DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8712.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 167-14
DROPS Design: Mynstur nr l-137
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: Ein stærð

Efni:
DROPS BOMULL-LIN frá Garnstudio
300 g litur nr 02, natur
200 g litur nr 03, ljós beige
100 g litur nr 11, beige

ATH: Ef hekla á stykkið með einum lit þá þarf 500 g Bomull-Lin.

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 14 st á breiddina og 8,5 umf á hæðina verði 10 x 10 cm. 1 ferningur mælist ca 40 x 40 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8712.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LITIR FERNINGUR:
Uppfitjun + UMFERÐ 1: beige,
UMFERÐ 2: ljós beige,
UMFERÐ 3-6: beige,
UMFERÐ 7: natur,
UMFERÐ 8-10: ljós beige
UMFERÐ 11-15: natur.

LITIR KANTUR:
UMFERÐ 1-3: ljós beige,
UMFERÐ 4-5: natur.

STUÐLAHÓPUR:
Heklið 1 st í næstu ll/ll-boga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 st um sömu ll/ll-boga, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

LITASKIPTI:
Til að fá fallega litaskiptingu er skipt um lit þegar bregða á þræðinum um heklunálina og draga á þráðinn í gegnum síðustu l í umferð, þá er dregið í gegn með nýja litnum í gegnum allar l á heklunálinni.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll, umf endar á 1 kl í 3. ll í byrjun umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Það eru heklaðir 4 stórir ferningar eins og útskýrt að neðan. Síðan eru ferningarnir heklaðir saman í poncho. Að lokum er heklaður kantur í hálsmáli og kantur neðst niðri á poncho.

