DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sea Air

Prjónuð poncho peysa með laskalínu úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni í tveimur litum. Stærð S - XXXL.

DROPS 194-13
DROPS Design: Mynstur ai-154
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-250-250-250-300-300 g litur 02, hveiti
200-250-250-250-300-300 g litur 10, þoka

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 16 umferðir (séð frá réttu, þ.e.a.s. alls 32 umferðir) á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm með klukkuprjóni.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

KLUKKUPRJÓN MEÐ 2 LITUM (prjónað í hring):
UMFERÐ 1: Prjónið með litnum hveiti.
Prjónið * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið með litnum þoka.
Prjónið * uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* (takið eftir að síðasti uppslátturinn lítur ekki út eins og uppsláttur á prjóninum, en þráðurinn með litnum hveiti er á framhlið á stykki, leggið þráðinn yfir þannig að hann myndi uppslátt) – sjá LEIÐBEININGAR.
UMFERÐ 3: Prjónið með litnum hveiti.
Prjónið * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* (takið eftir að síðasti uppslátturinn lítur ekki út eins og uppsláttur á prjóninum, en þráðurinn með litnum hveiti er á framhlið á stykki, leggið þráðinn yfir þannig að hann myndi uppslátt) – sjá LEIÐBEININGAR.
UMFERÐ 3: Prjónið með litnum hveiti.
Prjónið * sláið uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* (takið eftir að síðasti uppslátturinn lítur ekki út eins og uppsláttur á prjóninum, en þráðurinn með litnum þoka er á framhlið á stykki, leggið þráðinn yfir þannig að hann myndi uppslátt).
Endurtakið umferð 2 og 3.

