DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5830.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Peppermint

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, sléttprjóni og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð 2 – 12 ára.

DROPS Children 47-12
DROPS Design: Mynstur z-052-bn
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

GARN:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-200-200-200-250 g litur 9030, pistasíuís
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-75-75-75-100-100 g litur 47, pistasíuís

PRJÓNAR FYRIR STÆRÐ 2 - 3/4 ára:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNAR FYRIR STÆRÐ 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5830.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU:
Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU:
Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Efsti hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niðurhandvegi. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi.
Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hvorn handveginn. Ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, eftir það er prjónað í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í hring.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 20-20-24-26-26-26 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við ystu 3 lykkjur í hverri umferð.
Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka.
JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð (séð frá réttu) og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU.
Í næstu umferð (ranga) er aukið út á sama hátt – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU.
Haldið svona áfram og aukið út alveg eins bæði frá réttu og frá röngu alls 14-16-16-16-18-20 sinnum. Eftir síðustu útaukningu eru 48-52-56-58-62-66 lykkjur á prjóni, stykkið er nú mælt héðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 5-5-6-7-7-8 cm, mælt frá prjónamerki yst meðfram handvegi. Nú er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið, aukið út innan við 3 lykkjur í hvorri hlið, munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið svona út í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 4 sinnum = 56-60-64-66-70-74 lykkjur. Prjónið slétt þar til stykkið mælist 9-9-10-11-12-12 cm, mælt yst meðfram handvegi. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI:
Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð).
Prjónið upp 14-16-16-16-18-20 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar upp jafnt yfir frá hálsmáli og við prjónamerki í hlið, sjá D í teikningu með máli). Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun á hverri umferð frá réttu, aukið er út á eftir 3 lykkjur – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum = 18-20-20-20-22-24 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan.

Prjónið upp 14-16-16-16-18-20 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar upp jafnt yfir frá prjónamerki í hlið og inn að hálsmáli, sjá E í teikningu með máli).
Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu, aukið út á undan 3 lykkjum – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU.
Aukið út 1 lykkju alls 4 sinnum = 18-20-20-20-22-24 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 18-20-20-20-22-24 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 12-12-16-18-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið sléttprjón eins og áður yfir 18-20-20-20-22-24 lykkjur frá vinstra framstykki = 48-52-56-58-62-66 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 11-13-14-15-16-18 cm, mælt yst meðfram handvegi. Nú er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið, aukið út innan við 3 lykkjur í hvorri hlið, munið eftir ÚTAUKNING frá réttu. Aukið út í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 4 sinnum = 56-60-64-66-70-74 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 15-17-18-19-20-22 cm.
Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið 56-60-64-66-70-74 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 6-8-8-8-8-8 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið), prjónið sléttprjón yfir 56-60-64-66-70-74 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 6-8-8-8-8-8 nýjar lykkjur í lok umferðar = 124-136-144-148-156-164 lykkjur.
Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 30-34-38-42-46-49 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-24-24-28-28-28 lykkjur jafnt yfir = 144-160-168-176-184-192 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroffprjón 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið í 6 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-55 cm frá efsta punkti á öxl á framstykki.

VINSTRI ERMI:
Leggið stykkið flatt og setjið 1 prjónamerki efst í handveg (ATH! Ekki þar sem lykkjur voru prjónaðar upp í framstykki, en ca 3-5 cm niður á framstykki, þetta er mitt ofan á öxl).
Notið hringprjón 5 og 1 þráði í hvorri tegund, byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið upp 42-44-46-50-54-56 lykkjur í kringum handveg – passið uppá að prjónaðar séu jafn margar lykkjur hvoru megin við prjónamerki meðfram handvegi. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna, þetta er gert til að ermin fái betra form og passi betur.

