DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lantern River

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og mosaikmynstri í garðaprjóni á berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 217-20
DROPS Design: Mynstur z-896
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-350-350-400-400 g litur 501, ljós grár
50-50-50-50-50-50 g litur 9024, dökk blush
50-50-50-50-50-50 g litur 5565, vínrauður

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 45 umferðir á hæð með garðaprjóni og mosaikmynstri = 10 x 10 cm.
23 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir garðaprjón/sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Öll útauking er gerð frá réttu!
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 107 lykkjur) mínus kantlykkjur (t.d. 2) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 35) = 3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki).
Í næstu umferð prjónið uppsláttinn snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.x og A.2). ATH: Mosaikmynstur (A.x og A.2) hafa eigin útskýringu að neðan.

MOSAIKMYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.x og A.2 og lesið útskýringu fyrir aðferðina að neðan. Hver umferð í A.x og A.2 jafngildir 2 umferðum. Þ.e.a.s. frá réttu er mynsturteikning prjónuð frá hægri til vinstri og frá röngu er SAMA umferð prjónuð frá vinstri til hægri = 2 umferðir garðaprjón.

Í öllum umferðum frá réttu er þræðinum haldið aftan við stykkið (þ.e.a.s. frá röngu á stykki) þegar lykkju er lyft af prjóni.
Í öllum umferðum frá röngu er þræðinum haldið framan við stykkið (að þér og enn frá röngu á stykki) þegar lykkju er lyft af prjóni. Það er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki, látið þá heldur vera aðeins of lausa.

Til að fá betri yfirsýn yfir mynstrið, er hægt að setja prjónamerki á milli hverrar mynstureiningar með A.2.

A.X. = hjálparrúða – þessi rúða er ekki prjónuð, heldur sýnir hvernig mynsturraðirnar eru prjónaðar (lestu síðan útskýringu aðeins neðar).

A.2 = 1 mynstureining.

Í þeim röðum sem eru með einum lit í mynsturteikningu, prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur án þess að lyfta nokkrum lykkjum af prjóni.

Í hverri mynsturröð í A.2 sem er með rúðu með svörtum ferningi í A.x (vínrauður), eiga allar lykkjur með litnum vínrauður í A.2 að prjónast slétt og allar lykkjur með litnum ljós grár er lyft af prjóni eins og útskýrt er að ofan.

Í hverri mynsturröð í A.2 sem er með rúðu með smá striki í A.x (ljós grár), eiga allar lykkjur með litnum ljós grár í A.2 að prjónast slétt og allar lykkjur með litnum vínrauður eða litnum dökk blush að verða lyft laust af prjóni eins og útskýrt er að ofan.

