DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Swept Away

Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti, tvöföldum kanti í hálsmáli, köðlum og blöðruermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 221-12
DROPS Design: Mynstur me-219
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
600-650-700-800-850-950 g litur 13, gallabuxnablár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3).
A.1 og A.2 er prjónað á axlarsæti og ermum.
A.3 er prjónað framan og aftan á fram- og bakstykki.
A.4 og A.5 er prjónað í hálsmáli að framan þegar Valmöguleiki-2 er prjónaður.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 32) = 3,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 3. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi ca önnur hver og 3. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti, ermar og berustykki):
FRÁ RÉTTU:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
FRÁ RÖNGU:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI.
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.

ÚTAUKNING-2 (á við um mitt undir ermar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
ÚTSKÝRING Á PEYSU INNIHELDUR 2 VALMÖGULEIKA Á HÁLSMÁLI:
Flíkin á myndinni er prjónuð neðan frá og upp, flíkin í uppskrift er skrifuð ofan frá og niður til að flíkin passi betur við hálsmál/ermar.
VALMÖGULEIKI-1:
Þessi valmöguleiki er með einfaldari hálsmáli en sem er sýnt á mynd af flíkinni.
Byrjað er að prjóna tvöfaldan kant í hálsmáli í hring, síðan er mynstrið prjónað í hring yfir allar lykkjur og aukið er út fyrir axlarsæti (flíkin fær ekkert rúnað hálsmál að framan, heldur kemur til með að verða alveg eins að framan og að aftan).
Þegar útaukningar fyrir axlarsæti hafa verið gerðar til loka, eru lykkjur auknar út fyrir ermar, síðan eru lykkjur auknar út fyrir berustykki.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.
VALMÖGULEIKI-2:
Þessi valmöguleiki er með hálsmáli sem er eins og sýnt er á mynd af flíkinni.
Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka frá miðju að framan, lykkjur eru fitjaðar upp í hvorri hlið við miðju að framan til að forma rúnað hálsmál, jafnframt þar sem mynstrið er prjónað og lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti.
Þegar allar útaukningar fyrir axlarsæti hafa verið gerðar til loka, eru lykkjur auknar út fyrir ermar, síðan eru lykkjur auknar út fyrir berustykki.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.
Þegar flíkin hefur verið prjónuð til loka, eru lykkjur prjónaðar upp í hringum hálsmál og prjónaður er tvöfaldur kantur í hálsmáli.

-------------------------------------------------------

VALMÖGULEIKI-1 – BYRJIÐ HÉR:

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Lesið PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI að ofan.
Fitjið upp 104-108-112-116-120-124 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7 cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 32-36-40-40-40-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 136-144-152-156-160-160 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI – VALMÖGULEIKI-1:
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 49-51-53-54-55-55 lykkjur í umferð (= mitt að framan) – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er einnig gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum er sett á milli 2 lykkja.
Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti og verða að hafa annan lit en prjónamerki að framan til að aðgreina þau.
Fyrsta prjónamerki: Setjið 1. prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð (= hægri öxl að aftan þegar flíkin er mátuð).
Annað prjónamerki: Teljið 30 lykkjur í öllum stærðum frá 1. prjónamerki (= axlarlykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Þriðja prjónamerki: Teljið 38-42-46-48-50-50 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Fjórða prjónamerki: Teljið 30 lykkjur í öllum stærðum frá 3. prjónamerki (= axlarlykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Nú eru 38-42-46-48-50-50 lykkjur eftir í umferð á eftir 4. prjónamerki (= bakstykki).
Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja.
Í næstu umferð byrjar bæði mynstur og útaukning fyrir axlarsæti eins og útskýrt er að neðan. Lestu báða kaflana áður en þú prjónar áfram!

MYNSTUR – VALMÖGULEIKI-1:
Prjónið A.1 yfir 30 axlarlykkjur á milli 1. og 2. prjónamerki og á milli 3. og 4. prjónamerki og prjónið A.3 yfir 38-42-46-48-50-50 lykkjur á framstykki og bakstykki (sjá merkingu í mynsturteikningu fyrir þína stærð). ATH: Jafnóðum sem lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti eins og útskýrt er að neðan, eru útauknar lykkjur prjónaðar á framstykki/bakstykki jafnóðum inn í A.3 þar til pláss er fyrir heila mynstureiningu á breiddina, síðan eru útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni (Í XXL og XXXL eru allar útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni þar sem A.3 byrjar með heilli mynsturteikningu). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
A.1 er endurtekið á hæðina þar til útaukning fyrir axlarsæti hefur verið gerð til loka. A.3 er endurtekið á hæðina að loknu máli.

