DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11968.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lake Autumn

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í tveggja lita klukkuprjóni og röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 206-2
DROPS Design: Mynstur sk-053
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-50-50-50-100-100 g litur 05, svartur
100-100-150-150-150-150 g litur 12, gallabuxnablár
50-50-100-100-100-100 g litur 11, hesilhneta
100-100-100-150-150-150 g litur 01, hvítur
100-100-100-100-100-100 g litur 19, múrsteinn

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 42 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------
Litasamsetning sem sýnd er á mynd er (í sömu litaröð sem gefin er upp í efnismagni að ofan):
A) DROPS SKY 05, 17, 06, 01, 07.
B) DROPS SKY 05, 19, 12, 01, 13.
C) DROPS SKY 03, 07, 15, 10, 06.
D) DROPS SKY 08, 07, 14, 02, 18.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11968.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 124 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 31.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 31. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN:

RENDUR:
ATH: (1) er liturinn sem verður sýnilegur sem klukkuprjóns lykkja á réttunni á stykkinu og (2) er liturinn sem liggur aftan við stykkið og verður sýnilegur sem klukkuprjóns lykkja á röngunni á stykkinu. Ef þú ert ekki viss um hvaða lit á að prjóna með í næstu umferð, þá getur þú alltaf séð hvaða lit fyrri umferð var prjónuð með á því sjá litinn á uppslættinum.
UMFERÐ 1:
Prjónið með lit (1).* 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur, takið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-*.
UMFERÐ 2:
Prjónið með lit (2). * 1 uppsláttur, takið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-*.
UMFERÐ 3:
Prjónið með lit (1). * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, 1 uppsláttur, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-*.
Endurtakið umferð 2 og 3.

RENDUR-1:
ATH: (1) er liturinn sem verður sýnilegur sem klukkuprjóns lykkja á réttunni á stykkinu og (2) er liturinn sem liggur aftan við stykkið og verður sýnilegur sem klukkuprjóns lykkja á röngunni á stykkinu.
RÖND 1: 4-4-4-5-5-5 cm með (1) gallabuxnablár og (2) svartur.
RÖND 2: 4-4-4-5-5-5 cm með (1) gallabuxnablár og (2) hesilhneta.
RÖND 3: 2½ cm með (1) gallabuxnablár og (2) hvítur.
RÖND 4: 2½ cm með (1) múrsteinn og (2) hvítur.
RÖND 5: 1½ cm með (1) hvítur og (2) múrsteinn.
RÖND 6: 2½ cm með (1) svartur og (2) múrsteinn.
RÖND 7: 1½ cm með (1) hesilhneta og (2) múrsteinn.
RÖND 8: 4-4-4-5-5-5 cm með (1) hesilhneta og (2) gallabuxnablár.
RÖND 9: 2 ½ cm með (1) hesilhneta og (2) múrsteinn.
RÖND 10: 2 ½ cm með (1) hvítur og (2) múrsteinn.
RÖND 11: 1 ½ cm með (1) múrsteinn og (2) hvítur.
RÖND 12: 2 ½ cm með (1) múrsteinn og (2) svartur.
RÖND 13: 2 ½ cm með (1) múrsteinn og (2) hesilhneta.
RÖND 14: 1 ½ cm með (1) gallabuxnablár og (2) hesilhneta.
RÖND 15: 4-5-5-6-6-7 cm með (1) gallabuxnablár og (2) hvítur.
RÖND 16: Sticka með (1) hvítur og (2) gallabuxnablár til loka (= ca 11-12-14-12-14-15 cm).

RENDUR-2 (á við um ermar):
Haldið áfram með rendur í RENDUR-1 (þannig að rendur á ermum og fram- og bakstykki verði alveg eins) þar til 14.röndin hefur verið prjónuð til loka á hæðina. Prjónið síðan rendur á ermi þannig:
RÖND 15: Prjónið með (1) gallabuxnablár og (2) hvítur þar til ermin mælist 32-31-29-27-26-24 cm frá þar sem berustykkið skiptist fyrir ermar og fram- og bakstykki (nú eru eftir 8 cm á ermi áður en prjóna á 4 cm stroff).
RÖND 16: 4 cm með (1) gallabuxnablár og (2) hesilhneta.
RÖND 17: 4 cm með (1) gallabuxnablár og (2) svartur.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð í 3. umferð í klukkuprjóns mynstri!

