DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 190-6
DROPS Design: Mynstur e-278
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

BIKINITOPPUR:
Stærð: S/M – L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-100-100-100 g litur 19, rauður

BIKINIBUXUR:
Stærð: S/M – L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100-100 g litur 19, rauður

ATH: Efnismagn er gefið upp fyrir hvort stykkið, ef hekla á bæði stykkin þá þarf alls 150-150-150-200 g Safran.

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 fastalykkjur og 22 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, heklið 1 loftlykkju (loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju).
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, heklið 3 loftlykkjur (loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls).

MYNSTUR-1 (á við um bikinibuxur):
* 1 umferð með fastalykkjum, 1 umferð með stuðlum *, heklið frá *-* til loka.

ÚRTAKA (á við um bikinibuxur):
Fækkið lykkjum í stuðlaumferð þannig:
* Heklið 1 stuðul í hvern og einn af fyrstu 2 fastalykkjum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegnum báða þessa stuðla, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni *, heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju þar til 2 fastalykkjur eru eftir, endurtakið frá *-* (= 2 stuðlar færri).
Fækkið lykkjum í hverri umferð með fastalykkjum þannig:
* Heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af fyrstu 2 stuðlum en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegnum báðar þessar fastalykkjur, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni *, heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul þar til 2 stuðlar eru eftir, endurtakið frá *-* (= 2 fastalykkjur færri).

ÚTAUKNING (á við um bikinibuxur):
Aukið út um 2 stuðla í hvorri hlið í umferð þannig: Heklið 3 stuðla í fyrsta stuðul, heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju þar til 1 fastalykkja er eftir, heklið 3 stuðla í síðustu fastalykkju.
Aukið út um 1 stuðul í hvorri hlið í umferð þannig: Heklið 2 stuðla í fyrsta stuðul, heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju þar til 1 fastalykkja er eftir, heklið 2 stuðla í síðustu fastalykkju.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BIKINITOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru heklaðar 2 lausar brjóstaskálar. Síðan eru skálarnar heklaðar saman.

HÆGRI BRJÓSTASKÁL:
Heklið fyrst einn ferning, síðan er heklað áfram fram og til baka meðfram 2 af hliðum á þessum ferningi.

FERNINGUR:
Heklið 23-25-29-31 lausar loftlykkjur með heklunál 3 með Safran. Snúið og heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 fastalykkju í hverja af 21-23-27-29 loftlykkjum sem eftir eru = 22-24-28-30 fastalykkjur. Heklið síðan fram og til baka með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju – lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið alls 21-23-27-29 umferðir.
Næsta umferð er hekluð þannig (= frá röngu): Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 21-23-27-29 fastalykkjum, 3 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 1 fastalykkja um hverja af næstu 21-23-27-29 umferðum = 45-49-57-61 fastalykkjur.
EFRI HLUTI:
Næsta umferð er hekluð þannig (= frá réttu): Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 22-24-28-30 fastalykkjum, 2-3-3-3 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverj af næstu 22-24-28-30 fastalykkjum neðst meðfram hlið = 46-51-59-63 fastalykkjur.
Næsta umferð er hekluð þannig (= frá röngu): heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 23-26-29-31 fastalykkjum, 0-0-3-3 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverj af næstu 23-25-29-31 = 46-51-61-65 fastalykkjur.
Næsta umferð er hekluð þannig (= frá réttu): Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 23-26-31-32 fastalykkjum, 0-0-0-2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, 1 fastalykkja í hverja af næstu 23-25-30-32 fastalykkjum = 46-51-61-66 fastalykkjur.
Heklið síðan fram og til baka með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Heklið alls 14-16-18-20 umferðir.
Næsta umferð er hekluð þannig (= frá röngu): Heklið A.1a, A.1b alls 8-9-11-12 sinnum á breidd, A.1c og A.1d. Haldið áfram þar til A.1 er lokið á hæðina. Klippið frá og festið enda.

VINSTRI BRJÓSTASKÁL:
Heklið á sama hátt og hægri brjóstaskál, en allar umferðir frá réttu = röngu og allar umferðir frá röngu = rétta.

