DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6776.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 173-13
DROPS Design: Mynstur nr u-795
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
550-600-650-700-800-850 g litur nr 52, sinnepsgulur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3,5 fyrir garðaprjón – eða þá stærð sem þarf til að 22 l x 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (hvít) NR 522, 5-5-6-6-6-6 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6776.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Sjá mynstur fyrir rétta stærð.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman (= 1 l færri), 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 1 l færri).

ÚTAUKNING:
Prjónið þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki á hlið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf til að koma í veg fyrir göt.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist
STÆRÐ S: 6, 15, 24, 33 og 42 cm.
STÆRÐ M: 7, 16, 25, 34 og 43 cm.
STÆRÐ L: 6, 14, 22, 30, 38 og 46 cm.
STÆRÐ XL: 7, 15, 23, 31, 39 og 47 cm.
STÆRÐ XXL: 6, 15, 24, 33, 41 og 49 cm.
STÆRÐ XXXL: 8, 17, 26, 34, 42 og 50 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna og saumaðar við stykki í lokin.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 230-238-254-274-302-326 l (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 3,5 með Karisma. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Í næstu umf frá réttu eru sett 2 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 55-57-61-66-73-79 l sléttprjón, setjið 1 prjónamerki (= hægra framstykki), 110-114-122-132-146-158 l sléttprjón (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki, 55-57-61-66-73-79 l sléttprjón, endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni (= vinstra framstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 7 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA! Fækkið l svona með 1½ cm millibili alls 11 sinnum = 186-194-210-230-258-282 l.

Þegar stykkið mælist 25 cm er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * A.1a (= 10-10-11-11-12-13 l), endurtakið A.2a (= 11-11-12-12-13-14 l) alls 3 sinnum á breidd (= 33-33-36-36-39-42 l), 1 l br, 0-4-4-14-20-24 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), 1 l br, endurtakið A.3 (= 11-11-12-12-13-14 l) alls 3 sinnum á breidd (= 33-33-36-36-39-42 l), A.4 (= 10-10-11-11-12-13 l) *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar A.1a til A.4a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 170-178-194-214-242-266 l. Prjónið síðan A.1b til A.4b yfir A.1a til A.4a á hæðina.

Þegar stykkið mælist 27 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2-1½-1½-1½-2-2 cm millibili alls 6-8-9-9-8-8 sinnum = 194-210-230-250-274-298 l. Uppslátturinn er prjónaður snúinn br í næstu umf, það eiga ekki að myndast göt.
Prjónið síðan þessa l í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm fellið af fyrir handveg í næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 48-52-57-61-67-73 l (meðtaldar kantlykkjur að framan = hægra framstykki), fellið af næstu 6-6-6-8-8-8 l (þ.e.a.s. 3-3-3-4-4-4 l hvoru megin við prjónamerkin), prjónið 86-94-104-112-124-136 l (= bakstykki), fellið af næstu 6-6-6-8-8-8 l (þ.e.a.s. 3-3-3-4-4-4 l hvoru megin við prjónamerkin, prjónið næstu 48-52-57-61-67-73 l (meðtaldar kantlykkjur að framan = vinstra framstykki) = 48-52-57-61-67-73 l á hvoru framstykki og 86-94-104-112-124-136 l á bakstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 48-52-57-61-67-73 l. Haldið áfram að prjóna mynstur eins og áður og fella af fyrir handveg í byrjun hverrar umf frá réttu þannig: Fellið af 3 l alls 0-0-0-0-1-1 sinni, 2 l alls 0-2-2-4-4-4 sinnum, síðan 1 l alls 2-2-3-3-2-4 sinnum = 46-46-50-50-54-58 l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 l sl, 1 l br, A.3 alls 3 sinnum á breidd eins og áður, A.4 yfir næstu 9-9-10-10-11-12 l eins og áður og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, stillið af að næsta umf sé frá réttu, skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Í næstu umf frá réttu eru felldar af fyrstu 28-29-31-31-34-38 l fyrir öxl = 18-17-19-19-20-20 l eftir fyrir sjalkraga.
Prjónið stuttar umf yfir þær l sem eftir eru (= fyrir sjalkraga) með byrjun fyrir miðju að framan (1. umf = ranga) þannig: * Prjónið 2 umf fram og til baka yfir fyrstu 11-10-12-12-13-13 l, prjónið 2 umf fram og til baka yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til sjalkraginn mælist 8-8-9-9-10-10 cm þar sem stykkið er styst. Fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið og fellið af eins og vinstra framstykki, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. fellið af fyrir handveg í byrjun umf frá röngu. Prjónið mynstur A.1 í stað A.4 og A.2 í stað A.3. Sjalkraginn byrjar frá réttu.

