DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1980.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Baby Fox Onesie

Prjónuð samfella fyrir börn úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað með refamynstri, axlaböndum og vasa. Stærð fyrirburar – 4 ára.

DROPS Baby 36-2
DROPS Design: Mynstur z-105-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
(<0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
(40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
(50) 50-100-100-100 (100-100) g litur 2925, appelsína
(50) 50-50-50-50 (50-50) g litur 9020, ljós perlugrár
Afgangur af lit 506, dökk grár

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 2 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1980.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA:
Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með 3 lykkjur garðaprjón.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Öll mynsturteikningin er prjónuð í sléttprjóni. Mynsturteikningin sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.
Þegar prjónað er með 2 litum, prjónaðu með þráðum bæði innan úr og utan með dokkunni í litnum ljós perlugrár, þá sleppur þú við löng hopp með þráðinn á röngunni. Þ.e.a.s. prjónað er með 1 þræði í litnum ljós perlugrár, 1 þræði í litnum appelsína og 1 þræði í litnum ljós perlugrár.
ATH: Til að koma í veg fyrir göt við litaskiptin, þá verður að tvinna þræðina um hvorn annan. Breiða rúðan í kringum lykkjur á 2 fyrstu umferðum merkja hvar sauma á lykkjuspor fyrir nef á refnum.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá uppá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SAMFELLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í 2 stykkjum fram og til baka áður en þau eru sett saman og prjónað er í hring á stuttan hringprjón. Stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki og stykkin eru prjónuð til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Prjónaður er upp 1 kantur í kringum hvora skálm. Prjónaður er laus vasi með refamynstri sem saumaður er á í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp (8) 10-10-12-12 (14-14) lykkjur á hringprjón 3 með litnum appelsína Alpaca. Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, (6) 8-8-10-10 (12-12) lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist (1) 1-2-2-2 (3-3) cm, fitjið upp 2 lykkjur í lok hverrar umferðar alls (5) 6-7-7-8 (8-9) sinnum í hvorri hlið, fitjið síðan upp (5) 5-5-6-7 (8-9) lykkjur í lok næstu 2 umferða = (38) 44-48-52-58 (62-68) lykkjur.
Geymið stykkið og prjónið framstykki.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp (8) 10-10-12-12 (14-14) lykkjur á hringprjón 3 með litnum appelsína Alpaca. Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, (6) 8-8-10-10 (12-12) lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja garðaprjón.
Þegar stykkið mælist (3) 4-5-6-7 (8-10) cm, fitjið upp 2 lykkjur í lok hverrar umferðar alls 3 sinnum í hvorri hlið, síðan eru fitjaðar upp (9) 11-13-14-17 (18-21) lykkjur í lok næstu 2 umferða = (38) 44-48-52-58 (62-68) lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið lykkjurnar af framstykki og bakstykki á sama stutta hringprjón 3 = (76) 88-96-104-116 (124-136) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki á milli stykkja. Það á síðar að fella af lykkjur fyrir handveg hvoru megin við þessi prjónamerki.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist (9) 12-16-17-19 (21-23) cm frá prjónamerki, prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir 4 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki (= alls 8 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið). Í næstu umferð eru felldar af 3 lykkjur fyrir handveg hvoru megin við hvort prjónamerki (= 6 lykkjur færri í hvorri hlið) og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= (32) 38-42-46-52 (56-62) lykkjur. Stykkið er síðan prjónað fram og til baka með 3 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið á stykki.
Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls (4) 4-6-6-7 (6-7) sinnum = (24) 30-30-34-38 (44-48) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með 3 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist (4) 5-5-6-7 (8-10) cm frá skiptingu. Í næstu umferð frá röngu er fækkað um 1 lykkju mitt á stykki með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman = (23) 29-29-33-37 (43-47) lykkjur.
Í næstu umferð frá réttu er prjónað stroff þannig:
Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja garðaprjón *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 3 lykkjur garðaprjón.
Þegar stykkið mælist (5) 6-6-7-8 (9-11) cm frá skiptingu, fellið af fyrir 2 hnappagötum í næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja slétt, 1 lykkja garðaprjón, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður þar til 7 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja garðaprjón, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur garðaprjón.
Fellið af með sléttum lykkjum þegar stykkið mælist (6) 7-7-8-9 (10-12) cm frá skiptingu.