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI – VALMÖGULEIKI-1:
JAFNFRAMT í sömu umferð og mynstrið byrjar, aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út á UNDAN 3. og 1. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlarlykkja verður sá sami.
Haldið svona áfram hringinn og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 18 sinnum í öllum stærðum = 208-216-224-228-232-232 lykkjur.
Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 7 cm í öllum stærðum – mælt frá prjónamerki framan í hálsmáli. Farðu áfram í ÚTAUKNING FYRIR ERMAR í útskýringu að neðan.

-------------------------------------------------------

VALMÖGULEIKI-2 – BYRJIÐ HÉR:

BERUSTYKKI:
Lesið PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI að ofan.
Fitjið upp 100-104-108-110-112-112 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Merino Extra Fine. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að ofan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti.
Fyrsta prjónamerki: Setjið 1. prjónamerki eftir fyrstu lykkju í umferð (= vinstri hlið í hálsmáli að framan þegar flíkin er mátuð).
Annað prjónamerki: Teljið 30 lykkjur í öllum stærðum frá 1. prjónamerki (= axlarlykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Þriðja prjónamerki: Teljið 38-42-46-48-50-50 lykkjur frá prjónamerki (= bakstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Fjórða prjónamerki: Teljið 30 lykkjur í öllum stærðum frá 3. prjónamerki (= axlarlykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju.
Það er 1 lykkja eftir í umferð á eftir 4. prjónamerki (= hægri hlið í hálsmáli að framan þegar flíkin er mátuð).
Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum.
Í fyrstu umferð byrjar bæði mynstur og útaukning fyrir axlarsæti, að auki eru lykkjur fitjaðar upp í hvorri hlið til að forma hálsmálið! Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram.

MYNSTUR – VALMÖGULEIKI-2:
Prjónið A.4 yfir fyrstu lykkju í umferð (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð), A.1 yfir 30 axlarlykkjur á milli 1. og 2. prjónamerki, prjónið A.3 yfir 38-42-46-48-50-50 lykkjur á bakstykki á milli 2. og 3. prjónamerki (sjá merkingu í mynsturteikningu fyrir þína stærð), prjónið A.1 yfir 30 axlarlykkjur á milli 3. og 4. prjónamerki og prjónið A.5 yfir síðustu lykkju í umferð (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð).
ATH: Jafnóðum sem lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti eins og útskýrt er að neðan, eru útauknar lykkjur prjónaðar á framstykki eins og útskýrt er í A.4 og A.5. Á bakstykki eru útauknar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í A.3 þar til pláss er fyrir heila mynstureiningu á breiddina, síðan eru næstu útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni (í XXL og XXXL eru allar útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni þar sem A.3 byrjar með heila mynstureiningu). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! A.1 er endurtekið á hæðina þar til útaukning fyrir axlarsæti hefur verið prjónuð til loka, A.3 er endurtekið á hæðina að loknu máli. Þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 yfir 50 mynsturlykkjur (mynsturlykkjur í A.4/A.5 og lykkjur sem fitjaðar voru upp mitt að framan) að loknu máli.

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI – VALMÖGULEIKI-2:
Jafnframt í fyrstu umferð (rétta) er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út á UNDAN 3. og 1. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Einungis er aukið út á framstykki og á bakstykki og fjöldi axlarlykkja verður sá sami.
Frá röngu er aukið út á UNDAN 4. og 2. prjónamerki og á EFTIR 3. og 1. prjónamerki.
Haldið svona áfram fram og til baka og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 18 sinnum í öllum stærðum.

