DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5742.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Carter

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Belle með laskalínu. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS Extra 0-1131
DROPS Design: Mynstur nr vs-004
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio
450-550-600-650-750-800 gr litur nr 09, beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5742.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við A.1 í hverri laskalínu. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist göt.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

PEYSA:
Fitjið upp 114-117-120-123-126-129 l á hringprjóna nr 3,5 með Belle.
Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 l sl, 2 l br). Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 þegar stykkið mælist 2 cm. Stykkið er nú prjónað áfram í sléttprjóni. Í fyrstu umf er fækkað um 18-17-16-15-14-13 l jafnt yfir = 96-100-104-108-112-116 l (þetta er gert til að flíkin passi betur). Í næstu umf er aukið út um 24-26-30-40-48-70 l jafnt yfir = 120-126-134-148-160-186 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja að aftan). Í næstu umf er prjónað frá miðju að aftan þannig: Prjónið 17-18-20-24-27-33 l sl (= hálft bakstykki), A.1, 6 l sl, A.1 (= ermi), 34-37-41-48-54-67 l sl (= framstykki), A.1, 6 l sl, A.1 (= ermi), 17-19-21-24-27-34 l sl (= hálft bakstykki). Haldið svona áfram með mynstur, JAFNFRAMT er prjónuð upphækkun að aftan þannig: Prjónið 8 l framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 16 l til baka, snúið við, herðið á þræði og prjónið 24 l, haldið áfram að prjóna 8 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 64 l frá síðasta snúningi, snúið við og prjónið 1 umf yfir allar l til baka fram að miðju að aftan. Í næstu umf byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan – ATH! Ekki er aukið út eins á fram- og bakstykki og ermum!
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

LASKALÍNA FRAM- OG BAKSTYKKI:
Aukið út í hverri umf alls 0-4-4-4-4-4 sinnum, síðan í annarri hverri umf 28-27-29-30-32-33 sinnum. Nú eru 90-99-107-116-126-141 l á fram- og bakstykki.

LASKALÍNA ERMI:
Aukið út í annarri hverri umf 16-19-21-22-24-27 sinnum, síðan í 4. hverri umf 6-5-5-5-5-4 sinnum. Nú eru 70-74-78-80-84-88 l á hvorri ermi. Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 320-346-370-392-420-458 l á prjóni. Í næstu umf er prjónað þannig: 45-49-53-58-63-70 l sl, setjið næstu 70-74-78-80-84-88 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar l undir ermi (setjið prjónamerki mitt á milli þessa nýju l), 90-99-107-116-126-141 l sl, setjið næstu 70-74-78-80-84-88 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar l undir ermi (setjið prjónamerki mitt á milli þessa nýju l), 45-50-54-58-63-71 l sl = 196-214-230-248-268-298 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hlið – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 14-14-14-30-30-30 cm millibili 2-2-2-1-1-1 sinnum til viðbótar = 184-202-218-240-260-290 l. Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm, prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 20-17-16-15-16-13 l jafnt yfir = 204-219-234-255-276-303 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið stroff (= 1 l sl, 2 l br). Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br þegar stroffið mælist 4 cm.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna.
Setjið til baka 70-74-78-80-84-88 l af þræði á sokkaprjóna nr 4. Fitjið upp 8 nýjar l undir ermi (setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju l) = 78-82-86-88-92-96 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón JAFNFRAMT er haldið áfram með A.1 þannig: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan A.1 upp við miðju á ermi, prjónið 2 l slétt saman á eftir A.1 upp undir ermi (þ.e.a.s. þær 8 nýju l sem fitjaðar voru upp undir ermi). Þetta er gert svo að A.1 mætist undir ermi og hverfi, endurtakið úrtöku í annarri hverri umf þar til allar l í báðum A.1 eru horfnar. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf, það eiga ekki að myndast göt. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 3½-3½-3-3-2½-2½ cm millibili 11-12-13-13-14-15 sinnum til viðbótar = 54-56-58-60-62-64 l.

Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 51-50-50-50-49-49 cm. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 6-4-5-3-4-2 l jafnt yfir = 60-60-63-63-66-66 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið stroff (= 1 l sl, 2 l br). Fellið af þegar stykkið mælist 55-54-54-54-53-53 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

VASI:
Fitjið upp 23 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á sokkaprjóna nr 4 með Belle. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 8 cm, stillið af að næsta umf sé frá röngu, aukið út um 4 l jafnt yfir frá röngu = 27 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, stroff (= 1 l sl, 2 l br) þar til 2 l eru eftir, endið á 1 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar stykkið mælist 10 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið vasann á vinstri ermi, ca 45 cm frá úrtöku við handveg.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1131

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (65)

country flag Blanquet Elysabeth wrote:

Bonjour, juste une remarque, autant Drops a bien renouvelé les modèles femmes pour les modèles hommes ce n'est pas le cas! les modèles sont assez anciens, des années 90 sans doute. je cherche un modèle pour homme tout simple pour le printemps/été en Belle, j'aime bien cette matière. Mais à part celui ci qui ne me satisfait pas vraiment, il n'y a pas grand choix. cordialement

12.04.2021 - 17:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Blanquet, vous pourrez trouver ici tous les modèles de pull homme tricotés dans un fil du groupe B, comme Belle, si vous ne trouvez pas votre bonheur, vous pouvez adapter un modèle femme - cf ce point de la FAQ. Bon tricot!

13.04.2021 - 07:52

country flag Victoria wrote:

Bonjour, Je tricote la taille M et je suis bloquée à la première étape du raglan Dos et Devant : Augmenter 0-4-4-4-4-4 fois au total tous les tours, puis 28-27-29-30-32-33 fois tous les 2 tours. Je ne comprends pas "x fois tous les tours/tous les 2 tours" Dois-je augmenter après et avant A1 du dos et devant (soit 4 en tout) sur 1 tour (combien de tour représente "tous les tours dans ce cas ?") et puis 27 tours en augmentant à ces mêmes endroits 1 tour sur 2 ? Merci beaucoup

28.03.2021 - 08:04

DROPS Design answered:

Bonjour Victoria, en M, vous augmentez: pour le devant/le dos d'abord 4x tous les tours puis 27x tous les 2 tours; en même temps, vous augmentez pour les 19x tous les 2 tours et 5x tous les 4 tours; autrement dit vous augmentez soit 8 m (= devant/dos + manches) soit 4 m seulement par tour (= quand vous augmentez tous les tours pour le devant et le dos mais tous les 2 tours pour les manches). Bon tricot!

06.04.2021 - 08:02

country flag TP wrote:

Hei! Pitäisikö hihan pituus todellakin olla alle 4cm siinä vaiheessa kun A1:n silmukat on ”hävitetty”? Minulla pituus on jostain syystä lähemmäs 10cm. Ymmärsinhän oikein että hihan alun kavennukset ja levennykset tehdään symmetrisesti molemmilla puolilla?

21.03.2021 - 22:06

DROPS Design answered:

Hei, piirroksen A.1 silmukoiden vähentäminen jatkuu vielä sen jälkeen kun kavennukset keskellä hihan alla on aloitettu.

22.03.2021 - 16:43

country flag Alexander wrote:

Hello! I'm confused about the increasing. I understand that Y/Os are worked on each side of the A.1s but if I understand correctly this only adds 4 new stitches. Should I add 4 more increases in the 6 stitches between the A.1s? Also, when working the raglan body increases, should I aim for an even distribution of increases ending with 45 stitches ea in the front and back panels? Lastly, should ALL increases be worked as Y/Os or should the ones not adjacent to A.1 be worked as KFB? Thank you!

20.03.2021 - 04:29

DROPS Design answered:

Dear Alexander, you will increase 2 sts on each piece (front, back piece or sleeves), but the increases are worked on a different rythm on body and sleeve, ie you will increase alternately 8 sts (= body + sleeves) or only 4 sts (body only when increasing on every round - except in first size). The yarn over should be worked after A.1 at the beg of piece that should be indreased + before the A.1 at the end of piece that should be increased. Hope this helps. Happy knitting!