BAKSTYKKI:
= (32) 38-42-46-52 (56-62) lykkjur.
Stykkið er prjónað áfram fram og til baka með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin á stykki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 4 sinnum = (24) 30-34-38-44 (48-54) lykkjur.
Í næstu umferð frá röngu er fækkað um 1 lykkju mitt í stykki með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman = (23) 29-33-37-43 (47-53) lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist (4) 5-5-6-7 (8-10) cm frá skiptingu.
Í næstu umferð frá réttu er prjónað stroff þannig:
Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 3 lykkjur garðaprjón.
Haldið áfram fram og til baka með stroff þar til stykkið mælist (6) 7-7-8-9 (10-12) cm frá skiptingu. Nú er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli og prjónað er áfram frá réttu þannig:
Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja garðaprjón *, prjónið frá *-* alls (2) 3-3-3-3 (3-3) sinnum, 2 lykkjur garðaprjón (= (9) 11-11-11-11 (11-11) lykkjur fyrir axlabönd), fellið af næstu (5) 7-11-15-21 (25-31) lykkjur, prjónið 3 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja garðaprjón *, prjónið frá *-* alls (2) 3-3-3-3 (3-3) sinnum og endið með 2 lykkjur garðaprjón (= (9) 11-11-11-11 (11-11) lykkjur fyrir axlabönd).
Prjónið fram og til baka með stroffprjóni og garðaprjóni yfir annað axlabandið, á meðan hitt hvílir á prjóni.
Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 8 til 14 cm frá skiptingu, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjurnar og fellið síðan af með sléttum lykkjum.
Prjónið hitt axlabandið á sama hátt.

VASI:
Fitjið upp (33) 42-42-42-54 (54-54) lykkjur á hringprjón 3 með litnum ljós perlugrár Alpaca. Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, A.1 (= (31) 40-40-40-52 (52-52) lykkjur) og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Allt A.1 er prjónað með 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Allt A.1 er prjónað með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru (21) 28-28-28-36 (36-36) lykkjur í umferð. Stykkið er nú prjónað til loka með litnum appelsína.
Stykkið mælist ca (7) 10-10-10-12 (12-12) cm.
Í næstu umferð frá réttu er prjónað stroff þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja garðaprjón *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, en fækkið jafnframt um (0) 1-1-1-1 (1-1) lykkjur, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju garðaprjón = (21) 27-27-27-35 (35-35) lykkjur. Prjónið stroff í ca 2 cm (eða að óskaðri lengd). Fellið af með sléttum lykkjum.
Prjónið 1 kant frá þar sem (3) 4-4-4-4 (4-4) lykkjur voru felldar af á vasa og upp að affellingarkanti þannig:
Prjónið upp 18-28 lykkjur innan við 1 kantlykkju frá réttu. Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig: Prjónið * 1 lykkju garðaprjón, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar kanturinn mælist ca 1 cm – sjá AFFELLING.
Prjónið annan kant alveg eins í hinni hliðinni á vasanum.

KANTUR Í KRINGUM SKÁLM:
Prjónið upp frá réttu ca 40 til 74 lykkjur meðfram öðru opi á skálm á hringprjón 3 með litnum appelsína. Stillið af að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 2 og að kanturinn herði ekki á opinu á skálminni. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja garðaprjón) fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið á stykki.
Þegar kanturinn mælist 2-4 cm, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Endurtakið meðfram hinni skálminni.