1 FERNINGUR:
Heklið 4 ll með heklunál nr 5 með litnum beige og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll.
LESIÐ LITIR FERNINGUR og LITASKIPTI!
Heklið síðan mynstur eftir A.1, þ.e.a.s. heklið þannig:
UMFERÐ 1: 4 ll (jafngilda 1 st + 1 ll), * 1 st um hringinn, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 15 sinnum, skiptið yfir í litinn ljós beige og endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf (= 16 st með 1 ll á milli hverra).
UMFERÐ 2: 1 kl um fyrstu ll, 3 ll (jafngilda 1 st), heklið 1 st um sömu ll, * heklið 2 ll, um næstu ll er heklaður STUÐLAHÓPUR – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* alls 15 sinnum, heklið 2 ll, skiptið yfir í beige og endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf (= 16 st-hópar með 2 ll á milli hverra).
UMFERÐ 3: 1 kl um fyrsta ll-bogann, 3 ll (jafngilda 1 st), 1 st um sama ll-boga, 3 ll, 1 st-hópur um sama ll-boga, * um næsta ll-boga er heklaður 1 st-hópur + 3 ll + 1 st-hópur *, endurtakið frá *-* alls 15 sinnum og endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 4: 1 kl um fyrsta ll-bogann, 4 ll (jafngilda 1 fl + 3 ll), 1 fl um sama ll-boga, * um næsta ll-boga er heklað 1 fl + 3 ll + 1 fl *, endurtakið frá *-* alls 15 sinnum og endið á 1 kl í 1. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 5: 1 kl í fyrsta ll-bogann, 3 ll (jafngilda 1 st), 1 st + 4 ll + 1 st-hópur um sama ll-bogann, * um næsta ll-boga er heklaður 1 st-hópur + 4 ll + 1 st-hópur *, endurtakið frá *-* alls 15 sinnum og endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 6: 1 kl um fyrsta ll-bogann, 5 ll (jafngilda 1 fl + 4 ll), 1 fl um sama ll-boga, * um næsta ll-boga er heklað 1 fl + 4 ll + 1 fl *, endurtakið frá *-* 15 sinnum, skiptið yfir í litinn natur og endið á 1 kl í 1. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 7: Heklið kl að miðju á fyrsta ll-boga, 9 ll (jafngildir 1 fl + 8 ll), * (1 fl um næsta ll-boga, 6 ll), endurtakið frá (-) alls 3 sinnum **, 1 fl um næsta ll-boga, 8 ll *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekning endar eftir **. Skiptið yfir í litinn ljós beige og heklið 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf.
UMFERÐ 8: Heklið kl að miðju á fyrsta ll-boga, 4 ll (jafngilda 1 tbst), 1 tbst + 3 ll + 2 tbst um sama ll-boga (= horn), * 5 ll, 1 hst um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um sama ll-boga, 5 ll, 1 hst um næsta ll-boga, 5 ll **, um næsta ll-boga eru heklaðir 2 tbst + 3 ll + 2 tbst *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekning endar eftir **, endið á 1 kl í 4. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 9: Heklið 1 kl í næsta st og 1 kl um ll-bogann í horni, 4 ll (jafngilda 1 tbst), 1 tbst + 3 ll + 2 tbst um sama ll-boga (= horn), * 1 ll, heklið síðan 7 st um hvern og einn af 4 næstu ll-bogum, 1 ll **, um næsta ll-boga eru heklaðir 2 tbst + 3 ll + 2 tbst *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekning endar eftir **, endið á 1 kl í 4. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 10: Heklið 1 kl í næsta st og 1 kl um ll-bogann í horni, 4 ll (jafngilda 1 tbst), 1 tbst + 3 ll + 2 tbst um sama ll-boga (= horn), * (6 ll, 1 st í 4. St í fyrsta/næsta st-hóp), endurtakið frá (-) alls 4 sinnum, 6 ll **, um næsta ll-boga eru heklaðir 2 tbst + 3 ll + 2 tbst (= horn) *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnu, en síðasta endurtekning endar eftir **, skiptið yfir í litinn natur og endið á 1 kl í 4. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 11: Heklið 1 kl í næsta st og 1 kl um ll-bogann í horni, 4 ll (jafngilda 1 tbst), 1 tbst + 3 ll + 2 tbst í sama ll-boga (= horn), * 1 ll, síðan eru heklaðir 7 st um hvern og einn af næstu 5 ll-bogum, 1 ll **, um næsta ll-boga er heklað 2 tbst + 3 ll + 2 tbst (= horn) *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekning endar eftir **, endið á 1 kl í 4. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 12: Heklið 1 kl í næsta st og 1 kl um ll-bogann í horni, 4 ll (jafngilda 1 tbst), 1 tbst + 3 ll + 2 tbst um sama ll-bogann (= horn), * 1 ll, 1 tbst um fyrsta ll, (1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 tbst í næsta st), endurtakið frá (-) alls 17 sinnum, 1 ll, 1 tbst um ll, 1 ll **, um næsta ll-boga er heklað 2 tbst + 3 ll + 2 tbst *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekning endar eftir **, endið á 1 kl í 4. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 13: Heklið 1 kl í næsta st og 1 kl um ll-bogann í horni, 3 ll (jafngildir 1 st), 1 st + 3 ll + 2 st um sama ll-bogann (= horn), * 1 ll, síðan er heklaður 1 st um hverja ll og 1 st í hvern st fram að næsta horni (= 39 st á milli horna), 1 ll **, um ll-bogann er heklað 2 st + 3 ll + 2 st (= horn) *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekning endar eftir **, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 14: Heklið 1 kl í næsta st og 1 kl um ll-bogann í horni, 3 ll (jafngildir 1 st), 1 st + 3 ll + 2 st um sama ll-bogann (= horn), * 1 ll, 1 st um fyrstu ll, (1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st), endurtakið frá (-) alls 19 sinnum, 1 ll, 1 st um ll, 1 ll **, um næsta ll-boga er heklað 2 st + 3 ll + 2 st *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekning endar eftir **, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 15: Heklið 1 kl í næsta st og 1 kl um ll-bogann í horni, 3 ll (jafngildir 1 st), 1 st + 3 ll + 2 st um sama ll-boga (= horn), * 1 ll, heklið síðan 1 st um hverja ll og 1 st í hvern st fram að næsta horni (=
43 st á milli horna), 1 ll **, um næsta ll-boga er heklað 2 st + 3 ll + 2 st (= horn) *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en síðasta endurtekning endar eftir **, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Klippið frá og festið alla enda. Ferningurinn mælist ca 40 x 40 cm.

ATH: Ef óskað er eftir að hafa poncho stærra er umf 14-15 endurtekin að óskaðri lengd.

FRÁGANGUR:
Leggið ferningana eins og útskýrt er í mynsturteikningu.
Leggið 2 ferninga ofan á hvorn annan með röngu að röngu og heklið þá saman með litnum ljós beige þannig:
Heklið 1 fl um ll-bogann í horni á fyrsta ferning, 1 ll, 1 f um ll-bogann í horni á hinum ferningnum, * 2 ll, hoppið yfir 2 st á fyrsta ferningi, 1 fl í næsta st á fyrsta ferningi, 2 ll, hoppið yfir 2 st á seinni ferningi, 1 fl í næsta st á seinni ferningi *, endurtakið frá *-* fram að næsta horni, heklið 2 ll, 1 fl um ll-bogann í horninu á fyrsta ferningi, 1 ll, 1 fl um ll-bogann á seinni ferningi, klippið frá og festið enda. Endurtakið meðfram hinum hliðunum.

