City Streets |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með áferðamynstri og stuttum ermum. Stærð XS - XXL.
DROPS 210-18 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið fram að lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki í garðaprjóni eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki). Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýju lykkjur jafnóðum inn í A.1. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 HNAPPAGAT = byrjið frá réttu og prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 2, 8, 14½, 20½, 27 og 34 cm S: 2, 8½, 15, 21½, 28 og 35 cm M: 2, 9, 16, 23, 30 og 36 cm L: 2, 9, 16, 23, 30 og 38 cm XL: 2, 9, 16½, 23½, 31 og 39 cm XXL: 2, 9½, 17, 24½, 32 og 40 cm ATH: Fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu af þessum 6 hnappagötum í kanti í hálsmáli. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Fellt er af fyrir handveg. Prjónið síðan bakstykki og framstykki fram- og til baka á hringprjón hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp þar sem ermakúpan byrjar. Síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Stykkið er saumað saman á öxlum og ermar eru saumaðar í. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í stroffprjóni. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 137-153-163-177-195-217 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í 37.-41.-43.-47.-51.-57. lykkju inn frá hvorri hlið (þ.e.a.s. í brugðna lykkju séð frá réttu). Það eru 63-71-77-83-93-103 lykkjur á bakstykki á milli lykkja með prjónamerki í. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5-5-6-6-6-7 cm millibili alls 4 sinnum á hæðina í hvorri hlið = 153-169-179-193-211-233 lykkjur. Prjónið áfram án útaukninga þar til stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm. Fellið nú af fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 38-41-43-47-51-57 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af 5-7-7-7-7-7 lykkjur fyrir handveg (lykkja með prjónamerki í er lykkjan í miðjunni af þessum 5-7-7-7-7-7 lykkjum), prjónið 67-73-79-85-95-105 lykkjur eins og áður, fellið af 5-7-7-7-7-7 lykkjur fyrir handveg og prjónið síðan þær 38-41-43-47-51-57 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Prjónið bakstykki og framstykki til loka hvort fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: = 67-73-79-85-95-105 lykkjur. Haldið áfram með A.1 fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-1-1 sinni, 2 lykkjur 0-1-2-2-2-3 sinnum og 1 lykkju 1-2-2-2-3-5 sinnum = 65-65-67-73-75-77 lykkjur eftir. Þegar stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm, fellið af miðju 23-23-25-25-25-27 lykkjurnar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með A.1 og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 19-19-19-22-23-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til 1 lykkja er eftir þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 38-41-43-47-51-57. Haldið áfram með A.1 fram og til baka eins með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni mitt að framan. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-1-1 sinni, 2 lykkjur 0-1-2-2-2-3 sinnum og 1 lykkju 1-2-2-2-3-5 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-33-34-36-37-38 cm setjið ystu 8-8-8-8-8-9 lykkjur mitt að framan á 1 þráð fyrir hálsmáli, en til að þurfa ekki að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Haldið áfram með A.1 og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkju 4-4-4-5-4-5 sinnum. Eftir alla affellingu fyrir handveg og hálsmáli eru 19-19-19-22-23-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 38-41-43-47-51-57. Haldið áfram með A.1 fram og til baka á sama hátt með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni mitt að framan. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-1-1 sinni, 2 lykkjur 0-1-2-2-2-3 sinnum og 1 lykkju 1-2-2-2-3-5 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-33-34-36-37-38 cm setjið ystu 8-8-8-8-8-9 lykkjur mitt að framan á 1 þráð fyrir hálsmáli. Haldið áfram með A.1 og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkju 4-4-4-5-4-5 sinnum. Eftir alla affellingu fyrir handveg og hálsmáli eru 19-19-19-22-23-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu. ERMI: Fitjið upp 42-46-46-50-52-54 lykkjur á sokkaprjóna 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Setjið 1 prjónamerki í síðustu lykkju í umferð (= 1 lykkja brugðið). Prjónið A.1A hringinn með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og garðaprjón yfir brugðnar lykkjur. Þegar stykkið mælist 6-6-6-6-8-8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-2½-1½-1½-1-1 cm millibili alls 6-6-8-8-10-10 sinnum = 54-58-62-66-72-74 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 22-21-20-20-19-18 cm, en endið eftir umferð þegar 2-3-3-3-3-3 lykkjur eru eftir að lykkju með prjónamerki í. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðar axlavíddar og lengri ermakúpu. Í næstu umferð eru felldar af 7 lykkjur, prjónið síðan mynstur eins og áður út umferðina. Prjónið síðan ermakúpu fram og til baka á hringprjón þannig: Haldið áfram með A.1 eins og áður og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-3-3-3-3-3 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkju 1-2-2-2-2-4 sinnum í hvorri hlið. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist 27-28-28-28-28-29 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 28-29-29-29-29-30 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 83 til 99 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði að framan) á hringprjón 4 með Brushed Alpaca Silk. Byrjið frá röngu og prjónið þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón og munið eftir að fella af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsmáli. Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist ca 3½ til 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (100)
Henriette Christensen wrote:
Jeg kan ikke finde diagrammet der skal strikkes mønster efter til denne opskrift
05.04.2024 - 19:59DROPS Design answered:
Hej Henriette, diagrammerne er til højre for måleskitsen nederst i opskriften :)
09.04.2024 - 10:24Gudrun Olsson wrote:
Hej! Jag förstår inte hur jag ska göra när jag kommer till att dela på bak och framstycke när jag ska börja maska av för ärmarna. Ska jag sticka bak för sig och varje framstycke för sig? Hälsningar Gudrun
11.03.2024 - 09:56DROPS Design answered:
Hej Gudrun. Ja det stämmer. Fram- och bakstycket stickas fram och tillbaka på rundsticka, nerifrån och upp till ärmhålen. Det maskas av till ärmhål. Sedan stickas bakstycket och framstyckena fram och tillbaka på rundsticka var för sig. Mvh DROPS Design
13.03.2024 - 09:31Ellen Wanders wrote:
Als cadeau, wil ik dit vest breien in confectie maat 40 Nederland. Kunt u me zeggen welke maat in het patroon ik dan moet volgen? Ik kan namelijk niet vragen naar een voorbeeld vest. Vast bij voorbaat hartelijk dank. Met vriendelijke groet, Ellen Wanders
02.03.2024 - 08:40DROPS Design answered:
Dag Ellen,
Waarschijnlijk komt maat M het meest in de buurt. Je kunt ook kijken op kledingmaat.nl, welke Europese confectiematen (36, 38, 40 ect) overeenkomen met de Amerikaanse maten (S, M, L etc)
05.03.2024 - 22:53Viviana wrote:
Buonasera, io non riesco a capire quali siano le 8 maglie che devo mettere in attesa più vicine allo scollo? Ma quanto più vicino allo scollo? Grazie
24.02.2024 - 18:29DROPS Design answered:
Buonasera Viviana, si, deve mettere in sospeso le maglie più esterne. Buon lavoro!
25.02.2024 - 15:23Franca Tonellato wrote:
Buongiorno, utilizzando il filato suggerito, per una taglia media quanto ne occorre? grazie
29.01.2024 - 21:49DROPS Design answered:
Buonasera Franca, la quantità di filato è riportata all'inizio del modello, di fianco alla foto. Per la taglia M servono 150 g. Buon lavoro!
31.01.2024 - 18:51Sal wrote:
Combien mesure en cm le cardigan d’un à l’autre en taille Small merci?
16.01.2024 - 00:09Sal wrote:
Comment s’appelle le point fantaisie utilisé ? Merci
09.01.2024 - 23:36Joke wrote:
Hallo, Patroon 210-10 waarbij ik bij de mouw de eerste 7 steken moet afkanten . Ga dan verder in patroon zoals hiervoor tot het einde van de naald. Waarom alleen voor aan afkanten Mvg Joke
30.10.2023 - 11:58DROPS Design answered:
Dag Joke,
Vlak daarvoor staat beschreven dat je de naald een aantal steken eindigt voor de markeerdraad. Daarna kant je de 7 steken af. Dus eigenlijk kan je de 7 steken midden onder de mouw af en dus aan beide kanten.
30.10.2023 - 20:31Joke Besselink wrote:
Kan ik ook met gewone breinaalden breien? Ik ben 72 jaar en vindt zoveel steken op een ronde breinaald niet fijn. Hoe verdeel je de steken dan? Mvg Joke
18.10.2023 - 20:55DROPS Design answered:
Dag Joke,
Het maakt niet zoveel uit hoe je de steken dan verdeeld, je zou het kunnen verdelen in 2 voorpanden en het achterpand. Omdat er veel steken op de naald staan heb je wel grotere kans dat ze er af glijden, dus kan het handig zijn om dopjes of puntbeschermers op de naalden te zetten.
19.10.2023 - 19:58CHRISTINE wrote:
Combien de mailles pour chaque devant droit et gauche pourquoi on ne trouve plus de modèles comme autrefois, le dos nombre mailles, devant nombre de maille ?? merci cdlt
02.06.2023 - 18:40DROPS Design answered:
Bonjour Christine, certains modèles se tricotent en différentes pièces, d'autres, comme celui-ci se tricotent de bas en haut en une seule partie jusqu'aux emmanchures, autrement dit, vous montez les mailles du dos et des 2 devants et tricotez en augmentant sur les côtés du gilet jusqu'aux emmanchures, puis vous rabattez les mailles des emmanchures et terminez chaque partie séparément. Bon tricot!
05.06.2023 - 09:21