Music of Thunder |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 217-36 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 47 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 7) = 6,7. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 5. og 6. hverja lykkju og 6. og 7. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-4-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 8-9 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Stykkið er prjónað með 2 þráðum Kid-Silk. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 93-97-101-105-109-113 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 4 með 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 lykkjum garðaprjón. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm, í síðustu umferð er fækkað um 1 lykkju = 92-96-100-104-108-112 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan, í byrjun á umferð mitt að framan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! BERUSTYKKI: Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (prjónamerkin eru sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar): Teljið 19-20-21-22-23-24 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 13 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 28-30-32-34-36-38 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 13 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 19-20-21-22-23-24 lykkjur á hægra framstykki á eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umferð byrjar mynstur eins og útskýrt er að neðan – prjónið þannig – frá réttu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, 13-14-15-16-17-18 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), prjónið A.1 (= ermi), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 26-28-30-32-34-36 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), prjónið A.1 (= ermi), prjónið 2 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 13-14-15-16-17-18 lykkjur sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þ.e.a.s. á ermum er aukið út í hvorri hlið eins og útskýrt er í A.1. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn á ermum prjónaður brugðið (= gat) og lykkjur eru auknar út jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í A.1. Á fram- og bakstykki er aukið út með uppslætti á undan/á eftir 2 lykkjum í sléttprjón (það eiga að vera 2 lykkjur í sléttprjóni á milli hverra útaukninga fyrir laskalínu). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið (= gat) og útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) = 8 lykkjur fleiri í hverri útauknings umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT á hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.2. Prjónið A.2 A yfir fyrstu 5 lykkjur, A.2 B yfir næstu 30 lykkjur og A.2 C yfir síðustu 6 lykkjur. Í hvert skipti sem A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónuð 1 mynstureining fleiri af A.2 B á breiddina. Haldið áfram með útaukningu eins og útskýrt er í A.1. Aukið út fyrir laskalínu alls 23-25-28-30-34-38 sinnum = 276-296-324-344-380-416 lykkjur. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 21-23-26-28-32-35 cm frá prjónamerki við háls. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. í næstu umferð er prjónað þannig (haldið áfram með mynstur eins og áður): Prjónið 41-44-48-51-56-61 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 61-65-71-75-83-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 72-78-86-92-102-112 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 61-65-71-75-83-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 41-44-48-51-56-61 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 166-178-194-210-230-250 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjón eins og áður. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 25-25-24-24-22-21 cm frá skiptingu, aukið út 1 lykkju = 167-179-195-211-231-251 lykkjur (nú eru eftir ca 6 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan eins og áður, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan eins og áður. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 61-65-71-75-83-91 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-71-77-83-91-99 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerkið og haldið áfram með mynstur hringinn eftir A.3, passið uppá að mynstrið passi með A.2, þær lykkjur undir ermi sem ekki ganga jafnt upp í mynstureiningu eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 3½-2½-2-1½-1-1 cm millibili alls 10-11-13-15-18-21 sinnum = 47-49-51-53-55-57 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 36-34-32-31-28-25 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 7 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 40-38-36-35-32-29 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Katri Ekhorn wrote:
Hei, strikker str M. Har strikket først A. 1, også A. 2 uten raglanøkninger, men syns det ble rart og rekte opp. Og nå har strikket med raglanøkning så som i A1., men da stemmer ikke mønster A2. A eller A. 2 C.. Så vet ikke hva, er rett?
23.04.2024 - 15:28Katri Ekhorn wrote:
Hei, var litt vanskelig å forstå. Når man har strikket i bolen A.1 og strikker A. 2, skal man øke til raglan samtidig etter A. 1?
20.04.2024 - 08:11DROPS Design answered:
Hej Katri, hvor langt er du kommet i opskriften? Har du strikket hele A.1 med udtagninger til raglan? Skriv hvilken størrelse du strikker, hvor du er og hvor mange masker du har, så skal vi prøve at hjælpe dig :)
23.04.2024 - 13:26Dorys Jelves Ruiz wrote:
Me parece que no cuadra el gráfico A1 de la manga, ya que no se considera que se aumenta 1 punto a cada lado por cada fila de derecho
27.04.2021 - 04:40Jeanette Bratland Hjelland wrote:
I mønster A3, på venstre side, går streken motsatt vei enn i starten. Det er ingen forklaring på hovrdan denne skal strikkes. Det står heller ikke noe om AB og C i mønster A3. Skal hele rapporten i A3 gjentas?
13.04.2021 - 19:39DROPS Design answered:
Hei Jeanette. Oppskriften er videre sendt til design avd. slik at de kan ta en dobbeltsjekk og evnt komme med en rettelse/kommentar. mvh DROPS design
26.04.2021 - 12:09