Í hverri mynsturröð í A.2 sem er með rúðu með kross í A.x (dökk blush), eiga allar lykkjur með litnum dökk blush í A.2 að prjónast slétt og allar lykkjur með litnum ljós grár er lyft af prjóni eins og útskýrt er að ofan.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Vegna mosaikmynsturs er kantur í hálsmáli og berustykki prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður (frá hægri öxl að aftan). Mikilvægt er að fylgja mynsturteikningu vel. Allt litamynstrið er prjónað í garðaprjóni, en mynstur er ekki prjónað í venjulegar sléttar lykkjur. Litamynstrið næst fram með því að lyfta lykkjum af prjóni. Lestu allar útskýringar fyrir MOSAIKMYNSTUR áður en þú byrjar að prjóna!
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 107-113-116-119-125-131 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3 með litnum dökk blush. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Skiptið yfir í ljós grár og haldið áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 3 cm.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 35-37-38-43-49-51 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 142-150-154-162-174-182 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni og uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið).
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, innan við kantlykkju. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Byrjið frá réttu og prjónið A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-1 í A.1, aukið út 44-44-48-52-56-64 lykkjur jafnt yfir = 186-194-202-214-230-246 lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið MOSAIKMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan.
Þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni með litnum ljós grár, sjá tákn í A.x (táknin eru einungis útskýring á því hvernig litirnir í röðinni eru prjónaðir – táknin eru ekki prjónuð), prjónið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð (= 46-48-50-53-57-61 mynstureiningar A.2 með 4 lykkjum) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í litnum ljós grár.
Haldið svona áfram með mynstur, en munið eftir 1 umferð í mynsturteikningu jafngildir 2 umferðum garðaprjón, þ.e.a.s. 2 umferðir (1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu).
JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.2, eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING-1.
Ör-2: Aukið út 44-48-52-56-60-64 lykkjur jafnt yfir = 230-242-254-270-290-310 lykkjur (nú er pláss fyrir 57-60-63-67-72-77 mynstureiningar A.2 með 4 lykkjum).
Ör-3: Aukið út 36-48-60-68-72-76 lykkjur jafnt yfir = 266-290-314-338-362-386 lykkjur (nú er pláss fyrir 22-24-26-28-30-32 mynstureiningar A.2 með 12 lykkjum).
Ör-4: Aukið út 40-40-44-52-56-62 lykkjur jafnt yfir = 306-330-358-390-418-448 lykkjur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið afgang af stykki með litnum ljós grár.
Prjónið A.3 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.3 aukið út 24-24-28-36-36-42 lykkjur jafnt yfir = 330-354-386-426-454-490 lykkjur.
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar berustykkið mælist 20-22-24-25-27-29 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Fellið af 1 lykkju (= kantlykkja fyrir saum), setjið lykkju frá hægri prjóni og næstu 67-71-79-87-91-95 lykkjur á þráð fyrir ermi (= 68-72-80-88-92-96 lykkjur), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 96-104-112-124-134-148 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 68-72-80-88-92-96 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 96-104-112-124-134-148 lykkjur sléttprjón (= bakstykki) og fellið af síðustu lykkju (= kantlykkja fyrir saum). Klippið þráðinn frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 204-220-240-264-288-316 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki.
Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 4 sinnum á hæðina = 220-236-256-280-304-332 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 27 cm frá skiptingu í öllum stærðum. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 65-70-74-83-89-97 lykkjur jafnt yfir = 285-306-330-363-393-429 lykkjur ATH: Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjónast, dragi stykkið saman.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 68-72-80-88-92-96 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3,5 – prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 74-78-88-96-102-106 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6-6-8-8-10-10 lykkja = mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 3-3-3-3-2-1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá AFFELLING.
Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 12-13-16-19-21-21 sinnum = 50-52-56-58-60-64 lykkjur eftir.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 38-37-35-35-33-32 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 13-14-16-17-18-20 lykkjur jafnt yfir = 63-66-72-75-78-84 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5½ cm. Skiptið yfir í litinn dökk blush. Prjónið 2 umferðir í stroffi eins og áður. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING!
Ermin mælist ca 44-43-41-41-39-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saum meðfram kanti í hálsmáli og berustykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.

Mynstur

symbols = vínrauður
symbols = dökk blush
symbols = ljós grár
symbols = útauknings umferð
symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = slétt frá röngu
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Merline wrote:

Danke für die schnelle Antwort, aber was ist dann in der 4. Reihe? Wenn ich in der 3. Die erste Masche abgehoben habe, dann ist diese in der 4. ja grau. Wie kann die dann zu rot werden? Ich hab in dem Strickmuster zu der Jacke mit demselben Muster gesehen, dass ich da nicht 202, sondern 203 Maschen auf der Nadel hätte, und man erstmal zwei Maschenn abstrickt, so dass dann die Maschen in derselben Farbe übereinander zu liegen kommen. Müsste das nicht hier auch so sein?

22.03.2024 - 07:51

DROPS Design answered:

Liebe Merline, diese Diagramme zeigen nur die Hin-Reihen die Rückereihen stricken Sie genauch so gleich aber sie werden nur links nach rechts gelesen, so die 1. Reihe mit Farben = 6. Reihe im Diagram (1 M abheben, 1 M mit rot stricken) von (bis) wiederholen; bei der 7. Reihe stricken Sie (1 M mit Rot stricken, 1 M abheben). Lesen Sie MOSAIKMUSTER: am Anfang der Anleitung und schauen Sie dieses Video - beide werden helfen. Viel Spaß beim Stricken!

22.03.2024 - 15:09

country flag Merline wrote:

Ich versteh schon den Anfang von A2 nicht. Wenn ich in der dritten Reihe mit einer grauen Hebemasche anfange, wo kriege ich dann in der vierten Reihe die rote Hebemasche her? Müssten die gleichfarbigen Maschen nicht übereinander liegen?

