DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lantern River Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og mosaikmynstri í garðaprjóni á berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 217-19
DROPS Design: Mynstur z-897
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-350-350-400-400 g litur 501, ljós grár
50-50-50-50-50-50 g litur 9024, dökk blush
50-50-50-50-50-50 g litur 5565, vínrauður

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 45 umferðir á hæð með garðaprjóni og mosaikmynstri = 10 x 10 cm.
23 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir garðaprjón/sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Mocha NR 623: 6-6-7-7-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

UPPHÆKKUN:
Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Slepptu þessum kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. Byrjið frá réttu með litnum ljós grár og prjónið 12-13-13-14-14-15 sléttar lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-26-26-28-28-30 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 36-39-39-42-42-45 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 48-52-52-56-56-60 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 60-65-65-70-70-75 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 72-78-78-84-84-90 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 84-91-91-98-98-105 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 96-104-104-112-112-120 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina, snúið og prjónið 1 umferð brugðið til baka (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni). Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 107 lykkjur) mínus kantlykkjur (t.d. 2) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 35) = 3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki).
Í næstu umferð (ranga) prjónið uppsláttinn snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.x og A.2). ATH: Mosaikmynstur (A.x og A.2) hafa eigin útskýringu að neðan.

MOSAIKMYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.x og A.2 og lesið útskýringu fyrir aðferðina að neðan. Hver umferð í A.x og A.2 jafngildir 2 umferðum. Þ.e.a.s. frá réttu er mynsturteikning prjónuð frá hægri til vinstri og frá röngu er SAMA umferð prjónuð frá vinstri til hægri = 2 umferðir garðaprjón.

Í öllum umferðum frá réttu er þræðinum haldið aftan við stykkið (þ.e.a.s. frá röngu á stykki) þegar lykkju er lyft af prjóni.
Í öllum umferðum frá röngu er þræðinum haldið framan við stykkið (að þér og enn frá röngu á stykki) þegar lykkju er lyft af prjóni. Það er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki, látið þá heldur vera aðeins of lausa.

Til að fá betri yfirsýn yfir mynstrið, er hægt að setja prjónamerki á milli hverrar mynstureiningar með A.2.

A.X. = hjálparrúða – þessi rúða er ekki prjónuð, heldur sýnir hvernig mynsturraðirnar eru prjónaðar (lestu síðan útskýringu aðeins neðar).
A.2 = 1 mynstureining.

Í þeim röðum sem eru með einum lit í mynsturteikningu, prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur án þess að lyfta nokkrum lykkjum af prjóni.

Í hverri mynsturröð í A.2 sem er með rúðu með svörtum ferningi í A.x (vínrauður), eiga allar lykkjur með litnum vínrauður í A.2 að prjónast slétt og allar lykkjur með litnum ljós grár er lyft af prjóni eins og útskýrt er að ofan.

Í hverri mynsturröð í A.2 sem er með rúðu með smá striki í A.x (ljós grár), eiga allar lykkjur með litnum ljós grár í A.2 að prjónast slétt og allar lykkjur með litnum vínrauður eða litnum dökk blush að verða lyft laust af prjóni eins og útskýrt er að ofan.

Í hverri mynsturröð í A.2 sem er með rúðu með kross í A.x (dökk blush), eiga allar lykkjur með litnum dökk blush í A.2 að prjónast slétt og allar lykkjur með litnum ljós grár er lyft af prjóni eins og útskýrt er að ofan.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Á berustykki er prjónað mosaikmynstur. Það er mikilvægt að fylgja mynsturteikningu vel. Allt litamynstrið er prjónað í garðaprjóni, en mynstur er ekki prjónað í venjulegar sléttar lykkjur. Litamynstrið næst fram með því að lyfta lykkjum af prjóni. Lestu allar útskýringar fyrir MOSAIKMYNSTUR áður en þú byrjar að prjóna!
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Að lokum er prjónaður kantur mitt að framan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 117-123-126-129-135-141 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með litnum dökk blush. Prjónið 1 umferð brugðið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Skiptið yfir í litinn ljós grár og haldið áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 3 cm.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Fellið af 6 fyrstu lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 105-111-114-117-123-129 lykkjur og aukið jafnframt út 35-37-38-43-49-51 lykkjur jafnt yfir þessar 105-111-114-117-123-129 lykkjur – sjá ÚTAUKNING-1 og prjónið stroff eins og áður yfir þær 6 lykkjur sem eftir eru.
Snúið stykkinu, fellið af 6 fyrstu lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo ekki myndist gat) og prjónið brugðnar lykkjur til baka yfir allar lykkjur, en kantlykkjur (ysta lykkja í hvorri hlið á stykki) eru prjónaðar í garðaprjóni og uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat = 142-150-154-162-174-182 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki innan við kantlykkju í byrjun á umferð mitt að framan.
Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef ekki er óskað eftir upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI. Berustykkið er nú mælt frá prjónamerki við hálsmál.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3,5.
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-1 í A.1, aukið út 45-45-49-53-57-65 lykkjur jafnt yfir = 187-195-203-215-231-247 lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið MOSAIKMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan.
Þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni með ljós grár, sjá tákn í A.x (táknin eru einungis útskýring á því hvernig litirnir í röðinni eru prjónaðir – táknin eru ekki prjónuð), prjónið A.2 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 46-48-50-53-57-61 mynstureiningar A.2 með 4 lykkjum), prjónið fyrstu lykkju í A.2 þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins í hvorri hlið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í litnum ljós grár.
Haldið svona áfram með mynstur, en munið eftir 1 umferð í mynsturteikningu jafngildir 2 umferðum garðaprjón, þ.e.a.s. 2 umferðir (1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu).

JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.2, eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING-1.
Ör-2: Aukið út 44-48-52-56-60-64 lykkjur jafnt yfir = 231-243-255-271-291-311 lykkjur (nú er pláss fyrir 57-60-63-67-72-77 mynstureiningar A.2 með 4 lykkjum).
Ör-3: Aukið út 36-48-60-68-72-76 lykkjur jafnt yfir = 267-291-315-339-363-387 311 lykkjur (nú er pláss fyrir 22-24-26-28-30-32 mynstureiningar A.2 með 12 lykkjum).
Ör-4: Aukið út 40-40-44-52-56-62 lykkjur jafnt yfir = 307-331-359-391-419-449 lykkjur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið afgang af stykki með litnum ljós grár.
Prjónið A.3 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.3 aukið út 23-23-27-35-35-41 lykkjur jafnt yfir = 330-354-386-426-454-490 lykkjur.
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar berustykkið mælist 20-22-24-25-27-29 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 49-53-57-63-68-75 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 68-72-80-88-92-96 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 96-104-112-124-134-148 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 68-72-80-88-92-96 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 49-53-57-63-68-75 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 206-222-242-266-290-318 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 52-56-61-67-73-80 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Það eru 102-110-120-132-144-158 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki.
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorir hlið.
Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 4 sinnum á hæðina = 222-238-258-282-306-334 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 27 cm frá skiptingu í öllum stærðum. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 66-71-78-84-90-101 lykkjur jafnt yfir = 288-309-336-366-396-435 lykkjur (lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjónast, dragi stykkið saman).
Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 68-72-80-88-92-96 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3,5 – prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 74-78-88-96-102-106 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6-6-8-8-10-10 lykkja = mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 3-3-3-3-2-1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá AFFELLING.
Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 12-13-16-19-21-21 sinnum = 50-52-56-58-60-64 lykkjur eftir.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 38-37-35-35-33-32 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 13-14-16-17-18-20 lykkjur jafnt yfir = 63-66-72-75-78-84 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5½ cm. Skiptið yfir í litinn dökk blush. Prjónið 2 umferðir í stroffi eins og áður. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING!
Ermin mælist ca 44-43-41-41-39-38 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp frá réttu ca 120 til 140 lykkjur meðfram vinstra framstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á hringprjón 3 með litnum ljós grár. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem lykkjur eru auknar út jafnt yfir til ca 147-153-159-162-168-174 lykkjur (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 3).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2½ til 3 cm (stillið lengdina af eftir lykkjum sem felldar voru af í kanti í hálsi). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið alveg eins og vinstri kantur að framan, en eftir 1 cm er fellt af fyrir 6-6-7-7-8-8 hnappagötum jafnt yfir. Efsta hnappagatið á að vera staðsett í skiptingunni á milli kants í hálsmáli og berustykki og neðsta hnappagatið á að sitja ca 2 til 4 cm frá neðri kanti. Fallegast er að fella af fyrir hnappagötum í brugðinni einingu (séð frá réttu).
1 HNAPPAGAT = prjónið 2 lykkjur brugðið saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat og lykkjurnar ganga upp í stroffi.

FRÁGANGUR:
Saumið kant í hálsmáli við kant að framan efst í hvorri hlið á peysu – saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í kanti að framan. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = vínrauður
symbols = dökk blush
symbols = ljós grár
symbols = útauknings umferð
symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = slétt frá réttu
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Rødø Helene wrote:

Betyr det at mønsterA1 blir 16 omganger?

