DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Aure

Prjónuð peysa fyrir herra með laskalínu og köðlum. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Karisma eða DROPS Sky.

DROPS 185-9
DROPS Design: Mynstur u-841
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
650-700-800-850-950-1050 g litur 01, natur

Eða notið:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-450-500-600 g litur 01, hvítur

Einnig er hægt að prjóna stykkið með garni frá: "Garnmöguleiki (Garnflokkur B)" – sjá tengil að neðan.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 80 cm) NR 3,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6 (mynsturteikning A.2 og A.6 á einungis við um stærð XL, XXL og XXXL). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og undir ermum):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur, A.1 eins og áður (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt/brugðið og síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í A.1.

LASKALÍNA:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki. Prjónið 2 lykkjur brugðið saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), 2 lykkjur brugðið saman. Endurtakið úrtöku við hvert og eitt prjónamerki (= 8 lykkjur færri í hverri umferð).

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem á að fækka (t.d. 26 lykkjur) og deilið lykkjunum með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 4,3. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar 3. og 4. hver lykkja slétt saman.
Ef auka á út þá er (í þessu dæmi) slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverri lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp. Prjónaðir eru kaðlar á framstykki og perluprjón í hliðum, á bakstykki og á ermum. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. ATH: Stærð XL, XXL og XXXL eru með einum litlum kaðli (= A.2/A.6) fleiri í hvorri hlið en það sem ljósmynd sýnir.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 218-234-254-276-304-328 lykkjur á hringprjón 3,5 með Karisma eða Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= hlið). Prjónið nú stroff eftir mismunandi stærðum þannig:
STÆRÐ S, M og L:
Prjónið (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir fyrstu 24-28-32 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.3a (= 10 lykkjur), A.4a (= 3 lykkjur), A.5a (= 26 lykkjur), A.4a, A.3a, prjónið (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir þær 140-152-168 lykkjur sem eftir eru.
STÆRÐ XL, XXL og XXXL:
Prjónið (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir fyrstu 32-40-44 lykkjur, 2 lykkjur slétt, prjónið A.2a (= 5 lykkjur), A.3a (= 10 lykkjur), A.4a (= 3 lykkjur), A.5a (= 26 lykkjur), A.4a, A.3a, A.6a (= 5 lykkjur), prjónið (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir 180-200-220 lykkjur sem eftir eru.
Haldið svona áfram hringinn og endurtakið 3 fyrstu umferðir í mynsturteikningu þar til stroffið mælist 5 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 26-30-34-34-42-46 lykkjur og fækkið jafnframt 6-6-6-8-8-8 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING, prjónið síðustu umferð í mynsturteikningu yfir næstu 52-52-52-62-62-62 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 26-30-34-34-42-46 lykkjur og fækkið jafnframt um 6-6-6-8-8-8 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð og fækkið jafnframt um 26-26-30-32-32-36 lykkjur jafnt yfir = 198-214-230-248-276-296 lykkjur.

Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú mynstur eftir mismunandi stærðum þannig:
STÆRÐ S, M og L:
(prjónamerki í hlið er hér = byrjun á umferð), prjónið A.1 (= 2 lykkjur) yfir fyrstu 20-24-28 lykkjurnar, A.3b (= 14 lykkjur), A.4b (= 4 lykkjur), A.5b (= 34 lykkjur), A.4b, A.3b, A.1 yfir næstu 20-24-28 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= hin hliðin), prjónið A.1 yfir næstu 88-96-104 lykkjur.
STÆRÐ XL, XXL og XXXL:
(prjónamerki í hlið er hér = byrjun á umferð), prjónið A.1 (= 2 lykkjur) yfir fyrstu 26-34-38 lykkjur, A.2b (= 6 lykkjur), A.3b (= 14 lykkjur), A.4b (= 4 lykkjur), A.5b (= 34 lykkjur), A.4b, A.3b, A.6b (= 6 lykkjur), A.1 yfir næstu 26-34-38 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= hin hliðin), prjónið A.1 yfir næstu 114-126-138 lykkjur.

Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-8-8-9-9-9 cm aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í 8. hverjum cm alls 4 sinnum = 214-230-246-264-292-312 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 36-36-37-37-37-37 cm prjónið eina umferð þar sem felldar eru af 12-12-14-14-16-18 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (= 6-6-7-7-8-9 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið = 190-206-218-236-260-276 lykkjur í umferð. Klippið frá. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 56-60-60-64-64-68 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Karisma eða Sky. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-16-14-16-14-16 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar. Prjónið mynsturteikningu A.1 hringinn. Þegar ermin mælist 5-7-6-11-9-7 cm frá uppfitjunarkanti er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi (= 2 lykkjur fleiri) – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið svona út í 8.-6.-5.-4.-4.-4. hverri umferð alls 14-17-20-21-22-23 sinnum = 70-78-86-90-94-98 lykkjur. Þegar ermin mælist 49-48-47-46-45-45 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) fellið af miðju 12-12-14-14-16-18 lykkjur undir ermi (þ.e.a.s. 6-6-7-7-8-9 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 58-66-72-76-78-80 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi alveg eins.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 306-338-362-388-416-436 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Byrjið í skiptingunni á eftir ermi og á undan búk á bakstykki og prjónið mynstur eins og áður þannig: Prjónið 4-4-4-4-6-8 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (ATH: Þetta er byrjun umferðar), prjónið 76-84-90-100-106-112 lykkjur (= bakstykki), setjið eitt prjónamerki hér, prjónið 66-74-80-84-90-96 lykkjur (= ermi), setjið eitt prjónamerki hér, prjónið 98-106-112-120-130-132 lykkjur (= framstykki), setjið eitt prjónamerki hér, prjónið 66-74-80-84-90-96 lykkjur (= ermi). Haldið áfram með mynstur eins og áður og prjónið 1 umferð slétt hvoru megin við 4 prjónamerki í stykki. Í næstu umferð byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 3-2-0-0-0-0 sinnum og í annarri hverri umferð 20-25-30-32-35-38 sinnum (= alls 23-27-30-32-35-38 umferðir með úrtökum) = 122-122-122-132-136-132 lykkjur. Eftir því sem lykkjum er fækkað fyrir laskalínu og ekki eru nægilega margar lykkjur eftir til þess að prjóna kaðlana á framstykki, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Þegar allar úrtökur hafa verið gerðar mælist stykkið ca 21-23-24-26-28-30 cm. Prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur á bakstykki, prjónið sléttar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru (2 ermar og framstykki) og fækkið jafnframt um 22-22-22-16-16-12 lykkjur jafnt yfir = 100-100-100-116-120-120 lykkjur.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-12-8-8-8 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 108-108-112-124-128-128 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Prjónið stroff ( 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt í sömu lykkju (þ.e.a.s. prjónið 1 lykkju í aftari lykkjuboga og 1 lykkju í fremri lykkjuboga)
symbols = prjónið 2 lykkjur brugðið í sömu lykkju (þ.e.a.s. prjónið 1 lykkju í aftari lykkjuboga og 1 lykkju í fremri lykkjuboga)
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 185-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (51)

country flag Natalia wrote:

Forstår ikke hvordan strikker man raglan. Etter merketrådet "sittet mellom de 2 maskene som strikkes sammen rett" hvor skal merketråden går videre? Mellom hva og hva? I str L så feller jeg i hver annen pinne. I den pinne der det felles ikke hvordan strikker man de vrange på begge sider av den retten i midten?

14.04.2020 - 16:30

DROPS Design answered:

Hei Natalia. Nei, du strikker til det gjenstår 3 masker før merketråden. Så strikkes det 2 masker vrang sammen, deretter strikkes det 2 masker rett (ikke sammen). Merketråden sitter midt mellom disse 2 maskene, strikk 2 masker vrang sammen. God Fornøyelse!

15.04.2020 - 15:53

country flag Catherine wrote:

Dear Sir, I am working on XL., question on yoke. When the piece starts at working 4 stitches on back of body, then it should end 80 stitches (4 stitches on front + 76 stitches on sleeve) instead of 84 stitches for the round. Please clarify. Thank you for your help.

07.04.2020 - 04:46

DROPS Design answered:

Dear Catherine, the first 4 sts on back piece are worked first but will be the last 4 sts on round, then you work 100 sts for back piece (4 sts on back piece remain), the next 84 sts for 1st sleeve = 4 sts from back piece + 76 sts of sleeve + 4 sts from front piece; 120 sts for front piece, and same again for 2nd sleeve: 4 sts from front piece + 76 sts for back piece + the first 4 sts on round -the round ends with 984 sts for sleeve. Happy knitting!

