DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Blue Haze

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með sjalkraga. Stærð S - XXXL

DROPS 233-1
DROPS Design: Mynstur ai-420
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-400-400-450-500-550 g litur 10, þoka

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (á við um v-hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN Á UMFERÐ:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK UMFERÐAR:
Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni (1 lykkja færri).

ÚTAUKNING (á við um ermi):
Sláið 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 lykkjur í hvorri hlið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

-----------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið, bakstykkið og ermar er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka og saumaður saman mitt að framan.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 90-100-108-116-128-140 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Air.
Prjónið stroff þannig – fyrsta umferð er frá réttu: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff fram og til baka í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 10-12-14-14-16-18 lykkjur jafnt yfir = 80-88-94-102-112-122 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið. Fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið:
Fellið af 4 lykkjur 0-0-0-1-1-1 sinni, 3 lykkjur 0-0-1-0-0-0 sinnum, 2 lykkjur 1-2-1-1-2-3 sinnum og 1 lykkju 0-1-1-3-4-6 sinnum = 76-78-82-84-88-90 lykkjur. Prjónið áfram í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm, fellið af miðju 34-34-36-38-38-40 lykkjur fyrir hálsmáli. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 20-21-22-22-24-24 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm.
Fellið af. Prjónið hina öxlina alveg eins.

FRAMSTYKKI.
Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á bakstykki og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm.

Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram!
Nú á að fella af fyrir handvegi eins og á bakstykki, JAFNFRAMT því sem felldar eru af 14 miðjulykkjur í hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig, í fyrstu umferð er fitjuð upp 1 kantlykkja í garðaprjóni þar sem lykkjur voru felldar af fyrir hálsmáli (að miðju að framan).
Sjá ÚRTAKA og fellið af fyrir v-hálsmáli í hverri umferð frá réttu 9-9-10-10-10-11 sinnum, eftir það í 2. hverri umferð frá réttu 3-3-3-4-4-4 sinnum.
Þegar öll affelling / úrtaka hefur verið gerð fyrir handveg og v-hálsmáli eru 20-21-22-22-24-24 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 46-46-50-50-54-58 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Air. Prjónið stroff þannig – fyrsta umferð er frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff svona fram og til baka í 6 cm.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 4-2-6-4-6-8 lykkjur jafnt yfir = 42-44-44-46-48-50 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-8-10 cm, aukið út með 1 lykkju innan við 2 lykkjur í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3½-3-2½-2-1½ cm millibili alls 11-12-13-15-16-17 sinnum = 64-68-70-76-80-84 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 52-50-50-49-47-45 cm. Í næstu 2 umferðum eru felldar af 4 lykkjur í byrjun á hverri umferð. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-1-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 1-2-2-2-3-3 sinnum, 1 lykkja 1 sinni. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56 cm í öllum stærðum. Fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist 57 cm í öllum stærðum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið mitt framan í vinstri hlið við lykkjur sem felldar voru af mitt að framan fyrir v-hálsmáli.
Notið hringprjón 4,5 og DROPS Air. Prjónið upp ca 46-48-50-51-54-55 lykkjur innan við 1 kantlykkju upp að öxl, síðan eru prjónaðar upp 36-36-38-40-40-42 lykkjur aftan í hnakka og að lokum ca 46-47-49-51-53-54 lykkjur innan við 1 kantlykkju frá öxl og niður að lykkjum sem felldar voru af mitt að framan = ca 128-131-137-142-147-151 lykkjur – lykkjur eru ekki prjónaðar upp þar sem fellt var af mitt að framan. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 116-124-124-128-136-140 lykkjur.
Síðan er prjónað stroff þannig – fyrsta umferð er frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir og endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til kraginn mælist ca 6 cm. Nú er aukið út um 1 lykkju í hverja af miðju 14 brugðnu einingunum, séð frá réttu (aftan í hnakka) = 130-138-138-142-150-154 lykkjur. Prjónið áfram þar til kraginn mælist 10-11-11-11-12-13 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR-2:
Leggið kragann saman tvöfaldan þannig að vinstri hlið liggi yfir hægri hlið neðst í opi í hálsmáli. Saumið kragann fallega niður að framan, saumið í gegnum bæði lögin.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.10.2022
BAKSTYKKI:...Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið. Fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið:
Fellið af 4 lykkjur 0-0-0-1-1-1 sinni, 3 lykkjur 0-0-1-0-0-0 sinnum, 2 lykkjur 1-2-1-1-2-3 sinnum og 1 lykkju 0-1-1-3-4-6 sinnum = 76-78-82-84-88-90 lykkjur.
Yfirfarið á vefsvæði: 19.10.2022
Leiðrétting: Leiðrétting hefur verið gerð á úrtöku fyrir handvegi/v-hálsmáli.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 233-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Coco wrote:

