DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Relaxing in Reykjavik

Prjónuð peysa úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri, gatamynstri og ¾ ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 199-12
DROPS Design: Mynstur e-295
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-450-500-550-600 g litur 18, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 12, ferskja
50-50-50-50-50-50 g litur 13, hindber
50-50-50-50-50-50 g litur 07, grár
50-50-50-50-50-50 g litur 50, mynta

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.3).

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verið stíf þegar prjónað er tveggja lita mynstur, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í hálft númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 116 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 38) = 3,1.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 16 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 4 lykkjur fleiri í umferð).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr í miðju á þessum 3 lykkjum), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 116-120-124-132-136-140 lykkjur á stuttan hringprjón 2,5 með litnum mynta. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir í natur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 38-40-42-44-46-46 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 154-160-166-176-182-186 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum natur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 4-5-5-5-6-6 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 38-44-44-46-46-54 lykkjur jafnt yfir = 192-204-210-222-228-240 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 5-6-7-7-8-9 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið A.1 hringinn (= 32-34-35-37-38-40 mynstureiningar með 6 lykkjum). Sjá LEIÐBEININGAR og haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-1 í A.1 aukið út um 16-30-50-51-71-72 lykkjur jafnt yfir = 208-234-260-273-299-312 lykkjur.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2 hringinn (= 16-18-20-21-23-24 mynstureiningar með 13 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 272-306-340-357-391-408 lykkjur í umferð.
Prjónið nú A.3 hringinn (lykkjufjöldinn gengur ekki jafnt upp í mynstureiningu með 6 lykkjum, en það gerir ekkert til þar sem fyrsta umferðin er prjónuð í einum lit).
JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-2 í A.3, aukið út um 16-18-20-21-23-24 lykkjur jafnt yfir = 288-324-360-378-414-432 lykkjur (nú er pláss fyrir 48-54-60-63-69-72 mynstureiningar með 6 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur.
JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-3 í A.3, aukið út um 18-16-14-30-28-27 lykkjur jafnt yfir = 306-340-374-408-442-459 lykkjur.
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.4 hringinn (= 18-20-22-24-26-27 mynstureininga með 17 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur.
JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-4 í A.4 er aukið út um 14-12-10-4-2-13 lykkjur jafnt yfir = 320-352-384-412-444-472 lykkjur.
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 23-24-25-27-28-29 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið síðan sléttprjón hringinn með litnum natur þar til stykkið mælist 23-25-27-29-31-33 cm frá uppfitjunarkanti.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 47-51-55-60-66-72 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 66-74-82-86-90-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 94-102-110-120-132-144 lykkjur sléttprjón, setjið næstu 66-74-82-86-90-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 47-51-55-60-66-72 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni. Klippið frá. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 200-220-240-264-292-320 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-8-10-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – þau eru notuðu síðar þegar auka á út í hliðum.
Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn með litnum natur. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2½ cm millibili alls 10 sinnum í hvorri hlið = 240-260-280-304-332-360 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 27 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, þar til ca 3 cm eru eftir til loka). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 60-64-68-76-84-88 lykkjur jafnt yfir = 300-324-348-380-416-448 lykkjur. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjónast dragist saman. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið til baka yfir á hringprjón 3. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 66-74-82-86-90-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-82-92-98-104-108 lykkjur í umferð.
Setjið nú 2 prjónamerki í stykkið (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar): Byrjið mitt undir ermi á milli 6-8-10-12-14-16 lykkja, setjið 1 prjónamerki í lykkju á eftir miðju, teljið 35-40-45-48-51-53 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 35-40-45-48-51-53 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið mitt undir ermi er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónamerkið mitt á ermi er notað þegar telja á út hvar mynstrið byrjar.
Byrjið umferð mitt undir ermi, á undan lykkju með prjónamerki í og prjónið sléttprjón hringinn með natur. Þegar stykkið mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 3½-1½-1-1-1-1 cm millibili alls 5-9-13-13-12-11 sinnum = 62-64-66-72-80-86 lykkjur.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-13-11-9-8-7 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis), prjónið A.1 hringinn (úrtaka mitt undir ermi kemur til með að halda áfram þegar A.1 er prjónað – teljið út frá miðju á ermi hvar mynstrið á að byrja – lykkjan með prjónamerki í mitt á ermi á að passa við lykkju merkta með stjörnu í A.1.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, þ.e.a.s. á eftir 4-4-4-6-6-6 umferð með natur, skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Ermin mælist nú ca 20-19-17-15-14-13 cm frá skiptingu.
Prjónið A.5 hringinn. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka, skiptið til baka yfir á sokkaprjón 3. Prjónið 2 sléttar umferðir og aukið út JAFNFRAMT út um 11-9-7-9-9-3 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 73-73-73-81-89-89 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.6 þar til 1 lykkja er eftir í umferð (= 9-9-9-10-11-11 mynstureiningar með 8 lykkjum), endið með 1 lykkju sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka eru 91-91-91-101-111-111 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.7A (= 5 lykkjur), prjónið A.7B þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 8-8-8-9-10-10 mynstureiningar með 10 lykkjum), endið með A.7C (= 6 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur þar til A.7 hefur verið prjónað alls 2 sinnum á hæðina.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn yfir allar lykkjurnar – sjá útskýringu að ofan. Fellið laust af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 36-35-33-31-30-29 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.05.2019
Leiðrétting: það vantaði úrtöku í 7. umferð A.2 og A.4

