Highland Heather |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll úr DROPS Karisma með marglitu mynstri, laskalínu og snúru með skúfum í mitti, prjónaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 172-5 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5 – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð! Allar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. MYNSTUR LEIÐBEININGAR: Í stærð M, L og XL er þetta umf ein umf í mynstri með 2 litum. Klippið frá mynsturlitinn svo að það verði ekki langt bil undir ermi. Í stærð S, XXL og XXXL er fitjað upp í einni umf með mynsturlit. LASKALÍNA: Aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið fram að 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. ÚTAUKNING-1: Prjónið fram að 2 l á undan prjónamerki á hlið, sláið uppá prjóninn, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l) sláið uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo að ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 192 l) og deilið þessum l með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12 l) = 16. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er slegið 1 sini uppá prjóninn á eftir ca 16. hverri l sem er prjónuð. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN: Prjónuð er upphækkun með sléttprjóni við hnakka við miðju að aftan þannig: ATH: Í hver skipti sem snúið er við mitt í stykki er 1. l tekin óprjónuð, herðið á þræði og prjónið síðan áfram. Prjónið 10-11-12-13-13-14 l, snúið við, herðið á þræði og prjónið 20-22-24-26-26-28 l. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 35-38-41-44-44-47 l, snúið við, herðið á þræði og prjónið 50-54-58-62-62-66 l. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 65-70-75-80-80-85 l, snúið við, herðið á þræði og prjónið 80-86-92-98-98-104 l. Snúið við og prjónið að miðju að aftan. ÚRTAKA: Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki. Prjónið 2 l slétt saman, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða, steypið óprjónuðu l yfir. AFFELLING: Ef affellingakanturinn verðu stífur þá er hægt að fella af með ½ nr grófari prjónum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring ofan frá og niður. Byrjun umf = miðja að aftan. BERUSTYKKI: Fitjið upp 110-115-130-135-145-150 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum ljós perlugrár. Prjónið stroff (2 l sl, 3 l br) í 6 umf. Prjónið síðan 1 umf sléttprjón þar sem auknar eru út 2-5-10-17-19-26 l jafnt yfir = 112-120-140-152-164-176 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu l = miðja að aftan (látið þetta prjónamerki fylgja með í stykkinu). Prjónið síðan UPPHÆKKUN – sjá útskýringu að ofan – í hnakka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið síðan áfram í sléttprjóni, í fyrstu umf eru sett 4 merkiþræðir og 3 prjónamerki til viðbótar (= 4) í stykkið þannig: Prjónið fyrstu 18-19-21-24-27-30 l (= hálft bakstykki), setjið einn merkiþráð, prjónið næstu 11-12-15-15-15-15 l, setjið eitt prjónamerki í síðustu l á hægra prjóni (= miðju-l á ermi), prjónið næstu 10-11-14-14-14-14 l (= ermi), setjið einn merkiþráð, prjónið næstu 18-19-21-24-27-30 l, setjið eitt prjónamerki í síðustu l á hægra prjóni (= miðju-l á framstykki), prjónið næstu 17-18-20-23-26-29 l (= framstykki), setjið einn merkiþráð, prjónið næstu 11-12-15-15-15-15 l, setjið eitt prjónamerki í síðustu l á hægra prjóni (= miðju-l á ermi), prjónið næstu 10-11-14-14-14-14 l (= ermi), setjið einn merkiþráð, prjónið síðustu 17-18-20-23-26-29 l (= hálft bakstykki). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið nú MYNSTUR eftir A.1. ATH: Lykkjan með prjónamerki í á bakstykki, framstykki og á ermum á að passa við l með ör í mynstri. Teljið út frá hlið (þ.e.a.s. mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í skiptingum á milli fram- og bakstykki og ermum). Lykkjan hvoru megin við merkiþræðina (þ.e.a.s. í hverri laskalínurönd) er prjónuð með grunnlit í mynstri. JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 l fleiri í umf). Aukið svona út í annarri hverri umf alls 21-24-25-27-29-32 sinnum = 280-312-340-368-396-432 l. ATH: Nýjar l eru prjónaðar jafnóðum inni í mynstur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð mælist stykkið 22-24-25-26-29-31 cm frá öxl og síðasta umf sem er prjónuð er merkt með ör í A.1. Næsta umf í mynstri heldur áfram þannig: Prjónið fyrstu 39-43-46-51-56-62 l (= hálft bakstykki), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar l undir ermi með grunnlit í mynstri – LESIÐ MYNSTUR LEIÐBEININGAR, setjið næstu 63-71-79-83-87-93 l á þráð (= ermi), prjónið næstu 77-85-91-101-111-123 l (= framstykki), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar l undir ermi í grunnlit í mynstri, setjið næstu 63-71-79-83-87-93 l á þráð (= ermi), prjónið þær 38-42-45-50-55-61 l sem eftir eru í umf (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 170-186-202-222-246-274 l fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í 8-8-10-10-12-14 nýjar l sem fitjaðar voru upp undir ermum. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið síðan áfram með umf sem eftir eru í A.1. ATH: Mynstrið gengur ekki jafnt upp í hvorri hlið. Haldið síðan áfram með milligrár. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Fækkið l svona í 4. hverri umf alls 2 sinnum = 162-178-194-214-238-266 l. Þegar stykkið mælist 7 cm er prjónuð gataumferð þannig: Prjónið 1 l sl, * 2 l sl, 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, 1 l sl. Prjónið 2 umf til viðbótar með litnum milligrár. Prjónið nú mynstur A.2 (= 2 umf). Prjónið síðan með litnum ljós perlugrár þar til stykkið mælist 20 cm í allar stærðir, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í 5.-5.-5.-4.-4.-4. hverri umf alls 6 sinnum = 186-202-218-238-262-290 l. Prjónið 1 umf þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 192-204-228-240-264-300 l. Prjónið A.3 (= 12 l) 16-17-19-20-22-25 sinnum í umf. Í 6. umf í A.3 er aukið út um 12-12-24-24-24-24 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-2 = 204-216-252-264-288-324 l. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með litnum milligrár. Í fyrstu umf með litnum milligrár er aukið út um 12 l jafnt yfir í öllum stærðum = 216-228-264-276-300-336 l. Þegar stykkið mælist 39-40-42-43-43-44 cm prjónið A.4 (= 12 l) 18-19-22-23-25-28 sinnum í umf. Í umf 8 í mynstri er aukið út um 8-12-8-12-20-16 l jafnt yfir = 224-240-272-288-320-352 l. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er skipt yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umf með litnum ljós perlugrár þar sem aukið er út um 31-45-48-47-55-63 l jafnt yfir = 255-285-320-335-375-415 l. Prjónið stroff (2 l sl, 3 l br) í 5 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br – LESIÐ AFFELLING. Stykkið mælist alls 80-83-86-89-92-95 cm frá öxl. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 4. Prjónið upp 1 l í hverja af 8-8-10-10-12-14 l undir ermi = 71-79-89-93-99-107 l. Setjið 1 prjónamerki á milli nýrra lykkja undir ermi (= byrjun umf) og haldið eftir prjónamerki í miðju-l ofan á ermi. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið síðan áfram með mynstur eins og á fram- og bakstykki, þ.e.a.s. í þeim umf sem eftir eru í A.1. Lykkjan með prjónamerki í mitt ofan á ermi á að passa við l með ör í mynstri, mynstrið gengur ekki jafnt upp mitt undir ermi. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með litnum milligrár og A.2 eins og á fram- og bakstykki. ATH: Ekki er prjónuð gataumferð á ermi, prjónið síðan með litnum ljós perlugrár JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki undir ermi. Fækkið lykkjum svona í 8.-6.-5.-5.-4.-3. hverri umf alls 13-16-20-21-23-26 sinnum = 45-47-49-51-53-55 l. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 30-29-28-28-27-25 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) – prjónið A.5. Lykkjan með prjónamerki í mitt ofan á ermi á að passa við l með ör í mynstri. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með A.4 yfir A.5. ATH: Ekki er aukið út í umf með stjörnu! Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með litnum ljós perlugrár til loka. Þegar stykkið mælist 43-42-41-41-40-38 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umf þar sem auknar eru út 5-3-6-4-7-5 l jafnt yfir = 50-50-55-55-60-60 l. Prjónið stroff (2 l sl, 3 l br) í 3 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið hina ermina á sama hátt. TVINNUÐ SNÚRA MEÐ SKÚFUM: Klippið 3 þræði ca 3 metra með litnum kirsuber. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið þá saman tvöfalt og þá koma þeir til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferð í mitti. Gerið skúfa á hvorn enda þannig: Klippið 12 þræði með litnum kirsuber ca 16 cm, þræðið í gegnum hnútinn í enda á snúrunni. Vefjið einn þráð í kringum toppinn á skúfnum nokkrum sinnum og hnýtið síðan þráðinn þannig að skúfurinn haldist saman. Gerið annan skúf á hinn endann á snúrunni með litnum dökk bleikvínrauður. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (52)
Carola Eriksson wrote:
So so Lovely! I will wait for this pattern to be published!!
29.06.2016 - 20:58Marie Breward wrote:
Love, love love this
24.06.2016 - 21:47Anny Sempels wrote:
Dit staat zeker op mijn to-do-list voor de komende maanden. Ik zocht net naar een tuniek/kleedje met fair-isle motieven.
24.06.2016 - 19:03Ramo wrote:
I love this!
20.06.2016 - 03:26Jutta Poetz wrote:
Ein sehr schoenes Modell......koennte mir gut vorstellen, mich darauf zu stuerzen, wenn die Anleitung da ist :)
18.06.2016 - 13:36Lotte Thomsen wrote:
Smuk og super fin farvesammensætning :)
15.06.2016 - 13:28Kristin wrote:
Herlig lang genser / kjole. Flott modell og friske farger!
12.06.2016 - 20:51De Mol Monque wrote:
Mooi kleedje ik denk dat het gebreid is zou je dat ook kunnen haken
12.06.2016 - 08:19Ellis wrote:
Lovely but -again- those holes near the raglan from the decreases, yak, please a solution for this problem. But very nice pattern and colours.
08.06.2016 - 22:02Päivi wrote:
Unusual pattern happy mix of colours
04.06.2016 - 00:33