ATH: Ef prjónfestan passar ekki á hæðina, verður laska útaukningin of stutt/löng á hæðina. Útaukning fyrir laskalínu er útskýrð í bæði fjölda umferða og cm. Ef prjónfestan passar ekki á hæðina, prjónið útaukningu fyrir laskalínu í cm.

Aukið út þannig:
Prjónið fram að lykkju (+ uppsáttur) á eftir prjónamerki og aukið út 4 lykkjur (= 2 lykkjur hvoru megin við lykkju á eftir prjónamerki) þannig: * Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að steypa lykkjunni og uppslættinum sem var prjónað af prjóninum, sláið 1 sinni uppá hægri prjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar = 5 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri).
Endurtakið í lykkjurnar eftir hverju og einu af prjónamerkjum sem eftir eru í umferð (= 16 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð eru útauknu lykkjurnar prjónaðar inn í klukkuprjóns mynstur – það er enginn uppsláttur í klukkuprjóni í útaukningu, þannig að í næstu umferð í klukkuprjóns mynstri er lykkjan prjónuð sem prjóna á saman við uppsláttinn, án uppsláttar.

ÚRTAKA-1 (á við um ermar):
Úrtakan er gerð í umferð 3 í klukkuprjóns mynstri.
Prjónið miðju 3 lykkjurnar (+ uppslátturinn sem tilheyrir lykkjum) slétt saman = 2 lykkjur færri.

ÚRTAKA-2 (á við um ermar):
Öll úrtaka er gerð í umferð 3 í klukkuprjóns mynstri.
Fækkið lykkjum þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (lykkjan á eftir prjónamerki er miðju lykkjan undir ermi = ein lykkja með sléttri lykkju + uppsláttur sem tilheyrir lykkjunni), steypið yfir næstu 3 lykkjurnar (+ uppslátturinn sem tilheyrir lykkjum) á hægri prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið næstu 2 lykkjurnar (+ uppslátturinn sem tilheyrir lykkjunni) slétt saman, steypið síðan 3 lykkjunum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru slétt saman (= 4 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI.
Fitjið upp 104-108-112-120-124-128 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með svartur. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-0-0-0-4-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 104-108-112-120-128-140 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN og RENDUR-1 – sjá útskýringu að ofan. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir með tveggja lita klukkuprjóni, setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna (öll prjónamerkin eru sett í á undan sléttri lykkju + uppsláttar sem tilheyrir lykkjunni): Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= ca mitt að aftan), hoppið yfir næstu 18-18-20-22-24-26 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér, hoppið yfir næstu 16 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér, hoppið yfir næstu 36-38-40-44-48-54 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér, hoppið yfir næstu 16 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér, nú eru 18-20-20-22-24-28 lykkjur á milli síðasta prjónamerkis og byrjun á umferð.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú er eitt prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykki og erma. Prjónamerkin fylgja með í stykkinu og eiga að fylgja miðju á útauknu lykkjum í hverri laskalínu.
Haldið áfram hringinn með tveggja lita klukkuprjóni og röndum, JAFNFRAMT í næstu umferð (= umferð 3 í klukkuprjóns mynstri) byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í 8. hverri umferð (ca öðrum hverjum cm – sjá LEIÐBEININGAR) alls 10-11-12-13-14-15 sinnum = 264-284-304-328-352-380 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð mælist stykkið ca 20-21-23-25-27-29 cm. Prjónið þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki – endið eftir 2. umferð í tveggja lita klukkuprjóni.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 39-41-45-49-53-57 lykkjurnar (= ca hálft bakstykki), setjið næstu 55-59-63-67-71-75 lykkjurnar á þráð fyrir ermi og fitjið upp 7-7-11-11-11-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 77-83-89-97-105-115 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 55-59-63-67-71-75 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 7-7-11-11-11-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 38-42-44-48-52-58 lykkjur í umferð (= ca hálft bakstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 168-180-200-216-232-260 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram í tveggja lita klukkuprjóni og rendur. Þegar stykkið mælist 30 cm, er fram- og bakstykki lokið. Fellið af með sléttum lykkjum og gallabuxnablár – uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 55-59-63-67-71-75 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum 7-7-11-11-11-15 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 62-66-74-78-82-90 lykkjur. Haldið síðan áfram hringinn með tveggja lita klukkuprjóni og prjónið RENDUR-2. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er sett prjónamerki á undan miðju lykkju mitt undir ermi, þ.e.a.s. á undan sléttri lykkju. Í næsta skipti sem 3. umferð í klukkuprjóni er prjónuð, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-1 = 60-64-72-76-80-88 lykkjur. Eftir úrtöku eiga prjónamerkin að vera áfram staðsett á undan miðju lykkju undir ermi, þ.e.a.s. á undan sléttri lykkju. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 4 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með ca 9-8-5-4-4-3 cm millibili alls 4-4-6-6-7-8 sinnum = 44-48-48-52-52-56 lykkjur. Þegar ermin mælist 40-39-37-35-34-32 cm – stillið af að næsta umferð sé 3. umferð í klukkuprjóns mynstri, skiptið yfir á sokkaprjón 3 og svartur. Næsta umferð er prjónuð þannig: * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, * 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 44-48-48-52-52-56 lykkjur. Prjónið nú stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-43-41-39-38-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (45)

