DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4730.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Bright Smile

Prjónaður kjóll í garðaprjóni með öldumystri, hringlaga berustykki og tölukanti aftan á baki úr DROPS Cotton Merino. Stærð fyrir börn 3-14 ára.

DROPS Children 28-1
DROPS Design: Mynstur nr cm-008-bn
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 - 13/14 ára
Stærð í cm: 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152 - 158/164

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
200-250-250-300-300-350 g nr 17, vanillugulur
50-50-50-100-100-100 g nr 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð eða 28 lykkjur með öldumynstri verði 10 cm á breidd.
DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 42 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 7-7-7-7-8-8 st
FYLGIHLUTIR: Hvítur silkiborði, ca 10 mm breiður: ca 2 m langur.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4730.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

RENDUR:
Þegar prjónað er eftir A.1 eru prjónaðar rendur þannig:
Skiptið um lit í hvert skipti sem A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina.
1. mynstureining af A.1: vanillugulur
2. mynstureininga af A.1: natur
Endurtakið rendurnar 3 sinnum á hæðina (A.1 er prjónað alls 8 sinnum á hæðina).

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum í hliðum, byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði:
Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti (= miðja að aftan). 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 3/4: 18, 23, 28, 33, 38, 43 og 48 cm
STÆRÐ 5/6: 18, 24, 30, 36, 42, 47 og 53 cm
STÆRÐ 7/8: 22, 28, 34, 40, 46, 52 og 58 cm
STÆRÐ 9/10: 20, 27, 34, 41, 48, 55 og 63 cm
STÆRÐ 11/12: 19, 26, 33, 40, 47, 54, 61 og 68 cm
STÆRÐ 13/14: 18, 26, 34, 42, 50, 58, 65 og 73 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, kantur fyrir tölur er við miðju að aftan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 248-248-265-265-282-299 lykkjur á hringprjón 4 með litnum vanillugulur DROPS Cotton Merino.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu.
Prjónið síðan frá réttu þannig: 5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir næstu 238-238-255-255-272-289 lykkjur (= 14-14-15-15-16-17 mynstureiningar af A.1), endið með 5 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með A.1, garðaprjón og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Kantur með 5 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið er prjónaður í garðaprjóni til loka.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað 8 sinnum á hæðina er prjónað áfram með litnum vanillugulur og sléttprjóni (kantur í garðaprjóni), JAFNFRAMT í fyrstu umferð í sléttprjóni er fækkað um 74-66-75-67-76-85 lykkjur jafnt yfir – ATH! Passið uppá að fækka lykkjum yfir úrtöku í A.1 og ekki yfir lykkjum þar sem slegið er uppá prjóninn í A.1, lykkjum er ekki fækkað yfir kant í garðaprjóni = 174-182-190-198-206-214 lykkjur. Setjið 2 merkiþræði í stykkið, 46-48-50-52-54-56 lykkjur inn frá hvorri hlið (framstykki = 82-86-90-94-98-102 lykkjur). Þegar stykkið mælist 13 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við merkiþræðina (= 4 lykkjur færri) – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 4-5-6-6½-7-7½ cm millibili 6 sinnum til viðbótar = 146-154-162-170-178-186 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-41-45-49-53-57 cm prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* og endið með 5 lykkjur garðaprjón. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig (uppslátturinn er prjónaður brugðið svo það myndist gat): Prjónið 36-38-40-42-44-46 lykkjur eins og áður (= hægra bakstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 62-66-70-74-78-82 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg og prjónið síðustu 36-38-40-42-44-46 lykkjur (= vinstra bakstykki). Geymið stykkið og prjónið kant á ermi.

