DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Stay Warm

Sett með: Prjónaðri húfu, hálsskjóli og handstúkum með gatamynstri úr DROPS Lima. Stærð S/M – M/L.

DROPS 182-20
DROPS Design: Mynstur li-081
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Í allt settið þarf ca 350 g DROPS Lima.

HÚFA:
Stærð: Ein stærð
Höfuðmál: ca 54/56 cm.

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100 g litur 6235, gráblár

HÁLSSKJÓL:
Stærð: S/M – M/L
Ummál: ca 71-78 cm.
Hæð: ca 34-34 cm.

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-200 g litur 6235, gráblár

HANDSTÚKUR:
Stærð: S/M – M/L
Ummál: ca 18-20 cm.
Lengd: ca 24-26 cm.

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100 g litur 6235, gráblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 28 umferðir með gatamynstri (A.3 og A.5) verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð. 1 mynstureining A.3 og A.5B mælist ca 7 cm á breidd.

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 60 cm) NR 3,5 fyrir stroff - eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð. 1 mynstureining A.7 mælist ca 7 cm á breidd.

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.
Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.5.
Handstúkur: Sjá mynsturteikningu A.6 til A.8.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚRTAKA (jafnt yfir – á við um hálsskjól og handstúkur):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 165 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 16,5. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar til skiptis 15. og 16. hver lykkja og 16. og 17. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um handstúkur – op fyrir þumal):
Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
Í næsta skipti sem aukið er út er það gert þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). ATH: Allaf er aukið út utanverðu við útauknar lykkjur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 112 lykkjur á hringprjón 3,5 með Lima.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 7 mynstureiningar með 16 lykkjum). Þegar stroffið mælist 5 cm prjónið A.2 (= 7 mynstureiningar með 16 lykkjum sem fækka í 14 lykkjur) = 98 lykkjur. Eftir A.2 er skipt yfir á hringprjón 4. Prjónið A.3 hringinn (= 7 mynstureiningar með 14 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ATH: Byrjið umferð 3, 5 og 7 í A.3 með því að prjóna síðustu lykkju frá fyrri umferð og 2 fyrstu lykkjur í þessari umferð brugðið saman (= fyrsta tákn í A.3). Haldið áfram með umferð eftir mynsturteikningu.
Þegar A.3 hefur verið prjónað 2 sinnum á hæðina er A.4 prjónað hringinn alveg eins. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 14 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.
Húfan mælist ca 24 cm ofan frá og niður.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 151-165 lykkjur á hringprjón 3,5 með Lima.
Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-10 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA = 141-155 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið A.5A (= 9 lykkjur), prjónið A.5B þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 9-10 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið A.5C (= 6 lykkjur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 32 cm – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-10 lykkjur jafnt yfir = 151-165 lykkjur. Prjónið 6 umferðir garðaprjón og fellið af með sléttum lykkjum. Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Hálsskjólið mælist ca 34 cm ofan frá og niður.

-------------------------------------------------------

HANDSTÚKURSOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

VINSTRI HANDSTÚKA:
Fitjið upp 52-56 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Lima.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt).
Þegar stroffið mælist 3-4 cm er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 4 lykkjur og fækkið jafnframt um 2-1 lykkju jafnt yfir þessar 4 lykkjur, prjónið fyrstu umferð í A.6 (= 19 lykkjur sem fækka í 17 lykkjur), prjónið sléttar lykkjur yfir þær 29-33 lykkjur sem eftir eru og fækkið jafnframt um 6-7 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA, yfir þessar lykkjur = 42-46 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið næstu umferð þannig: 2-3 lykkjur sléttprjón, prjónið síðustu umferð í A.6 yfir næstu 17 lykkjur og prjónið 23-26 lykkjur sléttprjón.
Prjónið síðan þannig: 2-3 lykkjur sléttprjón, A.7 (= 17 lykkjur), 23-26 lykkjur með sléttprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-11 cm er sett 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við þessa fyrstu lykkju – lesið ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 6. hverri umferð alls 4 sinnum (þ.e.a.s. alltaf er aukið út utanverðu við útauknar lykkjur svo að það verði op fyrir þumal) = 50-54 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur og setjið JAFNFRAMT 9 þumallykkjur á þráð, að auki eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn aftan við þumal = 44-48 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með A.7 hringinn þar til stykkið mælist ca 19-21 cm – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina (nú eru eftir 5 cm til loka – mátið e.t.v. handstúkuna og prjónið að óskuðu máli). Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir 2-3 fyrstu lykkjur og aukið jafnframt út um 2-1 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.8 (= 17 lykkjur sem auknar eru til 19 lykkjur) og prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 23-26 lykkjur og aukið jafnframt út um 6-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 52-56 lykkjur í umferð. Nú er prjónað stroff hringinn (= 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Öll handstúkan mælist ca 24-26 cm.

