DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1408.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Afternoon Playdate

Prjónaðar buxur fyrir börn með axlaböndum úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað í stroffprjóni og sléttprjóni. Stærð fyrirburar – 4 ára.

DROPS Baby 36-4
DROPS Design: Mynstur fl-003-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
(<0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
(40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)
ATH: Vegna klukkuprjóns verður flíkin mjög teygjanleg og kemur því til með að dragast saman miðað við mál á teikningu.

EFNI:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
(100) 100-100-100-100 (150-150) g litur 13, gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 40 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 2 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1408.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á skálmum):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Fækkið lykkjum svona við bæði prjónamerkin.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Hvor skálm er prjónuð fyrir sig á sokkaprjóna áður en þær eru settar saman, fitjaðar eru upp lykkjur fyrir klofi og stykkið er síðan prjóna í hring á stuttan hringprjón.
Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka.

SKÁLM:
Fitjið upp (40) 44-48-48-56 (60-64) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með Flora. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 5 cm, skipt er yfir í sokkaprjóna 3 og prjónið síðan í sléttprjóni.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið merkir innan á skálm, það á að auka út lykkjur hvoru megin við prjónamerkið síðar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út (0) 1-1-1-1 (1-1) lykkjur hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING.
Aukið svona út með (0) 2-2-2-3 (5-7) cm millibili alls (0) 4-7-8-7 (6-5) sinnum = (40) 52-62-64-70 (72-74) lykkjur.
Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist (16) 18-25-26-31 (39-42) cm.
Færið prjónamerkið um (20) 26-31-32-35 (36-37) lykkjur (= ytri hlið á skálm). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið merkir ytri hlið á skálm, það á að fækka lykkjum hvoru megin við prjónamerkið síðar.
Klippið frá.
Prjónið hina skálmina á sama hátt.

BUXUR:
Setjið nú báðar skálmarnar saman og prjónið síðan í hring á stuttan hringprjón 3 þannig:
Fitjið upp (8) 8-8-10-10 (12-12) lykkjur, prjónið yfir lykkjurnar frá annarri skálminni, fitjið upp (8) 8-8-10-10 (12-12) lykkjur, prjónið yfir lykkjurnar frá hinni skálminni = (96) 120-140-148-160 (168-172) lykjur.
Byrjun á umferð er fyrir miðju að aftan, á milli fyrstu (8) 8-8-10-10 (12-12) lykkja.
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 2 cm frá þar sem stykkin voru sett saman, fækkið um (0) 1-1-1-1 (1-1) lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með (0) 8-3-6-4 (8-10) cm millibili alls (0) 2-5-3-4 (3-2) sinnum = (96) 112-120-136-144 (156-164) lykkjur.
Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist (11) 13-14-17-18 (19-20) cm frá þar sem stykkin voru sett saman.
Prjónið nú upphækkun að aftan þannig:
Prjónið (7) 7-9-9-9 (9-9) sléttar lykkjur, snúið, herðið á þræði, prjónið (14) 14-18-18-18 (18-18) lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði, prjónið (20) 20-26-26-26 (26-26) lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði, prjónið (26) 26-34-34-34 (34-34) lykkjur brugðið til baka. Haldið svona áfram með því að prjóna (6) 6-8-8-8 (8-8) lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls (50) 50-66-66-82 (82-82) lykkjur. Snúið, prjónið til baka að byrjun á umferð (= mitt að aftan).
Prjónið 1 umferð slétt og jafnið lykkjufjöldanum út til (95) 115-120-140-145 (160-165) lykkjur (þ.e.a.s. aukið út (0) 3-0-4-1 (4-1) lykkjur og fækkið um (1) 0-0-0-0 (0-0) lykkjur).
Til að framstykki og bakstykki passi vel, færið því byrjun á umferð þannig:
Tilfærsla á umferð fyrir fyrirbura: Prjónið fram þar til 1 lykkja er eftir í umferð, umferðin byrjar núna hér.
Tilfærsla fyrir stærð 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára: Prjónið 1 lykkju slétt, umferðin byrjar núna hér.
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 2,5.
Prjónið nú áfram í öllum stærðum þannig: Prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt) yfir allar lykkjur. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af lykkjur þannig:
Prjónið 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fellið af næstu (19) 24-24-34-34 (39-39) lykkjur, 2 lykkjur garðaprjón, haldið áfram með stroff yfir næstu (33) 38-43-43-48 (53-58) lykkjur, 2 lykkjur garðaprjón (= framstykki), fellið af næstu (19) 24-24-34-34 (39-39) lykkjur, 1 lykkja garðaprjón og prjónið stroff yfir þær (8) 13-13-13-13 (13-13) lykkjur sem eftir eru.