FRÁGANGUR:
Saumið saman opið á milli skálma. Saumið 1 tölu í hvort axlaband.
Saumið augun á refnum á vasanum með 1 lykkjuspori með litnum dökk grár í hvorn reit með litnum ljós perlugrár – sjá hring í mynsturteikningu.
Saumið nefið á refnum á vasanum með 1 lykkjuspori með litnum dökk grár í hverja af (3) 4-4-4-4 (4-4) lykkjum í 2. og 3. umferð neðst á vasa – sjá merkt með ferning í mynsturteikningu.
Saumið við uppfitjunarkantinn á vasanum ca 2-4 cm upp frá þar sem síðustu lykkjur voru fitjaðar upp á framstykki, með lykkjuspori og saumið affellingarkantinn á vasanum við samfelluna, þannig að vasinn liggi flatur. Saumið hliðar á vasanum við samfelluna, upp að affellingarkanti á vasanum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.05.2020
Leiðrétting: BAKSTYKKI: = (32) 38-42-46-52 (56-62) lykkjur.
Stykkið er prjónað áfram fram og til baka með 3 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin á stykki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum í hverri umferð frá réttu alls 4 sinnum = (24) 30-34-38-44 (48-54) lykkjur. Haldið síðan áfram fram og til baka í sléttprjóni með 3 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist (6) 7-7-8-9 (10-12) cm frá skiptingu. Nú eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli og axlabönd eru prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja garðaprjón *, prjónið frá *-* alls (2) 3-3-3-3 (3-3) sinnum, 2 lykkjur garðaprjón (= (9) 11-11-11-11 (11-11) lykkjur fyrir axlabönd), fellið af næstu (6) 8-12-16-22 (26-32) lykkjur, prjónið 3 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja garðaprjón *, prjónið frá *-* alls (2) 3-3-3-3 (3-3) sinnum og endið með 2 lykkjur garðaprjón (= (9) 11-11-11-11 (11-11) lykkjur fyrir axlabönd).
Prjónið fram og til baka með stroffprjóni og garðaprjóni yfir annað axlabandið, á meðan hitt hvílir á prjóni.
Yfirfarið á vefsvæði: 11.11.2020
Leiðrétting: BAKSTYKKI:..Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist (4) 5-5-6-7 (8-10) cm frá skiptingu.
Í næstu umferð frá réttu er prjónað stroff þannig:
Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 3 lykkjur garðaprjón.
Haldið áfram fram og til baka með stroff þar til stykkið mælist (6) 7-7-8-9 (10-12) cm frá skiptingu. Nú er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli og prjónað er áfram frá réttu þannig:
Yfirfarið á vefsvæði: 07.01.2021
BAKSTYKKI:..Í næstu umferð frá röngu er fækkað um 1 lykkju mitt í stykki með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman = (23) 29-33-37-43 (47-53) lykkjur....Prjónið 3 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja garðaprjón *, prjónið frá *-* alls (2) 3-3-3-3 (3-3) sinnum, 2 lykkjur garðaprjón (= (9) 11-11-11-11 (11-11) lykkjur fyrir axlabönd), fellið af næstu (5) 7-11-15-21 (25-31) lykkjur, prjónið 3 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja garðaprjón *, prjónið frá *-* alls (2) 3-3-3-3 (3-3) sinnum og endið með 2 lykkjur garðaprjón (= (9) 11-11-11-11 (11-11) lykkjur fyrir axlabönd)...

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu með appelsínugulur
symbols = fellið af 1 lykkju
symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu með ljós perlugrár
symbols = 2 lykkjur slétt saman með ljós perlugrár
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt með ljós perlugrár, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = í þessa lykkju á að sauma augun með lykkjuspori
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Baby Fox Onesie and Hat

Strik Strak Struk, Denmark

Booker’s Baby Fox Onesie

Alyssa, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 36-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Emilita wrote:

Buen día. Quería saber cuánto miden de largo los tirantes. Gracias. Saludos

28.08.2020 - 14:55

DROPS Design answered:

Hola Emilita, los tirantes miden aprox. entre 8 (para las tallas más pequeñas) y 14 cm ( para las más grandes). Puedes consultar las medidas en el apartado de la espalda.

