DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10472.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Agnes

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL. Prjónuð húfa úr DROPS Sky með rúllukanti.

DROPS 197-15
DROPS Design: Mynstur sk-017
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

GARN Í ALLT SETTIÐ:
Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL
Höfuðmál: 54/56 - 54/56 - 54/56 - 56/58 - 56/58 - 56/58 cm

Efni:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-350-400-400-450-500 g litur 08, fjólublár

PEYSA:
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-300-350-400-400-450 g litur 08, fjólublár

HÚFA:
Stærð: S/M - M/L
Höfuðmál: ca 54/56 – 56/58 cm

Efni:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50-50 g litur 08, fjólublár

PEYSA:

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 80 cm fyrir kant með garðaprjóni.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 6-6-7-7-8-8 st.

HÚFA:

PRJÓNFESTA:
22 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10472.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

UPPHÆKKUN (á við um aftan í hnakka):
Upphækkunin er prjónuð með garðaprjóni. Setjið 1 merkiþráð eftir 63-66-69-72-75-78 lykkjur (= ca miðja að aftan). Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 7-8-8-9-9-10 lykkjur framhjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 14-16-16-18-18-20 lykkjur slétt til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 21-24-24-27-27-30 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-32-32-36-36-40 lykkjur slétt til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 35-40-40-45-45-50 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 42-48-48-54-54-60 lykkjur slétt til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 49-56-56-63-63-70 lykkjur slétt til baka, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina.

ÚTAUKNING-1 (á við um jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 102 lykkjur), mínus kanta að framan (= alls 10 lykkjur = 92 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 25) = 3,68.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja) sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA-1 (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt saman (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar stykkið er mátað). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1½-2 cm. Fellið af fyrir öðru hnappagatinu þegar stykkið mælist 7 cm.
Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-6-6 næstu með ca 8½-8½-7½-7½-7-7 cm millibili.

ÚRTAKA-2 (á við um húfu):
Fækkið um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri = alls 6 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður á hringprjón að handveg, síðan er fram- og bakstykki og ermar prjónað til loka hvort fyrir sig. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 102-106-110-118-122-128 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 3,5 með Sky. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 25-27-29-27-29-29 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 127-133-139-145-151-157 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 4.
Til að flíkin passi betur er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá UPPHÆKKUN.
Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 8 lykkjur), A.2 (= 6 lykkjur) yfir næstu 102-108-114-120-126-132 lykkjur (= 17-18-19-20-21-22 sinnum á breidd), A.3 (= 7 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Í hverri umferð með stjörnu (= útauknings umferð ) er aukið út þannig:
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
ÚTAUKNING 1: Aukið út um 24-24-24-24-30-30 lykkjur jafnt yfir = 151-157-163-169-181-187 lykkjur. A.2 er þá endurtekið 21-22-23-24-26-27 sinnum á breidd.
ÚTAUKNING 2: Aukið út um 18-18-24-24-24-30 lykkjur jafnt yfir = 169-175-187-193-205-217 lykkjur. A.2 er þá endurtekið 24-25-27-28-30-32 sinnum á breidd.
ÚTAUKNING 3: Aukið út um 12-18-18-24-24-24 lykkjur jafnt yfir = 181-193-205-217-229-241 lykkjur. A.2 er þá endurtekið 26-28-30-32-34-36 sinnum á breidd.
Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 8 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið síðan frá réttu þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að ofan í garðaprjóni, 1 lykkja sléttprjón, A.4 (= 13 lykkjur), prjónið A.5 (= 12 lykkjur) yfir næstu 156-168-180-192-204-216 lykkjur (= 13-14-15-16-17-18 sinnum á breidd), 1 lykkja sléttprjón og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 307-343-365-404-427-450 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 21-22-22-24-24-24 cm. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-29 cm. Nú skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki er prjónað þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 42-47-50-57-62-66 lykkjur, setjið næstu 64-72-78-82-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið sléttprjón yfir næstu 85-95-99-116-125-132 lykkjur, setjið næstu 64-72-78-82-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 42-47-50-57-62-66 lykkjur sléttprjón og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 195-215-229-260-283-298 lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 lykkja undir hvorri ermi.
Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 2 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 3½-4½-4-6-5-3½ cm millibili alls 6-5-6-4-5-7 sinnum = 219-235-253-276-303-326 lykkjur.
Haldið áfram með sléttprjón þar til stykkið mælist 30-30-31-31-31-32 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 32-32-33-33-33-34 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum. Fellið af með sléttum lykkjum. Stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 64-72-78-82-84-88 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-12 lykkjum undir ermi = 72-80-88-92-96-100 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 lykkja undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1.
Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1½-1½ cm millibili alls 13-16-19-19-20-21 sinnum = 46-48-50-54-56-58 lykkjur. Þegar ermin mælist 42-41-40-39-37-36 cm frá þar sem ermin skiptist fyrir fram- og bakstykki, skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Fellið síðan af með sléttum lykkjum. Ermin mælist alls ca 65-66-66-67-67-67 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Húfan er prjónuð í hring á hringprjón, skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf.