BAKSTYKKI:
= (20) 25-25-25-25 (25-25) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í stroffprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið á stykki, þar til stykkið mælist (2) 3-3-4-4 (5-5) cm frá skiptingu. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið 1 lykkju garðaprjón, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 1 lykkja garðaprjón, fellið af næstu (0) 5-5-5-5 (5-5) lykkjur, 1 lykkja garðaprjón, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt og 1 lykkja garðaprjón = 10 lykkjur eftir fyrir hvort axlaband.

AXLABAND:
Haldið áfram með stroff og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, fram og til baka þar til axlabandið mælist ca 18-24 cm (eða e.t.v. að óskaðri lengd). Fellið af og endurtakið í hinni hliðinni.

FRAMSTYKKI:
= (37) 42-47-47-52 (57-62) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í stroffprjóni og 2 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist (4) 6-7-9-10 (11-12) cm, fellið af fyrir 2 hnappagötum frá réttu þannig:
Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður þar til 10 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur garðaprjón.
Þegar stykkið mælist (5) 7-8-10-11 (12-13) cm, skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið lykkjurnar saman í klofi. Saumið 1 tölu í hvort axlaband.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.05.2020
Breitt orðalag undir BUXUR:..Fitjið upp (8) 8-8-10-10 (12-12) lykkjur, prjónið yfir lykkjurnar frá annarri skálminni, fitjið upp (8) 8-8-10-10 (12-12) lykkjur, prjónið yfir lykkjurnar frá hinni skálminni = (96) 120-140-148-160 (168-172) lykjur. Byrjun á umferð er fyrir miðju að aftan, á milli fyrstu (8) 8-8-10-10 (12-12) lykkja.
Yfirfarið á vefsvæði: 16.11.2020
Leiðrétting: BUXUR:.. Snúið, prjónið til baka að byrjun á umferð (= mitt að aftan)....
Yfirfarið á vefsvæði: 15.01.2021
Leiðrétting: BUXUR:..Til að framstykki og bakstykki passi vel, færið því byrjun á umferð þannig:
Tilfærsla á umferð fyrir fyrirbura: Prjónið fram þar til 1 lykkja er eftir í umferð, umferðin byrjar núna hér.
Tilfærsla fyrir stærð 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára: Prjónið 1 lykkju slétt, umferðin byrjar núna hér.
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 2,5.
Prjónið nú áfram í öllum stærðum þannig:
FRAMSTYKKI:...= (37) 42-47-47-52 (57-62) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í stroffprjóni og 2 lykkjur garðaprjóni í hvorri hlið...

Mynstur

symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Afternoon Playdate

Estelle, United Kingdom

Afternoon Playdate

Monica, Italy

Afternoon Playdate

Frau-Sommer, Germany

Afternoon Playdate

Sasa, Germany

Afternoon Playdate

Aleksandra, Norway

Afternoon Playdate

Aleksandra, Norway

Afternoon Playdate

JoeJ5, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 36-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (75)

country flag Hannah wrote:

Thanks for the very cute free pattern. Although, this seems a very odd shape! I followed the pattern exactly and the legs are alarmingly long compared to the torso. I see that the cuffs are turned up in the modelled pictures, but still. I made the 1-3 months size. Are the rest like this?

17.03.2024 - 22:25

DROPS Design answered:

Dear Hanna, please check your knitting gauge, and compare your piece to the measurements given on the schematic drawing at the bottom of the pattern. At the same time, we have to note that the legs are intentionally longer than usual, because they are turned up, so the garnment fits the small ones for longer time. Happy Knitting!

17.03.2024 - 22:55

country flag Marita wrote:

Hei! Jeg har kommet til dette punktet i oppskriften: «Strikk 1 omgang rett og juster maskeantallet til (95) 115-120-140-145 (160-165) masker (dvs det økes (0) 3-0-4-1 (4-1) masker og felles (1) 0-0-0-0 (0-0) maske).» Spørsmålet mitt er nå i dette tilfellet ang størrelse 3/4 år, men er like gjeldene for de andre gangene det skal økes (og den ene fellingen). Hvor skal økningene skje for at det skal stemme ut videre i oppskriften?

10.02.2024 - 21:27

DROPS Design answered:

Hei Marita, I størrelsen 3/4 år øker du bare 1 maske (ingen felte masker). Denne masken kan økes på begynnelsen av omgangen. God fornøyelse!

12.02.2024 - 08:17

country flag Nele wrote:

2 vragen; 1; Plaats je de markeerder in tweede pijp in spiegelbeeld t.o.v. de eerste pijp? 2; komt de markeerder na het verplaatsen in het midden van de pijp uit? Volgens de instucties namelijk niet (maat 80/86); na het meerderen heb ik 8 van de 70 steken rechts van de markeerder, dus als ik 35 steken verplaats heeft de markeerder 27 steken enerzijds en 43 steken anderzijds. Wat is de bedoeling?