ÞUMALL:
Setjið til baka 9 þumallykkjur af þræði á sokkaprjón 3 og prjónið upp 7 nýjar lykkjur frá bakhlið á þumli = 16 lykkjur. Prjónið 3 umferðir sléttprjón (passið uppá að þumallinn verði ekki prjónaður of fast). Prjónið síðan stroff hringinn (= 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt) í 3-3½ cm (eða að óskuðu máli). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

HÆGRI HANDSTÚKA:
Fitjið upp 52-56 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Lima. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (byrjið stroffið á 1 lykkju slétt, 3 lykkjur brugðið).
Þegar stroffið mælist 3-4 cm er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 29-33 lykkjur og fækkið jafnframt um 6-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.6 (= 19 lykkjur sem fækka í 17 lykkjur), prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 4 lykkjur og fækkið jafnframt um 2-1 lykkjur jafnt yfir þessar 4 lykkjur = 42-46 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið næstu umferð þannig: 23-26 lykkjur sléttprjón, prjónið síðustu umferð í A.6 yfir næstu 17 lykkjur og prjónið 2-3 lykkjur sléttprjón.
Prjónið síðan þannig: 23-26 lykkjur sléttprjón, A.7 (= 17 lykkjur), 2-3 lykkjur með sléttprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-11 cm er sett 1 prjónamerki í síðustu lykkju í umferð. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við þessa síðustu lykkju – munið eftir ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 6. hverri umferð alls 4 sinnum
(þ.e.a.s. alltaf er aukið út utanverðu við útauknar lykkjur svo það verði op fyrir þumal) = 50-54 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur og setjið JAFNFRAMT 9 þumallykkjur á þráð, að auki eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn aftan við þumal = 44-48 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með A.7 hringinn þar til stykkið mælist ca 19-21 cm – stillið af eftir vinstri handstúku. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir 23-26 fyrstu lykkjur og aukið jafnframt út um 6-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.8 (= 17 lykkjur sem auknar eru til 19 lykkjur) og prjónið sléttar lykkjur yfir 2-3 síðustu lykkjur og aukið jafnframt út um 2-1 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 52-56 lykkjur í umferð. Nú er prjónað stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Öll handstúkan mælist ca 24-26 cm.

ÞUMALL:
Prjónið þumal á sama hátt og á vinstri handstúku.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 15.11.2017
leiðrétting á mynsturtáknum hefur verið gerð
Yfirfarið á vefsvæði: 20.11.2018
Leiðrétting: HÚFA:..ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ATH: Byrjið umferð 3, 5 og 7 í A.3 með því að prjóna síðustu lykkjuna frá fyrri umferð og 2 fyrstu lykkjurnar í þessari umferð brugðnar saman (= fyrsta tákn í A.3). Haldið áfram með umferð eftir mynsturteikningu.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 2 sinnum uppá prjóninn, í næstu umferð er annar uppslátturinn látinn falla niður og hinn er prjónaður
symbols = 2 lykkjur brugðnar saman
symbols = 3 lykkjur brugðnar saman
symbols = takið 1 lykkju laust af prjóninum eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = prjónið 1 lykkju brugðna framan í og aftan í sömu lykkju (= 1 lykkja fleiri)
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Stay Warm

Marta, Poland

Daisy

Anne-Laure, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 182-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Nolinia wrote:

Est ce que pour le snood on est obligé de tricoter avec des aiguilles circulaires ? J'utilise de la laine mohair et pour cette laine j'ai besoin d'utiliser des aiguilles droites.

30.07.2023 - 16:32

DROPS Design answered:

Bonjour Nolinia, vous pouvez probablement tricoter en allers et retours, pensez juste à bien monter 2 mailles en plus pour les coutures. Bon tricot!

31.07.2023 - 11:28

country flag Celine wrote:

Re-bonjour, je viens de comprendre que sur le rang suivant, pour chaque double-jeté, l'un des deux jetés devait être lâché et que c'est pour ça qu'on retournait à 14 mailles! Merci pour votre aide!

13.01.2022 - 18:08

country flag Celine wrote:

Bonjour, Je suis en train de faire le bonnet et je ne comprends pas comment A3 peut rester à 14 mailles: dans chaque motif aux rangs impairs, il y a 3 mailles env ens, ce qui revient à faire -2 mailles, puis deux fois une double-jeté, ce qui revient à faire 2* +2 mailles. Du coup, à chacun de ces rangs impairs on ajoute 2 mailles au total, non? Merci d'avance! PS: j'ai bien compris qu'il fallait faire les 3 mailles ens (rg impair) avec une maille du rang précédent (rg pair).

