered:

Dear Mrs Carvalho, when A.1 is done in height, continue the part framed with a star increasing at the beginning of A.1 as on the right side of A.1, repeat lace pattern and finish diagram as shown on the left side of diagram. Happy knitting!

24.04.2023 - 10:25