Low Tide Jacket |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti, gatamynstri, tvöföldum kanti í hálsmáli og ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 223-4 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 91 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 18) = 4,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis 3. og 4. hver lykkja og 4. og 5. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING-1 (frá réttu): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-2 (frá röngu): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli er lokið. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 10-10½-9-9-9½-10 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 91-95-99-107-109-113 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umfeðr er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 8½-9 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir og aukið jafnframt út um 18-18-14-38-36-32 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA, endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 109-113-113-145-145-145 lykkjur – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjón 5. BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki á eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti. Fyrsta prjónamerki: Byrjið mitt að framan, teljið 22-22-22-28-28-28 lykkjur (½ framstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju. Annað prjónamerki: Teljið 16-18-18-22-22-22 lykkjur frá 1. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 33-33-33-45-45-45 lykkjur frá 2. prjónamerki (= bakstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 16-18-18-22-22-22 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 22-22-22-28-28-28 lykkjur eftir á framstykki á eftir 4. prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út lykkjum við hvert og eitt þessa prjónamerkja. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar! Prjónið mynstur í mismunandi stærðum og aukið jafnframt út eins og útskýrt er að neðan: STÆRÐ S, M og L: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 12 lykkjur, A.2 yfir næstu 5 lykkjur, prjónamerkið er staðsett hér, sléttprjón yfir næstu 16-18-18 lykkjur, prjónamerki er staðsett hér, A.3 yfir næstu 4 lykkjur, A.4 yfir næstu 24 lykkjur (= 2 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.2 yfir næstu 5 lykkjur, prjónamerki er staðsett hér, sléttprjón yfir næstu 16-18-18 lykkjur, prjónamerki er staðsett hér, A.3 yfir næstu 4 lykkjur, A.4 yfir næstu 12 lykkjur, A.5 yfir næstu lykkju, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið síðustu 6 lykkjur í A.4, prjónið A.4 yfir næstu 12 lykkjur, A.2 yfir næstu 5 lykkjur, prjónamerki er staðsett hér, sléttprjón yfir næstu 22-22-22 lykkjur, prjónamerki er staðsett hér, A.3 yfir næstu 4 lykkjur, A.4 yfir næstu 36 lykkjur (= 3 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.2 yfir næstu 5 lykkjur, prjónamerki er staðsett hér, sléttprjón yfir næstu 22-22-22 lykkjur, prjónamerki er staðsett hér, A.3 yfir næstu 4 lykkjur, A.4 yfir næstu 12 lykkjur, prjónið fyrstu 7 lykkjur í A.4, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. Í næstu umferð frá röngu er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 4. og 2. prjónamerki og aukið út á EFTIR 3. og 1. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Þ.e.a.s. aukið er út í hverri umferð og aukið er út mismunandi frá réttu og frá röngu, svo að lykkjurnar leggist fallega. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) alls 15-16-18-20-22-25 sinnum = 169-177-185-225-233-245 lykkjur (fyrstu 14 útauknu lykkjurnar eru prjónaðar jafnóðum inn í A.2/A.3, prjónið síðan afgang af útauknum lykkjum í sléttprjóni). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 7-7-8-9-10-11 cm frá prjónamerki við hálsmál. Aukið síðan út ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Haldið áfram hringinn með mynstur eins og áður, JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING. Nú eru einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Í næstu umferð frá röngu er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út á EFTIR 4. og 2. prjónamerki og aukið út á UNDAN 3. og 1. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í hverri umferð 2-0-2-4-2-4 sinnum, síðan í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 7-9-9-9-11-8 sinnum og í hverri umferð 2-0-0-2-2-2 sinnum = 213-213-229-285-293-301 lykkjur. Stykkið mælist ca 15-15-17-20-22-21 cm frá prjónamerki við hálsmál. Síðan er aukið út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR BERUSTYKKI: Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjum sitja í ystu lykkjunni í hvorri hlið á hvorri ermi. Nú eru 36-34-38-50-50-48 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi. Í næstu umferð aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverjum af 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING-1. Lykkjur eru nú auknar út á framstykki, bakstykki og báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5-8-8-6-6-9 sinnum = 253-277-293-333-341-373 lykkjur. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka, mælist stykkið ca 20-22-24-25-27-29 cm frá prjónamerki við háls. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram eins og áður án útaukninga að réttu máli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 42-46-48-54-56-62 lykkjur í mynstri eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 73-81-85-97-101-113 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 42-46-48-54-56-62 lykkjur eins og áður (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 173-189-201-225-237-261 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan, mynstur eins og áður og prjónið sléttprjón yfir nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 20 cm – stillið af að endað sé eftir umferð sem er eins og síðasta umferð í mynsturteikningu eða 7 umferð á undan síðustu umferð. Aukið nú út um 26-28-30-34-36-40 lykkjur jafnt yfir = 199-217-231-259-273-301 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 48-52-56-64-64-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 nýjum lykkjum undir ermi = 56-60-66-74-76-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 0-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 1-2-3-4-5-6 sinnum = 54-56-60-66-66-68 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 29-27-26-26-24-23 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16-16-18-20-20-20 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-46-46-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfalt uppábrot í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan á kanti að framan með smáu spori. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (26)
Julie wrote:
Russet dawn
11.01.2021 - 04:43Dimanche A La Campagne wrote:
Parfait pour des journées venteuses
09.01.2021 - 17:07Anna wrote:
AnnaCard
08.01.2021 - 16:44Marta wrote:
Classy lace cardi
07.01.2021 - 21:55Fouquet Amelie wrote:
Amelia
07.01.2021 - 19:56Mari wrote:
Lovely!
07.01.2021 - 11:15