09.04.2020 - 15:16

country flag Gitte wrote:

Hejsa. Kan det passe, at man skal lukke af ærmegab allerede ved 37 cm. På størrelse XXXL? Er det ikke meget kort for herre sweater i den størrelse?? Mvh Gitte

19.02.2020 - 15:05

DROPS Design answered:

Hej Gitte, Sweateren bliver ialt 72 cm hvis du følger opskriften. Vil du have den endnu længre, så lægger du det ekstra til inden du lukker af for ærmegab. God fornøjelse!

20.02.2020 - 08:19

country flag Huguette Tremblay wrote:

Le diagramme A.1 n’apparaît pas dans le patron?? Y-a-t-il une version révisée incluant le diagramme À.1??

07.02.2020 - 04:01

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Tremblay, le diagramme A.1 se trouve juste à côté du schéma des mesures, sous la manche. C'est un petit diagramme sur 2 mailles et 8 rangs (point de blé). Bon tricot!

07.02.2020 - 07:56

country flag BARBARA wrote:

Chodzi o wzór 185-9. Po przerobieniu 5 cm ściągacza mam odpowiednio zamykać oczka wg wzoru. Chodzi o rozmiar XXL. wg mnie jest tam błąd bo jakbym nie liczyła / a zrobiłam to 3 razy /pozostaje po zamknięciu 296 oczek a nie 276.

28.12.2019 - 11:35

DROPS Design answered:

Witaj Basiu! W tym rozmiarze masz na początku 304 o. Przerabiać kolejne okrążenie następująco: przerobić 42 pierwsze oczka na prawo, w tym samym czasie równomiernie zamykając 8 oczek (zostaje 34 o.), przerobić ostatni rząd schematów ponad 62 następnymi oczkami (tam dodajesz 20 o. a w sumie będzie ich 82), przerobić 42 następne oczka na prawo, w tym samym czasie równomiernie zamykając 8 oczek (zostaje 34 o.) i przerobić ostatnich 158 oczek w okrążeniu na prawo, w tym samym czasie równomiernie zamykając 32 oczka (158-32=126) = 276 oczek. Powodzenia!

30.12.2019 - 00:11

country flag Malin Kruska wrote:

Hej. Jag skulle vilja räkna om mönstret till XS. Hur ska jag tänka? Jag kommer använda Dropps Sky.

10.10.2019 - 17:28

DROPS Design answered:

Hej Malin, detta mönster är uträknat efter en stickfasthet på 20 maskor på 10 cm. Om du stickar i DROPS Sky och feks håller en stickfasthet på 21 maskor på 10 cm, så vill tröjan bli mindre. Gør gärna ett stickprov så du ser om det blir för kompakt för din smak. Lycka till :)

11.10.2019 - 07:41

country flag Eva Lindström wrote:

Jag undrar av vilken anledning man har krånglat till resåren så?! Går det inte precis lika bra att sticka 2 räta och 2 aviga i 5 cm, över det antal maskor man ska ha när själva mönstret börjar?! Kan inte se att det skulle spela någon roll... eller är det något jag missat?!

21.08.2019 - 22:31

DROPS Design answered:

Hej. Det är för att resåren ska passa med flätorna sen (så att de räta maskorna i resåren sedan fortsätter upp i flätorna) som mönstret är skrivet så. Mvh DROPS Design

22.08.2019 - 08:23

country flag Lise wrote:

Ignorer mitt siste spm ser nå at det er økninger i vrangbord så da stemmer jo fellingen.. Sånn er det å være nybegynner :P

08.05.2019 - 09:57

country flag Lise wrote:

På vrangborden str L skal man legge opp 254 m, mot slutten av VB skal man felle 6 +6+ 30 = 230, men det stemmer jo ikke ? 254 - 42 = 212. Skal det felles så mye på vrangbord siste runden ??

07.05.2019 - 23:42

DROPS Design answered:

hei Lise. Så bra at du fant ut av det selv, god fornøyelse videre.

10.05.2019 - 07:57

country flag Mira wrote:

Hi. Did I just found an error? Chart A3b, row 31 and chart A5b, row 32. Should that triangle face up, not down??? There is not one triangle (6 stitches) facing up...

11.03.2019 - 21:10

DROPS Design answered:

Dear Mira, there was a symbol not used, all cables over 6 sts are worked the same way, diagrams were correct, diagram key has been updated, thank you. Happy knitting!

12.03.2019 - 12:26