DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8052.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Timeless Textures

Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með köðlum og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 220-18
DROPS Design: Mynstur me-222
Garnflokkur B og C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-400-450-450-500 g litur 01, natur
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
75-75-100-100-125-125 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
19 lykkjur á breidd og 25 umferðir á hæð með sléttprjóni og Merino Extra Fine = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8052.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI:
Rendurnar eru prjónaðar með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
RÖND 1: Hefur nú þegar verið prjónuð (= A.1).
RÖND 2: (prjónuð með Merino Extra Fine), prjónið A.2 þar til stykkið mælist 18-18-18-19-19-20 cm – stillið af að endað sé eftir 2. eða 4. umferð í mynstri.
Prjónið 4 umferðir slétt (= 4 umferðir garðaprjón).
RÖND 3: Skiptið yfir í Brushed Alpaca Silk. Prjónið A.3 þar til stykkið mælist 26-27-27-28-28-30 cm – stillið af að endað sé eftir umferð frá röngu.
RÖND 4: Skiptið yfir í Merino Extra Fine. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið A.4. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina 2 sinnum, prjónið 4 umferðir garðaprjón.
RÖND 5: Prjónið A.5. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið fyrstu 8 umferðir í mynsturteikningu. Prjónið 4 umferðir garðaprjón.
RÖND 6: Prjónið A.2 þar til stykkið mælist 48-50-50-52-52-55 cm – stillið af að endað sé eftir 2. Eða 4. Umferð í mynstri. Prjónið 4 umferðir garðaprjón.
RÖND 7: Skiptið yfir í Brushed Alpaca Silk. Prjónið A.6 að loka máli.