15.01.2024 - 14:35

country flag Katharina wrote:

Hallo, ich habe leider meinen Markierer für die hintere Mitte verloren, haben Sie vielleicht einen Tipp, wie ich die richtige Stelle abmessen kann, um Rücken- und Vorderteil korrekt zu platzieren? Liebe Grüße Katharina

06.12.2023 - 18:03

DROPS Design answered:

Liebe Katharina, legen Sie die Arbeit flach und zählen Sie die Maschen so daß die hintere Mitte ist zwischen die beiden Markierungen an den Seiten. Viel Spaß beim stricken!

07.12.2023 - 08:31

country flag Helen wrote:

Je veux faire ce modèle mais pour une taille 3-6 mois. Comment je peux convertir votre modèle ? Merci

22.11.2023 - 16:34

DROPS Design answered:

Bonjour Helen, nos modèles sont généralement disponibles uniquement soit en 1/3 mois soit en 6/9 mois; pour vous aider à mieux choisir la taille, vérifiez les mesures d'après le schéma en bas de page - retrouvez plus d'infos sur les tailles ici. Bon tricot!

23.11.2023 - 08:25

country flag Ilona wrote:

Buonasera. Parlate di Ferri a doppia punta all inizio della gambina. Ma mi sembra di capire che devo lavorare in tondo. Sbaglio?

03.08.2023 - 19:45

DROPS Design answered:

Buonasera Ilona, si, corretto, si lavora in tondo. Buon lavoro!

03.08.2023 - 20:26

country flag Lisa wrote:

Hi, ich bin mit der Erhöhung fertig. Für mich ist unklar, wann die Teilung in Vorder- und Rückseite erfolgt. In einem Kommentar von 2020 steht, dass dies am Ende vom Abschnitt "Hose" erklärt wird, dieser Teil scheint aber nicht mehr in der Anleitung so vorhanden zu sein. Vielen Dank!

15.05.2023 - 00:00

DROPS Design answered:

Liebe Lisa, wenn alle verkürzten Reihen fertig sind, stricken Sie 1 Reihe bis Anfang der Runde. Dann stricken Sie 1 Runde mit Zu- oder Abnahmen (siehe Größe) und dann wird der Anfang der Runde verschoben, so daß Vorderteil und Rückenteil richtig passen; stricken Sie dann 4 cm Rippenmuster und dann wird die Arbeit für Vorder- und Rückenteil verteilt. Viel Spaß beim stricken!

15.05.2023 - 09:00

country flag Kristina wrote:

When increasing the stitch on the legs, does the marker stay where it is after the increase or move to back to the beginning of the round?

28.04.2023 - 12:07

DROPS Design answered:

Dear Kristina, you work 1 yarn over before the last stitch on the round and after the first stitch in the round, so you shouldn't move the marker; otherwise the next increases would be misaligned. Only move the marker when it specifies so, later in the paragraph. Happy knitting!

30.04.2023 - 21:50

country flag Fleur wrote:

Beste, Wat een ontzettend leuk patroon en fijne uitleg! Enkel aan het einde kom ik er niet uit. Bij het afkanten van het voorpand na twee ribbels, loopt het voorpand heel breed uit. Dit is natuurlijk doordat het hele deel ervoor in boordsteek is gebreid, maar bij het dragen blijft dit bovenste deel ‘flubberig’. Is het mogelijk om dmv minderen dit laatste deel (twee ribbels en afkanten) beter aan te laten sluiten op de rest van het voorpand? Met hartelijke groet!

17.03.2023 - 15:52

DROPS Design answered:

Dag Fleur,

Wat je zou kunnen doen is steken minderen vlak voordat je de ribbels gaat breien. Bijvoorbeeld alle 2 averechte steken samenbreien. Het kan ook helpen om de bovenkant een beetje op te persen. Dit doe je door een natte theedoek erover te leggen en zeer voorzichtig te deppen op dat gebied. Let erop dat je dit heel voorzichtig doet, anders verniel je de structuur van het breiwerk.

19.03.2023 - 16:51

country flag Emma wrote:

Ich habe eine Frage bzgl. Der Knopflöcher. Muss ich nur eine Reihe mit Umschlag und Zusammenstricken machen? Oder mehrere? Und nur in der Hinreise jeweils? Wie Stricke ich dann in der Rückreihe? Was mache ich dann mit dem Umschlag? Danke für eine kurze Antwort.

12.03.2023 - 21:23

DROPS Design answered:

Liebe Emma, dieses Video zeigt, wie man so ein Knopfloch strickt (2 M rechts zusammen, 1 Umschlag), bei der Rückreihe stricken Sie die Maschen wie zuvor, Umschläge stricken Sie in der vordere Maschenglied, damit ein Loch ensteht. Viel Spaß beim stricken!

13.03.2023 - 10:26