DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5852.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Strawberry Swing

Prjónað poncho / peysa með laskalínu úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 202-19
DROPS Design: Mynstur as-109
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
175-200-225-225-250-275 g litur 07, rauður

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5852.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 102 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 12,8.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 13. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð ca 12. og 13. hver lykkja saman.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.4 og A.5).

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO / PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Hálsinn og berustykki er prjónað í hring. Fram- og bakstykki er prjónað í hring að klauf, síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram- og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

KRAGI:
Fitjið upp 102-108-108-114-120-126 lykkjur á hringprjón 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 11 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-2-2-16-10-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 110-110-110-130-130-130 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

BERUSTYKKI:
Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1 (= 8 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 30-30-30-40-40-40 lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.3 (= 3 lykkjur), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), prjónið A.1 (= 8 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 30-30-30-40-40-40 lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.3 (= 3 lykkjur), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 10 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína). Nú eru 122-122-122-142-142-142 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með þetta mynstur. Þ.e.a.s. á fram- og bakstykki er auki út í hvorri hlið eins og útskýrt er í A.1 og A.3. Á ermum er aukið út í hvorri hlið með uppslætti hvoru megin við lykkjur í sléttprjóni. Laskalínan er alltaf 2 lykkjur sléttprjón. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 25-29-30-32-34-35 sinnum, í næstu umferð er uppslátturinn á ermum prjónaður slétt (= gat) og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 350-350-350-370-370-370 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan yfir 121-121-121-131-131-131 lykkjur í A.1 til A.3 þannig: Prjónið A.4 (= 8 lykkjur), prjónið A.2 yfir næstu 110-110-110-120-120-120 lykkjur (= 11-11-11-12-12-12 mynstureiningar með 10 lykkjum) og prjónið A.5 (= 3 lykkjur). Ermar halda áfram eins og áður, en þegar útaukning hefur verið gerð til loka á ermum er prjónað áfram án útaukninga. Til að gataröðin haldi áfram meðfram laskalínu eftir að útaukningu á ermum sé lokið, prjónið A.6 (= 2 lykkjur) yfir fyrstu 2 lykkjurnar á eftir laskalínu og A.7 yfir síðustu 2 lykkjur á undan laskalínu að ermi. Þegar prjónað hefur verið upp að umferð merktri með ör í þinni stærð eru 390-418-438-462-486-506 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 23-26-29-28-32-35 cm. Prjónið áfram með mynstur og sléttprjón eins og áður, en án útaukninga þar til stykkið mælist 26-28-30-31-33-35 cm. Til að gataumferðin haldi áfram meðfram laskalínu eftir að útaukning sé lokið prjónið A.6 og A.7 alveg eins og á ermum.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 131-137-145-153-161-169 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 64-72-74-78-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, prjónið 131-137-145-153-161-169 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið síðustu 64-72-74-78-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 262-274-290-306-322-338 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og setjið 1 prjónamerki eftir 131-137-145-153-161-169 lykkjur. Prjónamerkin merkja hliðar.
Prjónið 0-3-2-1-0-4 lykkjur sléttprjón, endurtakið A.2 þar til eftir eru 1-4-3-2-1-5 lykkjur á undan prjónamerki (= 13-13-14-15-16-16 mynstureiningar með 10 lykkjum) – stillið af þannig að mynstrið haldi áfram í sléttri umferð, prjónið 1-7-5-3-1-9 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), endurtakið A.2 þar til eftir eru 1-4-3-2-1-5 lykkjur á undan prjónamerki í byrjun á umferð (= 13-13-14-15-16-16 mynstureiningar með 10 lykkjum) og prjónið þær 1-4-3-2-1-5 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 18-18-18-19-19-19 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé í umferð mitt á milli 2 gatamynstra á hæðina. Nú skiptist stykkið við prjónamerki og framstykki og bakstykki er prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 131-137-145-153-161-169 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 2-2-2-0-2-4 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 129-135-147-153-159-165 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 3 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, endið með 3 lykkjur brugðið og 3 lykkjur í garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er fellt af með hringprjón 5.

FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og bakstykki.

