Wistful |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Peysa með blaðamynstri og röndum, prjónuð úr 2 þráðum DROPS Air eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 201-9 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 57 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið þeim 49 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 4,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftri 4. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 til A.3). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. RENDUR: Allt stykkið er prjónað í 2 þráðum Air eða 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Á berustykki er prjónað með 2 þráðum í litnum natur þar til stykkið mælist ca 23-23-23-23-28-28 cm frá uppfitjunarkanti – endið eftir heilt/hálft blað á hæðina. Á fram- og bakstykki, prjónið með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum fjólublá þoka/ljós fjólublár þar til stykkið mælist ca 34-34-34-34-39-39 cm frá uppfitjunarkanti – endið eftir heilt/hálft blað á hæðina. Prjónið síðan með 2 þráðum í litnum fjólublá þoka/ljós fjólublár til loka á fram- og bakstykki. Á ermum er prjónað með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum fjólublá þoka/ljós fjólublár þar til röndin mælist alls ca 15-14-14-14-12-12 cm. Prjónið síðan með 2 þráðum í litnum fjólublá þoka/ljós fjólublár til loka. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: byrjið beint yfir lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki í slétt frá réttu/brugðið frá röngu (= laskalykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður við fram- og bakstykki slétt frá röngu og uppslátturinn við ermar brugðið frá röngu (það eiga að myndast göt). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í kraga mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu með ca 9-9-8-8-9-9 cm millibili. ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að frama, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 57-57-61-61-65-65 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 8 með 2 þráðum í litnum natur Air eða 2 þráðum í litnum natur Brushet Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 4 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 12-12-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 69-69-69-69-73-73 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 9. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð síðar þegar aukið er út fyrir laskalínu. Teljið 15-15-15-15-16-16 lykkjur (= framstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 6 lykkjur (= ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 23-23-23-23-25-25 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 6 lykkjur (= ermi) og setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju. Það eru 15-15-15-15-16-16 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á framstykki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A (= 11-11-11-11-12-12 lykkjur), aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við lykkju með prjónamerki í (sem er kölluð síðar laskalykkja) – sjá útskýringu að ofan, prjónið sléttprjón með réttuna út yfir lykkjur á ermi fram að næstu laskalykkju, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkju, prjónið A.1B (= 11-11-11-11-12-12 lykkjur), prjónið 1 lykkju sléttprjón með rönguna út, prjónið A.1A (= 11-11-11-11-12-12 lykkjur), aukið svona út hvoru megin við laskalykkju, prjónið sléttprjón með réttuna út yfir lykkjur á ermi fram að næstu laskalykkju, aukið út hvoru megin við laskalykkju, prjónið A.1B (= 11-11-11-11-12-12 lykkjur) og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 9-9-12-12-13-13 sinnum (meðtaldar útaukningar í fyrstu umferð) - útauknar lykkjur á fram- og bakstykki eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og A.1 sýnir. Á ermum eru útauknar lykkjur prjónaðar inn í sléttprjón með réttuna út. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og lesið RENDUR! Þegar útaukning fyrir laskalínu er lokið eru 161-161-185-185-205-205 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram með mynstur eins og mynsturteikning sýnir, en til að koma í veg fyrir að gatumferð hvoru megin við laskalínu endar þegar útaukningum er lokið, prjónið A.4 við 1. og 3. prjónamerki og A.5 við 2. og 4. prjónamerki (lykkja með prjónamerki á að passa við miðju lykkjuna í A.4/A.5). Prjónið þar til síðasta umferð í A.1 er eftir. Nú skiptist berustykki fyrir fram- og bakstykki og ermar og umferðin er prjónuð þannig: Prjónið 29-29-32-32-36-36 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 26-26-32-32-34-34 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-4-8-6-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 51-51-57-57-65-65 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 26-26-32-32-34-34 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-4-8-6-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 29-29-32-32-36-36 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Berustykki mælist ca 20-20-23-23-26-26 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 117-121-129-137-149-157 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 31-32-34-36-39-41 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 55-57-61-65-71-75 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Prjónamerki merkir hliðar á fram- og bakstykki. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig (með 1 þræði natur + 1 þræði fjólublá þoka/ljós fjólublár): STÆRÐ S, M, L og XL: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A (= 24 lykkjur), prjónið 6-8-12-16 lykkjur sléttprjón með rönguna út (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), prjónið A.2B (= 24 lykkjur), prjónið 1 lykkju sléttprjón með rönguna út, prjónið A.2A (= 24 lykkjur), prjónið 6-8-12-16 lykkjur sléttprjón með rönguna út (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), prjónið A.2B (= 24 lykkjur) og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið svona áfram með mynstur – munið eftir RENDUR. Þegar A.2 hefur verið prjónað alls 2 sinnum á hæðina, prjónið A.3A yfir A.2A og A.3B yfir A.2B (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið sléttprjón með rönguna út og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 28-30-29-31 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, þar til ca 4 cm eru til loka). Prjónið síðan stroff fram- og til baka eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ XXL og XXXL: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1-1 lykkja sléttprjón með rönguna út, prjónið A.2 (= 29 lykkjur), prjónið 11-15 lykkjur sléttprjón með rönguna út (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja með 6-8 lykkjur brugðið að bakstykki og 5-7 lykkjur brugðið að framstykki), prjónið A.2 (= 29 lykkjur), prjónið 1 lykkju sléttprjón með rönguna út, prjónið A.2 (= 29 lykkjur), prjónið 11-15 lykkjur sléttprjón með rönguna út (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), prjónið A.2 (= 29 lykkjur), prjónið 1-1 lykkju sléttprjón með rönguna út og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið svona áfram með mynstur – munið eftir RENDUR. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.3 yfir A.2 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið sléttprjón með rönguna út og 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 30-32 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm að loka máli). Prjónið síðan stroff fram- og til baka eins og útskýrt er að neðan. STROFF FRAM- OG BAKSTYKKI: = 117-121-129-137-149-157 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 26-26-32-32-34-34 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 9 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-6-4-8-6-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum fjólublá þoka/ljós fjólublár (= 2 þræðir) = 30-32-36-40-40-44 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn með réttuna út. Þegar röndin með litnum natur + fjólublá þoka/ljós fjólublár mælist ca 15-14-14-14-12-12 cm, skiptið yfir í 2 þræði í litnum fjólublá þoka/ljós fjólublár. Haldið áfram í sléttprjóni hringinn þar til stykkið mælist 25-26-23-24-21-22 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á sokkaprjón 8 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 29-30-27-28-25-26 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (16)
Nashwa Sakr wrote:
I am working on this pattern size medium, and i am stuck at the part after the raglan increases has been finished, i finished the 9 times raglan increases, and now i am working on row 19 of diagram A1.A, and i have 25 sts for the right front, so how i will insert diagram A.4 which requires 5 sts to be worked, i don't find these sts, i only have 1 raglan st, then the right shoulder sts thank you :)
20.02.2019 - 12:54DROPS Design answered:
Dear Mrs Sakr, when raglan increases are done, you continue as before and work A.4/A.5 over the raglan sts (to continue lace rows as before on each side of raglan). Start 3 sts before the raglan stitch and work A.4/A.5: the middle stitch in diagram should be the raglan stitch. Happy knitting!
20.02.2019 - 14:06Debbie Hayward wrote:
Love it! Can't wait to make it.... 'Lavender Parfait'...
25.01.2019 - 18:07Nanny wrote:
I would call this Autumn Leaves , very beautiful 😍
23.01.2019 - 01:22Jättesnygg Tröja Och Härligt Garn wrote:
När kommer mönstret?
15.01.2019 - 07:44Iris wrote:
What a lovely feminine pattern.
21.12.2018 - 22:41Doris wrote:
Jacke und Garn sind super. Möchte ich unbedingt stricken.
16.12.2018 - 09:55