HÁLSMÁL:
Heklið kant í lokin í kringum hálsmál með litnum ljós beige með heklunál nr 5 þannig – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR:
Heklið umf 2 í A.2, en fyrir miðju að framan og fyrir miðju að aftan eru ll-bogar, heklið 1 st í hvern ll-boga með 1 ll á milli hverra. Heklið umf 3 í A.2, en fyrir miðju að framan og fyrir miðju að aftan eru heklaðir miðju 3 st saman þannig: Heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið næsta st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 l á heklunálinni), heklið næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 4 l á heklunálinni. Klippið frá og festið enda.

KANTUR NEÐST Á PONCHO:
Heklið kant í lokin neðst niðri á poncho með heklunál nr 5 þannig – LESIÐ LITIR KANTUR og HEKLLEIÐBEININGAR:
Byrjið með litnum ljós beige og heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.2, þ.e.a.s. heklið þannig: ATH: Til að kanturinn haldi áfram í fallegt horn eins og á ferningunum er mikilvægt að útaukningin við miðju að framan og fyrir miðju að aftan haldi áfram eins og áður, þ.e.a.s. um miðju ll-bogann fyrir miðju að framan og fyrir miðju að aftan er heklað 2 ll + 2 st + 3 ll + 2 st + 2 ll, í hverri umf alveg eins og á sjálfum ferningunum.
UMFERÐ 1: Heklið 1 st í hvern st í kringum allt poncho, en þar sem 2 ferningarnir mætast eru ll-bogar, heklið 2 st um hvern ll-boga. Að auki heldur hornið við miðju að framan og við miðju að aftan eins og útskýrt er frá að ofan.
UMFERÐ 2: * 1 st í fyrsta/næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en haldið áfram með hornið við miðju að framan og fyrir miðju að aftan.
UMFERÐ 3: Heklið 1 st í hvern st og 1 st um hverja ll, en haldið áfram með horn við miðju að framan og fyrir miðju að aftan. Skiptið yfir í natur.
UMFERÐ 4: 1 st, 3 ll, 1 kl í fyrstu af 3 ll, heklið 2 st í sömu l (= 1 st-hópur með picot), * 1 ll, hoppið yfir 3 st, í næsta st er heklaður 1 st, 3 ll, 1 kl í fyrstu af 3 ll, heklið 2 st í sama st*, endurtakið frá *-* umf hringinn, en passið uppá að þetta passi fallega við hornið við miðju að framan og fyrir miðju að aftan.
UMFERÐ 5: * 6 ll, hoppið yfir st-hópinn, 1 fl um næstu ll*, endurtakið frá *-* umf hringinn. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 22.08.2016
Nýtt efnismagn: DROPS BOMULL-LIN 100 gr nr 11, beige
300 g nr 02, natur
Yfirfarið á vefsvæði: 22.05.2018
Leiðrétting: UMFERÐ 4: 1 st, 3 ll, 1 kl í fyrstu af 3 ll, heklið 2 st í sömu l (= 1 st-hópur með picot), * 1 ll, hoppið yfir 3 st, í næsta st er heklaður 1 st, 3 ll, 1 kl í fyrstu af 3 ll, heklið 2 st í sama st*, endurtakið frá *-* umf hringinn, en passið uppá að þetta passi fallega við hornið við miðju að framan og fyrir miðju að aftan.

Mynstur

symbols = heklið 4 ll og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll (sjá punkt í hring), umf byrjar og endar hér
symbols = 1 ll
symbols = 1 fl um ll-bogann
symbols = 1 fl um ll-bogann, en í byrjun á umf er heklað kl að miðju á boga, heklið 1 ll (jafngildir 1 fl), endið umf á 1 kl í ll í byrjun umf.
symbols = 1 hst
symbols = 1 st um ll/ll-bogann (í byrjun á umf er fyrstu st skipt út fyrir 3 ll, endið umf með 1 kl í 3. ll í byrjun umf)
symbols = 1 st í st (í byrjun umf er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll, endið umf með 1 kl í 3. ll í byrjun umf)
symbols = 1 tbst í st
symbols = st-hópur með 2 st: Heklið 1 st um næstu ll/ll-boga, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni) heklið eftir það næsta st um sama ll/ll-bogann, en bíðið með að draga bandið í gegnum allar l á heklunálinni (í byrjun á umf er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll, endið umf með 1 kl í 3. ll í byrjun umf)
symbols = Heklið um ll-boga í horni þannig: 2 st + 3 ll + 2 st (í byrjun umf eru heklaðar kl fram að ll-boga, skiptið úr fyrsta st með 3 ll og endið umf með 1 kl í 3. ll í byrjun umf)
symbols = Heklið um ll-boga í horni þannig: 2 tbst + 3 ll + 2 tbst (í byrjun á umf eru heklaðar kl fram að ll-boga, skiptið út fyrstu tbst með 4 ll og endið umf með 1 kl í 4. ll í byrjun umf)
symbols = Heklið um ll-bogan í horni þannig: 2 tbst + 3 ll + 2 tbst (í byrjun á umf eru heklaðar kl að miðju á ll-boga, skiptið út fyrstu tbst með 4 ll og endið umf með 1 kl í byrjun umf)
symbols = St-hópur með picot: Heklið 1 st í fyrstu/næstu l, 3 ll, 1 kl í fyrstu af 3 ll, heklið 2 st í sömu l (í byrjun umf er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll, endið umf með 1 kl í 3. ll í byrjun umf).
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (45)