KANTUR Á ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 44-47-49-52-55-57 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum vanillugulur.
Prjónið A.2 (endið umferð með 0-1-1-0-1-1 lykkjur slétt þegar uppslátturinn er prjónaður), í síðustu umferðinni í mynsturteikningu eru felldar af 6 lykkjur mitt undir ermi = 38-41-43-46-49-51 lykkjur eftir á prjóni.
Geymið stykkið og prjónið hinn kant á ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermakanta á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 210-224-236-250-264-276 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3.
Setjið 9 merkiþræði í stykkið þannig (án þess að prjóna): 1. merkiþráð eftir 21-24-26-25-28-30 lykkjur, síðan eru sett 8 merkiþræðir í stykkið með 21-22-23-25-26-27 lykkja millibili (á eftir síðasta merkiþræði eru 21-24-26-25-28-30 lykkjur eftir). Prjónið garðaprjón yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju vinstra megin við hvern merkiþráð (= 9 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umferð 11-12-13-14-15-16 sinnum til viðbótar, fækkið lykkjum til skiptis hægra og vinstra megin við merkiþræðina (= alls 12-13-14-15-16-17 sinnum) = 102-107-110-115-120-123 lykkjur. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð er prjónað frá réttu þannig: 5 lykkjur garðaprjón, A.2, endið með 0-1-0-1-0-1 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón. Í umferð 8 í A.2 (sjá ör í mynsturteikningu) er fækkað um 18 lykkjur jafnt yfir = 84-89-92-97-102-105 lykkjur. Prjónið til loka A.2. Stykkið mælist ca 50-55-60-65-70-75 cm upp að öxl.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant. Þræðið silkiborða upp og niður í gataumferð á undan berustykki. Tölukantur að aftan er einungis til skrauts, en ef hneppa á kjólnum, verður að klippa silkiborðann í tvennt og festa hvorn enda í hvora hlið í kanti.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = úrtökuumferð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 28-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Elva Borg Meldal wrote:

Góðan daginn, ég er búin með fyrstu umferð af úrtökum og útaukningu (-6+6), frá byrjun til enda og allt stemmdi. Nú í annarri umferð þá er ég með 4 í byrjun og í enda. Hvernig er næsta umferð prjónuð með tilliti til þessara 4. í byrjun og í enda? Bestu kveðjur Elva Borg Meldal

05.04.2024 - 19:15

DROPS Design answered:

Blessuð Elva. Þú ert alltaf með 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið allan tímann = 10 lykkjur. Setur 2 merkiþræði í stykkið og telur ekki kantlykkjur með 46-48-50-52-54-56 lykkjur inn frá hvorri hlið ( framstykki = 82-86-90-94-98-102 lykkjur). Þegar stykkið mælist 13 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við merkiþræðina (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku með 4-5-6-6½-7-7½ cm millibili 6 sinnum til viðbótar = alls 7 sinnum, þetta eru alls 28 lykkjur. Gangi þér vel.

06.04.2024 - 13:25

country flag Damarys wrote:

En este tramo del canesu ( y, AL MISMO TIEMPO, disminuir 1 pt en el lado izquierdo de cada marcapuntos (= 9 pts disminuidos). Repetir las disminuciones a cada 4ª hilera 11-12-13-14-15-16 veces más, disminuir alternadamente en el lado derecho y en el lado izquierdo de los marcapuntos (= 12-13-14-15-16-17 veces en total) = 102-107-110-115-120-123 pts) No entiendo si además de las primeras 11 disminuciones tengo que realizar otras 12. Podría aclarármelo por favor. Gracias.

23.12.2023 - 12:00

DROPS Design answered:

Hola Damarys, quiere decir que has hecho la disminución 1 vez (cuando se ha explicado entera) y luego has repetido 11 veces más. Por lo tanto, en total has disminuido 1 +11 = 12 veces.

28.12.2023 - 19:09

country flag A-S Steffie Östlund wrote:

Hur ska armarna stickas in i mönstret. Får ej till det?

21.04.2022 - 20:50

DROPS Design answered:

Hej, her ser du hvordan du strikker ærmerne ind på samme rundpind, så du får en rundt bærestykke: sæt ærmet ind på samme rundpind

22.04.2022 - 10:13

country flag Tanja wrote:

Ich bin gerade mit den 8 Musterfolgen fertig und hänge bei den ersten Abnahmen fest. Wenn ich über den Bereichen mit Umschlägen nicht abnehmen darf, komme ich auf höchstens 41 möglichen Abnahmen in einer Reihe. Zwischen den einzelnen Mustern kann ich gerade mal aus 6 Maschen 3 Maschen machen und an jeweiligen Ende nochmal 2 Maschen. Das macht bei 14 Musterfolgen 13x 3 Maschen + 2 Maschen = 41 Maschen. Wie soll ich auf 74 Abnahmen kommen? Danke schon jetzt für eine Antwort.