KANTUR:
Heklið nú 2 brjóstaskálarnar saman í eitt efra stykki. ATH: Passið uppá að hekla yfir báðar brjóstaskálarnar séð frá réttu!
Byrjið í horni á hægri brjóstaskál – sjá hring í mynsturteikningu. Heklið 1 fastalykkju um fyrstu umferð, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 3 umferðir, 1 fastalykkja um næstu umferð *, heklið frá *-* meðfram allri hliðinni, setjið 1 prjónamerki í þetta horn, haldið áfram á neðri kanti á brjóstaskál og heklið 1 fastalykkju í hverja af 22-24-28-30 fastalykkjum, 1 fastalykkja um hverja af 14-16-18-20 umferðum, 4 fastalykkjur um ystu umferð á gatamynstri, haldið síðan áfram yfir vinstri brjóstaskál, heklið 4 fastalykkjur um ystu umferð á gatamynstri, heklið 1 fastalykkju um hverja af 14-16-18-20 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af 22-24-28-30 fastalykkjum, setjið 1 prjónamerki hér, haldið áfram á hlið á brjóstaskál og heklið 1 fastalykkju um fyrstu umferð, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 3 umferðir, 1 fastalykkja um næstu umferð *, heklið frá *-* meðfram allri hliðinni, haldið áfram upp að horni á vinstri brjóstaskál – sjá þríhyrning á teikningu. Klippið frá og festi enda.
Heklið nú yfir fastalykkjur frá prjónamerki að prjónamerki (= 80-88-100-108 fastalykkjur), heklið með byrjun frá röngu þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 81-86-96-101 fastalykkjur. Snúið og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju.
Næsta umferð er hekluð þannig (= frá röngu): A.1a, A.1c, A.1b alls 15-16-18-19 sinnum á breidd og A.1d. Haldið áfram þar til A.1 er lokið á hæðina, klippið frá og festið enda.

SNÚRA:
Heklið eina loftlykkjuröð ca 120-130-150-160 cm. Leggið snúruna saman tvöfalda, þræðið lykkjuna í gegnum loftlykkjuboga í horni efst á brjóstaskálinni, þræðið snúruna í gegnum lykkjuna. Gerið aðra snúru alveg eins og festið í hina brjóstaskálina.
Heklið loftlykkjuröð ca 90-100-120-130 cm. Leggið snúruna saman tvöfalda, þræðið lykkjuna í gegnum loftlykkjuboga í horni neðst á brjóstaskál, dragið snúruna í gegnum lykkjuna.
Gerið aðra snúru á sama hátt og festið í hina brjóstaskálina.

-------------------------------------------------------

BIKINIBUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað með stuðlum og fastalykkjum, með kant á fram-/bakstykki og hnýttar saman í hlið. Byrjað er efst á framstykki og heklað er í eitt fyrir bakstykki.

BIKINIBUXUR:
Heklið 78-90-95-113 loftlykkjur með heklunál 3 með Safran.
Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja af næstu 4-1-1-4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 4 loftlykkjum *, heklið frá *-* alls 14-17-18-21 sinnum = 61-70-74-89 stuðlar. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið síðan MYNSTUR-1 – sjá útskýringu að ofan og í næstu umferð er fækkað um 1 stuðul í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona í hverri umferð með stuðlum alls 16-18-19-21 sinnum og í 3.-3.-2.-2. hverri umferð með fastalykkjum alls 5-6-7-11 sinnum = 19-22-22-25 stuðlar/fastalykkjur. Stykkið mælist ca 18-20-22 cm – ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið síðan áfram með mynstur-1 án útaukninga þar til stykkið mælist 22-25-27-29 cm. Í næstu umferð með stuðlum er aukið út um 2 stuðla í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING.
Aukið svona út í hverri umferð með stuðlum alls 11-14-16-17 sinnum, síða er aukið út um 1 stuðul í hverri umferð með stuðlum alls 9-6-5-4 sinnum = 81-90-96-101 stuðlar. Haldið síðan áfram með mynstur-1 eins og áður þar til stykkið mælist 45-49-51-54 cm – stillið af að síðasta umferð sé hekluð með stuðlum.