BAKSTYKKI:
= 86-94-104-112-124-136 l. Haldið áfram að prjóna mynstur eins og áður og fella af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið á stykkið þannig: Fellið af 3 l alls 0-0-0-0-1-1 sinni, 2 l alls 0-2-2-4-4-4 sinnum, síðan 1 l alls 2-2-3-3-2-4 sinnum = 82-82-90-90-98-106 l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 l sléttprjón, 1 l br, endurtakið A.3 alls 3 sinnum á breidd eins og áður, A.4 yfir næstu 9-9-10-10-11-12 l eins og áður, A.1 yfir næstu 9-9-10-10-11-12 l eins og áður, endurtakið A.2 alls 3 sinnum á breidd eins og áður, endið með 1 l br og 1 l sléttprjón. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm fellið af miðju 24-24-26-26-28-28 l = 29-29-32-32-35-39 l á hvorri öxl. Hvor öxl er nú prjónuð til loka hvor fyrir sig. Í næstu umf frá hálsi er fækkað um 1 l = 28-29-31-31-34-38 l eftir á öxl. Haldið áfram að prjóna br yfir br og mynstur, þær mynstureiningar sem ekki ganga jafnt upp eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af. Prjónið hina öxlina alveg eins. Stykkið mælist alls 58-60-62-64-66-68 cm.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 42-44-46-48-50-52 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Karisma. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4. Prjónið sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Þegar stykkið mælist 10-8-6-10-10-7 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki (= 2 l fleiri). Aukið svona út með 2-2-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 17-18-19-20-21-22 sinnum = 76-80-84-88-92-96 l. Þegar stykkið mælist 46-45-44-43-42-41 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 3-3-3-4-4-4 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum og 1 l 6 sinnum, síðan eru felldar af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 53 cm, fellið síðan af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist 54 cm.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið saman kragann við miðju að aftan og saumið saman við hálsmál. Saumið ermar í. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Perrine wrote:

Bonjour, Pour tricoter le diagramme de la partie devant et dos, j'ai tricoté A1a à A4a 1 fois en hauteur (=2 rangs) puis A1b à A4b sur les 8 rangs suivants (taille M). Je ne sais pas s'il faut continuer en répétant uniquement les 8 rangs A1b à A4b pour la suite ou bien est-ce qu'il faut répéter la totalité du diagramme à chaque fois soit a puis B (10 rangs) de A1, A2, A3 et A4 ? Merci de m'aider.

14.07.2021 - 17:19

DROPS Design answered:

Bonjour Perrine, vous devez maintenant uniquement répéter la partie b des diagrammes (dans la partie a, on a diminué des mailles pour préparer les diagrammes b). autrement dit, quand les diagrammes b sont terminés, reprenez au 1er rang de la partie b et répétez ainsi ces 8 rangs. Bon tricot!

15.07.2021 - 09:29

country flag Małgorzata wrote:

Witam sweter jest w rozmiarze XXL i jak przerabiam pierwszy rząd zostaje mi 8 oczek

19.08.2019 - 19:01

DROPS Design answered:

Witaj Małgorzato! Przepraszam za tak późną odpowiedź. Jeśli będziesz w przyszłości miała pytania, proszę zaznacz w formularzu PYTANIE, a nie KOMENTARZ, wtedy odpowiemy w przeciągu 2-3 dni. W rozmiarze XXL masz na początku 302 oczka, w rzędzie w którym umieszczasz markery jest ich tyle samo. Być może w którymś miejscu pomylił ci się rozmiar (dla XXL zawsze bierz przedostatnią cyfrę). A propos, czy już zagłosowałaś na nową kolekcję DROPS Jesień/Zima, zapraszamy serdecznie!

