DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6336.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Glacier Waters

Prjónuð peysa með útaukningu á öxl fyrir axlarsæti úr DROPS Lima eða DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 216-9
DROPS Design: Mynstur li-121
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-750 g litur 9018, sægrænn
eða notið:
DROPS SOFT TWEED frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-500-550-600 g litur 10, gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6336.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 8.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um í hlið á fram- og bakstykki og ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður.
Kantur í hálsmáli er prjónaður tvöfaldur og saumaður inn í lokinn. Á berustykki eru auknar út lykkjur fyrir öxl, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermi.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 92-96-100-108-112-116 lykkjur á hringprjón 3,5 með Lima eða Soft Tweed.
Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 8½ cm.
Prjónið 1 umferð slétt á þar sem aukið er út um 12-12-20-20-24-28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 104-108-120-128-136-144 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (þ.e.a.s. mitt að aftan). Látið prjónamerkið sitja í stykkinu.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

BERUSTYKKI:
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar (prjónamerkið er sett á milli lykkja), þannig:
Teljið 18-19-20-22-22-24 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki, teljið 16-16-20-20-24-24 lykkjur (= axlarlykkjur), setjið 2. prjónamerki, teljið 36-38-40-44-44-48 lykkjur (= framstykki), setjið 3. prjónamerki, teljið 16-16-20-20-24-24 lykkjur (= axlarlykkjur), setjið 4. prjónamerki, nú eru 18-19-20-22-22-24 lykkjur eftir síðasta prjónamerki (= hálft bakstykki).

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir öxl þannig:
Aukið út um 1 lykkju á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 (= alls 4 lykkjur fleiri). Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi lykkja á öxl verður sá sami.
Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Aukið svona út í hverri umferð alls 21-21-24-24-26-26 sinnum = 188-192-216-224-240-248 lykkjur.
Stykkið mælist ca 8-8-9-9-10-10 cm frá kanti í hálsmáli.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

ÚTAUKNING Á ERMUM:
Nú er aukið út fyrir ermum þannig:
Aukið út um 1 lykkju á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á UNDAN 2. og 4. prjónamerki (= alls 4 lykkjur fleiri). Einungis er aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami.
Þ.e.a.s. það er aukið út í axlarlykkjurnar.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 17-18-18-17-17-17 sinnum = 256-264-288-292-308-316 lykkjur.
Stykkið mælist ca 21-22-23-22-23-23 cm frá kanti í hálsmáli.
Prjónið e.t.v. áfram í sléttprjóni án útaukningar þar til stykkið mælist 21-22-23-22-23-23 cm.

ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI:
Aukið nú um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki þannig:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. og 3. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á UNDAN prjónamerki, prjónið 1 lykkju, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón og aukið út um 1 lykkju á EFTIR prjónamerki.
Prjónið að 2. og 4. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju á UNDAN prjónamerki, lyftið prjónamerkinu yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju og aukið út um 1 lykkju á EFTIR prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-2 (= alls 8 lykkjur fleiri).
Aukið svona út í annarri hverri umferð 4-5-6-10-11-14 sinnum = 288-304-336-372-396-428 lykkjur.
Þegar öll útaukning hefur verið gerð, mælist stykkið ca 24-26-28-30-32-34 cm frá kanti í hálsmáli.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig:
Prjónið yfir fyrstu 42-45-49-54-59-65 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 60-62-70-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 84-90-98-108-118-130 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-62-70-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og prjónið síðustu 42-45-49-54-59-65 lykkjur (= hálft bakstykki).
Prjónið nú fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 184-200-216-236-260-284 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-10-10-10-12-12 lykkja undir ermi í báðum hliðum. Það á síðar að fækka lykkjum hvoru megin við hvort prjónamerki.
Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri).
Fækkið lykkjum svona með 5 cm millibili alls 4 sinnum = 168-184-200-220-244-268 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 23 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt á meðan aukið er út um 40 lykkjur jafnt yfir = 208-224-240-260-284-308 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 7 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!

ERMI:
Setjið 60-62-70-78-80-84 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á sokkaprjóna 4,5.
Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-10-10-12-12 nýjum lykkjum undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi. Það á síðar að fækka lykkjum hvoru megin við þetta prjónamerki.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – munið eftir ÚRTAKA.
Endurtakið úrtöku með 6-5-3-2-2-1½ cm millibili alls 5-6-9-12-13-14 sinnum = 58-60-62-64-66-68 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 33-32-31-30-29-28 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-16-18-16-18-16 lykkjur jafnt yfir = 76-76-80-80-84-84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður að röngu þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 22.09.2020
Engin leiðrétting, en texti og mynsturteikning hefur verið uppfærður til að gera uppbygginguna fyrir axlarsæti léttara að skilja.

Mynstur

symbols = prjónstefna
symbols = útaukning fyrir axlarsæti
symbols = útaukning fyrir ermar
symbols = útaukning fyrir berustykki
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (42)

country flag Robyn Waymouth wrote:

My son would like me to knit this jumper for him, but I am concerned about one aspect of the design. I doesn't appear to have any shaping that allows for the front neckline to be lower than the back. The photos show a fold below the chin, and several knitters have commented on this in Ravelry. Do you have any patterns that have this type of detail, as I'm not confident enough to try modifying the pattern myself. Thanks, Robyn

24.03.2024 - 09:21

DROPS Design answered:

Dear Robyn, usually what we do is work an elevation for the back of the neck, instead of lowering the front piece. Since it's not a beginner technique we only use them in some patterns and not all of them, so that there are easier beginner friendly patterns and more advanced patterns for each type of knitter. For example, you have the following sweater, which has an elevation at the back, and has saddle shoulders as in this pattern: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=11723&cid=19. If you prefer it, you could also adapt this elevation for the current pattern or work the new pattern but in stocking stitch instead of the knot charts. Happy knitting!

