DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Ivy

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, bylgjumynstri og gatamynstri. Stærð 0 – 6 ára.

DROPS Baby 42-7
DROPS Design: Mynstur e-083-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4 - 5/6) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104 -110/116)

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-150-150 (150-200-200) g litur 63, sægrænn

DROPS TALA NR 600: 2 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð (þ.e.a.s. frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið þannig að ekki myndist gat.
Í næstu umferð (þ.e.a.s. þegar stykkið er prjónað í hring) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir 2 hnappagötum í kanti aftan í hnakka.
Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½ cm. Fellið síðan af fyrir næsta hnappagati þegar stykkið mælist ca 4 cm frá fyrra hnappagati.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður, með kantlykkjum mitt að aftan. Þegar opið á baki hefur verið prjónað til loka, prjónið áfram í hring á hringprjóna. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 73-77-81-85 (89-93-97) lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3.

BERUSTYKKI:
LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ BYRJAR AÐ PRJÓNA!
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu og mitt að aftan þannig:
3 kantlykkjur í garðaprjóni, 11-12-13-14 (15-16-17) lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur sléttprjón JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (10 lykkjur fyrir ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 0-0-0-1 (2-3-4) lykkjur sléttprjón, A.1 (25-27-29-29 (29-29-29) lykkjur – sjá byrjun fyrir þína stærð í minnstu stærðum), 0-0-0-1 (2-3-4) lykkjur sléttprjón (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (= laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur sléttprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (10 lykkjur fyrir ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (laskalína), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 11-12-13-14 (15-16-17) lykkjur sléttprjón og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni (hálft bakstykki).
Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið og það eru 89-93-97-101 (105-109-113) lykkjur í umferð.
Haldið áfram í sléttprjóni, A.1 og 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að aftan og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! og fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ATH! Í stærð 0/1 og 1/3 mánaða eru útauknar lykkjur fyrst prjónaðar jafnóðum inn í A.1, síðan eru þær prjónaðar í sléttprjóni.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm frá uppfitjunarkanti, setjið stykkið saman þannig:
Í næstu umferð frá réttu eru felldar af 3 fyrstu lykkjurnar í umferð, prjónið síðan út umferðina eins og áður. Þegar umferðin hefur verið prjónuð til loka er haldið áfram að prjóna í hring yfir allar lykkjur. Prjónið nú sléttprjón yfir allar lykkjur á bakstykki, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni og A.1 eins og áður.
Færið umferðina til þannig að miðjulykkjan á bakstykki er byrjun á umferð.
Aukið út fyrir laskalínu alls 10-12-13-14 (15-16-18) sinnum = 158-178-190-202 (214-226-246) lykkjur. Prjónið sléttprjón án útaukningar, en mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 9-10-11-12 (13-14-15) cm.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 24-27-29-31 (33-35-38) lykkjur. setjið næstu 32-36-38-40 (42-44-48) lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8 (8-8-8) lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 47-53-57-61 (65-69-75) lykkjur slétt (framstykki), setjið næstu 32-36-38-40 (42-44-48) lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8 (8-8-8) lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 23-26-28-30 (32-34-37) lykkjur sem eftir eru í umferð.
Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 106-118-126-138 (146-154-166) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING.
Aukið svona út í öðrum hverjum cm alls 3-3-3-4 (4-4-4) sinnum = 118-130-138-154 (162-170-182) lykkjur.
Þegar stykkið mælist 8-10-11-13 (15-18-21) cm frá skiptingu, prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-23-32-33 (42-34-39) lykkjur jafnt yfir = 136-153-170-187 (204-204-221) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.
Prjónið síðan A.2 yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er fellt af aðeins laust með sléttum lykkjum.
Peysan mælist ca 25-28-30-33 (36-40-44) cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 32-36-38-40 (42-44-48) lykkjur af þræði frá annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af þeim 6-6-6-8 (8-8-8) lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 38-42-44-48 (50-52-56) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8 (8-8-8) lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-4-3-3 (4-5-3 ½) cm millibili alls 2-3-4-5 (5-5-7) sinnum = 34-36-36-38 (40-42-42) lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 11-14-15-18 (21-26-29) cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í kant að sem er án hnappagata.
Leggið kant með tölum undir kant með hnappagötum og saumið saman neðst.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.05.2022
EFNI: DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-150-150 (150-200-200) g litur 63, sægrænn

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem voru prjónaðar
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sweet Ivy

Renata, Poland

Sweet Ivy

Kelly, United Kingdom

Sweet Ivy

Dawn, Canada

Sweet Ivy

Barbara Schröder, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 42-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (58)

country flag Audrey Moore wrote:

Is there a tutorial on Ravelry showing how to sew together the button-band and the buttonhole-band at the bottom? If not, can you provide instructions and/or another site that could be a resource? The sweater is beautiful - even have the buttons sewn on. Sewing the bands together at the bottom is the last step and I want it to be as perfect! Thank you.