HÁLSMÁL – VALMÖGULEIKI-2:
Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir í mynstri, eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið fyrir hálsmál (í fyrsta skipti sem lykkjur eru fitjaðar upp er í lok þriðju umferðar með mynstri = rétta).
Fitjið upp 1 lykkju í lok hverrar umferðar alls 4 sinnum í hvorri hlið, síðan eru fitjaðar upp 2 lykkjur í lok hverrar umferðar alls 3 sinnum í hvorri hlið.
Í lok 17. umferðar (rétta) eru fitjaðar upp 16-20-24-26-28-28 lykkjur (mitt framan í hálsmáli). Ekki snúa stykkinu, heldur prjónið síðustu umferð í A./A.5 (= síðasta útaukning fyrir axlarsæti) hringinn yfir allar lykkjur þannig:
Prjónið síðustu umferð í A.4, aukið út fyrir axlarsæti á undan 1. prjónamerki, prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 30 lykkjur, aukið út fyrir axlarsæti á eftir 2. prjónamerki, prjónið sléttprjón og A.3 eins og áður yfir lykkjur á bakstykki á milli 2. og 3. prjónamerki, aukið út fyrir axlarsæti á undan 3. prjónamerki, prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 30 lykkjur, aukið út fyrir axlarsæti á eftir 4. prjónamerki, prjónið síðustu umferð í A.5, síðan eru sléttar lykkjur prjónaðar yfir 16-20-24-26-28-28 lykkjur sem fitjaðar voru upp mitt að framan. Klippið þráðinn. Nú eru 208-216-224-228-232-232 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 7 cm í öllum stærðum – mælt frá uppfitjunarkanti mitt að aftan. Síðan byrjar umferðin á undan 1. prjónamerki. Farðu áfram í ÚTAUKNING FYRIR ERMAR í útskýringu að neðan.

-------------------------------------------------------

VALMÖGULEIKI-1 OG VALMÖGULEIKI-2 – HÉÐAN ERU BÁÐIR VALMÖGULEIKARNIR PRJÓNAÐIR EFTIR SAMA MYNSTRI.

ÚTAUKNING FYRIR ERMAR:
Prjónið mynstur þannig: Prjónið A.2 á milli 1. og 2. prjónamerki og á milli 3. og 4. prjónamerkis, prjónið A.3 eins og áður yfir mynsturlykkjur á milli 2. og 3. prjónamerki og á milli 4. og 1. prjónamerki (passið uppá að mynstrið haldi áfram í réttri umferð í mynsturteikningu), aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig:
Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-1.
Einungis er aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar eins og útskýrt er í A.2.
Aukið út svona út fyrir ermar í annarri hverri umferð alls 2-2-2-2-2-3 sinnum = 216-224-232-236-240-244 lykkjur.
Stykkið mælist ca 9 cm í öllum stærðum – mælt frá prjónamerki framan í hálsmáli (valmöguleiki-1) / uppfitjunarkantur mitt að aftan (valmöguleiki-2). Síðan er aukið út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING FYRIR BERUSTYKKI:
Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjum sitji í ystu lykkju í hvorri hlið á framstykki og bakstykki (ekki á milli 2 lykkja).
Nú eru 34-34-34-34-34-36 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi.
Í næstu umferð er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverri og einni af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-1.
Nú eru lykkjur auknar út á framstykki, bakstykki og á báðum ermum. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni á framstykki og á bakstykki og í A.2 á báðum ermum þar til A.2 nær yfir 38 lykkjur, síðan eru næstu útauknu lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 13-15-17-21-24-27 sinnum = 320-344-368-404-432-460 lykkjur.
Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 19-21-23-26-28-30 cm – mælt frá prjónamerki framan í hálsmáli (valmöguleiki-1) / uppfitjunarkantur mitt að aftan (valmöguleiki-2).
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
S, M, L og XL: Byrjið umferð 1-1-2-2 lykkjur á undan fyrstu lykkju með prjónamerki í.
XXL: Byrjið umferð á undan fyrstu lykkju með prjónamerki í.
XXXL: Byrjið umferð 1 lykkju á eftir fyrstu lykkju með prjónamerki í.
ALLAR STÆRÐIR:
Setjið síðan fyrstu 64-68-74-82-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 96-104-110-120-132-142 lykkjur eins og áður, setjið næstu 64-68-74-82-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 96-104-110-120-132-142 lykkjur eins og áður. Klippið þráðinn. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 208-224-240-260-284-308 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki - mitt á milli 8-10-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau þegar fækka á lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki.
Byrjið umferð við annað prjónamerkið og haldið áfram hringinn eins og áður með A.3 yfir miðju 50 lykkjur á framstykki og bakstykki og aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri).
Fækkið lykkjum svona með 4 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 196-212-228-248-272-296 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 16-16-16-15-15-15 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroffið.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-10-12-12-14-16 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 206-222-240-260-286-312 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 64-68-74-82-84-88 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-76-84-92-94-100 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar auka á út mitt undir ermi.
Haldið áfram með A.2 hringinn eins og áður yfir miðju 38 lykkjur – aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-2.
Aukið svona út með 3 cm milli bili alls 5-5-4-4-3-3 sinnum = 82-86-92-100-100-106 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 33-31-30-27-26-24 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 9 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Nú er lykkjum fækkað til að stroffið sitji betur.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 36-38-42-46-46-50 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 46-48-50-54-54-56 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 42-40-39-36-35-33 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