01.05.2021 - 10:44

DROPS Design answered:

Liebe Tanja, stricken Sie 2 M re zs über die Abanhmen von A.1 (nicht über die mittleren Maschen, wo es die Umschläge gibt), z.B. können Sie 5 Maschen in je 10 Rapporte von A.1 und 6 Maschen in je 4 Rapporte von A.1 abnehmen = 5 + (17-5 x 10) + (17-6 x4) + 5) = 174 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

03.05.2021 - 10:02

country flag Anja wrote:

Hallo! Meine Frage ist eigentlich eine allgemeine. Sind die Maßangaben bei den Schemazeichnungen in cm? Und sind diese einfach genommen? Die Angabe "40" bei der Brust bedeutet die, 40 cm flach - also 80 cm umfang?

06.02.2021 - 21:59

DROPS Design answered:

Liebe Anja, alle Maßangaben in der Skizze sind in cm und flach gemessen - hier lesen Sie mehr über die Maßskizze. Viel Spaß beim stricken!

08.02.2021 - 08:53

country flag Letizia wrote:

Salve, nella parte davanti e dietro dopo il motivo a onde nel primo ferro a maglia rasata bisogna diminuire in modo uniforme 74 maglie , facendo attenzione a non diminuire dove ci sono i gettati. Io non riesco a diminuire in modo uguale solo su un ferro. Posso farlo su più Ferri?

21.01.2021 - 07:52

DROPS Design answered:

Buonasera Letizia, può provare a diminuire sulle diminuzioni di A.1. Buon lavoro!

21.01.2021 - 20:16

country flag Sonia Graff wrote:

Bonjour,empiecement:une maille à gauche de chaque marqueur,soit 9 diminutions , 15 fois au total ,alternativement à droite et à gauche des marqueurs tous les 4 rangs . est ce à dire 1er rang une diminution à gauche du marqueur puis ,4em rang une diminution à droite du marqueur ou sur le meme rang diminuer 1 fois à gauche au premier marqueur et une fois à droite du marqueur suivant et cela tous les quatre rangs merci

29.07.2020 - 13:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Graff, on diminue 9 mailles à chaque tour de diminutions, autrement dit la 1ère fois, on diminue à gauche de chaque marqueur (=après chaque marqueur), la fois suivante à droite (= avant chaque marqueur) et on continue ainsi. Bon tricot!

29.07.2020 - 17:07

country flag Nanna Tamara Jensen wrote:

Jeg vil så gerne strikke denne , men kan simpelthen ikke regne opskriften ud. Strikkes underdelen slet ikke rundt på rundpinden og kun frem og tilbage? Er der så knapper bagpå hele vejen nedefra og op? Kunne virkelig godt bruge et billede eller en tegning af hvordan det skal fungere...på forhånd tak

21.05.2020 - 21:42

DROPS Design answered:

Hej Nanna, Ja det stemmer, du strikker den frem og tilbage og knappekanten er midt bagpå :)

22.05.2020 - 14:38

country flag Tracie wrote:

Sorry me again looking at my knitting I only have 3 stitches on each end of A1 I didn't have any problems with pattern so I'm sure I've knitted the pattern correctly is there a way I could send a photo

17.02.2020 - 13:14

DROPS Design answered:

Dear Tracie, when you have to decrease 75 sts evenly you should work all stitches in stocking stitch, and you are supposed to have 255 sts (3rd size) (=17 sts in each A.1 worked previously), then decrease 75 sts evenly - try to decrease over the K2 tog from the previous A.1 rather than over the yarn overs made - or simply read here and displace the K2tog that should be worked over yarn overs so that they are worked over the decreases from the previous A.1. Happy knitting!

17.02.2020 - 13:25

country flag Tracie wrote:

Thank you for the speedy reply, I'm afraid I'm sill confused as I only have 6 stitches I can use for decreasing in one repeat how can I reduce 5

17.02.2020 - 11:55

DROPS Design answered:

Dear Tracie there are 6 stitches at the end of A.1 + 6 sts at the beg of next A.1 = 12 stitches - you will have to decrease over these 12 stitches (where you worked K2 tog x 6). Happy knitting!

17.02.2020 - 12:57