DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4180.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Emmelie

Prjónuð peysa í klukkuprjóni, með hringlaga berustykki og 3/4-löngum ermum úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stærð S - XXXL.

DROPS 176-32
DROPS Design: Mynstur as-066
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
125-125-150-150-175-200 g litur 12, dauf bleikur

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 lykkjur og 19 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð (12 lykkjur klukkuprjón ca 10 cm á breidd).
DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4180.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI Á FRAM- OG BAKSTYKKI (prjónað í hring á hringprjóna).
UMFERÐ 1.
* sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2:
* prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 3:
* sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-*.
Endurtakið umferð 2 og 3.

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI Á ERMUM (prjónað fram og til baka):
UMFERÐ 1 (= rétta):
1 kantlykkja, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju.
UMFERÐ 2:
1 kantlykkja, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju. Endurtakið 2. umferð í framhaldinu.

KLUKKUPRJÓNSLYKKJUR:
Þegar telja á lykkjurnar, þá er uppslátturinn ekki talinn sem sér lykkja.

ÚRTAKA (á fram- og bakstykki):
Fækkið um 2 lykkjur hvoru megin við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur færri fyrir hverja úrtökuumferð).

1. ÚRTAKA:
Byrjið 9 lykkjum á undan prjónamerki, steypið næsta uppslætti yfir lykkjuna (þannig að hann liggi aftan við þessa lykkju), takið þessa lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman.
Haldið áfram með klukkuprjón þar til prjónaðar hafa verið 7 lykkjur framhjá prjónamerki, prjónið næstu 3 lykkjur slétt saman. Endurtakið við hitt prjónamerkið.

2. ÚRTAKA:
Byrjið 7 lykkjum á undan prjónamerki, steypið næsta uppslætti yfir lykkjuna (þannig að hann liggi aftan við þessa lykkju), takið þessa lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman.
Haldið áfram með klukkuprjón þar til prjónaðar hafa verið 5 lykkjur framhjá prjónamerki, prjónið næstu 3 lykkjur slétt saman. Endurtakið við hitt prjónamerkið.

3. ÚRTAKA:
Byrjið 5 lykkjum á undan prjónamerki, steypið næsta uppslætti yfir lykkjuna (þannig að hann liggi aftan við þessa lykkju), takið þessa lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman.
Haldið áfram í klukkuprjóni þar til prjónaðar hafa verið 3 lykkjur framhjá prjónamerki, prjónið næstu 3 lykkjur slétt saman. Endurtakið við hitt prjónamerkið.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn. ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í klukkuprjón.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp. Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Ermarnar eru settar á hringprjóninn saman við fram- og bakstykki og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón 6 með Brushed Alpaca Silk.
Fitjið upp 180-192-210-228-246-270 lykkjur. Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: * 2 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* út umferðina = 120-128-140-152-164-180 lykkjur.
Setjið 2 prjónamerki í hvora hlið á stykki þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar, setjið 1 prjónamerki eftir 60-64-70-76-82-90 lykkjur. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Prjónið síðan KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 4 lykkjur í hvorri hlið á stykki í 2. umferð í klukkuprjóni – lesið ÚRTAKA fyrir 1. ÚRTAKA (= alls 8 lykkjur færri í umferð).
Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 20 og 30 cm – LESIÐ ÚRTAKA fyrir 2. og 3. ÚRTAKA = 96-104-116-128-140-156 lykkjur. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 34-34-35-35-35-35 cm, passið uppá að endað sé með umferð 3 í klukkuprjóni. Í næstu umferð (= 2. umferð í mynstri) fellið af 3-3-3-4-4-4 lykkjur hvoru megin við hvert prjónamerki fyrir handveg (uppslátturinn er ekki talinn með sem lykkja – lesið KLUKKUPRJÓNSLYKKJUR að ofan) = 42-46-52-56-62-70 lykkjur á framstykki/bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna 6.
Fitjið upp 44-47-50-50-50-53 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið). Prjónið sléttprjón í 8 cm, prjónið síðan frá röngu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið saman *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni = 30-32-34-34-34-36 lykkjur. Prjónið síðan klukkuprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið – lesið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI Á ERMUM. Þegar stykkið mælist 12-12-11-8-8-8 cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING! Aukið út með 13-13-6-4-4-4 cm millibili alls 2-2-3-4-4-4 sinnum = 34-36-40-42-42-44 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-28-27-26-24-23 cm fellið af 4-4-4-5-5-5 lykkjur í byrjun 2 næstu umferðum, byrjið með affellingu frá réttu = 26-28-32-32-32-34 lykkjur, klippið frá.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna 6. Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 136-148-168-176-188-208 lykkjur. Prjónið síðan í hring í klukkuprjóni. Þegar berustykkið mælist 15-17-18-20-22-24 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar eru sett saman er skipt yfir á hringprjón 5 og prjónuð er 1 umferð með stroffi (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, uppslátturinn er prjónaður saman með óprjónuðu lykkjunum). Í næstu umferð er lykkjum fækkað þannig: * 2 lykkjur snúnar slétt saman (prjónið í aftari lykkjubogann), 2 lykkjur brugðið saman *, endurtakið frá *-* út umferðina = 68-74-84-88-94-104 lykkjur. Haldið áfram með stroff þar til berustykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm, fellið síðan af allar lykkjur með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju. Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Maria Fjørtoft wrote:

Når man skal felle i 1.felling etter ca 10 cm, hvordan strikkes disse maskene senere? Skal man fortsette patentmønsteret så det jevner seg ut i sidene? Får det ikke til å gå opp med å strikke kastet og en maske til vrangt, og så kast og løst av i omgangen etter.