31.08.2020 - 23:39

country flag Maria Bjornstahl wrote:

Hej! När ni skriver "en maska rätstickning" - då menar ni alltså en avigmaska?

15.06.2020 - 17:03

DROPS Design answered:

Hej Maria, när du stickar en kanmaska i rätstickning, så stickar du den rät både från rätsidan och från avigsidan. Om du skall sticka några maskor rätstickat när du stickar runt, så stickas de avig på vartannant varv. Lycka till :)

16.06.2020 - 08:00

country flag Louise wrote:

Strikker i str 6/9 mdr og har et spørgsmål til længden af selen. Der står: Fortsæt i rib til arbejdet måler 8 til 14 cm fra delingen, strik 4 p retstrik over alle masker og luk derefter af med ret. Men da jeg ikke har en baby i den str før om flere måneder vil jeg høre om der var nogen der ved ca hvor lange selerne skal være til str 6/9 mdr da det jo er et meget stort spænd fra 8 til 14 cm ?

04.06.2020 - 12:12

DROPS Design answered:

Hej Louise, Det er nok individuelt, jeg havde valgt den længste og så bare flyttet knappen efterhånden som babyen vokser. Rigtig god fornøjelse!

05.06.2020 - 12:18

country flag Rikke wrote:

Der er fejl i opskriften. Maskeantalle på bagsmæk mellem de to seler er ikke korrekt angivet, hvis indtagningerne skal være som forstykket.

09.05.2020 - 18:25

country flag HR wrote:

I just had the same problem as Carolyn, because the pattern for the back says "knit as front" but in the front there are 4–7 x 2 decreases at the armholes when the work is parted after knitting in rounds. So for the back apperently there are no decreases.

03.05.2020 - 15:58

country flag Synnøve wrote:

Jeg holder på med lomma ser at det står at man skal felle av med oransjemelert i kantene. Er det riktig? Hvorfor det?

23.03.2020 - 18:03

DROPS Design answered:

Hej Synnøve, du strikker kanterne med orangemeleret. Hvis du har valgt at strikke kanterne med grå, så lukker du også af med grå :)

25.03.2020 - 09:23

country flag Julie wrote:

Har kommet til der jeg skal felle til halsen på bakstykket, men når jeg har strikket sånn som forstykket til det måler 7cm sitter jeg bare igjen med 29 masker. Er det meningen at jeg skal strikke som forstykket uten fellingen?

19.03.2020 - 20:37

DROPS Design answered:

Hei Julie. Det kan stemme at det ikke skal felles slik som på forstykket, men design avdelingen er blitt bedt om å ta en sjekk og evnt komme med rettelse. mvh DROPS design

23.03.2020 - 11:18

country flag Désirée Delsing wrote:

Hej igen! Eftersom jag gjort intagningar (som på framstycket och som man också kan se på bilderna) har jag bara 30 maskor när jag ska börja med hängslen.

19.03.2020 - 16:15

country flag Lena Andren wrote:

Hej! Jag vill gärna sticka Baby Fox Onesie, men hon som vill ha den till sin baby, vill så gärna ha långa ben på den. Kan ni ge mig förslag o mått, o även hur mycket extra garn jag ska beräkna. Gärna mått till alla de olika storlekarna. Tack på förhand, Lena

17.03.2020 - 12:39

DROPS Design answered:

Hej Kanske detta mönster kan vara till hjälp med mått och maskantal för benen. Jag skulle tro att det räcker med ett nystan extra för att göra den med långa ben. Lycka till!

18.03.2020 - 10:03

country flag Désirée Delsing wrote:

Hej! Sorry jag menar att man ska maska av 20 maskor till hals, men det blir fortfarande 42 maskor.

11.03.2020 - 21:15