DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17160.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Blackberry Crush

Prjónuð peysa með laskalínu, röndum og perlugprjóni (tvöfalt á hæðina), prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr 3 þráðum DROPS Kid-Silk.

DROPS 187-9
DROPS Design: Mynstur ks-132
Garnflokkur A + A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-175-200-200-225 g litur 13, kirsuber
150-150-175-200-200-225 g litur 08, gráblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 14 lykkjur og 16 umferðir með sléttprjóni eða 14 lykkjur og 22 umferðir með perluprjóni (tvöfalt á hæðina) með 3 þráðum Kid-Silk verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 15 lykkjur og 17 umferðir með sléttprjóni með 3 þráðum Kid-Silk verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17160.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

PERLUPRJÓN (tvöfalt á hæðina):
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
UMFERÐ 3: brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
UMFERÐ 4: Eins og umferð 2.
Endurtakið umferð 1 til 4.

RENDUR (berustykki og fram- og bakstykki):
RÖND 1: 3 þræðir í litnum kirsuber í 23-23-24-25-25-26 cm.
RÖND 2: 2 þræðir í litnum kirsuber + 1 þráður í litnum gráblár (= 3 þræðir) í 8-9-9-9-10-10 cm.
RÖND 3: 1 þráður í litnum kirsuber + 2 þræðir í litnum gráblár (= 3 þræðir) í 8-9-9-9-10-10 cm.
RÖND 4: 3 þræðir í litnum gráblár í 24-24-25-26-26-27 cm.

RENDUR (ermi):
RÖND 1: Haldið áfram með 2 þræði í litnum kirsuber + 1 þráður í litnum gráblár (= 3 þræðir) þar til prjónaðar hafa verið alls 8-9-9-9-10-10 cm (þ.e.a.s. ca 0-2-3-4-5-6 cm á berustykki og ca 8-7-6-5-5-4 cm á ermi).
RÖND 2: 1 þráður í litnum kirsuber + 2 þræðir í litnum gráblár (= 3 þræðir) í 8-9-9-9-10-10 cm.
RÖND 3: 3 þræðir í litnum gráblár til loka (ca 21-19-19-18-17-16 cm).

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.1 (= 8 lykkjur fleiri í umferð).
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í perluprjón (tvöfalt á hæðina).

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 19. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 18. og 19. hver lykkja slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um ermar):
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur perluprjón (= prjónamerki er staðset mitt í þessum lykkjum), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjón. Stykkið er prjónað með 3 þráðum Kid-Silk.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 76-80-84-84-88-96 lykkjur með 3 þráðum í litnum kirsuber á stuttan hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) = 72-76-80-80-84-92 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki við miðju að aftan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Skiptið yfir á hringprjón 6.

BERUSTYKKI:
Prjónið nú RENDUR (berustykki og fram- og bakstykki) – sjá útskýringu að ofan og mynstur þannig: 7-8-9-9-10-12 lykkjur PERLUPRJÓN (tvöfalt á hæðina) – sjá útskýringu að ofan, (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 (= 6 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkjur perluprjón (tvöfalt á hæðina) (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 17-19-21-21-23-27 lykkjur perluprjón (tvöfalt á hæðina) (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkju perluprjón (tvöfalt á hæðina) (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8-9-10-10-11-13 lykkjur perluprjón (tvöfalt á hæðina) (= hálft bakstykki).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fyrstu útaukningu fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið. Haldið svona áfram og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 22-23-25-27-29-31 sinnum = 248-260-280-296-316-340 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 23-25-27-29-30-32 cm frá prjónamerki við miðju að aftan.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið eins og áður yfir fyrstu 32-34-37-39-42-46 lykkjur (= hálft bakstykki), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og setjið næstu 58-60-64-68-72-76 lykkjur á þráð (= ermi), prjónið næstu 67-71-77-81-87-95 lykkjur (= framstykki), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermum), setjið næstu 58-60-64-68-72-76 lykkjur á þráð (= ermi), prjónið þær 33-35-38-40-43-47 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 144-152-168-176-192-208 lykkjur. Haldið áfram í perluprjóni og röndum eins og áður þar til stykkið mælist 40-40-40-40-41-41 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca. 4. hverja lykkju, uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja. Stykkið mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 58-60-64-68-72-76 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjón 6 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 nýjum lykkjum mitt undir ermi = 64-66-72-76-82-86 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur í hlið undir ermi. Haldið áfram með tvöfalt perluprjón á hæðina og RENDUR (ermi) – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í 3.-3.-3.-2.-2.-2. hverri umferð alls18-18-21-22-25-26 sinnum = 28-30-30-32-32-34 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 33-31-30-28-28-26 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-6-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 32-36-36-40-40-44 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 6 og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Ermin mælist ca 37-35-34-32-32-30 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.09.2018
Leiðrétting: ÚRTAKA-2 (á við um ermar):
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki,

