Blue Nostalgia Cardigan |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri á ermum. Stærð S – XXXL.
DROPS 199-4 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 10. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 10. hverja lykkju. Í næstu umferð (ranga)er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3 til A.5). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1½-2 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu með ca 9-9-9-8½-8½-8½ cm millibili. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og ermar): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 110-116-120-126-130-136 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3,5 með Sky. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 10-8-8-10-10-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 120-124-128-136-140-144 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 15-16-17-19-20-21 lykkjur (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir 21 lykkjur (= ermi), 2 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 30-32-34-38-40-42 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir 21 lykkjur (= ermi), 2 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, sléttprjón yfir næstu 15-16-17-19-20-21 lykkjurnar og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= framstykki). Nú eru 128-132-136-144-148-152 lykkjur í umferð. Haldið áfram með þetta mynstur. Þ.e.a.s. á ermum er aukið út í hvorri hlið eins og útskýrt er í A.1. Í næstu umferð (ranga) er uppsláttur á ermum prjónaður brugðið (= gat) og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í A.1. Á fram- og bakstykki er aukið út með uppslætti á undan/eftir 2 lykkjur í sléttprjóni (það eiga að vera 2 lykkjur sléttprjón á milli hverra laska útaukningu). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið (= ekki göt) og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu). Nú er aukið út um alls 8 lykkjur í hverri útauknings umferð (= 4 uppslættir + 4 lykkjur fleiri í A.1). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 240-244-248-256-260-264 lykkjur í umferð. Haldið svona áfram með mynstur alveg eins, þ.e.a.s. mynstrið endurtekur sig eins og útskýrt er í A.1. Í hvert skipti sem prjónaðar hafa verið 20 umferðir á hæðina er pláss fyrir 1 mynstureiningu fleiri með gatamynstri á breiddina á hvorri ermi. Þegar aukið hefur verið út alls 24-27-29-32-34-38 sinnum hvoru megin við A.1 eru 312-340-360-392-412-448 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18-20-22-24-25-28 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Prjónið síðan með kantlykkjum að framan í garðaprjóni, sléttprjóni og mynstri eins og áður, en án útaukningar. Þ.e.a.s. yfir 69-75-79-85-89-97 lykkjur í A.1 er prjónað þannig: Prjónið A.2 (= 2 lykkjur), 2-0-2-0-2-1 lykkjur sléttprjón, byrjið á umferð merktri með ör í þinni stærð og prjónið A.3 (= 10 lykkjur), A.4 yfir næstu 40-50-50-60-60-70 lykkjur (= 4-5-5-6-6-7 mynstureiningar með 10 lykkjum), A.5 (= 11 lykkjur), 2-0-2-0-2-1 lykkjur sléttprjón og A.6 (= 2 lykkjur). Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 23-25-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 41-45-49-54-59-65 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 69-75-77-83-83-89 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 82-90-98-108-118-130 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 69-75-77-83-83-89 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), 41-45-49-54-59-65 lykkjur sléttprjón og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 194-210-230-250-274-298 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 10-10-12-12-14-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar lykkjum er fækkað/fjölgað. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA = 4 lykkjur færri. Fækkið lykkjum svona með 3 cm millibili alls 4 sinnum = 178-194-214-234-258-282 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 14 cm frá skiptingu. Nú er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 = 4 lykkjur fleiri. Aukið svona út með 2 cm millibili alls 7 sinnum = 206-222-242-262-286-310 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 30-30-31-31-31-31 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjurnar. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með hringprjón 4. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 69-75-77-83-83-89 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 10-10-12-12-14-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 79-85-89-95-97-103 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar lykkjum er fækkað. Byrjið umferð við prjónamerki. Byrjið í réttri umferð í mynsturteikningu þannig að mynstrið haldið áfram frá berustykki og prjónið þannig: Prjónið 4-2-4-2-3-1 lykkjur sléttprjón, A.3 (= 10 lykkjur), A.4 yfir næstu 50-60-60-70-70-80 lykkjur (= 5-6-6-7-7-8 mynsturteikning 10 lykkjur), A.5 (= 11 lykkjur) og 4-2-4-2-3-1 lykkjur sléttprjón. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3.-3.-3.-2.-2.-2. hverri umferð alls 14-15-15-16-15-16 sinnum = 51-55-59-63-67-71 lykkjur. Þær lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað eru prjónaðar í sléttprjóni, en passið uppá að þegar lykkjum er fækkað í mynstri verður einnig að slá uppá prjóninn. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 21-19-19-17-15-14 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið laust af, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með sokkaprjón 4. Ermin mælist ca 22-20-20-18-16-15 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (50)
Justyna Wikłacz wrote:
Doszłam do dołu tułowia zgodnie z instrukcją i cały dół się wywija. Co mogę z tym zrobić?
30.03.2023 - 16:27DROPS Design answered:
Witaj Justyno, po wykonaniu należy sweter zblokować, czyli namoczyć w letniej wodzie, wycisnąć w ręczniku, rozłożyć na płasko naciągając lekko do właściwych rozmiarów i pozostawić do wyschnięcia. Możesz ułożyć sweter na ręczniku i dół przypiąć szpilkami. To powinno pomóc. Pozdrawiamy!