KANTUR:
Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul JAFNFRAMT er aukið út um 0-1-0-0 fastalykkju = 81-91-96-101 fastalykkjur. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.1a, A.1b alls 16-18-19-20 sinnum á breidd, A.1c og A.1d. Haldið áfram þar til A.1 er lokið á hæðina. Klippið frá og festið enda.
Heklið kant á framstykki á sama hátt – ATH: Hoppið yfir loftlykkjur sem ekki er heklað í.

SNÚRA:
Heklið loftlykkjuröð ca 70-90-100-110 cm. Leggið snúruna saman tvöfalda, þræðið lykkjuna í gegnum loftlykkjuboga í horni efst á bikinibuxum, þræðið snúruna í gegnum lykkjuna. Gerið alls 4 stykki og þræðið í gegnum hvert horn.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 10.05.2023
BINIKIBUXUR:KANTUR:..Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul JAFNFRAMT er aukið út um 0-1-0-0 fastalykkju = 81-91-96-101 fastalykkjur.

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja
symbols = stuðull í lykkju
symbols = stuðull um loftlykkju
symbols = tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð - byrjið á næstu umferð
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Nuria wrote:

Buenas tardes, estoy empezando con la primera copa y estoy ya en la fila de 51 puntos bajos. Y veo que la forma no me esta quedando, es como si en cada lado en cuanto he empezado con esta parte y teniendo los puntos que decis, me queda mas ancho, uqedandome como dos puntas en ambos lados ( inicio y final) y lo que comento, tengo los 51 puntos para la talla L. Por qué puede ser? Como lo puedo solucionar? Puede ser que el punto quede mas largo que ancho? Gracias.

06.08.2020 - 17:14

DROPS Design answered:

Hola Nuria, al final la copa no sera plana y fa forma debe ser apropiada. Buen trabajo!

18.01.2021 - 09:23

country flag Abier wrote:

Diesen Abschnitt der Anleitung verstehe ich nicht wo genau fängt man an ? Ich sehe auf dem Bild keine Reihe mit den 3 luftmaschen?\r\nIn der Ecke des rechten Brustcups beginnen – siehe Kreis in der Maßskizze. 1 feste Masche um die erste Reihe, * 3 Luftmaschen, 3 Reihen überspringen, 1 feste Masche um die nächste Reihe *, von *-* an der ganzen Seite entlanghäkeln,

26.07.2020 - 12:06

DROPS Design answered:

Guten Tag, Sie beginnen oben am rechten Brustup, an der Spitze also. In der Skizze ist dies mit einem Kreis gekennzeichnet. Sie befestigen den Faden dort mit 1 festen Masche am Rand, d.h. um die erste Reihe oben in der Ecke. Dann häkeln Sie am senkrechten Rand nach unten entlang - also an den senkrechten Reihen entlang. Sie häkeln zuerst 3 Luftmaschen, dann zählen Sie 3 Reihen weiter und häkeln um den Rand der nächsten Reihe 1 feste Masche. Gutes Gelingen!

27.07.2020 - 10:51

country flag Cropperhopper wrote:

I am trying to crochet the bra, but I'm confused with the directions. Right after top directions, it says to crochet in 24 single crochets. Then 3 in the next. Then to sc around each of the next 23 crochet rows. What is meant by the last sentence? Do I skip the remaining sc? Do I crochet around the whole piece? I'm also confused about the next part too.

07.07.2020 - 23:16

DROPS Design answered:

Dear Cropperhopper, you will now crochet in the stitches from previous row (where you worked 23 sc as before + 3 sc + 23 sc along the next side of piece = 49 sc), ie you work 1 sc in each of the first 23 sc + 1 in the first of the 3 sc, 3 sc in the next sc (the one in the middle of previous row), 1 sc in the next sc + 1 sc in each of the 23 sc = there are 24 sc + 3 sc in the same st + 24 sc = 51 sc. This means you now work along 2 sides of the piece. Happy crocheting!