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Blackberry Crush

30yPunto, Spain

Blackberry Crush

Marta, Spain

Blackberry Crush

Marta, Spain

Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Antoinette wrote:

Hallo, für die Streifen, teilen Sie das Garn oder wie kommen Sie zu 1 Faden, bzw. 2 Faden, siehe unten. Besten Dank 1. STREIFEN: 3 Fäden cerise über 23-23-24-25-25-26 cm. 2. STREIFEN: 2 Fäden cerise + 1 Faden graublau (= 3 Fäden) über 8-9-9-9-10-10 cm. 3. STREIFEN: 1 Faden cerise + 2 Fäden graublau (= 3 Fäden) über 8-9-9-9-10-10 cm. 4. STREIFEN: 3 Fäden graublau über 24-24-25-26-26-27 cm.

30.11.2023 - 20:59

DROPS Design answered:

Liebe Antoinette, hier wird man mit 3 Fäden Kid-Silk stricken (aus je einem Knäuel) wie es nur 1 Faden wäre, wenn Sie mit 3 Farben stricken dann werden Sie 3 Knäuel von je einer Farbe usw. Viel Spaß beim stricken!

01.12.2023 - 08:26

country flag Mieke Baras wrote:

Ik brei maat L en bij het begin van het lijf, na de verdeling mouwen-lijf, loopt mijn gerstekorrelpatroon niet mooi door. Ik moest 8 st bij opzetten voor de mouw, maar moet dat niet 9 st zijn? Ik veronderstel dat je A1 toch niet meer moet breien in het lijf?

07.07.2023 - 13:09

DROPS Design answered:

Dag Mieke,

Ik heb het niet helemaal uitgeteld of het klopt, maar als je beter uitkomt met de gerstekorrel, dan zou ik er inderdaad een steek bij opzetten.

01.08.2023 - 20:20

country flag Sarah wrote:

Hallo. Ich bin gerade an der Stelle, wo ich für Größe L alle Raglanzunahmen gemacht habe, aber die geforderten 27cm noch nicht erreicht habe. D.h. ich stricke jetzt ja noch ein Weilchen weiter OHNE Zunahmen. Nun meine Frage: Muss ich dann trotzdem, wenn es zu den Raglanstreifen kommt, dort mit 2 links 2 rechts 2 links das Raglan weiter"bauen" oder endet der Raglanstreifen hier abrupt? Herzlichen Dank vorab für Ihre Hilfe. Sarah

23.11.2022 - 10:19

DROPS Design answered:

Liebe Sarah, am besten stricken Sie die Maschen wie zuvor, damit die Raglanlinien nicht zu "abrupt" enden. Viel Spaß beim weiterstricken!

23.11.2022 - 15:40

country flag Chantal wrote:

Bonjour et un grand merci pour votre réponse et vos explications . Merci pour la richesse sur votre site et l'explosion de modèles tous aussi beaux les uns que les autres. ON aimerait tous les faire mais ..... . Un point très positif c'est l'équivalence des fils à utiliser lorsque ceux ci ne sont plus sur le marché ou si nous souhaitons tricoter un modèle avec un autre fil. Ca c'est super ++++++ A bientôt Chantal

14.01.2022 - 13:01

country flag CHANTAL wrote:

Bonsoir , Peut-on tricoter ce modèle avec des aiguilles droites ? est ce que les explications changent ? Merci pour votre aide.