Hallo, ich komme beim Vorderteil bei den Schultern und dem Abnahmetipp nicht weiter: muss ich zunächst für die Schultern wie beim Rückenteil abketten und dann in der nächsten Reihe mit dem Abnahmetipp beginnen oder findet das gleichzeitig statt? Weil ich ja direkt die mittleren Maschen für den Kragen abkette und dann eine Randmasche aufnehme. Und dann beginne ich ja quasi mit dem Abnahmetipp habe aber in meinem Verständnis dann noch gar nicht alle Maschen für die Ärmel abgekettet.

19.04.2024 - 22:05

DROPS Design answered:

Liebe Coco, wenn die Arbeit 42-43-44-45-46-47 cm misst, dann ketten Sie für die Armausschnitt genauso wie beim Rückenteil ab, gleichzeitig bei der nächsten Hin-Reihe ketten Sie die mittleren 14 Maschen ab und stricken beide Schulter separat weiter. Bei der 1. Reihe bei der Schulter schlagen Sie 1 Randmasche für den Halsausschnitt an (Ende einer Rückreihe beim rechten Schulter/Anfang einer Hinreihe beim linken Schulter), dann nehmen Sie beidseitig für den Hals - siehe ABNAHMETIPP ab und ketten Sie für den Armausschnitt ab, wie beim Rückenteil. Viel Spaß beim Stricken!

22.04.2024 - 07:46

country flag Jytte Pettersson wrote:

Under opskriften under forstykket skriver I : nu skal der lukkes af til ærmegab på bagstykket - I mener vel forstykket, for aflukningen af bagstykket er jo beskrevet. Det må være en skrivefejl?

16.12.2023 - 07:26

DROPS Design answered:

Hei Jytte. Her manglet det et ord: SOM. Slik skal det stå: ...Nu skal der lukkes af til ærmegab som på bagstykket, SAMTIDIG lukkes.... mvh DROPS Design

18.12.2023 - 08:53

country flag Maria Luisa wrote:

No entiendo lo de aumentar un punto en el resorte del escote por la espalda 14 veces ya que se notara que ya no es 2dx2r sino 2dx3r no?

15.11.2023 - 18:32

DROPS Design answered:

Hola Maria Luisa, sí, pasa a ser 2d, 3r. Los reveses son siempre menos visibles por lo que no se nota tanto que se aumente 1 revés. Pero este aumento es necesario para la forma del cuello y se hacen sobre las 14 secciones centrales en la espalda, 7 a cada lado del centro.

26.11.2023 - 23:52

country flag Agnieszka wrote:

Czy górny wymiar od końca do końca ramienia jest prawidłowy? W przypadku rozmiaru S napisano 47 cm. Jak to możliwe skoro zaczęcie swetra jest 49 cm a podkroje pod pachy po 5 cm. I jeszcze moja druga uwaga te opisy wykonania są bardzo trudne do zrozumienia. Tłumacz chyba zupełnie nie związany z branżą. Proszę o informację odnośnie wymiaru

13.09.2023 - 08:58

DROPS Design answered:

Witaj, wymiary na rysunku są prawidłowe. Te 5 cm jest to długość główki rękawa, nie ma nic wspólnego z szerokością na górze tyłu/przodu). W pierwszym rozmiarze zamykamy tylko po 2 oczka z każdej strony na podkroje rękawów, czyli zostaje 76 oczek na drucie i szerokość na górze tyłu (47 cm) zgadza się. Pozdrawiamy!