-------------------------------------------------------

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI HELDUR ÁFRAM – VALMÖGULEIKI-1:
Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður. En til að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI – VALMÖGULEIKI-2:
Byrjið mitt að aftan og prjónið upp frá réttu ca 136-144-152-156-160-160 lykkjur hringinn á stuttan hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) og fækkið jafnframt lykkjum jafnt yfir til 104-108-112-116-120-124 lykkjur í fyrstu umferð. Þegar stroffið mælist 7 cm, fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður, en til að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = prjónstefna
symbols = útaukning fyrir axlarsæti
symbols = útaukning fyrir ermar
symbols = útaukning fyrir berustykki
symbols = í lok þessarar umferðar (eftir A.5), eru síðustu lykkjurnar fitjaðar upp að framan eins og útskýrt er í uppskrift
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Swept Away

Linn, Sweden

Swept Away

Sabrina, Sweden

Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (44)

country flag Magdalena wrote:

Hej! Jag vill gärna sticka detta mönster (alternativ 2 till halskant) och har läst igenom det flera gånger, men förstår inte hur man skall sticka fram och tillbaka utan att sy någonstans. Har jag missat något? När byter man från att sticka fram och tillbaka till att sticka runt? Tack för svar!

01.04.2024 - 12:04

DROPS Design answered:

Hei Magdalena. Først strikker du frem og tilbake (det strikkes mønster og økninger til sadelskulder), samtidig økes det masker til en halsringning. På slutten av 17.pinne (retten) legges det opp x-antall masker midt foran i halsen. Nå skal arbeidet ikke snus, men det skal strikkes rundt. Du har nå en dypere hals/foran enn nakken/bak, og når du nå skal strikke er det ingen behov for å sy noen steder. mvh DROPS Design

08.04.2024 - 09:05

country flag CuriousKnitter wrote:

Hi, I am currently working on this pattern. I am in love with the design especially the cable design. However, I would like to change the balloon sleeves design to a normal sleeve. How would I go about to changing the sleeve? Do I have to change the sleeve from the shoulder area?

09.02.2024 - 00:16

DROPS Design answered:

Hi, you might take inspiration from another pattern with the same tension and the desired kind of sleeves (including decreases mid under sleeve). Happy knitting!

09.02.2024 - 08:18

country flag Juliette wrote:

Werden in den Rückreihen die weißen Kästchen (im Diagramm) links gestrickt und die schwarzen Kästchen rechts gestrickt? Hinreihe: weißes Kästchen= rechts ,Rückreihe: weißes Kästchen= links? Hinreihe:schwarzes Kästchen =links, Rückreihe: schwarzes Kästchen=rechts?

14.11.2023 - 14:32

DROPS Design answered:

Liebe Juliette, also ja genau, die Diagramme werden entweder in Reihen dann/ oder nur in Runden gestrickt, bei den Rückreihen (Innenseite der Arbeit) stricken Sie genauso wie Sie sie geschrieben haben. Viel Spaß beim stricken!

14.11.2023 - 15:49

country flag Juliette wrote:

Werden in den Rückreihen die linken Maschen rechts gestrickt und die rechten Maschen links gestrickt? LG

13.11.2023 - 09:22

DROPS Design answered:

Liebe Juliette, die Diagramme zeigen alle Reihen, bein den Rückreihen lesen Sie links nach rechts; die glatt rechte Maschen werden links bei den Rückreihen gestrickt, und das 2. Symbol wird rechts bein den Rückreihen gestrickt (links bei den Hin-Reihen/in Runden). Viel Spaß beim stricken!