18.04.2024 - 22:20

DROPS Design answered:

Dear Audrey, all the relevant videos we have for this pattern can be found if you click on the word "Videos" on the line just below the title of the piece. Happy Knitting!

19.04.2024 - 09:37

country flag Pam wrote:

Hi , What am I doing wrong ,? A1 for second size is in chart is 26 sts.between markers . But the pattern says that size is over 27 sts.

17.04.2024 - 15:04

DROPS Design answered:

Dear Pam, 1st row in A.1 in 2nd size is worked over 27 sts as follows: P1, K3, P2, K4, slip 1, k1, psso, K1, YO, P1, YO, K1, K2 tog, K4, P2, K3, P1 (=1+3+2+4+1+1+1+1+1+1+1+4+2+3+1=27sts). Happy knitting!

17.04.2024 - 15:32

country flag Margaret wrote:

Is there a pattern for 2 needles instead of the circular needles as I prefer using 2 needles. Thanks

11.04.2024 - 10:33

DROPS Design answered:

Hi Margaret, this pattern may be knitted using straight needles and sewn afterwards. Please take as an example the pattern no 183-13, you will find it HERE. You may also see the lesson HERE. Happy knitting!

11.04.2024 - 10:45

country flag Gabriela wrote:

Estoy tejiendo la talla mas pequeña, me sobran 8 puntos... los mismos que habria que aumentar en cada manga para que estas queden de 10 puntos...Decidí no aumentar y usar los puntos urdidos.

04.03.2024 - 22:10

country flag Berit Reiskind wrote:

Skal omslagene i mønster A2 strikkes drejet?

27.02.2024 - 03:09

DROPS Design answered:

Hei Berit. Nei, de strikket rett, slik at det blir hull. Det er kun kastene under sidene på bolen som skal strikket drejet. mvh DROPS Design

04.03.2024 - 11:33

country flag Lucille wrote:

Décaler le début des tours au milieu dos.\r\nAugmenter 10-12-13-14 (15-16-18) fois au total pour le raglan =\r\nJe ne comprends pas ce que ça veut dire! Pouvez-vous m’expliquer plus précisément? Je fais la grandeur 12/18 mois, merci

09.02.2024 - 21:31

DROPS Design answered:

Bonjour Lucille, quand la fente d'encolure dos est terminée, on tricote en rond, et le début des tours se trouve désormais au milieu du dos. Vous augmentez pour le raglan 14 fois tous les 2 rangs/tours en taille 12/18 mois, autrement dit, vous tricotez 28 rangs/tours au total (y compris la partie tricotée en allers et retours). Bon tricot!

20.02.2024 - 09:24

country flag Gwendolyn Van Der Krieken wrote:

Beste mensen, als ik met 85 steken de pas begin, voor maat 12/18 maanden, dan hou ik aan het einde van de eerste naald al 2 steken over. Hoe kan dit?

05.02.2024 - 14:52

country flag Audrey Moore wrote:

Re Drops Sweet Ivy pattern 42-7 size 3/4 : Starting with the the 93 cast on stitches, I do the first RS row with the stitch increases adding 16 stitches to the original 93 for a total o 109 stitches. The instructions state to increase to Raglan 16 times ending with a total of 226 stitches. But, increasing 16 stitches 16 times = 256 stitches which doesn't match the 226 total stitches in the directions. What am I not understanding to get the right stitch count as I do the increases?

29.01.2024 - 15:39

DROPS Design answered:

Dear Audrey, from the second row onwards you only increase for the raglan, that is, the 2 yarn overs on each side of the raglan line. So you will increase 8 stitches on each row with increases. The increases over the sleeves (4 sts evenly over the sleeve stitches) are not repeated. So you will increase for the Raglan 8 stitches 16 times in total. Since the 109 stitches already include the first raglan row, you actually only need to add 8 stitches 15 times more. This add up to 229, minus the 3 stitches cast-off when joining the piece = 226 stitches. Happy knitting!

29.01.2024 - 23:44

country flag Lucy Post wrote:

Now up to the diagrams, what are the circles? There is no symbol key to say what stitch they represent.

25.01.2024 - 13:09

country flag Lucy Post wrote:

6 stitches in stocking stitch and increase 4 stitches evenly over these stitches (10 stitches on the sleeve) - how should we increase? YO, M1K, M1P, KFB, PFB? Sorry, the instructions aren't very clear.

25.01.2024 - 12:58