LEIÐBEININGAR:
Ef þú ert ekki viss um hvaða litur er prjónaður í næstu umferð, þá getur þú alltaf séð hvaða litur var prjónaður í fyrri umferð með því að sjá hvaða lit uppslátturinn hefur.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 68 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 17.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 17. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
Öll útaukning er gerð í 1 umferð með litnum hveiti.
Aukið út um 4 lykkjur þannig:
Prjónið 5 lykkjur í lykkju og uppslátt þannig: * Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni og uppslættinum sem prjónaður var af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinum og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar = 5 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri).
Í næstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar inn í klukkuprjóns mynstur en það er enginn klukkuprjóns uppsláttur í útaukningu, þannig að lykkjan sem á að prjónast saman með uppslættinum, er prjónuð án uppsláttar.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Öll úrtaka er gerð í 1 umferð með hveiti.
Fækkið lykkjum þannig: Prjónið þar til eftir eru 3 lykkjur á undan prjónamerki (án uppslátta, uppslættir á milli lykkja eru einnig steyptir yfir), takið næstu 3 lykkjur laust yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi þær slétt saman: lyftið 1 lykkju slétt + 1 lykkja brugðið + 1 lykkja slétt (= lykkja með prjónamerki) = 3 lykkjur án uppsláttar.
Prjónið síðan þannig: 1 lykkja brugðið og 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur) slétt saman, steypið síðan 3 lausu lykkjunum yfir lykkjurnar sem voru prjónaðar slétt saman (= 4 lykkjur færri – fyrir utan uppslætti).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Fyrst er berustykkið prjónað, þar sem aukið er út fyrir ermum og fram- og bakstykki. Síðan skiptist stykkið, fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring á hringprjón og ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Umferðin byrjar í skiptingunni á milli 1 ermi og bakstykki.
Fitjið upp 68-72-76-80-84-88 lykkjur á hringprjón 6 með litnum hveiti.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 4-0-4-0-4-0 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1.
Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 7.
Prjónið síðan KLUKKUPRJÓN MEÐ 2 LITUM (í hring) – sjá útskýringu að ofan.
Setjið 6 prjónamerki í stykkið hér (öll prjónamerkin eru sett í 1 lykkju slétt með litnum hveiti):
Bakstykki: Prjónið 13-13-15-15-17-17 lykkjur, prjónið 1 lykkju og setjið 1. prjónamerki í þessa lykkju (= miðja að aftan), prjónið 13-13-15-15-17-17 lykkjur.
Hægri ermi: Prjónið 1 lykkju og setjið 2. prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 7 lykkjur, prjónið 1 lykkju og setjið 3. prjónamerki í þessa lykkju.
Framstykki: Prjónið 13-13-15-15-17-17 lykkjur, prjónið 1 lykkju og setjið 4. prjónamerki í þessa lykkju (= miðja að framan), prjónið 13-13-15-15-17-17 lykkjur.
Vinstri ermi: Prjónið 1 lykkju og setjið 5. prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 7 lykkjur, prjónið 1 lykkju og setjið 6. prjónamerki í þessa lykkju.
Prjónið 1 umferð með litnum þoka (= 2. umferð í klukkuprjóni).
Í næstu umferð (= 3. umferð í klukkuprjóni) aukið út um 4 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki (= slétt lykkja með litnum hveiti) – sjá ÚTAUKNING-2 að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Endurtakið útaukningu í 6. hverri umferð með litnum hveiti (þ.e.a.s. alls 12. hverri umferð) til loka.
Þegar stykkið mælist 31-33-34-36-38-40 cm frá uppfitjunarkanti (þar sem aukið hefur verið út ca 8-9-9-10-10-11 sinnum) eru ca 91-99-103-111-115-123 lykkjur á hvoru framstykki/bakstykki (þ.e.a.s. lykkjur á milli 3. og 5. prjónamerki = framstykki og lykkjur á milli 6. og 12. prjónamerki = bakstykki) og ca 41-45-45-49-49-53 lykkjur á hvorri ermi (meðtaldar lykkjur með prjónamerki) = alls 264-288-296-320-328-352 lykkjur.
Klippið frá og færið umferðina að lykkju með 2. prjónamerki (lykkja með 2. prjónamerki = fyrsta lykkjan í næstu umferð). Nú skiptist stykkið til fram- og bakstykki og ermar þannig:
Hægri ermi: Setjið lykkjur á milli 2. og 3. prjónamerkis, meðtaldar lykkjur með prjónamerki á þráð fyrir ermi (= ca 41-45-45-49-49-53 lykkjur) og fitjið upp 7 lykkjur undir ermi.
Framstykki: Prjónið klukkuprjón eins og áður fram að lykkju með 5. prjónamerki (= ca 91-99-103-111-115-123 lykkjur).
Vinstri ermi: Setjið lykkjur á milli 5. og 6. prjónamerkis, meðtaldar lykkjur með prjónamerki á þræði fyrir ermi (= ca 41-45-45-49-49-53 lykkjur) og fitjið upp 7 lykkjur undir ermi.
Bakstykki: Prjónið klukkuprjón eins og áður út umferðina (= ca 91-99-103-111-115-123 lykkjur).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= ca 196-212-220-236-244-260 lykkjur.
Haldið áfram í hring í klukkuprjón og aukið út um 4 lykkjur í lykkju með 1. og 4. prjónamerki (= miðja að framan/aftan) í 6. hverri umferð með litnum hveiti eins og áður (þ.e.a.s. alls 12. hverri umferð). Þ.e.a.s. aukið út alls 8 lykkjur í 6. hverri umferð með litnum hveiti. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 24-24-25-25-25-25 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum = ca 244-260-268-284-292-308 lykkjur (eftir 6 útaukningar á fram- og bakstykki). Passið uppá að næsta umferð sé 1 umferð með litnum hveiti. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja með sléttum lykkjum, þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki stífur.

ERMI:
Setjið til baka lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón 7 (= ca 41-45-45-49-49-53 lykkjur) og takið upp 1 lykkju í hverja af 7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = ca 48-52-52-56-56-60 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í sléttu lykkjuna mitt undir ermi.
Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.
Þegar ermin mælist 2 cm frá þar sem stykkið skiptist frá fram- og bakstykki, fækkið um 4 lykkjur í lykkju með prjónamerki (= slétt lykkja) – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 4½-3½-4½-3-3½-2½ cm millibili alls 5-6-5-6-5-6 sinnum = 28-28-32-32-36-36 lykkjur. Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni þar til ermin mælist 25-24-23-21-19-18 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, stillið af að næsta umferð sé prjónuð með litnum hveiti. Skiptið yfir á sokkaprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt með litnum hveiti, uppslátturinn er prjónaður slétt saman með brugðnu lykkjunni. Fellið af með sléttum lykkjum, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 11.09.2018
Viðbót við ÚTAUKNING-2:..Í næstu umferð eru útauknu lykkjurnar prjónaðar inn í klukkuprjóns mynstur en það er enginn klukkuprjóns uppsláttur í útaukningu, þannig að lykkjan sem á að prjónast saman með uppslættinum, er prjónuð án uppsláttar.

Mynstur

symbols = prjónstefna
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Lily wrote:

This looks beautiful on my list!