HÚFA:
Fitjið upp 108-112 lykkjur með Sky á hringprjón 3,5.
Prjónið 4 umferðir sléttprjón. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 20-22 cm fækkið um 0-4 lykkjur jafnt yfir (þ.e.a.s. 27. og 28. hver lykkja í stærð M/L eru prjónaðar slétt saman) = 108 lykkjur. Setjið 6 prjónamerki í stykkið með 18 lykkja millibili.
Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA-2.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 8 sinnum og síðan í hverri umferð alls 6 sinnum = 24 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar snúnar slétt saman 2 og 2 = 12 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.
Húfan mælist ca 27-29 cm ofan frá og niður.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = slétt frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir 2 lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = útauknings umferð, í þessari umferð er aukið út um lykkjur jafnt yfir, sjá útskýringu í uppskrift
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 197-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Dörthe Otto wrote:

Und noch eine Frage........ Ich arbeite das erste Mal nach Anleitung, vielleicht denke ich zu kompliziert 🙃 Beginne ich mit den Zunahmen in den Zunahmereihen erst ab A 2? Also berechne ich die Zunahme über die Maschenanzahl nur aus A2 oder aus A2 und A3? Oder ist es egal und ich berechne die Zunahme aus den Gesamtmaschen abzüglich Blendmaschen? Ich hoffe, ich hab es verständlich formuliert..... Lieben Dank!

26.06.2023 - 09:47

DROPS Design answered:

Liebe Frau Otto, die Zunahmen werden über alle Maschen ausser die Blenden-Maschen kalkuliert - siehe ZUNAHMETIPP-1 (gleichmäßig verteilt): am Anfang der schriftlichen Anleitung und auch diese Lektion. Viel Spaß beim stricken!

26.06.2023 - 13:14

country flag Dörthe Otto wrote:

Hallo, wenn ich die Erhöhung stricke, mache ich diese kraus rechts wie das Bündchen oder glatt rechts, wie das Rumpfteil? Vielen Dank, ich freue mich auf Antwort und auf's Weiterstricken!

22.06.2023 - 13:57

DROPS Design answered:

Liebe Frau Otto, die Erhöhung wird krausrechts gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

22.06.2023 - 14:22

country flag Gun-Britt Mattsson wrote:

197-15 Rad 11 i A1, A2,, A3 Jag förstår inte hur jag ska sticka. Rad 3 förstod jag.

