Diamond Cut |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð tunika úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað fram og til baka í garðaprjóni, dominoferningum og röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 194-27 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. 1 RÖND Í GARÐAPRJÓNI: 2 umferðir garðaprjón. RÖND-1: * 2 umferðir garðaprjón rósarunni, 2 umferðir garðaprjón svartur/natur *, prjónið frá *-*. RÖND-2: * 2 umferðir garðaprjón með bleik þoka, 2 umferðir garðaprjón grár *, prjónið frá *-*. RENDUR Á ERMUM: Prjónið 15-15-16-16-17-17 cm með * 2 umferðir garðaprjón bleik þoka, 2 umferðir garðaprjón svartur/natur *, prjónið frá *-*. Prjónið 5 cm með * 2 umferðir garðaprjón bleik þoka, 2 umferðir garðaprjón grár *, prjónið frá *-*. Prjónið 3 cm með * 2 umferðir garðaprjón svartur/grár, 2 umferðir garðaprjón grár *, prjónið frá *-*. Prjónið 15 cm með * 2 umferðir garðaprjón rósarunni, 2 umferðir garðaprjón bleik þoka *, prjónið frá *-*. Prjónið 1 cm með * 2 umferðir garðaprjón grár, 2 umferðir garðaprjón svartur/grár *, prjónið frá *-*. Prjónið 8 cm með * 2 umferðir garðaprjón bleik þoka, 2 umferðir garðaprjón grár *, prjónið frá *-*. Prjónið 4 cm með * 2 umferðir garðaprjón rósarunni, 2 umferðir garðaprjón bleik þoka *, prjónið frá *-*. Prjónið síðan til loka með * 2 umferðir garðaprjón grár, 2 umferðir garðaprjón rósarunni *, prjónið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fyrst eru prjónaðar heilir og hálfir dominoferningar. Síðan er prjónuð öxl og teknar upp lykkjur meðfram kanti á einingu með dominoferningum áður en prjónað er garðaprjón og rendur út að hlið fyrir fram- og bakstykki og ermi. FRAMSTYKKI: HEILL DOMINOFERNINGUR (1): Fitjið upp 129-129-137-137-145-145 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum rósarunni. Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju í umferð (= 64-64-68-68-72-72 lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki). Prjónið GARÐAPRJÓN og RÖND-1 – sjá útskýringu að ofan og prjónið dominoferning þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman, prjónið slétt út umferðina. Endurtakið umferð 1 og 2, þ.e.a.s. fækkið um 2 lykkjur í miðju á ferning í annarri hverri umferð þar til 1 lykkja er eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna. Dominoferningurinn mælist ca 28-28-30-30-31-31 x 28-28-30-30-31-31 cm. HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (2): Byrjið frá réttu með hringprjón 3,5 og litnum bleik þoka og prjónið upp 65-65-69-69-73-73 lykkjur (= 2 lykkjur í fyrstu rönd í garðaprjóni og 1 lykkja í hverja af næstu rönd í garðaprjóni) meðfram hægri hlið á fyrsta dominoferning. Prjónið RÖND-2 – sjá útskýringu að ofan og prjónið hálfan dominoferning þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Endurtakið umferð 1 og 2, þ.e.a.s. fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð þar til 1 lykkja er eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna. HÁLFUR DOMINOFERNINGUR (3): Byrjið frá réttu með hringprjón 3,5 og litnum bleik þoka og prjónið upp 65-65-69-69-73-73 lykkjur (= 1 lykkja í hverja rönd í garðaprjóni þar til 2 umferðir eru eftir i garðaprjóni og 2 lykkjur í síðustu rönd í garðaprjóni) meðfram vinstri hlið á fyrsta dominoferningi. Prjónið RÖND-2 og prjónið hálfan dominoferning þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Endurtakið umferð 1 og 2, þ.e.a.s. fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð þar til 1 lykkja er eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna. HEILL DOMINOFERINGUR MEÐ ÚRTÖKU FYRIR HÁLSMÁLI (4): Byrjið frá réttu með hringprjón 3,5 og litnum rósarunni og prjónið upp 64-64-68-68-72-72 lykkjur (= 1 lykkja í hverja rönd í garðaprjóni) meðfram hlið á hálfum dominoferningi (2), prjónið upp 1 lykkju í skiptingunni á milli 3 dominoferninga og haldið áfram að prjóna upp 64-64-68-68-72-72 lykkjur (= 1 lykkja í hverja rönd í garðaprjóni) meðfram hlið á hálfum dominoferningi (3) = 129-129-137-137-145-145 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju í umferð (= 64-64-68-68-72-72 lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki). Prjónið RÖND-1 og prjónið dominoferning þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman, prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Endurtakið umferð 1 og 2, þ.e.a.s. fækkið um 2 lykkjur í miðju á ferning í annarri hverri umferð þar til það eru 47-47-51-51-51-51 lykkjur eftir á prjóni (þ.e.a.s. eftir að prjónaðar hafa verið 82-82-86-86-94-94 umferðir garðaprjón). Prjónið nú þannig: UMFERÐ 83-83-87-87-95-95 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 84-84-88-88-96-96 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sléttar lykkjur þar til eftir er 1 lykkja á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman, prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Endurtakið 2 síðustu umferðirnar, þ.e.a.s. fækkið um 2 lykkju í miðju á ferning og 1 lykkju á hvorri hlið (= 4 lykkjur færri) í annarri hverri umferð þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni. Prjónið 1umferð slétt yfir allar lykkjur, prjónið síðan síðustu umferð þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman = 1 lykkja eftir. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki. VINSTRI ÖXL, SÍÐAN Á FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMI: Prjónið nú vinstri öxl, síðan á fram- og bakstykki og ermi fram og til baka í garðaprjóni og prjónið RENDUR Á ERMUM – sjá útskýringu að ofan: Fitjið upp 27-27-31-31-33-33 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum bleik þoka. Prjónið garðaprjón fram og til baka. JAFNFRAMT í lok hverrar umferðar er fitjuð upp 1 ný lykkja. Prjónið svona þar til prjónaðar hafa verið 58-58-62-62-62-62 umferðir í garðaprjóni og auknar hafa verið út 29-29-31-31-31-31 lykkjur í hvorri hlið á stykki = 85-85-93-93-95-95 lykkjur í umferð. Á eftir síðustu umferð frá röngu er þráðurinn klipptur frá. Látið lykkjurnar hvíla á öðrum hringprjón eða á þræði og prjónið með hringprjón 3,5 þannig: Prjónið upp frá réttu 92-92-97-97-101-101 lykkjur meðfram hlið á ferning 2 (sjá mynsturteikningu) með næsta lit í rönd. Haldið síðan áfram frá réttu yfir 85-85-93-93-95-95 lykkjum í umferð/þræði, prjónið upp 92-92-97-97-101-101 lykkjur meðfram hlið á dominoferning í hinni hliðinni = 269-269-287-287-297-297 lykkjur í umferð. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni og röndum þar til stykkið mælist 6-8-9-12-14-17 cm frá þar sem lykkjur voru teknar upp meðfram hálfa dominoferning. Í byrjun á næstu 2 umferðum eru felldar af 46-46-48-48-51-51 lykkjur (= hliðar á tuniku) = 177-177-191-191-195-195 lykkjur á prjóni. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á stykki (merkir klauf í hliðum og er síðar notað í frágang). Haldið áfram í garðaprjóni og röndum og í næstu umferð byrjar affelling í hvorri hlið fyrir ermi: Fellið af lykkjur í byrjun á umferð í 4. hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 5 lykkjur 4-4-5-5-5-5 sinnum, 2 lykkjur 7-7-8-8-9-9 sinnum og 1 lykkja 14-13-12-11-10-9 sinnum = 81-83-85-87-89-91 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til ermin mælist 53-54-55-56-56-57 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. HÆGRI ÖXL, HLIÐ Á FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMI: Prjónið á sama hátt og vinstri öxl, hlið á fram- og bakstykki (þ.e.a.s. takið upp lykkjur meðfram hlið á ferning 3) og ermi. FRÁGANGUR: Saumið saman saum í laskalínu – sjá svarta stjörnu í mynsturteikningu. Saumið með litnum bleik þoka og saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Saumið saum undir ermum frá affellingarkanti neðst niðri á ermum og upp að prjónamerki sem var sett eftir að felldar voru af 46-46-48-48-51-51 lykkjur í hlið á stykki. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið á öðrum laskalínu saum frá réttu og prjónið upp 118-140 lykkjur með stuttum hringprjón 3,5 með litnum rósarunni. Prjónið 6 umferð GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Fellið af með sléttum lykkjum. Klippið frá og festið enda. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (65)
Inger Sørensen wrote:
Kan modellen strikkes i kun 2 farver og hvor mange nøgler af hver farve skal man så bruge?
19.02.2024 - 22:31DROPS Design answered:
Hej Inger, ja det bestemmer du selv, og du skal nok bruge samme antal nøgler (muligvis 1 mindre, men det vil være synd at få for lidt) :)
22.02.2024 - 12:03Zimmermann wrote:
Hallo, ich habe eine Frage zum 1. Quadrat. Wenn ich jede Reihe zu Ende stricke und immer in der Mitte eine Masche abnehme, erhalte ich dann nicht ein Dreieck? Soll man die Arbeit vor dem Markierer drehen und beide Seiten separat stricken? Irgendwie häng ich und kann mir das nicht vorstellen. LG
05.01.2024 - 18:08DROPS Design answered:
Liebe Frau Zimmermann, in diesem Video zeigen wir, wie man so einen Quadrat strickt, sicher kann das Ihnen helfen, um das Ergebnis zu visualisieren. Viel Spaß beim stricken!
08.01.2024 - 09:30Kirsten wrote:
Jeg kan ikke se hvordan stribe fordelingen er på den hele domino.