RENDUR ERMI:
Rendurnar eru prjónaðar með 1 kantlykkju í hvorri hlið.
RÖND 1: Prjónið A.1. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, prjónið fyrstu 8 umferðir í mynsturteikningu 1 sinni til viðbótar.
RÖND 2: Skiptið yfir í Merino Extra Fine. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið A.2 þar til stykkið mælist 25-25-26-25-24-25 cm – stillið af að endað sé eftir 2. eða 4. umferð í mynstri. Prjónið 4 umferðir garðaprjón.
RÖND 3: Skiptið yfir í Brushed Alpaca Silk. Prjónið A.3 þar til stykkið mælist 36-36-37-36-34-35 cm – stillið af að endað sé eftir umferð frá röngu.
RÖND 4: Skiptið yfir í Merino Extra Fine. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið A.4 þar til mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina 2 sinnum. Prjónið 4 umferðir garðaprjón.
RÖND 5: Prjónið A.5. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið fyrstu 8 umferðir í mynsturteikningu.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 87 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 19) = 4,5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju, ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca 3. og 4. hver lykkja og 4. og 5. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í mynstri eins og útskýrt er í uppskrift.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki, bakstykki og ermar er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á stuttan hringprjón.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 87-95-103-111-121-135 lykkjur á hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff þannig:
UMFERÐ (rétta): 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju snúið slétt, 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
UMFERÐ 2 (ranga): 1 kantlykkja garðaprjón * prjónið 1 lykkju snúið brugðið, 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið brugðið og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 6 cm – stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá réttu.
Skiptið yfir á hringprjón 5 og Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem auknar eru út 19-23-21-25-21-19 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 106-118-124-136-142-154 lykkjur.
Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir (= 17-19-20-22-23-25 mynstureiningar með 6 lykkjum), 2 lykkjur brugðið, 1 kantlykkja garðaprjón.
Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Skiptið yfir í Merino Extra Fine.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 14-14-14-20-14-20 lykkjur jafnt yfir = 92-104-110-116-128-134 lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt til viðbótar (= 4 umferðir garðaprjón).
Byrjið með 2. rönd í RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan og haldið áfram með rendur.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, fellið af 3-6-9-9-9-12 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 86-92-92-98-110-110 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm fellið af miðju 32-38-38-44-44-44 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju frá hálsmáli = 26-26-26-26-32-32 lykkjur fyrir öxl.
Prjónið mynstur og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 87-95-103-111-121-135 lykkjur á hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): 1 kantlykkja garðaprjón, * prjónið 1 lykkju snúið slétt, 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
UMFERÐ 2 (ranga): 1 kantlykkja garðaprjón * prjónið 1 lykkju snúið brugðið, 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið brugðið og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 6 cm – stillið af að síðasta umferð sé prjónuð frá réttu.
Skiptið yfir á hringprjón 5 og Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem auknar eru út 19-23-21-25-21-19 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 106-118-124-136-142-154 lykkjur.
Prjónið mynstur og fækkið lykkjum jafnt yfir alveg eins og á bakstykki = 92-104-110-116-128-134 lykkjur í umferð þar sem prjónað var upp að handveg. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, fellið af 3-6-9-9-9-12 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 86-92-92-98-110-110 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 51-53-55-56-58-59 cm, setjið miðju 26-32-32-38-38-38 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum – lykkjurnar sem ekki ganga jafnt upp í mynstri við háls þegar lykkjum er fækkað, eru prjónaðar í sléttprjóni = 26-26-26-26-32-32 lykkjur fyrir öxl.
Prjónið mynstur og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 44-48-50-52-54-56 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja garðaprjón í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): 1 kantlykkja garðaprjón, * prjónið 1 lykkju snúið slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð, prjónið 1 kantlykkju garðaprjón.
UMFERÐ 2 (ranga): 1 kantlykkja garðaprjón * prjónið 1 lykkju snúið brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð, prjónið 1 kantlykkju garðaprjón.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 6 cm – stillið af þannig að síðasta umferðin sé prjónuð frá réttu.
Skiptið yfir á hringprjón 5 og Brushed Alpaca Silk. Prjónið nú 1 umferð brugðið frá röngu þar sem auknar eru út 18-20-18-22-20-24 lykkjur jafnt yfir = 62-68-68-74-74-80 lykkjur.
Prjónið nú RENDUR ERMAR – sjá útskýringu að ofan, jafnframt þegar stykkið mælist 13 cm, byrjar útaukning í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 2-2-1½-2-1½- 1½ cm millibili alls 9-8-10-8-10-9 sinnum = 80-84-88-90-94-98 lykkjur. Prjónið eins margar lykkjur af mynstri og pláss er fyrir að hvorri hlið, aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 33-32-31-30-28-28 cm, aukið út alveg eins í hverri umferð frá réttu alls 22 sinnum = 124-128-132-134-138-142 lykkjur. Þegar rendur á ermi hafa verið gerðar til loka mælist ermin 53-53-54-53-51-52 cm frá uppfitjunarkanti.
Fellið af. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á ermi 2-3-5-5-5-6 cm niður frá affellingarkanti. Prjónamerkin eru notuð síðar þegar festa á ermi við fram- og bakstykki.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn.
Saumið ermar í við fram- og bakstykki – sjá teikningu. Saumið saum undir ermum og síðan niður yfir hliðarsauma innan við 1 kantlykkju garðaprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið með Brushed Alpaca Silk og stuttum hringprjónum 4. Prjónið upp frá réttu ca 92 til 120 lykkjur innan við 1 lykkju í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan og lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2).
Skiptið yfir í Merino Extra Fine og prjónið stroff (= 1 lykkja snúið slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur.
Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 10.05.2021
Ný útskýring á útaukningu á ermum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = stingið prjóninum niður á milli 4. og 5. lykkju og dragið þráðinn í gegn (= 1 ný lykkja), prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt
symbols = prjónið þessa lykkju og næstu lykkju (= lykkju sem aukin var út í fyrri umferð) snúið brugðið saman (= 1 lykkja færri)
symbols = í þessari umferð eru fyrstu 3 lykkjur prjónaðar 1 sinni, síðan eru endurteknar næstu 6 lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, síðan endar með síðustu 3 lykkjum og 1 kantlykkju garðaprjón
symbols = þetta tákn á við um í byrjun á umferð. Stingið prjóninum niður á milli 2. og 3. lykkju, dragið þráðinn í gegn (= 1 ný lykkja), prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt

symbols = þetta tákn á við í lok umferðar: Stingið prjóninum niður á milli 2. og 3. lykkju, dragið þráðinn í gegn (= 1 ný lykkja), prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið
symbols = prjónið 3 lykkjur brugðið saman án þess að sleppa þeim af prjóni, prjónið sömu lykkjur slétt saman og síðan brugðið saman, sleppið að lokum allar 3 lykkjurnar af vinstri prjóni
symbols = ermakúpan er saumuð að handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (66)

country flag Edith HEHN wrote:

C'est celui que je préfère !! j'aime particulièrement la forme des emmanchures qui évoquent les ailes de chauve-souris !!sera-t-il disponible avant l'été?

08.01.2021 - 16:51

country flag Mariejoe wrote:

Freedom

08.01.2021 - 07:58

country flag Marta wrote:

Fields of wheat

07.01.2021 - 21:46

country flag Laura wrote:

Spring Meadows

07.01.2021 - 18:27

country flag Liesbeth Merckx wrote:

Playful Summer

07.01.2021 - 17:34

country flag Liga wrote:

"Harvest fields"

07.01.2021 - 16:26