21.03.2024 - 22:21

DROPS Design answered:

Liebe Merline, die 3. Reihe in A.2 stricken Sie mit rot (siehe A.x und Erklärung unter MOSAIKMUSTER, so stricken Sie: 1 M abheben, 1 M mit rot stricken, 1 M abheben, 1 M mit rot stricken, usw. Viel Spaß beim Stricken!

22.03.2024 - 07:34

country flag Sophie wrote:

Hej Är halsringningen lika djup på fram- och baksidan? Finns det en tydlig fram- och baksida på tröjan?

13.03.2023 - 22:18

DROPS Design answered:

Hej Sophie, nej der er ikke forskel på fram och baksidan på denne model :)

15.03.2023 - 10:25

country flag Bec wrote:

På A2 rad 9. Hvordan er det mulig å ta løst av 3 mørke blush farge og strikke 1 grå? Raden før er jo 3 grå og 1 blush. Da er det vel sånn at rad 9 (x2) skal bare strikkes rett?

21.12.2022 - 18:52

country flag Gina wrote:

Got to this point Cast off 1 stitch (= edge stitch for the seam), place the stitch from the right needle onto thread along with next 79 stitches. Does this mean that I cast off as normal but then when I pull the first stitch over the second I use that as the first stitch on my thread . Just struggling a little

19.09.2022 - 09:45

DROPS Design answered:

Dear Gina, cast off the first stitch (the edge stitch), 1 stitch remain on your right needle, slip this stitch + the next 79 stitches on the round onto a thread (first sleeve) and cast on 8 new stitches (for the side, under the sleeve), then work the back piece, etc. Happy knitting!

19.09.2022 - 11:27

country flag Marion Van Der Burg wrote:

Hallo. Is het mogelijk dit patroon in tricotsteek te breien in plaats van ribbels? \r\nVriendelijk dank.

20.01.2022 - 22:08

country flag Brigitte wrote:

Zouden jullie de teltekening nog een keer goed willen bekijken? Zoals al eerder gemeld in deze rubriek klopt het gewoonweg niet. Dat ben ik niet gewend van Drops patronen.

07.12.2021 - 22:46

country flag Karin wrote:

Hallo,\r\nim Diagramm A2 ist tatsächlich ein Fehler: in der 17. Zeile von unten (entspr. 33. Reihe) wird mit weinrot gestrickt, die 1. Masche darf nicht wie im Diagramm angegeben in grau abgehoben werden, sondern muss in weinrot gestrickt werden, damit dann in der folgenden Rippe (Reihe 35) 2 Maschen in weinrot abgehoben werden können.\r\nich bin noch nicht so weit, aber wahrscheinlich muss das Muster im spiegelbildlichen Abschnitt entspr. geändert werden.

01.11.2021 - 21:00

country flag Antsje Nicolai wrote:

Er staat :brei 1 ribbel heen en weer over alle steken ZONDER steken van de naald af te laten glijden. Hoe doe ik dat .

24.10.2021 - 12:04

DROPS Design answered:

Dag Antsje,

Het staat er inderdaad foutief, er wordt mee bedoeld dat je alle steken moet breien, dus geen steken afhalen, zoals bij het mozaiëkpatroon, zoals uitgelegd in de tekst die daarop volgt. Hopelijk is het zo duidelijk. Ik zal de tekst aanpassen.

26.10.2021 - 10:58

country flag Anke wrote:

Hallo, wie soll ich bei dem Mosaikmuster, Größe M, in Reihe 17 mit grau Stricken und als erstes zwei Maschen rot abheben? Die erste Masche in Reihe 16 ist grau, dann kann ich sie nicht in Reihe 17 mit grauem Faden rot bekommen. In Reihe 18 habe ich das gleiche Problem. Da soll ich mit rotem Faden Stricken und die 7. Masche grau Stricken obwohl sie in der Reihe darunter rot ist. Das verstehe ich nicht.

20.10.2021 - 18:15

DROPS Design answered:

Liebe Anke, die 17. Reihe in M wird mit weinrot (siehe A.x) gestrickt; die Maschen im hellgrau im Diagram sollen abgehoben werden, nur die Maschen im weinrot sollen gestrickt. Die erste M wird abgehoben, dann (1 M stricken, 3 M abheben, 3 M stricken, 3 M abheben, 1 M stricken) von *-* wiederholen. Viel Spaß beim stricken!

21.10.2021 - 07:00