29.12.2022 - 17:16

DROPS Design answered:

Hej Gun-Britt, du starter med A.1, fortsætter med A.2 hvor du da vil få 4 rm+de 2 som stickas ihop (totalt 5 m mellan varje omslag) varvet ut :)

04.01.2023 - 13:41

country flag Hanna Sarah wrote:

Ich stricke diese Jacke mit NS 3,5, dafür eine Größe größer als ich eigentlich trage. Kann ich dabei die Zunahmen in der Anleitung so übernehmen oder wird die Jacke dann zu schnell zu breit? Es ist mein erster Versuch mit einer Passe, sonst habe ich immer mit Raglanlinien gestrickt... LG, Sarah

12.09.2022 - 21:57

DROPS Design answered:

Liebe Sarah, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage anpassen, aber sicher können Sie sich von einem ähnlichen Modell - mit Rundpasse - (die richtige Maschenprobe können Sie dazu filtern) inspirieren lassen. Viel Spaß beim stricken!

13.09.2022 - 09:44

country flag Steffi Güldner wrote:

Vielen Dank für die Hilfe . LG

11.08.2022 - 14:40

country flag Steffi Güldner wrote:

Hallo, Es ist bestimmt ganz simpel und ich habe einen Denkfehler. Im Diagramm A1, Reihe 3 komme ich nicht auf 8 Maschen.Es bleiben 7.Das letzte Kästchen zählt ja nicht \r\nVielen Dank für die Hilfe. \r\nLG Steffi

09.08.2022 - 21:45

DROPS Design answered:

Liebe Frau Güldner, die letzte Masche A.1 stricken Sie mit der 1. Maschen A.2 zusammen (= diese Abnahme ist jetzt die letzte Masche A.1 und der Umschlag ist die 1. Masche A.2, dann stricken Sie die letzte Masche A.2 mit der 1. Masche vom nächsten A.2 / A.3 genau so. Viel Spaß beim stricken!

10.08.2022 - 08:48

country flag Marie Claude wrote:

Existe t'il les explications vidéos pour adultes merci de votre réponse

06.03.2022 - 20:56

DROPS Design answered:

Bonjour Marie-Claude, il n'existe pas de vidéo spécifique pour ce modèle, toutefois, vous trouverez ici des vidéos des techniques utilisées dans ce modèle ainsi que des leçons relatives à ce modèle en bas de page. N'hésitez pas à utiliser cet espace pour poser vos questions. Bon tricot!

07.03.2022 - 09:41

country flag Leena Liuttu-Hietala wrote:

Miten suosittelette neuleen viimeistelyyn: höyrytys, kostutus & kuivaus tasona vaiko pesu koneessa hienopesuohjelmalla...vaiko ei mitään?

24.08.2021 - 12:44

DROPS Design answered:

Kostutus on kaikkein hellävaraisin tapa, koska kaikki langat eivät välttämättä kestä höyrytystä. Mikäli haluat höyryttää neuletta kevyesti, tee tämä kostean liinan läpi.

25.08.2021 - 17:01

country flag Nicole wrote:

Re-bonjour, un grand merci pour votre retour, c'est beaucoup plus clair ainsi. Merci , merci nicole

03.08.2021 - 16:17

country flag Nicole wrote:

Bonjour, Faut-il tricoter les diagrammes A1, A2, A3 sur le même rang? (Tricoter ensuite sur l'endroit ainsi: 5 mailles de bordure devant au point mousse, A.1 (= 8 mailles), répéter A.2 (= 6 mailles) au-dessus des 102-108-114-120-126-132 mailles suivantes (= 17-18-19-20-21-22 fois en largeur), A.3 (= 7 mailles) et terminer par 5 mailles de bordure devant au point mousse. ) D'avance merci, nicole

03.08.2021 - 15:51

DROPS Design answered:

Bonjour Nicole, tout à fait, A.1 correspond au début du motif, juste après la bordure devant (= vu sur l'endroit), vous répétez ensuite A.2 et terminez le motif par A.3, juste avant la bordure devant (vu sur l'endroit). Retrouvez les explications dans cette leçon. Bon tricot!

03.08.2021 - 15:54