07.06.2020 - 22:24

country flag Małgorzata wrote:

Witam mam problem ze wzorem zostają mi oczka i nie wiem co robie źle

17.08.2019 - 06:34

DROPS Design answered:

Witaj Małgosiu! Jaki rozmiar wykonujesz i w którym miejscu we wzorze się znajdujesz? Dokładniej opisz problem. Pozdrawiamy

19.08.2019 - 16:20

country flag Milada wrote:

Zdravím, děkuji za tento krásný model, mám dotaz: šálový límec se plete na jehlicích č. 3,5 nebo jehlicích č. 4? Děkuji za odpověď.

11.06.2019 - 08:26

DROPS Design answered:

Dobrý den, Milado, šálový límec pleteme na jehlicích č.3,5. Hodně zdaru! Hana

06.12.2019 - 17:26

country flag Marie wrote:

What is the gauge for this sweater??

10.10.2018 - 18:53

DROPS Design answered:

Dear Marie, you'll find the gauge in the Header: 21 sts x 28 rows in stockinette stitch = 4"x4" with needle size 4 mm and 22 sts x 30 rows in stockinette stitch = 4"x4" with needle size 3,5 mm. Happy knitting!

11.10.2018 - 08:52

Mrs J Clemett wrote:

Thank you. Thought the p1 was part of the first set of numbers! Love the yarn, it's lovely to work with.

05.12.2016 - 12:10

country flag Julie Clemett wrote:

The beginning of the lace pattern doesn't seem to add up. I'm making the XL size and I have 60 stitches on each front and 110 for the back. The pattern says to knit 5sts garter, plus 11 for the first lace panel then 3 times 12sts of the second panel then 4sts of purl. That's 56 sts. 2 of those sts are supposed to be past the marker? That's 6sts I'm out. Can you help me please?

03.12.2016 - 22:30

DROPS Design answered:

Dear Mrs Clemett, you are working 5 sts in garter st, A.1a = 11 sts, then work A.1b over the next 36 sts, P1 = 53 sts, ie 7 sts left before marker on the side. Work now 14 sts in stocking st = 7 sts to marker + 7 sts past marker. Happy knitting!

05.12.2016 - 09:17

country flag Lena Pettersson wrote:

Varför rullar sig nederkanten? Har försökt både med storlek 3.5 och 4.0 på stickorna Tacksam för svar. Hälsningar Lena Pettersson

16.11.2016 - 09:54

DROPS Design answered:

Hej Lena. En lille rillekant kan rulle. Du kan enten presse den flad med et strygejern naar du er faerdig (laeg et fugtigt viskestykke imellem) eller du kan strikke flere riller saa kanten bliver lidt "tungere" og ikke ruller saa nemt.

17.11.2016 - 13:39

country flag Sophie Nieuwenhuizen wrote:

Ik kan het patroon vanaf blad 4 niet meer printen. Alles is dan blanco. Ik wil dit patroon graag breien.

07.08.2016 - 20:22

DROPS Design answered:

Deze vraag is al beantwoord, zie onder.

08.08.2016 - 07:53

country flag Sophie Nieuwenhuizen wrote:

Ik kan het patroon vanaf blad 4 niet meer printen. Alles is dan blanco. Ik wil dit patroon graag breien.

07.08.2016 - 09:02

DROPS Design answered:

Ik heb hier getest en kan alle blandzijden printen. Het ligt dus niet aan de website. Wellicht licht het aan de instellingen van uw printer, wij raden u aan daar naar te kijken. Het kan ook zijn dat u niet de laatste versie van uw browser hebt geïnstalleerd. U kunt het ook met een andere browser proberen.

07.08.2016 - 14:12