13.01.2022 - 21:10

DROPS Design answered:

Bonjour Chantal, ce pull se tricote en rond, il faudra donc faire quelques ajustements; cette leçon peut vous y aider. Bon tricot!

14.01.2022 - 08:51

country flag Elvira wrote:

In der Maßskizze ist der Halsausschnitt vorne tiefer als beim Rückenteil. In der Beschreibung wird aber kein Unterschied zwischen Vorderseite und Rückenteil gemacht. Wie wird der Halsausschnitt vorne tiefer gestrickt? Liebe Grüße Elvira

27.02.2019 - 20:08

DROPS Design answered:

Liebe Elvira, die Maßskizze ist standard, dh in diesem Modell wird der Halsausschnitt gleich vorne und hinten. Wenn Sie ihn hinten höher möchten, können Sie dann eine Erhöhung stricken. Viel Spaß beim stricken!

28.02.2019 - 09:28

country flag Theresa wrote:

Rigtig flot design. Jeg vil gerne bruge noget andet garn, men synes ikke omregneren hjælper mig. Kan man bruge brushed alpaca silk I stedet og I så fald hvor meget? Tænker der også skal 3 tråde af det men hvilke pinde skal man så bruge? :)

01.02.2019 - 18:10

DROPS Design answered:

Hej Thresa, 3 tråde Kid-Silk modsvarer 1 tråd DROPS Melody. Hvis du omregner den får du et resultat med 2 tråde Brushed Alpaca Silk. Da skal du bruge 2 tråde DROPS Brushed Alpaca Silk for at få 14 masker på 10 cm. God fornøjelse!

06.02.2019 - 10:55

Ana wrote:

Hi, Very nice pattern and yarn! :) I have a little problem: I have reached to the point where I have changed first color, under arms - working the body in round. After adding the 6 new stitches under sleeves the moss stitch is not matching unfortunately :(... what should I do in this case? Until now I followed the pattern and I have the total number of stitches - 144. I wouldn’t want to turn back and undo the work. Thank you very much!

08.12.2018 - 13:51

DROPS Design answered:

Dear Ana, in first size you work yoke with 3 strands pink until piece measures 23 cm then continue with 2 strands pink and 1 strand grey blue for 8 cm (= when all inc are done for yoke, piece measures 23 cm = change colour to divide piece) and continue stripes yoke/body (= 8 cm with these 2 colours then change to 1 strand pink + 2 strands grey blue for 8 cm and work then with 3 strands grey blue). When working back sleeve, work with 2 strands pink + 1 strand grey blue for 8 cm then continue with 1 strand pink + 2 strands grey blue for 8 cm and finish with 3 strands grey blue. Happy knitting!

10.12.2018 - 09:07

country flag Zenatti wrote:

Je sais pas tricotera avec des aiguilles circulaire pourriez-vous m’envoyer le modèle en taille M avec des aiguilles droites c’est mon arthrose des mains qui m handicap pour tricoter avec des circulaires merci j’attends votre réponse pour commander ma laine

24.10.2018 - 14:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Zenatti, vous trouverez ici toutes les explications pour adapter un modèle sur aiguilles droites. Pour toute assistance complémentaire, merci de vous adresser à votre magasin, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

24.10.2018 - 15:44

country flag Laura wrote:

Hello, at the moment knitting sleeves of this sweater, shouldn’t it be on DECRASE TIP 2, 4 stitches remaining before marker thread instead of 2, because when i leave 2 sts before, marker thread does not comes in the middle of 4 moss sts, or i’m understand something wrong? Thank you

28.08.2018 - 22:08

DROPS Design answered:

Dear Laura, We are sent your question to our design team so they can check it out. Should there be any correction, please check back the pattern for any correction. Happy Knitting!

03.09.2018 - 16:10