DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 3.78 € /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11.34€.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Agnes Sweater

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, sléttprjóni og garðaprjóni. Stærð 3-12 ára.

DROPS Children 34-10
DROPS Design: Mynstur sk-003-bn
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm.
98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150-200-200-200 g litur 13, ljós gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 3.78 € /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11.34€.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------


GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 72 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 4,2.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið einni lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð eru uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 2 lykkjur færri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Stykkið skiptist síðan upp fyrir fram- og bakstykki og ermar, fram og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 76-80-80-84-84 lykkjur á hringprjón 4 með Sky. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-4-10-14-21 lykkjur jafnt yfir í umferð SJÁ ÚTAUKNING = 78-84-90-98-105 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið. Setjið eitt prjónamerki í þessa umferð og mælið síðan héðan. Í næstu umferð er prjónað eftir mynsturteikningu A.1, (veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð) alls 13-14-15-14-15 sinnum í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar mynsturteikning A.1 hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 208-224-240-252-270 lykkjur í umferð. Í næstu umferð er aukið út um 4-4-2-2-4 lykkjur jafnt yfir í umferð = 212-228-242-254-274 lykkjur.
Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist ca 15-15-16-17-18 cm frá prjónamerki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 62-66-70-74-75 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 44-48-51-53-62 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 62-66-70-74-75 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið síðustu 44-48-51-53-62 lykkjur á nýjan þráð (= ermi), fitjið upp 6 nýjar lykkjur undir ermi.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 136-144-152-160-162 lykkjur í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6 nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp. Prjónið sléttprjón í hring. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) SJÁ ÚTAUKNING-2! Endurtakið útaukningu með 3-4½-5½-6½-7½ cm millibili alls 3 sinnum = 148-156-164-172-174 lykkjur í umferð. Prjónið síðan áfram eins og áður þar til stykkið mælist ca 15-17-20-23-26 cm (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 2 cm til loka). Prjónið garðaprjón í 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Setjið til baka lykkjur af öðrum þræðinum yfir á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 (= 44-48-51-53-62 lykkjur), prjónið upp 1 nýja lykkju í hverja og eina af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp á fram- og bakstykki (= 50-54-57-59-68 lykkjur). Setjið 1 prjónamerki mitt í þessar 6 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 3 cm. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. SJÁ ÚRTAKA.
Haldið áfram í sléttprjóni og endurtakið úrtöku með 4-4-4-4-3½ cm millibili þar til lykkjum hefur fækkað alls 5-6-7-8-10 sinnum = 40-42-43-43-48 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 23-28-31-35-38 cm. Prjónið garðaprjón í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. Klippið frá og festið enda.

Prjónið hina ermina alveg eins.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 10.04.2019
Leiðrétting: FRAM- OG BAKSTYKKI:.. Prjónið síðan áfram eins og áður þar til stykkið mælist ca 15-17-20-23-26 cm (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 2 cm til loka).
Yfirfarið á vefsvæði: 04.11.2020
Leiðrétting: BERUSTYKKI: Fitjið upp 76-80-80-84-84 lykkjur á hringprjón 4 með Sky. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-4-10-14-21 lykkjur jafnt yfir í umferð SJÁ ÚTAUKNING = 78-84-90-98-105 lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður brugðinn í næstu umferð. Það eiga að myndast göt
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð. Það eiga ekki að myndast göt
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir prjónuð lykkjuna
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 34-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (43)

country flag Katarina S wrote:

Hej, jag stickar Agnes t barn och har rivit upp oket minst 4 ggr,. Jag får inte hålen att komma på rätt ställe över varandra. Jag förstår inte vad jag gör för fel. Räknar och tycker att jag räknar rätt antal maskor. Men jag ser inte att det blivit fel förrän efter flera varv, när mönstret träder fram. Hur k an jag räkna så att jag vet att omtag etc ha bar på rätt ställe? Krångligt mönster. Jag är mkt van att sticka mönster stickning med flera färger, då. Hjälp!

03.04.2024 - 22:45

DROPS Design answered:

Hei Katarina. Sett maskemarkører mellom hvert diagram. Da har du god kontroll på at det blir riktig. Og så må du være obs når det skal gjøres økninger samtidig som det strikkes hullmønster, så ikke et økningskast blir til et "hullmønster". mvh DROPS Design

08.04.2024 - 13:52

country flag Karen wrote:

Could you please show me how to "knit from wrong side" in this sweater pattern. Thank you

01.03.2024 - 19:28

DROPS Design answered:

Dear Karen, this pattern is worked in the round, so you always work on the right side. You can adapt this pattern for working back and forth as indicated here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=13&cid=19. Happy knitting!