Umferð 1 (rétta): Prjónið 4 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 2 (ranga): Prjónið 4 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 3 (rétta): Prjónið 8 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 4 (ranga): Prjónið 8 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 5 (rétta): Prjónið 12 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 6 (ranga): Prjónið 12 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 7 (rétta): Prjónið að byrjun á umferð.

Prjónið áfram hringinn í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu.

Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 5 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona í 3.-4.-5.-5.-4½.-5. hverjum cm alls 5-5-5-6-7-7 sinnum = 32-34-36-38-40-42 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 20-24-28-32-36-40 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Það eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-6-8-6-8-6 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 26-30-34-38-42-46 cm frá prjónamerki.

HÆGRI ERMI:
Prjónið á sama hátt og vinstri ermi.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 68 til 84 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund.
Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 14 cm. Fellið laust af. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki og festið með nokkrum sporum.

Mynstur

symbols = lykkjur fyrir vinstri öxl að framan (d) eru prjónaðar upp meðfram vinstri öxl að aftan (D), lykkjur fyrir hægri öxl að framan (e) eru prjónaðar upp meðfram hægri öxl að aftan (E)
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 47-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Uli wrote:

Wenn ich diese Anleitung in SAFRAN stricken möchte, werden zwei Fäden von SAFRAN gleichzeitig verstrickt, richtig? Wie errechne ich den Verbrauch von SAFRAN, da bei der Originalanleitung ja zwei verschiedene Garne verwendet werden? Besten Dank und Gruß. Uli

19.03.2024 - 02:10

DROPS Design answered:

Liebe Uli, richtig, diesen Pullover können Sie mit 2 Fäden Safran stricken, benutzen Sie den Garnumrechner um die neue Garnmenge kalkulieren zu lassen. Viel Spaß beim Stricken!

19.03.2024 - 11:17

country flag Kerstin Stenholm wrote:

Hej! Jag kan inte sticka armarna med rundstickor, för få maskor, blir inte snyggt med strumpstickor heller. Kan man sticka armen på annat sätt. Annars blir det ingen tröja av det här Med vänlig hälsning, Kerstin

16.03.2024 - 19:58

DROPS Design answered:

Hej Kerstin, jo du kan strikke rundt på strømpepinde (det gør vi). Eller så kan du vælge at strikke frem og tilbage fra midt under ærmet og sy det sammen bagefter.

19.03.2024 - 14:44

country flag Rachel wrote:

Are we able to do this on straight kneedles ? X

10.03.2024 - 09:55

DROPS Design answered:

Dear Rachel, yes, you can. We even have atutorial, showing you how to do it, here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=13&cid=19 I hope this helps. Happy Knitting!

10.03.2024 - 22:14

country flag Sylvie Guibaud wrote:

Bonjour.\r\nEst-ce que les 6 premières augmentations dos et devant se font côté encolure ?

01.01.2024 - 12:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Guilbaud, je ne suis pas bien sûre de comprendre de quelles augmentations vous parlez, mais vous retrouverez la technique des épaules européennes dans les vidéos en bas de page, vous verrez ainsi comment tricoter ces augmentations au début du dos et du devant. Bon tricot!

02.01.2024 - 12:00

country flag Sabine wrote:

Vielen Dank!

14.11.2023 - 14:01

country flag Sabine wrote:

Warum wird immer mit zwei Garne gestrickt? Ich habe die Baby Merino und finde hierzu keine Anleitung

13.11.2023 - 18:50

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, hier finder Sie Pullover, die mit einem Garn der Garngruppe A (mit nur 1 Faden = Maschenprobe von 25-23 Maschen) gestrickt werden, benutzen Sie den Garnumrechner, falls das gewünschte Modell nicht mit Baby Merino gestrickt wird. Viel Spaß beim stricken!

14.11.2023 - 10:15

country flag Morag Ogilvie wrote:

Do you have this pattern in adult sizes please?

19.09.2023 - 18:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ogilvie, please find all our jumpers with european shoulders in adult size here. Happy knitting!

20.09.2023 - 07:19