ERMI:
Setjið 64-72-74-78-82-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5.
Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 12-10-9-8-6-5 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-0-4-0-2-0 lykkjur jafnt yfir = 66-72-78-78-84-84 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 8 cm.
Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með prjón 5.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 08.04.2019
Leiðrétting: FRAM- OG BAKSTYKKI:..endurtakið A.2 þar til eftir eru 1-4-3-2-1-5 lykkjur á undan prjónamerki í byrjun á umferð (= 13-13-14-15-16-16 mynstureiningar með 10 lykkjum)

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn (= gat)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = síðasta útaukning á framstykki og bakstykki
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Strawberry Swing

Anne, Norway

Strawberry Swing

Joe, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 202-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (63)

country flag Celebi wrote:

Hallo, zählen die Raglanlinien (2 glatt rechts gestrickte Maschen) mit zum Ärmel oder Vorder- bzw. Rückenteil oder werden diese jeweils eine und eine beim Ärmel oder Vorder- bzw. Rückenteil mitgezählt?

23.02.2024 - 16:28

DROPS Design answered:

Liebe Celebi, die Maschen für die Raglanlinien gehören bei der Verteilung zu den Ärmeln. Viel spaß beim stricken!

23.02.2024 - 17:10

country flag Diana wrote:

Buongiorno. Sono arrivata al giro a diritto dopo il collo in cui fare i gettati per gli aumenti. Non ci dovrebbe essere dopo di questo un giro a diritto per lavorare gli aumenti? O si comincia subito con gli schemi A1, A2, ecc. ? Grazie per la risposta

26.10.2023 - 22:29

DROPS Design answered:

Buonasera Diana, dopo gli aumenti sul collo, si cambiano i ferri e si inizia la lavorazione dello sprone. Buon lavoro!

29.10.2023 - 23:14

country flag Merete Wøhlk wrote:

Fejl i str l Ryg og forstykke 290 masker. 145 til ryg Der skal tages 2 masker ind jævnt fordelt. Det er 143 masker, men der skal være 147 masker. I str large skal de to masker tages ud i stedet. Så passer ribben også Venlig hilsen Merete

13.07.2023 - 15:55

country flag Elodie wrote:

Bonjour je fais la taille XXL , j’ai fait toute mes augmentations mais je n’ai pas les 35 cms. Je n’arrive pas a centré mes motifs en faisant 4 mailles Jersey puis A2 (16 fois) et 5 mailles pour finir. Pourriez-vous m’aider je suis désespérée. Merci

25.03.2023 - 18:27

DROPS Design answered:

Bonjour Élodie, tricotez les 2 mailles au début de chaque manche en suivant A.6 (ainsi vous avez toujours 1 jeté comme les augmentations du raglan auparavant, mais en diminuant 1 maille aussitôt, on évite d'augmenter, on conserver juste le motif ajouré); et, lorsqu'il reste 2 mailles à la fin de la manche, avant les 2 mailles du raglan, tricotez A.7, (ainsi vous avez un motif ajouré comme les augmentations du raglan, mais sans augmenter). Bon tricot!

27.03.2023 - 09:10

country flag Joanna wrote:

Dzień dobry, nie ppotrafię zrozumieć opisu , jak ze 110 oczek ma być 122 oczka, żadne wyjaśnienie mi nie pomogło. Liczyłam i nic, co robię żle. Proszę o pomoc. Joanna.

29.01.2023 - 17:45

DROPS Design answered:

Witaj Joanno, w pierwszym okrążeniu schematów dodasz 4 narzuty w wyznaczonych miejscach (patrz opis; dodane 4 oczka) oraz dodajesz po 2 oczka w każdym schemacie A.1 i A.3 (8 dodanych oczek). 110+4+8=122 oczka. Pozdrawiamy!

30.01.2023 - 08:54

country flag Noëlle wrote:

Je ne comprends pas, est ce choses différentes ou les mêmes augmentations?\r\n\"Continuer ainsi. Autrement dit, on augmente pour le dos et le devant de chaque côté comme indiqué dans A.1 et A.3. On augmente pour les manches de chaque côté, après/avant les 2 mailles jersey. On a toujours 2 mailles jersey à chaque raglan\" merci

01.12.2022 - 16:34

DROPS Design answered:

Bonjour Noëlle, vous continuez à augmenter comme avant, autrement dit de chaque côté des 2 mailles jersey de chaque raglan - les augmentations du devant et du dos figurent dans les diagrammes A.1 et A.3, celles des manches se font après les 2 m jersey du raglan (au début de la manche) avant les 2 m jersey du raglan (à la fin de la manche). Bon tricot!