25.03.2024 - 00:27

country flag Carmel wrote:

Thank you, it's working out perfectly, thanks a mill!

01.03.2024 - 09:42

country flag Carmel Hogan wrote:

I'm about to start the sleeve increases on Galcier Waters. Do I make the increases after the first stitch of the shoulder piece and before the last stitch of them. If I increase immediiatelly after marker 1 and 3, and before 2 and 4, the increase is directly beside the increases for the yoke. So I'm not able to figure out how to differentiate between yoke and sleeve increases. Thank you.

29.02.2024 - 19:39

DROPS Design answered:

Dear Carmel, you first work the saddle shoulder increases. Then, after these are finished, start with the sleeve increases, positioned as indicated in the pattern. Then, after finishing the increases for the sleeves, start with the yoke increases. You increase 1 stitch BEFORE markers 1 and 3 for the saddle shoulders and yoke and AFTER markers 1 and 3 for the sleeves. In the case of markers 2 and 4, you increase AFTER these for the saddle shoulders and yoke and BEFORE them for the sleeves. Happy knitting!

29.02.2024 - 22:33

country flag Trish wrote:

Hi i knitted the glacier jumper in soft tweed but when i washed it as per the instructions it ended up really stretched especially the ribbed sections even though i dried it flat, what did i do wrong?

05.02.2024 - 15:09

DROPS Design answered:

Dear Trish, you will find all washing instructions on the label and even more advices on the shadecard, do not hesitate to contact your DROPS Store for any further help & assistance, they will be able to help you even per mail or telephone. Happy knitting!

05.02.2024 - 15:54

country flag Sandra Faber wrote:

Beim Stricken des "Rumpfteiles" steht :" Bei einer Länge von 23 cm ab der Teilung 1 Runde rechts stricken und dabei gleichzeitig 40 Maschen gleichmäßig verteilt zunehmen = 208-224-240-260-284-308 Maschen. Zu Rundnadel Nr. 3,5 wechseln und 7 cm in Runden im Rippenmuster stricken." Das würde ja bedeuten, dass der Pulli vorm Bündchen WEITER wird, kann das denn sein??? Normalerweise ist das Bündchen doch enger, als das Rumpfteil mfg Sandra Faber

03.02.2024 - 21:11

DROPS Design answered:

Liebe Frau Faber, hier wird das Bündchen nicht enger, so wird man zuerst zunehmen dann das Bündchen mit den kleineren Nadeln stricken. Viel Spaß beim stricken!

05.02.2024 - 08:41

country flag Patricia Olivia Fuchs wrote:

Wissen Sie, was total toll wäre? Wenn sie eine schriftliche Anleitung erstellen könnten, wie man einen Pullover mit Sattelschulter selbst berechnen kann. Welche Maße muss man wissen, um selbst berechnen zu können, wie und wo man welche Zunahmen macht? Es gibt dazu nirgends im Netz etwas zu finden. Klar kann man stur der Anleitung folgen, aber es wäre echt schön, wenn man fähig wäre, Modelle die nicht ganz passen, selbst abzuändern. Ist so etwas denn geplant oder bereits vorhanden?

28.02.2023 - 12:13

DROPS Design answered:

Liebe Frau Fuchs, hier finden Sie alle unsere Modellen, die mit Sattelschulter gestrickt werden, es sind dabei verschieden Maschenprobe, Größe (Babies, Kinder, Männer, Frauen) und Schnitte, vielleicht kann es Ihnen weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!

28.02.2023 - 13:31

country flag Rebecka Eriksson wrote:

Hej, jag undrar om rundstickorna ska vara 40 eller 80 cm lång, båda måtten står i beskrivningen. Tack!

28.01.2023 - 20:55

DROPS Design answered:

Hei Rebecka Du trenger begge lengdene, både 40 cm og 80 cm. Du starter med 40 cm og når du har nok masker/økt masker, kan du bytte til 80 cm. mvh DROPS Design

30.01.2023 - 11:59

country flag Ann wrote:

Are sleeve and yoke increases done in Increase Tip-1 or Increase Tip-2?

11.10.2022 - 21:00

DROPS Design answered:

Hi Ann, The yoke and sleeves are increased using the instructions in Increase tip-2. Happy knitting!

12.10.2022 - 07:00

country flag Filip Buczyński wrote:

Hello! Would it be okay if I just use Merino Extra Fine yarn instead of Lima?

31.01.2022 - 15:27

DROPS Design answered:

Hi Filip, yes, it is the same group of yarns. Please check exact amount of yarn nedded using our yarn converter HERE . Happy knitting!

31.01.2022 - 15:48

country flag Sara wrote:

Hello! When do you change from 16" needles to 32" needles? Thank you!

22.01.2022 - 19:20

DROPS Design answered:

Dear Sara, you start working in the round with the shorter needles. When you start feeling uncomfortable when working, due to the high amount of stitches, you change to the longer needles. Happy knitting!

23.01.2022 - 20:37