country flag Sisa wrote:

Hallo, ist es möglich, die Halsblende auf 13 cm zu verlängern und dann doppelt zu arbeiten, oder würde das den Sitz des Pullovers verändern?

06.01.2023 - 17:00

DROPS Design answered:

Liebe Sisa, wenn Sie die Halsblende länger stricken, wird es etwas unterschiedlich aussehen, dh mit einer längeren Halsblende (ca doppel länger mit ca 6,5 cm anstatt 3 cm), die Passe sollte aber genauso lang sein (sollte Ihre Maschenprobe in der Höhe auch richtig sein). Viel Spaß beim stricken!

09.01.2023 - 08:36

country flag Eva wrote:

Forstår ikke jeres raglan udtagning. Jeg kan godt se hvordan I tager 4 masker ud i samme maske, men jeg forstår ikke hvor jeg skal sætte min markør bagefter. Lige nu har keg strikket uden at flytte markøren, men det bliver forkert, da man så kun tager ud til en side. I skriver noget med 2 masker på hver side af masken, det forstår jeg ikke. Så har brug for hjælp til at få min raglanærmer pæn og symmetrisk.

02.01.2023 - 06:24

DROPS Design answered:

Hei Eva. Du øker med 4 masker i 1 maske = 5 masker. Om du da setter en markør i den 3. masken av disse 5, har du 2 masker på hver side av masken med merke (den midterste masken). Ta en titt på denne vidoen, kanskje den kan hjelpe å forstå: Hvordan tages der ud i helpatent og hvordan strikkes næste omgang mvh DROPS Design

05.01.2023 - 14:09

country flag Anna Dora wrote:

Grazie per la risposta. Comunque ho già risolto perché ho trovato la correzione nel modello in inglese. Riterrei opportuno correggerlo anche in italiano.

29.12.2022 - 07:46

DROPS Design answered:

Buonasera Anna Dora, abbiamo corretto la spiegazione anche nella versione italiana. Buon lavoro!