03.03.2024 - 18:53

country flag Encarna wrote:

Hola creo q en el gráfico del calado hay una equivocación,en la fila 21a23creo q faltan por lo menos cuatro filas por qué eso de las dos hebras juntas entre pasar un punto sin hacer y montar y hacer dos juntos no se puede hacer tendría q haber algún punto del derecho en el centro,pero si lo haces ya no te coincide el dibujo. A la espera lo revise y me conteste si estoy equivocada o no

19.11.2023 - 20:42

DROPS Design answered:

Hola Encarna, no hay ningún problema en el diagrama. El símbolo de lazada implica que se trabaja siempre entre 2 puntos. Por lo tanto, no hay dos lazadas seguidas nunca; si hay dos símbolos de lazada seguidos siempre va a haber un punto de derecho o revés entre medio. No hay ningún problema si se trabajan disminuciones simples o puntos juntos de derecho antes o después de las hebras. Si tienes más dudas, ¿puedes indicar la fila exacta y la talla que estás trabajando (ya que el diagrama es distinto para las diferentes tallas) y los símbolos que no te cuadran? Así podemos confirmarte y aclararte tus dudas.

26.11.2023 - 22:58

country flag Ann McGinn wrote:

Your response is unhelpful. What is the equivalent of 200 g in terms of TOTAL YARDAGE required for the largest size. I am an experienced knitter, and your initial materials guide makes no sense to me. Please advise.

28.03.2023 - 16:46

DROPS Design answered:

Dear Mrs McGinn, the required materials is always given in grams - you can then just divide the total required for the size by the weight of the ball, ie for 200 g DROPS Sky/5O g = 4 balls DROPS Sky are required here. Read more about the yarn here and find how to order this yarn from US here. Happy knitting!

29.03.2023 - 09:32

country flag Ann McGinn wrote:

The pattern instructions do not include how many balls of 200 g yard are required for this pattern, Please advise.

28.03.2023 - 00:06

DROPS Design answered:

Hi Ann, You need 150-150-200-200-200 g yarn (depending on the size you are working). These amounts are under Materials at the top of the pattern. Happy knitting!

28.03.2023 - 06:51

country flag Florence Gough wrote:

I have bought your lovely yarn to make the Agnes pattern. Unfortunately I am finding it quite hard and wonder whether you can suggest a simpler pattern that may suit an girl of 13. Are all patterns knitted on circular needles? Many thanks

26.02.2023 - 08:59

DROPS Design answered:

Dear Florence, you can check here all of our sweater patterns for children worked with Group B yarns (like Sky): https://www.garnstudio.com/search.php?action=search&c=children-jumpers&yg=2&lang=en Most of our patterns are worked in circular needles, for more confort when knitting, but some may be adjusted to knit with straight needles; you can check the following lesson for more information: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=13&cid=19. Happy knitting!

26.02.2023 - 20:32

country flag Peyré wrote:

Bonjour, Pourquoi le texte des corrections apportées est le même que celui des explications ? Merci de votre aide

16.02.2023 - 22:56

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Peyré, la correction ne s'applique que si vous avez imprimé les explications avant cette date, sinon, les explications en ligne sont effectivement déjà corrigées (pour plus de simplicité). Bon tricot!

17.02.2023 - 11:50

country flag Sylvie DESOLLE wrote:

Bonjour, j'ai commencé à tricoter ce modèle mais je ne comprends pas à quel moment commencent les augmentations. De 78 mailles au départ on doit arriver à 208 mailles mais je ne vois pas les explications pour savoir comment on arrive à ce nombre !! Pouvez-vous me renseigner SVP. Merci d'avance Sylvie

26.01.2023 - 09:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Desolle, les augmentations de l'empiècement figurent dans le diagramme A.1, autrement dit, vous tricotez 13 fois les 6 mailles de A.1 tout le tour, puis vous augmentez (cf ovales noirs dans le diagramme) comme indiqué dans le diagramme (10 fois au total) et vous aurez ainsi 16 m dans chaque A.1 quand les augmentations seront terminées, soit 16 m x 13 fois le diagramme = 208 mailles. Bon tricot!

26.01.2023 - 10:15

country flag Chloe wrote:

I am working the yoke, in size 3-4. I have selected the correct size diagram but keep getting the wrong number of stitches left at the end of the round. Am I just making mistakes or is this something that happens when following diagrams in the round? I have been putting it right by making a stitch or two at the end of the round to keep the patterns lining up…or at least I think that is what will happen?! Thanks so much for your help.

22.08.2022 - 21:32

DROPS Design answered:

Hi Chloe, When you begin A.1 you have 78 stitches A.1 is 6 stitches in width, so you repeat the diagram 13 times on the round with no stitches left over. This should continue all the way through the diagram (13 repeats in width). The open circles in the diagram are yarn overs which are worked at the same time as decreases, so do not affect the stitch number. The filled-in circles at the edges of the repeats are yarn overs which give increases. Hope this helps and happy knitting!

23.08.2022 - 06:47

country flag Diana wrote:

Muchas gracias por responder siempre mis preguntas!

20.06.2022 - 20:13