DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1716.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 187-17
DROPS Design: Mynstur r-732
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Mál:
Hæð: ca 37-38 cm hátt þegar það liggur flatt.
Ummál: ca 75 cm mælt meðfram kanti efst.

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150 g litur 40, kórall

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 fastalykkjur og 20 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1716.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um botn og kant):
Skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju og endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
Skiptið út fyrsta hálfa stuðul með 2 loftlykkjur og endið umferð með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TASKA / NET - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið byrjar með hring með fastalykkjum í botni, síðan eru heklaðir loftlykkjurbogar sem mynda netið. Að lokum er heklaður kantur með handfangi í hvorri hlið.

BOTN:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 og Muskat, tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. LESIÐ LEIÐBEININGAR.
UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 lykkjur.
UMFERÐ 3: Heklið * 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 lykkjur.
UMFERÐ 4: Heklið * 1 fastalykkju í hvora af fyrstu 2 lykkjunum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 lykkjur.
UMFERÐ 5-10: Haldið áfram að hekla og auka út svona, hekluð er 1 lykkja fleiri í hverri útaukningu í hverri umferð.
Eftir 10. umferð eru 60 lykkjur í umferð og hringurinn mælist ca 10 cm að þvermáli.

NET:
Heklið síðan loftlykkjuboga sem mynda netið. Heklið þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 2 loftlykkjur, * hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju, 2 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju um 2 fyrstu loftlykkjur í umferð = 30 loftlykkjubogar.
UMFERÐ 2: Heklið 3 loftlykkjur, setjið eitt prjónamerki í þessar 3 loftlykkjur (= 1. loftlykkjubogi). Þetta er gert til að auðveldara sé að sjá hvar 1 loftlykkjubogi er þegar heklað er áfram. Heklið síðan * 1 fastalykkju um næsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* fram að 1. loftlykkjuboga og endið umferð með 1 keðjulykkju um þennan loftlykkjuboga.
UMFERÐ 3: Heklið 4 loftlykkjur, færið prjónamerkið að þessum loftlykkjum (= 1 loftlykkjubogi). Heklið síðan * 1 fastlykkju um næsta loftlykkjuboga, 4 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* fram að 1. loftlykkjuboga og endið umferð með 1 keðjulykkju um þennan loftlykkjuboga.
UMFERÐ 4: Heklið 5 loftlykkjur, færið prjónamerkið að þessum loftlykkjum (= 1 loftlykkjubogi). Heklið síðan * 1 fastlykkju um næsta loftlykkjuboga, 5 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* fram að 1. loftlykkjuboga og endið umferð með 1 keðjulykkju um þennan loftlykkjuboga.
UMFERÐ 5: Heklið 6 loftlykkjur, færið prjónamerkið að þessum loftlykkjum (= 1 loftlykkjubogi). Heklið síðan * 1 fastlykkju um næsta loftlykkjuboga, 6 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* fram að 1. loftlykkjuboga og endið umferð með 1 keðjulykkju um þennan loftlykkjuboga.
UMFERÐ 6: Heklið 7 loftlykkjur, færið prjónamerkið að þessum loftlykkjum (= 1 loftlykkjubogi). Heklið síðan * 1 fastlykkju um næsta loftlykkjuboga, 7 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* fram að 1. loftlykkjuboga og endið umferð með 1 keðjulykkju um þennan loftlykkjuboga.
UMFERÐ 7: Heklið 8 loftlykkjur, færið prjónamerkið að þessum loftlykkjum (= 1 loftlykkjubogi). Heklið síðan * 1 fastlykkju um næsta loftlykkjuboga, 8 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* fram að 1. loftlykkjuboga og endið umferð með 1 keðjulykkju um þennan loftlykkjuboga.
UMFERÐ 8-16: Heklið eins og umferð 7 (allir loftlykkjubogar hafa 8 loftlykkjur).
UMFERÐ 17-18: Heklið eins og umferð 6 (allir loftlykkjubogar hafa 7 loftlykkjur).
UMFERÐ 19-20: Heklið eins og umferð 5 (allir loftlykkjubogar hafa 6 loftlykkjur).
UMFERÐ 21-22: Heklið eins og umferð 4 (allir loftlykkjubogar hafa 5 loftlykkjur), en endið umferð 22 með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í 1. loftlykkjuboga í byrjun á umferð.

KANTUR MEÐ HANDFANGI:
UMFERÐ 1: Heklið 5 hálfa stuðla um hvern loftlykkjuboga frá fyrri umferð = 150 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hvern hálfan stuðul = 150 fastalykkjur.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 25 fastalykkjum, heklið 75 loftlykkjur (= handfang), hoppið yfir 25 fastalykkjum, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 50 fastalykkjum, heklið 75 loftlykkjur (= handfang) og hoppið yfir 25 fastalykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 25 fastalykkjum.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 25 fastalykkjum, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 75 loftlykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 50 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 75 loftlykkjum, 1 fastalykkja í hverja af síðustu 25 fastalykkjum.
UMFERÐ 5: Heklið 1 keðjulykkju í hverja af fyrstu 25 fastalykkjum, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 75 loftlykkjum (= handfang), 1 keðjulykkja í hverja af næstu 50 fastalykkjum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 75 fastalykkjum (= handfang), 1 keðjulykkja í hverja af síðustu 25 fastalykkjum. Klippið frá og festið enda.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sugar Mesh

mammame

Sugar Mesh

Nathalie

Sugar Mesh by Drops

SimoneetGinette, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Manuela wrote:

Quando chego à 6.ª carreira, em A.2, não sei continuar depois dos 2 pontos correntes e 1 ponto baixo (na parte da rede depois da pétala). Ou seja, faço 1 ponto baixo e 4 pontos corrente alternadamente e, no fim, 1 ponto baixo e 5 pontos corrente? Penso que não estou a interpretar bem esta parte. Será que me podem ajudar, por favor? Têm algum vídeo que mostre a diminuição das pétalas e início da rede?Obrigada

04.04.2024 - 20:54

country flag DUPIRE-LE LÉANNEC wrote:

Bonjour, Sur le 1er rang d’arceaux, on en a 30. Et sur les suivants, on y en a t’il 30 aussi ? Car au 2ème rang je me retrouve avec 29 arceaux. Merci d’avance

27.07.2023 - 15:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dupire-Le Léannec, vous devez toujours bien avoir 30 arceaux tout le tour; le dernier arceau doit être celui crocheté autour de l'arceau où vous avez mis le marqueur au début du tour. Bon crochet!

27.07.2023 - 16:32

country flag Raffaella wrote:

Grazie !!! Facilissima da fare, velocissima e bellissima. Ne farò tante di colori diversi e anche multicolore per finire avanzi di filato

24.06.2022 - 21:39

country flag Marie-France Leroux wrote:

Bonjour . Travailler le rond en spirale cela est-il possible

09.09.2021 - 06:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Leroux, probablement, mais pensez à faire les ajustements nécessaires (le nombre de mailles en l'air des arceaux augmente puis rétrécit en fonction des tours). Bon crochet!

09.09.2021 - 09:02

country flag Silvia wrote:

Buonasera! Per quanto riguarda il bordo al punto 4, bisogna tornare indietro dopo aver lavorato le seconde 25 maglie basse? Grazie infinite

04.08.2021 - 19:31

DROPS Design answered:

Buonasera Silvia, il lavoro è in tondo, quindi alla fine del giro 4 inizia il giro 5. Buon lavoro!

06.08.2021 - 19:12

country flag Hanne Mau wrote:

Anja Jervin hej du skal ud ligesom i 6 tabellen når man tager ud for man jo flere m mellem udtagninger 1 omg 6m 2 omg 12 m 3 omg 18 m 4 omg 24 m 5 omg 30 m 6 omg 36 m 7 omg 42 m 8 omg 48 m 9 omg 54 m 10 omg 60 m

12.05.2020 - 13:16

country flag Iarger wrote:

Combien de pelotes de coton drops faut il ? Je n ai pas vu si c était indiqué. Merci

13.04.2020 - 09:15

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Larger, il faudra 3 pelotes de DROPS Muskat pour réaliser ce sac, les quantités sont toujours indiquées au poids au début des explications. Bon crochet!

14.04.2020 - 12:30

country flag Anja Jervin wrote:

Jeg er nybegynder og forstår ikke sætningen under omgang 5-10 står der "der hækles 1 maske mere før hver udtagning på hver omgang" kan I oversætte?

26.03.2020 - 19:39

DROPS Design answered:

Hei Anja. I 3.omgang heklet du 1 fastmaske før du i neste maske hekler 2 fastmasker (øker). I 4. omgang hekler du 1 fastmaske i hver av de 2 neste fastmaskene før du i neste maske hekler 2 fastmasker (øker). I 5. omgang hekler du 1 fastmaske i hver av de 3 neste fastmaskene før du i neste maske hekler 2 fastmasker (øker). I 6. omgang hekler du 1 fastmaske i hver av de 4 neste fastmaskene før du i neste maske hekler 2 fastmasker (øker). Osv osv, altså du hekler 1 maske mer før du hekler 2 masker i 1 maske (øker). God Fornøyelse!

30.03.2020 - 14:29

country flag Kathy Almonte wrote:

When we start the edge, do you do as on the bottom ie; chain one for first stitch .?

13.06.2019 - 21:24

DROPS Design answered:

Dear Mrs Almonte, you should replace 1st hdc with 1 chain and 1st dc with 1 ch (see CROCHET INFO). Happy crocheting!

14.06.2019 - 07:21

country flag Veronica Bellotti wrote:

Cosa vuol dire GIRI 5-10: Continuare a lavorare e aumentare in questo modo, lavorare 1 maglia in più prima di ogni aumento su ogni giro ? grazie

11.06.2019 - 12:47

DROPS Design answered:

Buongiorno Veronica. P.es al giro 5, lavora 1 m.bassa in ognuna delle prime 3 maglie, 2 maglie basse nella maglia successiva e così su tutto il giro. Al giro 6, lavora 1 m bassa in ognuna delle prime 4 maglie, 2 maglie basse nella maglia successiva e così su tutto il giro. Ad ogni giro lavora 1 maglia in più prima di lavorare 2 maglie nella stessa maglia. Buon lavoro!

11.06.2019 - 12:55