DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4180.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

City Streets

Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með áferðamynstri og stuttum ermum. Stærð XS - XXL.

DROPS 210-18
DROPS Design: Mynstur as-133
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS- S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
125-125-150-150-175-175 g litur 21, salvíugrænn

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með áferðamynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir áferðamynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 60 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 6 stykki í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4180.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið fram að lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki í garðaprjóni eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki).
Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýju lykkjur jafnóðum inn í A.1.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 HNAPPAGAT = byrjið frá réttu og prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt = gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
XS: 2, 8, 14½, 20½, 27 og 34 cm
S: 2, 8½, 15, 21½, 28 og 35 cm
M: 2, 9, 16, 23, 30 og 36 cm
L: 2, 9, 16, 23, 30 og 38 cm
XL: 2, 9, 16½, 23½, 31 og 39 cm
XXL: 2, 9½, 17, 24½, 32 og 40 cm
ATH: Fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu af þessum 6 hnappagötum í kanti í hálsmáli.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Fellt er af fyrir handveg. Prjónið síðan bakstykki og framstykki fram- og til baka á hringprjón hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp þar sem ermakúpan byrjar. Síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Stykkið er saumað saman á öxlum og ermar eru saumaðar í. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í stroffprjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 137-153-163-177-195-217 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í 37.-41.-43.-47.-51.-57. lykkju inn frá hvorri hlið (þ.e.a.s. í brugðna lykkju séð frá réttu). Það eru 63-71-77-83-93-103 lykkjur á bakstykki á milli lykkja með prjónamerki í. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 5 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5-5-6-6-6-7 cm millibili alls 4 sinnum á hæðina í hvorri hlið = 153-169-179-193-211-233 lykkjur.
Prjónið áfram án útaukninga þar til stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm.
Fellið nú af fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 38-41-43-47-51-57 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af 5-7-7-7-7-7 lykkjur fyrir handveg (lykkja með prjónamerki í er lykkjan í miðjunni af þessum 5-7-7-7-7-7 lykkjum), prjónið 67-73-79-85-95-105 lykkjur eins og áður, fellið af 5-7-7-7-7-7 lykkjur fyrir handveg og prjónið síðan þær 38-41-43-47-51-57 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Prjónið bakstykki og framstykki til loka hvort fyrir sig eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
= 67-73-79-85-95-105 lykkjur. Haldið áfram með A.1 fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-1-1 sinni, 2 lykkjur 0-1-2-2-2-3 sinnum og 1 lykkju 1-2-2-2-3-5 sinnum = 65-65-67-73-75-77 lykkjur eftir.
Þegar stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm, fellið af miðju 23-23-25-25-25-27 lykkjurnar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Haldið áfram með A.1 og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 19-19-19-22-23-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til 1 lykkja er eftir þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 38-41-43-47-51-57. Haldið áfram með A.1 fram og til baka eins með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni mitt að framan. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-1-1 sinni, 2 lykkjur 0-1-2-2-2-3 sinnum og 1 lykkju 1-2-2-2-3-5 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-33-34-36-37-38 cm setjið ystu 8-8-8-8-8-9 lykkjur mitt að framan á 1 þráð fyrir hálsmáli, en til að þurfa ekki að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn.
Haldið áfram með A.1 og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkju 4-4-4-5-4-5 sinnum.
Eftir alla affellingu fyrir handveg og hálsmáli eru 19-19-19-22-23-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 38-41-43-47-51-57. Haldið áfram með A.1 fram og til baka á sama hátt með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni mitt að framan. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-1-1 sinni, 2 lykkjur 0-1-2-2-2-3 sinnum og 1 lykkju 1-2-2-2-3-5 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-33-34-36-37-38 cm setjið ystu 8-8-8-8-8-9 lykkjur mitt að framan á 1 þráð fyrir hálsmáli.
Haldið áfram með A.1 og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkju 4-4-4-5-4-5 sinnum.
Eftir alla affellingu fyrir handveg og hálsmáli eru 19-19-19-22-23-23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

ERMI:
Fitjið upp 42-46-46-50-52-54 lykkjur á sokkaprjóna 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Setjið 1 prjónamerki í síðustu lykkju í umferð (= 1 lykkja brugðið). Prjónið A.1A hringinn með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og garðaprjón yfir brugðnar lykkjur. Þegar stykkið mælist 6-6-6-6-8-8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-2½-1½-1½-1-1 cm millibili alls 6-6-8-8-10-10 sinnum = 54-58-62-66-72-74 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 22-21-20-20-19-18 cm, en endið eftir umferð þegar 2-3-3-3-3-3 lykkjur eru eftir að lykkju með prjónamerki í. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðar axlavíddar og lengri ermakúpu.
Í næstu umferð eru felldar af 7 lykkjur, prjónið síðan mynstur eins og áður út umferðina.
Prjónið síðan ermakúpu fram og til baka á hringprjón þannig: Haldið áfram með A.1 eins og áður og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-3-3-3-3-3 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkju 1-2-2-2-2-4 sinnum í hvorri hlið. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist 27-28-28-28-28-29 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 28-29-29-29-29-30 cm ofan frá og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu ca 83 til 99 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði að framan) á hringprjón 4 með Brushed Alpaca Silk.
Byrjið frá röngu og prjónið þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón og munið eftir að fella af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsmáli.
Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist ca 3½ til 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

City Streets

Les petites creations d isa, France

City Streets

Anne, France

210-18 City Streets

Léa, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (100)

country flag SIMONNET wrote:

Merci.Vôtre réponse ne m'aide pas car je sais rabattre des mailles, faire encolure et emmanchures... Le principal c'est que vous me disiez s'il faut bien rabattre de chaque côté 7 mailles pour commencer l'arrondi de la manche ? C'est la première fois que je suis un modèle Drops, je trouve que les explications ne sont pas complètes. Tant pis. Merci

25.07.2022 - 14:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Simonnet, ces 7 mailles rabattues sont au milieu sous la manche (quand l'ouvrage est porte). La technique est la meme comme dans la video ICI, mais la manche sur la video est plus large. Bon tricot!