13.11.2023 - 16:04

country flag Fisen wrote:

Den här är ju inte monteringsfri när det är isydda ärmar... Går inte alls ihop

29.10.2023 - 16:35

country flag Sophie wrote:

Hallo, nur um ganz sicher zu gehen: die Diagramme zeigen nur Hinreihen und in Rückreihen wird links abgestrickt? Variante zwei beginnt mit einer Hinreihe direkt nach dem Anschlagen? Danke!

01.08.2023 - 13:30

DROPS Design answered:

Liebe Sophie, Diagramme zeigen alle Reihen, die Hin- sowie die Rückreihen (hier lesen Sie mehr). Bei Variante 2, beginnen Sie mit einer Hinreihe (mit A.4, A.1, A.3 ...). Viel Spaß beim stricken!

01.08.2023 - 17:52

country flag Alexia wrote:

Pour faire suite à mon précédent commentaire : J'ai lu plusieurs fois l'alternative 1 du patron et il n y a pas A4 et A5. Est-ce normal ? De ce fait, je ne comprends pas très bien les différences entre l'alternative 1 et 2. Je pensais que ce n'était que la construction du col qui changeait... Merci pour vos lumières

31.07.2023 - 13:01

DROPS Design answered:

Bonjour Alexia, A.4 et A.5 sont tricotés uniquement si on choisit l'alternative-2, mais pas pour l'alternative-1 (cf POINT FANTAISIE. L'alternative-1 se tricote en rond dès le début; pour l'alternative 2, on commence en allers et retours puis on monte des mailles pour l'encolure devant tout en augmentant pour les manches marteau. Quand toutes les mailles de l'encolure devant sont terminées, on continue en rond. Bon tricot!

31.07.2023 - 14:16

country flag Alexia wrote:

Bonjour, Au niveau de l'étape : Point fantaisie - Alternative 1, dois-je reproduire A1 autant de fois que nécessaire pour réaliser dans le même temps A3 (tout en faisant mes 18 augmentations sur le dos et le devant) avant de commencer à tricoter A.2 et À.3 (suite patron) ? Je vous remercie pour votre aide. J'ai besoin de tout comprendre avant de me lancer !

31.07.2023 - 09:27

DROPS Design answered:

Bonjour Alexia, on tricote les 30 mailles de A.1 sur les 30 mailles indiquées entre les marqueurs -1 et -2 pour la 1ère épaule et -3 et -4 pour la 2ème épaule. Vous tricotez A.3 sur le nombre de mailles indiquées pour votre taille (38 à 50 en fonction de la taille) et tricotez les augmentations de part et d'autre de ces mailles comme indiqué dans le diagramme, puis tricotez les augmentations suivantes (jusqu'à ce que vous ayez le bon nombre de mailles) en jersey. Bon tricot!

31.07.2023 - 11:44

country flag Sadhana Hardikar wrote:

Hello, I am confused regarding the increase for shoulders on the first row itself. The diagrams A4 & A5 seem to show increases on the second row. Please help as I am not able to start the pattern due to this confusion. Regards

06.07.2023 - 04:31

DROPS Design answered:

Dear Sadhana, there are no increases in the charts. Rather, you are increasing on the shoulders after the stitch in A.4 (before marker 1) and before the stitch in A.5 (after marker 4) on the first row (" increase 4 stitches for the shoulders as follows: From the right side, increase BEFORE markers 3 and 1, and AFTER markers 2 and 4 ") . Because of that, on row 2 of the charts you will work over these newly increased stitches. Happy knitting!

10.07.2023 - 15:32

country flag Ee wrote:

Wanneer er nieuwe steken opgezet zijn voor rechtvoor (maat m) komt dit neer op 28 steken voor a4/a5 en 20 steken in het midden. Dit zijn totaal 66 steken. Ik moet a3 hierover breien, maar deze kent slechts 42 steken? Kan ik een extra aanwijzing krijgen?

15.06.2023 - 17:09

DROPS Design answered:

Dag Ee,

A.3 moet doorlopen op A.4 en A.5, waarbij de kabeltjes van A.4 en A.5 doorlopen in de buitenste kabels van A.3. Als het goed is kom je dan uit met de steken.

18.06.2023 - 19:44