Mynstur

symbols = slétt með litnum natur
symbols = brugðið með litnum natur
symbols = slétt með litnum grár
symbols = slétt með litnum ferskja
symbols = slétt með litnum hindber
symbols = slétt með litnum mynta
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með litnum natur, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt eða brugðið eins og útskýrt er í mynsturteikningu (það eiga að myndast göt)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn með litnum natur, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (það eiga ekki að myndast göt)
symbols = 2 lykkjur slétt saman með litnum natur
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum natur, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = miðja ofan á ermi
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Karin Kałucka wrote:

Proszę o uściślenie. Schemat A1 zaczynamy od 12 cm od ściągacza czy 7 cm?

15.03.2024 - 14:44

DROPS Design answered:

Witaj Karin, schemat A.1 zaczynamy gdy długość robótki od rzędu nabierania oczek wynosi 7 cm. Pozdrawiamy!

17.03.2024 - 17:31

country flag Karin Kałucka wrote:

Proszę o wyjaśnienie. Schemat A1 liczymy 12 cm od ściągacza? Jest to opisane nieprecyzyjnie.

15.03.2024 - 14:43

country flag Maria wrote:

Hej igen och tack för svar. Jag förstår ändå inte. Hålmönstret blir ju förskjutet när jag bara har 3 maskor där hade 6 förutMvh Maria

17.06.2022 - 12:43

DROPS Design answered:

Hej Maria, sätt 1 märke mellan varje rapport på 17 maskor, så är du säker på att du stickar alla 17 maskor och då vill hålmönstret komma ovanpå varan varje gång. Se här: Vågmönster

17.06.2022 - 14:23

country flag Maria wrote:

På A2 ska man ju sticka 2 räta tillsammans, vilket gör att det blir 1 maska av 2. På nästa varv är det ju dock 2 maskor där jag har bara 1 från föregående varv. Vad är det jag inte förstår? Mvh Maria

13.06.2022 - 21:35

DROPS Design answered:

Hej Maria. Eftersom du göra lika många omslag som du gör hoptagningar så förblir maskantalet detsamma i rapporten. Du stickar alltså bara avigmaskor över alla maskor i rapporten på nästa varv. Mvh DROPS Design

17.06.2022 - 11:27

country flag Anene Johnsen wrote:

Hvor finner jeg mål på størrelsene?

23.02.2022 - 19:02

DROPS Design answered:

Hej Anene Du finner en måleskiss längst ned på oppskriften med mål i cm på alla storlekar. Mvh DROPS Design

24.02.2022 - 10:49

country flag Daniela wrote:

Spero di essermi spiegata...

26.05.2021 - 17:02

country flag Daniela wrote:

Ho problemi con il diagramma A2 perché al 3° ferro alla fine del giro mi ritrovo solo 2 maglie che da lavorare insieme, e non 6 per avere la possibilità di lavorare per 3 volte due maglie insieme, come da diagramma. C'è qualche errore? Grazie!

26.05.2021 - 00:21

DROPS Design answered:

Buonasera Daniela, il diagramma A.2 è corretto: provi a mettere dei marcapunti alla fine di ogni ripetizione del diagramma per identificare meglio eventuali errori. Buon lavoro!

27.05.2021 - 00:06

country flag Sofia McMonagle wrote:

Förstår inte hur ökningen från 73 maskor till 91 maskor går till när man stickar A. 6. Behöver en dupertydlig förklaring till hur jag stickar A6

08.09.2019 - 09:42

DROPS Design answered:

Hej. Du har 73 m på stickan så du stickar A.6 (=8 maskor) 9 gånger + 1 m slätstickning sist. På varv 7 i diagrammet ökas det 2 maskor per rapport (omslagen) så det innebär att du på sista varvet har 10 maskor per rapport istället för 8. 10 m x 9 rapporter + 1 maska slätstickning sist = 91 m. Lycka till!

10.09.2019 - 10:20

country flag Ursula Blohm wrote:

Liebes Drops-Team, sind die Korrekturen, die hier angesprochen wurden, bei der aktuellen Anleitung bereits berücksichtigt ? Ich fange gerade an, den Pullover zu stricken. Vielen Dank schon jetzt für Ihre Antwort

28.08.2019 - 20:54

DROPS Design answered:

Liebe Frau Blohm, wenn Sie die Anleitung nach der Korrektur drücken, dann stimmt die Online-Anleitung, sonnst können Sie sie am besten nochmal drücken. Viel Spaß beim stricken!

29.08.2019 - 09:06

country flag Åshild Vågnes wrote:

Kan ikke finne A-5, A-6 og A-7 når jeg skal strikke ermene?

06.06.2019 - 21:43

DROPS Design answered:

Hei Åshild. Diagrammene A.5-A.7 ligger rett under A.3, og over målskissen nederst på siden. Om du har problemer med å se dem kan du forøke å benytte en annen enhet (PC, nettbrett etc). God fornøyelse

07.06.2019 - 08:07