09.01.2024 - 17:25

DROPS Design answered:

Hei Maria. Får litt problemer med 1. felling jeg også, så spørsmålet er oversendt til design avd. for en dobbeltsjekk, evnt rettelse. mvh DROPS Design

18.01.2024 - 07:56

country flag Liz Nybegynner wrote:

? Skal maskeantallet bolen halveres etter opplegget på 1 omg??; BOLEN: Arbeidet strikkes rundt på rundpinne 6 med Brushed Alpaca Silk. Legg opp 180-192-210-228-246-270 masker. Første omgang strikkes slik: * 2 vrang sammen, 1 rett *, gjenta fra *-* omgangen ut = 120-128-140-152-164-180 masker.

23.01.2023 - 11:50

country flag Anne wrote:

I do not understand the decrease section. If you hold the working yarn in your right hand how what do you do with the yarn over? I do not understand your previous instructions about passing it over the left hand needle. Also do you decrease on the knit or purl row?

18.01.2022 - 12:52

DROPS Design answered:

Dear Anne, slip the yarn over worked over the next stitch on left needle off the needle (the stitch is now "alone" and not with its yarn over anymore). Decrases are worked on a round worked as round 2 English rib. Happy knitting!

18.01.2022 - 14:34

country flag Diana wrote:

Ich habe leider noch eine Frage... ich habe die ersten 10 cm gestrickt und soll nun 4x2 Maschen abnehmen und trotzdem im Muster weiter stricken. Wie soll das funktionieren? Es geht nicht mehr auf/ nicht mehr durch 3 Teilbar. Es wiederholt sich doch eigentlich immer: 2 zus. Gestr., Umschlag, eine abgehobene M, nehme ich 2 Maschen ab, bleibt eins davon „übrig“. Ich freue mich schon auf die Antwort. Liebe Grüße 💁🏼‍♀️

07.03.2020 - 17:33

DROPS Design answered:

Liebe Diana, nach den ersten 10 cm nimm man ab, wie es unter 1. ABNAHME beschrieben wird -siehe auch vorrige Antwort. Viel Spaß beim stricken!

09.03.2020 - 10:06

country flag Diana wrote:

Hallo, ich soll die Umschläge nicht als Maschen zählen - aber 3 Maschen rechts zusammen stricken. Ich habe doch aber nur immer 2 Maschen nebeneinander. U Und die Abnahme erfolgt dann eigentlich in 2 Runden, wenn ich erst vor dem Markierungsfaden beginne und nicht schon nach dem Rundenbeginn - oder habe ich einen Denkfehler? Vielen lieben Dank und liebe Grüße Diana

06.03.2020 - 22:31

DROPS Design answered:

Liebe Diana, Am Anfang der Runde stricken Sie 7 M nach der Markierer, dann die Abnahme, dann bis zur 2. Markierung stricken und abnehmen(= 1 Abnahme, 7 M, Markierer, 7 M, 1 Abnahme) dann die letzte Abnahme vor der Rundeende stricken = Abnahme, 7 M, Markierer. Viel Spaß beim stricken!

09.03.2020 - 09:48

country flag Monica wrote:

Secondo me non dovreste dare questo non-servizio, 21 giorni per una risposta rendono quasi inutile una eventuale richesta di spiegazioni. Fino a qualche tempo fa era un aiuto utilissimo, poi è cambiato qualcosa e non funziona più.

27.11.2019 - 06:30

country flag Monica wrote:

Posto che le diminuzioni del corpo è previsto vengano eseguite partendo dal giro 2, alcune maglie prima e dopo di ciascun marcapunto, è corretto che l'ultima delle diminuzioni sia effettuata all'inizio del giro 3? Grazie saluti

06.11.2019 - 20:12

DROPS Design answered:

Buongiorno Monica. Sì, se la prima diminuzione la lavora all’altezza del segnapunti a metà del giro, l’ultima diminuzione avviene all'inizio del giro 3. Buon lavoro!

27.11.2019 - 13:34

country flag Anne-Marie Hagen wrote:

Hej. Skal der bruges dobbelt garn, altså 2 tråde af brusede alpaka?

09.05.2019 - 19:46

DROPS Design answered:

Hei Anne-Marie. Nei, det strikkes med kun 1 tråd. Strikkefastheten din skal være 15 masker og 19 pinner glattstrikk på 10 cm i bredden og 10 cm i høyden. God fornøyelse

10.05.2019 - 08:57

country flag Elfa SIgurdardottir wrote:

Fitja upp 180 lykkjur sem small er það ekki fullmikið?

30.03.2019 - 17:38

DROPS Design answered:

Þetta er lykkjufjöldinn sem hönnuður gefur upp.

06.04.2019 - 01:14

country flag Ingvild wrote:

Heisann! Når det står strikk kastet og den løse masken sammen, betyr det at man skal strikke tre masker sammen? Begge fra den kastede og den man har tatt løst av?

04.12.2018 - 23:24