29.12.2022 - 19:07

country flag Anna Dora wrote:

Buonasera, nel fare gli aumenti dello sprone, per la taglia M, c'è una differenza di due maglie: alla fine del giro, invece di 18 maglie (18+16+38+16+18 per un totale di 106 maglie) ne restano 20, (18+16+38+16+20 per il totale effettivo di 108 maglie) . C'è forse qualcosa da correggere? Grazie

17.12.2022 - 15:08

DROPS Design answered:

Buonasera Anna Dora, al momento non sono emerse correzioni per questo modello. Buon lavoro!

28.12.2022 - 19:13

country flag Emma wrote:

Hey there - I’m starting the yoke and wanted to ask if short rows should be incorporated to balance the front and back. if so, how would you suggest altering the pattern?

31.08.2021 - 16:38

DROPS Design answered:

Dear Emma, please understand that we cannot modify our patterns to each individual request. This modell does not have a raised neckline, because short rows would break the lines of the two colored english rib.Happy Stitching!

31.08.2021 - 17:03

country flag Chau wrote:

Hvis man vil vælge kun én farve, hvor mange garnnøgler skal der bruges, alt efter str.?

21.06.2021 - 19:56

DROPS Design answered:

Hei Chau. Det har vi ikke oversikten over, men sammenlignet med andre ensfarget gensere i helpatent vil du bruke mindre enn hva det er oppgitt til denne genseren (mellom 50-150 gram, avhengig av hvilken str. du strikker). Ta en titt på f.eks DROPS 207-40. mvh DROPS design

28.06.2021 - 10:57

country flag Julia Bath wrote:

Thank you for answering my last query. I have another one ! My tension is about half what it should be vertically. Should it really be 42 rows to 10 cm ? The width is coming close to 17 st.

19.03.2021 - 13:53

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bath, tension should be 42 sts with English rib (= 21 visible "knit" stitches from RS). Getting the correct tension is important to get the correct measurements - read more here. Happy knitting!

19.03.2021 - 15:23

country flag Julia Bath wrote:

I am putting in the markers at the start of the yolk. If I put them at 18 stitches,then 16,and 38, there are more than 20 stitches back to the start of the round .Surely it should say 18, 16, 38, 16 ,20 . The size I am making has 108 stitches. This means there are 5 markers (including the middle back ) Is this correct ?

11.03.2021 - 12:32

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bath, that's right, English pattern will be edited - thanks for noticing. Happy knitting!

11.03.2021 - 14:41

country flag Margaret Emms wrote:

Thanks for your last info. I am a little confused about which stitch I should be increasing in on the 5 increased stitches. You say the first after the marker but it looks wrong. The middle of the 3 raglan stitches looks right. Can you confirm whether it is the middle stitch of the 5 raglan increase or the 1st of the 3 I should be increasing in. Thanks.

05.02.2021 - 14:05

DROPS Design answered:

Dear Mrs Emms, marker threads should be inserted before a stitch that will be knitted together with the yarn over - and you will increase 4 sts by working 5 stitches in the stitch after the marker thread - when there are the 5 new stitches on the needle, move the marker after the 2nd of the 5 sts = the 3rd of these 5 sts is the stitch you will increase later in.Ie you will always increase in the stitch in the middle of these 5 stitches just as shown in the previous linked video. Happy knitting!

05.02.2021 - 15:13

country flag Margaret Emms wrote:

Good afternoon, I am finding this pattern very difficult to understand. No. 1 is it intended that the rounds are 3 plus a repeat of 2 and 3 every time? No. 2 I seem to have yarn overs in places where I don't want them as well, particularly after 2 of the raglan increases which I've just started. I'm not yet sure whether the pattern is going to come out as it should, or whether I'm still doing something wrong. Thanks for your help on the skirt I just made, it's lovely.

27.01.2021 - 16:30

DROPS Design answered:

Dear Mrs Emms, the first round of the English rib is just a "set up row", then you will repeat round 2 and 3 - see also that video. When you increase for raglan, you will make some yarn overs, these yarn overs are for the increases, and should be worked as stitches on next round - this video shows how to increase in 2-coloured English rib and should be help you to visualize how it should looks like. Happy knitting!

28.01.2021 - 09:07