02.12.2022 - 08:23

country flag Joanna wrote:

Dzień dobry, zaczynam karczek, jestem po pierwszym okrążeniu, nie wiem jak przerabiać narzuty, wszystkie z dziurką, czy krzyżować oczka? Na zdjęciu widać tylko dziurki w reglanie. Dziękuję kolejny raz. Wdzięczna Joanna.

09.01.2022 - 12:52

DROPS Design answered:

Witaj Joasiu, patrz symbole schematów A.1 i A.3. Tam przy brzegu schematu gdzie są dodawane oczka masz 2 symbole, które oznaczają narzut: jeden to taka czarna kropeczka (owal z czarnym środkiem) - w następnym okrążeniu przerobisz oczko przekręcone w miejscu tego narzutu, aby uniknąć dziur. Jeżeli jest kropeczka pusta w środku (na skraju i w środku schematu), oznacza to narzut, który w następnym okrążeniu jest przerabiany normalnie tak jak schodzi z drutu, tutaj będzie dziurka. Pozdrawiamy i miłej pracy!

09.01.2022 - 15:41

country flag Joanna wrote:

Dzień dobry, z tego co zrozumiałam schemat A1 przerobić po 1x,\r\n schemat A2 powtórzyć 3X i dopiero potem schemat A3 itd? Z góry dziękuję. Pozdrawiam.

06.01.2022 - 11:31

DROPS Design answered:

Witaj Joanno, tak jest. Trzymaj się ściśle opisu. Powodzenia!

06.01.2022 - 12:36

country flag Joanna wrote:

Dzień dobry,\\r\\nNie mogę zrozumieć tych schematów, zaczynam karczek Sch, Przerobić 1-sze okrążenie następująco: schemat A.1 (= 8 oczek), powtarzać schemat A.2 ponad 30-30-30-40-40-40 następnymi oczkami (= 3-3-3-4-4-4 motywy po 10 o czek), A.3 (= 3 oczka), 2 oczka dżersejem (= reglan), to znaczy,że przerabiać w 1 okrążeniu sch. A1 ? Kiedy A22 i co znaczy 30? 3 motywy po 10 oczek. Wybaczcie, bardzo bym chciała zrobić ten sweterek, pomóżcie mi. Pozdrawiam.

02.01.2022 - 11:59

DROPS Design answered:

Witaj Joanno, w rozmiarze M mamy: A.1 (przerabiasz ponad 8 o., po 2 narzutach w 1-szym rzędzie będzie 10 o.), A.2 ponad 30 o. (czyli powt. ten schemat 3 razy), A.3 (3 o.> po narzutach w 1-szym rzędzie będzie 5 o.), 2 o. dżersejem (reglan), 1 narzut, 10 o. dżersejem (rękaw), 1 narzut, 2 o. dżersejem, A.1 (8>10 o.), A.2 ponad 30 oczkami, A.3 (3>5 o.), 2 o. dżersejem (reglan), 1 narzut, 10 o. dżersejem (rękaw), 1 narzut, 2 o. dżersejem = 122 o. Jak czytać schematy w robótce na drutach znajdziesz TUTAJ (patrz fragment dotyczący robótki przerabianej na okrągło). Pozdrawiamy!

02.01.2022 - 19:07

country flag Joanna wrote:

Przerobić 1 okrążenie na prawo, w tym samym czasie równomiernie dodając 8-2-2-16 -10-4 oczka - patrz DODAWANIE/ZAMYKANIE OCZEK = 110-110-110-130-130-130 oczek. Dalej przerabiać na drutach z żyłką na samym początku utknęłam. Sweter rozm. M , nie rozumiem ile oczek i gdzie dodać w 1 okr. 2, ale gdzie? Proszę o wyjaśnienie

01.01.2022 - 14:41

DROPS Design answered:

Witaj Joanno, równomiernie dodajesz 2 oczka w 1-szym okrążeniu na prawo za ściągaczem wykończenia dekoltu (czyli np. za 1-szym i 54-tym oczkiem wykonasz 1 narzut). W następnym okrążeniu należy przerobić oczka przekręcone w miejscu narzutów, aby uniknąć dziur. Pozdrawiamy!

01.01.2022 - 23:19