10.10.2023 - 10:16DROPS Design answered:
Hej Kirsten, den hele DOMINORUDE strikkes ifølge STRIBER-1: * 2 p retstrik rosentræ, 2 p retstrik salt og peber *, strik fra *-*.
17.10.2023 - 12:59J Laumen wrote:
Kunt u aangeven welke kleuren bij elkaar kunnen voor bovenstaande trui als rosé mist niet op voorraad is? wat kan daarvoor in de plaats?\r\nOf kunt u een set aangeven met hoofdkleur rood? Met dank Jessica Laumen
16.09.2023 - 16:55DROPS Design answered:
Dag J Lauman,
Hiervoor kun je het beste even contact opnemen met de winkel waar je het garen koopt. Eventueel kun je extra bollen bestellen en die je niet gebruikt stuur je terug.
17.09.2023 - 09:51Kim wrote:
Hello, thank you for answering my question so quickly! but you have not answered it. The decreases at the neck do not create the neck shape in the picture - it just tapers the point and you get there a bit quicker. Knitting as instructed, decreasing at the sides and in the centre, it does not create the neck shape - I still have a point at the top of the diamond.
28.04.2023 - 10:15DROPS Design answered:
Dear Kim, repeating the last 2 rows (the one mentionned below + the next row from WS) will allow you getting a straight edge, you will decrease 1 st on each side and 2 sts in the middle (as before) until 3 sts remain. In this video, we show how to work such a half domino/how to end this domino to get a flat upper edge - we are working over a smaller number of stitches but this might help you understanding how to decrease. Happy knitting!
28.04.2023 - 11:04Kim wrote:
Hello, is there an error in this pattern? The picture shows a round neck, but the pattern says to knit a full square - it comes up to a point and the decreases at the side do not create the neckline shown in the picture. thanks
27.04.2023 - 21:08DROPS Design answered:
Dear Kim, you work a whole domino square (4 in the chart), but you will have to decrease to shape neck - see ROW 84-84-88-88-96-96 (= right side) before end of the square. Happy knitting!
28.04.2023 - 10:12Magali Dubuc wrote:
Bonsoir Pourriez vous me confirmer que pour le losange 2, les diminutions se font depuis la pointe du bas du futur losange 2 (configuration dans laquelle je me trouve en ayant repris les mailles du bas vers le haut du côté droit du losange 1). Ou devrais-je réduire depuis le haut du losange 2 ? Merci beaucoup d'avance pour votre réponse. Magali
26.04.2023 - 23:58DROPS Design answered:
Bonjour Mme Dubuc, les diminutions du demi-domino 2 se font en début de rang sur l'endroit (si on regarde le schéma, elles seront à droite = ligne droite du triangle 2). Lorsque vous ferez le demi-domino 3, vous diminuez en fin de rang sur l'endroit (= ligne droite du triangle 3 dans le schéma). Bon tricot!
27.04.2023 - 08:26Laura wrote:
Caro drop design team, Ho ricevuto la risposta alla precedente domanda e credo di non essere stata chiara. Le spiegazioni del quadrato numero 4 con diminuzioni per il collo non sono coerenti con il diagramma. Il diagramma mostra uno scollo di 12-13 cm che corrispondono a 5-6 maglie . La descrizione del lavoro prevede una chiusura di questo quadrato con 0 maglie. Potreste controllare ? Se non c'è un errore potreste spiegarmi dove sbaglio? Grazie Laura.
12.04.2023 - 07:42DROPS Design answered:
Buonasera Laura, lavorando a partire dalle righe 84-84-88-88-96-96 si lavorano le diminuzioni per il collo. Provi a vedere se questo video le può essere di aiuto. Buon lavoro!
06.05.2023 - 23:21Laura wrote:
Ciao Caro Drop design Team, questa volta ho una domanda: non mi è chiara la diminuzione per il collo: a leggere le spiegazioni ( sia in italiano che in norvegese tradotto) il quadrato viene terminato esattamente come il quadrato intero n. 1, ma a guardare la foto quello che risulta dovrebbe essere un pentagono. Potreste controllare per favore che il lavoro non preveda un numero di maglie in sospeso o addirittura intrecciate da riprendere in seguito? Grazie Laura
07.04.2023 - 09:40DROPS Design answered:
Buonasera Laura, non ci sono correzioni su questo modello. Buon lavoro!
11.04.2023 - 22:54Laura Baccei wrote:
Ciao Caro Drops design Team, Ho trovato un piccolo errore nella traduzione dello schema in italiano. L'originale in norvegese scrive: "84.-84.-88.-88.-96.-96.PINNE (= retten): Strikk 2 masker rett sammen, rett til det gjenstår 1 maske før merket, .." Nella traduzione in italiano manca: " Strikk 2 masker rett sammen" che stando a quallo che dice deepl significa " lavorare due maglie insieme". Potete controllare? grazie Laura
07.04.2023 - 09:35DROPS Design answered:
Buonasera Laura, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!
11.04.2023 - 22:53