22.03.2021 - 07:30

country flag Anne-Marie Bourgeois wrote:

I'm confused with the raglan part. Do we do the raglan body and raglan sleeve at the same time, or we start with raglan body first for 64 round and then start the raglan sleeve ? Also it says to Inc differently on body and sleeves. What type of increase do we do for sleeve ?

07.11.2020 - 19:05

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bourgeois, raglan will be worked on a different rythm on body and on sleeves, ie depending on the size you will increase 4 sts (= body or sleeves only) or 8 sts (body and sleeves). Raglan increased are done with yarn over - see RAGLAN; Hope this helps. Happy knitting!

09.11.2020 - 10:13

country flag Susan Underwood wrote:

A1 disappear way after 4cm. So do you decrease every row once either side of marker or twice I.e. k2, k2 work to last 4 sts slk1, sl1k1. at 4cm ?

01.07.2020 - 15:41

DROPS Design answered:

Dear Mrs Underwood, A.1 is not supposed to disappear, the stitches worked in A.1 are the raglan stitches, they are worked at the transition between front/back piece and sleeves - and you will increase either/or after A.1 at the beg of front/back/sleeve and/or before A.1 at the end of front/back/sleeve. See RAGLAN. Happy knitting!

01.07.2020 - 16:26

country flag Fabienne wrote:

Bonjour, j'aimerais être sûre d'une chose, la rehausse déborde bien sur le haut des manches ?

15.06.2020 - 20:35

DROPS Design answered:

Bonjour Fabienne, tout à fait. Bon tricot!

16.06.2020 - 08:57

country flag Hayley De Gee wrote:

Hi!! I've read through the part of SLEEVE and cannot understand the process of how both A1's disappear under the sleeve. I also don't know how where exactly to YO and K2tog. My understanding after increasing the 8 stitches would be to knit until before A1 , then YO, [k1, P2, K4,P2,K1=A1 pattern], then K2tog, k4, YO,{K1,P2,K4,P2,K1=A1 pattern] THEN K2tog???? PLS HELP :( I'm totally confused.. its my 1st time doing a raglan and I have 4 more days before my man's birthday

24.05.2020 - 22:20

DROPS Design answered:

Dear Mrs De Gee, mid under sleeve there are: A.1, new sts picked up, A.1 - you have to increase on either side of these sts and decrease between both A.1: work until before first of both A.1 mid under sleeve,YO, A.1, work until 2 sts remain before marker mid under sleeve, K2 tog, K2 tog, work to A.1, work A.1, YO - you increased 2 sts. Continue like this decreasing with K2 tog on each side of marker mid under sleeve + 1 yarn over on either side of these sts until all sts in A.1 will have disappear (the new sts are worked in stockign st). Happy knitting!

25.05.2020 - 10:26

country flag Marie-Laure wrote:

Bonjour, Je vous remercie pour vos explications. Du coup, j'ai commencé avec les aiguilles circulaires :-) Il est noté qu'à 4 cm de hauteur, il faut diminuer 1 m de chaque côté du marqueur et cela 11 fois pour le modèle S. Pourquoi arrive-t'on alors à 54 mailles et non 56 (78 - 22) ? Par ailleurs, je dois bien faire en même temps ces diminutions dès 4 cm de hauteur (calculé depuis sous la manche) et poursuivre les augmentations avec les jetés ? Merci d'avance pour votre aide.

10.04.2020 - 16:48

Marie-Laure answered:

Bonjour, Désolée, je vous ai dérangé pour rien. Je n'avais pas compté le premier tour ;-). Pas nécessaire de me répondre. Merci et joyeuses pâques !

11.04.2020 - 17:28

country flag Marie-Laure wrote:

N'ayant pas reçu de réponse, je pense que je vais essayer d'utiliser des aiguilles circulaires ;-) Dommage, c'était l'occasion pour moi d'apprendre à tricoter avec les aiguilles double pointes. Merci et bonne journée.

08.04.2020 - 14:32

DROPS Design answered:

Bonjour Marie-Laure, désolée pour la réponse tardive, rappelez-vous toujours que vous pouvez toujours consulter notre base de données de leçons et vidéos pour vous aider, et également contacter votre magasin DROPS, même par mail ou téléphone pour toute assistance complémentaire. Bon tricot!

09.04.2020 - 16:48