country flag Mj Thompson wrote:

I\'m looking the the pattern to the Crochet Poncho ? Its nowhere on your site. Can you send it to me?

05.03.2022 - 20:25

country flag Jessica wrote:

Bonjour, Il est écrit de crocheter 4 carrés de 40cmX40cm environ. Sur le schéma pour l assemblage des carrés, ceux ci font 50X50.??? Merci de m eclairer

14.09.2021 - 16:30

DROPS Design answered:

Bonjour Jessica, tout à fait: 40 cm de carré + 3 cm de bordure d'encolure + 7 cm de bordure en bas du poncho = 50 cm. Bon crochet!

15.09.2021 - 06:54

country flag Jackie wrote:

Want to confirm when assembling the squares that you put the (WS) meaning wrong side together facing each other with the right sides facing outward and are the the sides you crochet and connect the two pieces together. I typically put the right sides together when connecting the pieces so I am confused. Thanks fir clarification.

05.07.2021 - 11:39

DROPS Design answered:

Dear Jackie, squares are crocheted together from the wrong side, but feel free to crochet them together from the right side if you rather like it that way. Happy crocheting!

05.07.2021 - 12:07

country flag Jackie wrote:

Want to confirm when assembling the square sections that you put the (WS) wrong sides together facing each other with the right sides on the outside when crocheting the squares together?

05.07.2021 - 11:33

country flag Francisca Artero Vallejo wrote:

Me podrían decir cuanto mide cada cuadro? Gracias.

25.02.2021 - 06:58

DROPS Design answered:

Hola Francisca, en los materiales del patrón indican que un cuadro mide 40x40 cm.

28.02.2021 - 18:32

country flag Teresa wrote:

Como ha indicado varias personas el patron en la fila 6 no está bien. En el poncho de la foto esa vuelta no está y si se hace como dice el patron el círculo queda rizado. Se debe poner 5 puntos de cadeneta entre los arcos no 4, como dice el patrón.

03.08.2019 - 22:37

DROPS Design answered:

Hola Teresa. Tu pregunta ha sido enviada al departamento de diseño. Puedes saltar la vuelta 6 y trabajar directamente la vuelta 7 después de la 5. No afecta al patrón. Cuando tengamos la respuesta de diseñador publicaremos las correciones.

15.12.2019 - 20:08

country flag Magda wrote:

Damit sich das quadrat nicht wölbt den rat von Anja befolgen : einfach die 6. Reihe überspringen. Bei mir klappte es danach wunderbar.

30.01.2019 - 22:56

Jaqueline Saenz Chavarria wrote:

Buenas noches , quisiera saber si tienen video ?de como hacer el cuadrado completo, xk los simbolos son diferentes a los que conosco , gracias .

30.05.2018 - 05:22

DROPS Design answered:

Hola Jaqueline. Todos los vídeos relacionados con el patrón los puedes encontrar a la izquierda de la página. En este momento no hay ningún vídeo del cuadrado completo. Tienes todas las abreviaciones necesarias para entender el patrón encima del diagrama.

03.06.2018 - 10:43

Margaret Morris wrote:

Round 4 of bottom edge: after the first dc-group with picot, should it not read *ch1, skip 3dc INSTEAD OF *ch1, skip ch3......? The previous row is dcs, not chains.

24.04.2018 - 21:27

DROPS Design answered:

Dear Mrs Morris, thanks for your feedback I think you're right, our Design Team will check and edit. Happy crocheting!

25.04.2018 - 08:12

country flag Graftiau wrote:

Bonjour, J'aimerais savoir si les couleurs réelles du fil se rapprochent plus des couleurs de la photo en gros plan ou de la photo du poncho entier? Merci

04.04.2018 - 18:56

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Graftiau, les couleurs peuvent varier d'un ordinateur à l'autre, n'hésitez pas à contacter votre magasin DROPS pour plus d'infos sur les couleurs et toute aide pour en choisir d'autres si besoin. Bon crochet!

05.04.2018 - 08:27