04.11.2022 - 23:49

country flag Grethe Rød wrote:

Er maskene fordelt på både forstykket og rygg .Finner ikke noe om bakstykke. Mvh Grethe Rød

23.09.2021 - 11:30

DROPS Design answered:

Hej Grethe. Ja det stämmer, maskene är fordelt på både forstykket og rygg, så du stickar allt på en gång. Mvh DROPS Design

23.09.2021 - 13:51

country flag Kate wrote:

I would like to make this pattern as a poncho with no sleeves. Do you have any suggestions as to the length of circular needles required towards the bottom and how to continue at the point of separation for sleeves etc.? Do I continue with the same increase every 6 rows or would this change? I'm not sure how wide this would be towards the bottom with so many increases.

12.03.2021 - 15:27

DROPS Design answered:

Dear Kate, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, you might have to try working to the division for sleeves then try on the poncho and decide how to continue depending on the desired shape. Your DROPS store should be able to assist you if required - even per mail or telephone. Thanks for your comprehension. Happy knitting!

12.03.2021 - 15:39

country flag Hannelis Olsen wrote:

Starter jeg med en vrang pind eller en ret pind der står farven er tåge

10.01.2021 - 16:40

DROPS Design answered:

Hej Hennelis, Pinden med hvede strikkes fra retsiden, med mindre du vil have den anden side ud - se også gerne videoen som er lavet til denne opskrift :)

11.01.2021 - 12:55

country flag DonnaKlara wrote:

HalliHallo Kann mir mal jemand erklärende erklären was das "4-0-4-0-4-0" bedeutet? Sind es Zunahmen für das Vorderteil? LG DonnaKlara

17.12.2020 - 18:33

DROPS Design answered:

Liebe DonnaKlara, die Anleitung ist in 6 Größe geschrieben, und so werden diese Zahl gelesen: bei der 1. 3. und 5. Größe sollen Sie 4 Maschen gleichmäßig zunehmen - bei der 2., 4. und 6. Größe wird es nicht zugenommen. Viel Spaß beim stricken!

18.12.2020 - 07:04

country flag Torgunn wrote:

Hei! Jeg skjønner ikke hvordan jeg skal gjøre den første økningen, altså i omgang nr. 2. Jeg har lagt opp 80 masker, hvor mange økninger og hvor mange masker skal Det bli på pinnen etter økningen?

26.01.2020 - 15:41

DROPS Design answered:

Hei Torgunn. Les ØKETIPS-1 (jevn fordeling) i oppskriften. Du har 80 masker og skal øke jevnt fordelt 0 ganger i str XL. dette er 1. økningen i oppskriften i str XL. Om du mener 1. økningen i patentstrikk, altså 3.omgang i patentmønsteret– les ØKETIPS-2, evnt se Hjelpevideo under oppskriften: Hvordan øke i helpatent ved å strikke flere masker i samme maske. God Fornøyelse!

10.02.2020 - 13:31

country flag Anja Holmes wrote:

Hejsa. Er det mon muligt at bruge Drops Brushed Alpaca Silk til denne opskrift?

03.01.2020 - 20:55

DROPS Design answered:

Hej Ja du kan använda Drops Brushed Alpaca till detta mönster. Använd gärna vår omregner för att beräkna garnåtgången. Tänk också på att få rätt stickfasthet. Lycka till!

31.01.2020 - 11:09

country flag Genevieve Renancio wrote:

Bonjour,j'ai un petit problème pour installer les marqueurs,es ce que je dois compter les jetés comme des mailles à tricoter dans le premier rang de côte? Parce que la j'y arrive pas

07.11.2019 - 12:01

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Renancio, les marqueurs doivent être placés sur une maille, pas entre les mailles, et les jetés ne comptent pas comme une maille; vous pouvez placer vos marqueurs avant de tricoter le tour, ce peut être plus simple, indiquez-nous la taille tricotée, nous pourrons vous donner le détail si besoin. Bon tricot!

07.11.2019 - 12:08

country flag Birgit Hagedorn wrote:

Når jeg følger jeres video om udtagning, får jeg på omgangen efter udtagning for mange masker på pinden. Iflg video strikkes der slå om, løs af, en vrang, slå om løs af, en vrang, slå om løs af. Det giver tre ekstra masker seks gange, altså atten masker for meget?

21.09.2018 - 09:26

DROPS Design answered:

Hej Birgit, du har 2 nye masker på hver side af midterste maske. De 2 nye masker danner en ny patentmaske på hver side af den du udgik fra. God fornøjelse!

24.09.2018 - 10:19

country flag Bodil wrote:

Jättebra videounstruktion om ökning! Finns det en med minskningsstickning också?

17.09.2018 - 21:33