31.03.2023 - 08:15Marie José Ferrer wrote:
Pourquoi n'y a t'il pas d'explication avec aiguilles droites ?
31.01.2023 - 13:37DROPS Design answered:
Bonjour Mme Ferrer, en Scandinavie, il est fréquent d'utiliser des aiguilles circulaires, pour tricoter en allers et retours (comme par exemple ici l'empiècement et le bas du gilet) ou en rond (comme pour les manches). Découvrez ici comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!
31.01.2023 - 17:37Eva Lindahl wrote:
Jag har stickat kläder i 50 år men aldrig följt ett så krångligt mönster! Efter att ha repat upp stickningen ett tiotal gånger ger jag upp. Garnet får ligga till sig och användas till bågot annat.
22.12.2022 - 08:53Barbara wrote:
Tusen takk for denne flotte oppskriften! Er kommet til bolen nå og så langt har anvisningen vært problemløs. Men følgende setning er litt uklart for meg: "Sett 1 merketråd i hver side, midt i de 10-10-12-12-14-14 maskene som ble lagt opp under hvert erme." Betyr det at jeg setter merke foran og bak de (i mitt tilfelle) 10 ekstramaskene? Under FELLETIPS høres det ut som om det er bare et merke i midten av ekstramaskene. Blir glad hvis dokker kan forlkare dette litt mer :-)
21.07.2022 - 17:22DROPS Design answered:
Hei Barbara, Du setter 1 merke under hvert erme (i midten av de nye maskene) slik at du har 1 merker i hver side av bolen. God fornøyelse!
22.07.2022 - 07:43Aina Egholm wrote:
Det var umulig for meg å få til en fin avslutning med 2 riller på denne jakken , det bare rullet seg, samme hvor løst jeg felte. Så jeg endret til 4 riller, og elastisk avfelling, det ble finere. Kanten fikk da og lik bredde som stolpen nederst.
18.04.2022 - 10:55Eveline wrote:
Ich stricke Cardigan blue nostalgia Habe 128 Maschen. Wenn ich jetzt die Arbeit aufteile, habe ich 2 Maschen übrig. Was mache ich falsch.? 5 Bündchen, 17 VT, 1U , 2 re, 21 Ärm, 2 re, 1 U, 34 Rücken, 1U, 2 re , 21 Ärm, 2 re, 1U, 17 VT, 5 Bündchen. Gibt 126 Maschen und nicht 128. Besten dank für Ihre Hilfe. Freundliche Grüsse Eveline
04.04.2022 - 20:21DROPS Design answered:
Liebe Eveline, so bekomme ich aber 128 M: 5 Bündchen, 17 VT, 2 re, 21 Ärm, 2 re, 34 Rücken, 2 re , 21 Ärm, 2 re, 17 VT, 5 Bündchen= 5+17+2+21+2+34+2+21+2+17+5=128 Maschen (+ die 4 Umschläge + die Zunahmen in A.1 = 136 Maschen). . Viel Spaß beim stricken!
05.04.2022 - 09:29Alice wrote:
Is there a reason that the body and sleeves are divided on a wrong side row? I’ve always seen this done on a right side row in other patterns.
15.11.2021 - 19:19DROPS Design answered:
Dear Alice, on the sleeve you will then work the diagrams starting with a right side row. Happy knitting!
16.11.2021 - 08:47Shellie Achtman wrote:
I am on the first row of the lace sleeve, A.1, of this pattern . According to the diagram there should be 21 stitches. We are coming up with 27 stitches. Please explain what we are doing wrong. Up to this point my stitch count and the pattern stitch count are the same. I really love this sweater so I hope I can understand what needs to be done. If possible, can you please write out the sleeve instructions for me. That might make it easier to follow. Thank you!
08.07.2021 - 21:15DROPS Design answered:
Dear Shellie, we use the diagrams (instead of the written out instructions) because we believe they show not only the very next step, but also how stitches and rows relate to each other en large. Please understand that we cannot provide written out or modified instructions for each individual requests. Since we don't see your knitting it is hard to say, what you are doing wrong, but, for example, it can be, that you do not have to do extra yarnovers at the raglan lines, as for the sleeves they are included in the diagrams. Happy Stitching!
08.07.2021 - 21:45Silje wrote:
Det blir riktig å strikke 7 m glattstrikk før og etter mønsteret, og ikke 2 ettersom maskene som er plukket opp under armen må telles med.
07.07.2021 - 09:18Silje wrote:
Jeg er ferdig med bolen og begynner på ermene, størrelse M. Det stemmer ikke om omg begynner med 2 r og så mønster A3, A4 og A5. Maskene som telles opp blir 75 m og ikke 85, som er riktig maskeantall om man teller med 10 m under ermet.
06.07.2021 - 20:08DROPS Design answered:
Hej Silje, du har 75 masker fra tråden, strikker 1 maske i hver af de 10 under ærmet = 85 masker. Mønsteret skal stemme hvis du strikker 2r+A3=10m+A4=60m+A5=11m+2r God fornøjelse!
14.07.2021 - 10:34