18.01.2022 - 11:43

DROPS Design answered:

Hei Rødø. Nei, ikke A.1. Mosaikkmønsteret (A.x og A.2) har egen forklaring i oppskriften, les - MOSAIKKMØNSTER. Hver rad i A.x og A.2 tilsvarer 2 pinner. mvh DROPS Design

18.01.2022 - 13:47

country flag Sandrine wrote:

Bonjour. J'ai bien compris le principe pour tricoter le point mosaïque, seulement comment faire le point de lisière en gris clair de chaque côté ? Faut il faire glisser le fil tout le long du rang en même temps que l'on glisse les mailles!? Merci.

10.12.2021 - 01:53

DROPS Design answered:

Bonjour Sandrine, tricotez les mailles lisières avec la couleur du rang indiquée dans A.x, autrement dit, les mailles lisières ne seront pas toujours en gris clair, mais tricotées dans la couleur du rang indiquée par A.2. Bon tricot!

10.12.2021 - 08:46

country flag Sandrine wrote:

Bonjour. L'échantillon se fait il avec l'aiguille circulaire n°3 ou 3,5? Merci.

06.12.2021 - 15:34

DROPS Design answered:

Bonjour Sandrine, l'échantillon se tricote avec l'aiguille circulaire 3,5, celle utilisée pour le point mousse/mosaïque et le jersey. Bon tricot!

07.12.2021 - 06:57

country flag Rodneyhox wrote:

Reduslim uomo Rodneyhox

04.09.2021 - 01:53

country flag Rodneyhox wrote:

Come perdere la pancia Rodneyhox

02.09.2021 - 14:07

country flag Line wrote:

L’etoile dans A1. et A3 veut dire quoi?

30.03.2021 - 03:33

DROPS Design answered:

Bonjour Line, l'etoile signifie 1 maille endroit sur l'envers. Bon tricot!

30.03.2021 - 11:33

country flag Elisabet wrote:

Hej, Det står att alla maskor i rader med enfärgade rutor skall stickas rätstickning fram och tillbaka. Menas det då att de enfärgade rutorna i A1 är två rätstickade rader? Mvh Elisabet

10.03.2021 - 21:17

country flag Lilian wrote:

Het youtube filmpje van mozaiekbreien was heel duidelijk maar ik loop toch vast in het patroon! Ik begrijp dat 1 blokje twee naalden is. Bij patroon A.2 loop ik al meteen vast. Bij de vierde ribbel moet ik beginnen met een roze afhaling ( na de kantsteek) maar er staat een grijze steek op de naald. Ook verder in het patroon kom ik dat tegen. Wat begrijp ik verkeerd?

12.01.2021 - 18:10

DROPS Design answered:

Dag Lilian,

Bij de vierder ribbel staat in A.x een horizontaal streepje en dat betekent dat je alle lichtgrijze steken in A.2 recht moet breien en alle roze steken af moet halen. Hierbij gaat het niet om de roze of grijze steken van de vorige naald, maar van de huidige naald. Omdat bij een roze steek van de huidige naald een grijze steek van de vorige naald op je linker naald staat is dat wat verwarrend. Het klopt dus dat je een grijze steek af moet halen.

17.01.2021 - 12:11

country flag Ansan wrote:

Tack för svar, men det blir inte rätt ändå i diagrammet. Jag valde att sticka vanliga rillepinner och ta bort några varv. Jag har läst beskrivningen noga flera gånger och så även min mamma. Jag har stickat i över 40 och och hon i över 60 och vi har aldrig sett en så konstig beskrivning.

16.12.2020 - 13:59

country flag Ansan wrote:

På varv 9 i diagrammen ( gör L och A.2) går det ju inte lyfta 3 mörk blush när man bara stickat 1 mörk blush på varv 8. Ska man sticka med både ljusgrå och blush? Har stickat i 45 år och har aldrig sett en så dumt konstruerad beskrivning av hur man gör. Rörigt!! Skriv i den ordning man ska göra istället!

06.12.2020 - 00:19

DROPS Design answered:

Hei Ansa. Litt usikker på hvor det blir feil hos deg, men husk at hver rad i A.x og A.2 tilsvarer 2 pinner. Altså 1 rad i diagrammet = 2 pinner (fra retten strikkes diagrammet fra høyre mot venstre, og fra vrangen strikkes SAMME rad fra venstre mot høyre = 1 rille). Husk å lese forklaringen til Mosaikkmønster før det strikkes. mvh DROPS design

16.12.2020 - 12:09