08.07.2020 - 08:16

country flag Allene wrote:

Just finished making this. Haven't tested the panties in the water, but the top holds up really well. Made the top in XXXL because I am rather curvy. Had to modify how I attached the neck ties for comfort and add a cord to kind of lace up the middle so it would stay put. If anyone is interested, making the largest top and a size L for the bottoms, this still took just under 3 balls of Safran using a 3mm hook.

13.06.2020 - 14:31

country flag Kato wrote:

Hey klein vraagje ik zou graag eens proberen een bikini te breien, dit is mijn eerste keer dus ik weet niet heel goed welke wol ik moet gebruiken welke breinaalden en hoeveel bollen wol? alvast bedankt voor uw antwoordt Mvg Kato

25.05.2020 - 11:05

DROPS Design answered:

Dag Kato,

Voor de bikini in dit patroon heb je garen uit categorie A nodig, namelijk DROPS Safran. Het beste kies je katoen voor een bikini en geen wol. Bij de materialen staat aangegeven hoeveel gram garen je nodig hebt (meestal weegt 1 bol 50 gram) en welke naalddikte je nodig hebt. Maak altijd een proeflapje om te controleren of de stekenverhouding overeenkomt en pas evt. de naalddikte aan.

01.06.2020 - 10:37

country flag Ewelina wrote:

What about cup D?

15.05.2020 - 13:19

DROPS Design answered:

Dear Ewelina, it might be eeasy to make it bigger but we are very sorry we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request. You are welcome to contact your DROPS store or any crochet forum for further individual assistance. Happy crocheting!

15.05.2020 - 16:07

country flag Suchet wrote:

Bonjour, J'ai tricoter tt le premier cote du bikini jusqu'au diagramme. Mais je bloque je n'arrive pas à le lire... comment suis-je procéder ? Le premier est rang du diagramme est composé d'une maille en l'air, puis une seconde ou bien une double bride dans une maille ? Quand je dois piquer dans une maille comment dois je faire pour savoir laquelle ? Merci pour votre aide.

12.04.2020 - 14:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Suchet, vous crochetez les diagrammes comme indiqué, autrement dit quand on commence par A.1a, on crochète 1 ml comme le montre le diagramme (= remplace 1 ms) on doit ensuite continuer par exemple avec 1 ml dans A.1c/A.1b. Cf comment lire un diagramme. Bon crochet!

14.04.2020 - 11:28

country flag Casanova wrote:

Bonjour, c’est la première fois que je fais un bikini est j’aurais aimé savoir exactement combien fallait t’il que je commande en grammes de pelotes ? Pour faire le haut et le bas ? Svp Bien cordialement

22.03.2020 - 12:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Casanova, vous trouverez les quantités en fonction de la taille sous l'en-tête, autrement dit, 150 g DROPS Safran dans les 3 premières tailles et 200 g DROPS Safran dans la dernière taille. Bon crochet!

23.03.2020 - 10:22

country flag Lauren Vought wrote:

Being a curvy girl, I struggled with fit and support all my life, at a 36J , I was wearing a 38DDD, which was horrible, playing sports was blahvlah as well as formal events at school.

20.09.2019 - 00:31

country flag Anais wrote:

Bonjour, Quand on est dans la partie autour du carré initial, vous dites de crocheter 14 rangs (taille S/M). Vous comptez tous les rangs le long des 2 côtés ou uniquement ceux qui ne sont pas détaillés précédemment ? (Ça crée une différence de 4 rangs.) Merci.

03.07.2019 - 11:14

DROPS Design answered:

Bonjour Anaïs, vous crochetez les 22 ms de la 1ère partie, puis 2 ms dans la suivante, et 1 ms le long du côté gauche de la 1ère partie (= à gauche, vu sur l'endroit, dans les fins de rangs), vous crochetez un total de 14 rangs, y compris les 3 premiers qui sont expliqués. Bon crochet!

03.07.2019 - 13:30