25.07.2022 - 17:06

country flag SIMONNET wrote:

Ré-bonjour. Merci pour votre réponse rapide. Mais je ne comprends pas. Cela veut-il dire que je dois rabattre de chaque côté 7 mailles ? Je tricote avec 5 aiguilles doubles pointes comme indiqué. Je ne sais pas tricoter avec aiguille circulaire. Ce modèle est vraiment compliqué pour moi, tricoteuse intermédiaire ! Un grand merci ! 🙏

23.07.2022 - 19:01

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Simonnet, regardez la video ICI. Bon tricot!

24.07.2022 - 13:40

country flag SIMONNET wrote:

Bonjour,Concernant le modèle DROPS 210-18 : Modèle assez difficile...Enfin, assez péniblement, j'en suis arrivée aux manches! Mais encore une difficulté qui va me demander votre aide. Au passage: mais terminer le tour ... avec le marqueur, ma question est: que fait-on des 3 mailles (dans mon cas)? Un grand MERCI pour votre réponse.

21.07.2022 - 11:28

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Simmonet, ces 3 mailles+1 maille avec marqueur+3 mailles suivantes (7 mailles au total) seront rabattues au rang suivant ('Au rang suivant, rabattre les 7 premières mailles, continuer en point fantaisie...). Depuis la, l'arrondi des manches est travaille en allers et retours. Bon tricot!

22.07.2022 - 22:33

country flag Flu wrote:

Hi! I want to knit this cardigan but just finished knitting another one with the association drops brushed alpaca silk & paris, it turned out lovely however I’m finding that the brushed alpaca silk yarn sheds a lot all over the place. Any tips to prevent that from happening?

21.05.2022 - 13:21

DROPS Design answered:

Dear Flu, due to its structure, it will shed slightly. This is normally reduced each time you wash it. Happy knitting!

22.05.2022 - 22:34

country flag SYLVIANE GASPARD wrote:

Bonjour, J'aimerais tricoter ce gilet mais avec de la laine du groupe B. Si je tricote ce modèle en taille XL (alors que je fais une taille M), est-ce que j'aurais bien le gilet à ma taille ? Merci pour votre réponse

09.05.2022 - 17:36

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gaspard, comme votre échantillon sera différent en largeur, il vous faudra vérifier vos propres mesures et recalculer si cela peut fonctionner ainsi ou bien recalculer les explications. Vous pouvez aussi vous inspirer d'un modèle du groupe B - ex ceux-là. Bon tricot!

10.05.2022 - 08:34

country flag Grete Martinussen wrote:

Jeg kan ikke få masketallet til at passe, når jeg deler ved ærmegabet. Jeg har 16 masker for meget! Kan det være udtagninger, der ikke er talt med?

31.03.2022 - 15:08

DROPS Design answered:

Hei Grete. For at du skal kunne hjelpe deg, er det fint om du opplyser hvilken str du strikker. mvh DROPS Design

04.04.2022 - 12:34

country flag Florence wrote:

Ça y est j’ai saisi !! Merci beaucoup d’avoir pris le temps de m’expliquer. Ce qui m’a induit en erreur c’est la légende du diagramme : « symbols = 1 maille endroit sur l'endroit, envers sur l'envers symbols = 1 maille envers sur l'endroit, endroit sur l'envers » Je pensais qu’il fallait faire des mailles envers même sur le 1er rang. Je vais maintenant pouvoir avancer ! Mille mercis et belle journée

18.03.2022 - 07:58

country flag Florence wrote:

Je vous remercie pour votre réponse ! Cela veut dire que le gilet est fait en côtes 1/1, c’est bien ça ? Merci d’avance et belle journée, J’adore vos modèles !

16.03.2022 - 13:52

DROPS Design answered:

Bonjour Florence, pas exactement, en côtes 1/1 vous tricotez *1 m end, 1 m env* et tricotez ainsi tout le temps; ici, on tricote *1 m end, 1 m point mousse*. Autrement dit, A.1A se tricote ainsi : 1er rang sur l'endroit: 2 m endroit - 2ème rang (sur l'envers, on lit de gauche à droite): 1 m endroit, 1 m envers. Répétez ces 2 rangs. Bon tricot!

16.03.2022 - 16:42

country flag Florence wrote:

Bonjour, Je suis désolée mais je ne comprends pas le point fantaisie malgré le diagramme et les commentaires en français à ce sujet. Pouvez vous me le détailler plus clairement ? Merci d’avance !

12.03.2022 - 11:59

DROPS Design answered:

Bonjour Florence, vous allez alterner 1 maille jersey (1ère maille de A.1A/A.1B) et 1 maille point mousse (2ème maille de A.1A), autrement dit, vous répétez , vu sur l'endroit 1 m jersey, 1 m point mousse et vous terminez par 1 m jersey (sur l'envers, vous tricoterez: 1 m jersey, 1 m point mousse en terminant par 1 m jersey). Bon tricot!

14.03.2022 - 10:15

country flag GaiaM wrote:

Buongiorno, vorrei fare una domanda su questo modello, ma ogni volta che provo ad inviarla il sito mi riporta un errore "nel commento è presente un link o una parola proibita". Ho provato a riscriverlo diverse volte, sempre con lo stesso problema

02.03.2022 - 22:51

DROPS Design answered:

Buonasera GaiaM, se preferisce può inviare la sua richiesta direttamente a italian@garnstudio.com. Buon lavoro!

04.03.2022 - 17:48