12.01.2022 - 22:52

DROPS Design answered:

Bonjour Céline, à chaque rang impair, vous diminuez 2 mailles et faites 2 jetés = le nombre de mailles reste le même, soit 14 mailles. Au 3ème et 5ème rang de A.3, tricotez la dernière maille du 2ème/4ème tour avec les 2 premières mailles du premier A.3 du tour et tricotez la dernière maille de chaque A.3 avec les 2 premières mailles du A.3 suivant. Bon tricot!

13.01.2022 - 09:10

country flag Vernier wrote:

Concernant les mitaines, une petite correction : quant au premier rang de A8, après le diagrame, c’est 28 mailles que l’on tricote à l’endroit et non 26. Merci pour vos beaux modèles et vos explications au top. cordialement, Myriam Vernier

25.03.2020 - 14:37

country flag Julie Masse wrote:

Bonjour. Qu'est-ce que cela signifie quand les rangs, comme dans A3 au huitième rang, ne s'aligne pas? Dois-je débuter une maille plus loin?

07.01.2020 - 16:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Masse, les 7 premiers tours de A.3 se tricotaient en commençant par la dernière maille du tour (pour que les 4 diminutions soient alignées les unes au-dessus des autres). À partir du 8ème tour, la 1ère m de A.3 est la 1ère m de chaque motif (et du tour au début), autrement dit la diminution faites aux 4 tours précédents. Bon tricot!

08.01.2020 - 08:12

country flag Danielle wrote:

Bonjour. Je ne comprends pas les explications pour les côtes de la mitaine gauche : (=1maille envers 3/1 maille endroit). Quelqu'un peut-il m'aider ?

07.12.2019 - 18:40

DROPS Design answered:

Bonjour Danielle, oups faute de frappe corrigée, on tricote en côtes 3 mailles envers/1 maille endroit, merci pour votre retour. Bon tricot!

09.12.2019 - 08:48

country flag Ros-Marie wrote:

Ska börja med A4 i mössan, ska jag sticka likadant med första 3 maskorna, som i A3?

05.11.2019 - 19:31

DROPS Design answered:

Hei Ros-Marie. Ja, det skal strikkes på sammen måte (När A.3 har stickats 2 ggr på höjden stickas A.4 runt på samma sätt). God Fornøyelse!

11.11.2019 - 09:51

country flag CHRISTINE wrote:

Merci pour votre réponse ce qui me gène ce sont les 3 m ensembles au début des rangs. Ça ne tombe toujours pas juste pour moi. J'ai vraiment beaucoup de mal à comprendre vos explications. Bonne journée

02.10.2019 - 11:57

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, dès le 1er tour en fait (échantillon à l'appui), vous gardez la dernière maille du tour sur l'aiguille gauche (la dernière m de A.2), puis tricotez le 1er A.3 ainsi: tricotez la dernière m de A.2 et les 2 mailles suivantes ensemble à l'envers (= 3 m ens à l'env), continuez A.3 = vous avez tricoté 14 m, répétez A.3 tout le tour. À la fin du 2ème tour, gardez la dernière maille sur l'aiguille gauche et tricotez la ensemble à l'envers avec les 2 premières m de A.3, terminez A.3 = 14 m, tricotez la dernière m du 1er A.3 avec les 2 premières m du A.3 suivant et ainsi de suite pour ces tours 1, 3, 5 et 7. Bon tricot!

02.10.2019 - 13:48

country flag CHRISTINE wrote:

Vous donnez cette explication mais je je comprends pas le nombre de maille n'est pas bon je n'ai plus 98 mailles ci-dessous l'explication que vous donnez merci DROPS Design 15.11.2018 kl. 14:40: Bonjour Mary, pour tricoter les 3 m ens à l'env au début du tour, vous allez tricoter la dernière m du tour + les 2 premières m du tour suivant pour que ces diminutions soient alignées les unes au-dessus des autres. Bon tricot!

01.10.2019 - 21:47

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, quand vous tricotez A.3, le nombre de mailles doit rester le même pendant les 2 motifs en hauteur jusqu'au début de A.4 (les diminutions se font dans A.4 uniquement). Vous devez donc toujours avoir 14 mailles dans chaque A.3 et ce tout le tour pendant les 2 motifs en hauteur. Tous les 2 rangs, on diminue 2 m par motif et on fait 2 double-jetés (= 1 jeté) = le nombre de mailles doit rester le même. Aux tours 3, 5 et 7, tricotez comme dans la réponse indiquée pour que les A.3 s'alignent. Bon tricot!

02.10.2019 - 08:22

country flag Christine wrote:

Les côtes du bonnet 1/1 ou 2/2 et 5 cm je crois merci cdlt

20.09.2019 - 23:41

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, les côtes du bonnet se tricotent en suivant le diagramme A.1 = on va ainsi tricoter en côtes 3 m envers, 1 m endroit pendant 5 cm. Bon tricot!

23.09.2019 - 08:12