13.09.2023 - 10:05

country flag Rebecca Westveer wrote:

For size L, the cast on st count seems off. Should I cast on 108 plus 2 for the edge st? 108 divides evenly by 4 for the ribbing, but adding the edge st on either side throws that count off and would result in uneven ribbing, I would think.

13.02.2023 - 17:22

DROPS Design answered:

Dear Rebecca, in our patterns we always give the total number of stitches, i.e. including edge stitches. So there is no need to add it and you will cast on 108 sts total. Happy knitting!

13.02.2023 - 18:32

country flag VC wrote:

Thank you for your answer! Just one more question. With sleeves - when casting off the first 4 stitches (“Work until the sleeve measures 52-50-50-49-47-45 cm. Cast off 4 stitches at the beginning of the next 2 rows”) is this done once on the R and once on the W (8 stitches casted off) side or twice - R W R W (16 stitches casted off)? Thank you!

06.02.2023 - 17:39

country flag VC wrote:

Hello. I am not sure how the collar looks at the back and I am confused with the instructions - if I add a stitch on each of the 14 purls on the back then I cannot continue to keep the k2 p2 ribs, since there is an extra stitch in the middle of purls? How should it be done? K2 p3? Also the instructions are to decrease a stitch at the end (is that on both R and W sides?) for 5 cm, and on the photo it looks as nothing is decreased - just regular square ribs. Thank you very much for your help.

04.02.2023 - 11:48

DROPS Design answered:

Dear VC, yes correct you will work these stitches in rib K2,P3 (K over K and P over P over all new stitches) and continue with rib K2, P2 over remaining stitches on each side. Happy knitting!

06.02.2023 - 15:34

country flag Coco wrote:

Genau, so weit bin ich bekommen, aber wie bekomme ich den Faden jetzt an die zweite Schulter?😅🙈 Vielen Dank für dir Hilfe und die rasche Antwort!:)

13.01.2023 - 09:00

DROPS Design answered:

Liebe Coco, die Maschen der 2. Schulter stricken Sie einfach mit dem Faden von Knäuel stricken - bei diesem Video zeigen wir, wie man eine neue Farbe strickt, aber genauso können Sie einfach stricken. Viel Spaß beim stricken!

13.01.2023 - 09:38

country flag Coco wrote:

Hallo, ich komme hier nicht weiter: Jede Schulter einzeln weiterstricken, dabei 1 Masche am Anfang der nächsten Reihe, die am Halsrand beginnt, abketten = 20-21-22-22-24-24 Maschen für die Schulter übrig. Wie stricke ich die Schultern denn einzeln weiter, ohne dann an einer Schulter ohne Faden dazustehen? Vielen Dank im Voraus.

12.01.2023 - 22:10

DROPS Design answered:

Liebe Coco, wenn Sie die Maschen für den Halsausschnitt abketten, werden Sie dann beide Schulter verteilen, dh zuerst stricken Sie die Maschen von der 1. Schulter (bei der nächste Reihe ab Hals ketten Sie 1 Masche ab = bei einer Hinreihe linke Schulter Rückenteil / Rückreihe rechte Schulter Rückentil) bis zur Ende, dann ketten Sie die Maschen dieser Schulter ab, schneiden Sie den Faden ab und dann stricken Sie die Maschen der 2. Schulter genauso. Viel Spaß beim stricken!

13.01.2023 - 08:44

country flag Angela wrote:

For the front piece, are you supposed to decrease for the armholes and the neck at the same time? Or first the armholes and then the neck?

18.12.2022 - 14:28

DROPS Design answered:

Dear Angela, you work the decreases for the armholes and the neck at the same time. Happy knitting!

18.12.2022 - 18:16