DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Strawberry Sorbet

Prjónað sjal úr DROPS Flora í garðaprjóni, gatamynstri, formað eins og hálfur hringur.

DROPS 190-15
DROPS Design: Mynstur fl-031
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Mál:
Lengd mælt meðfram efri hlið: ca 176 cm.
Hæð mælt fyrir miðju: ca 64 cm.

Efni:
DROPS FLORA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200 g litur 20, ferskja
100 g litur 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 39 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Flora
DROPS Flora
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Sjalið er prjónað ofan frá og niður. Prjónað er fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar.

SJAL:
Fitjið upp 7 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum ferskja DROPS Flora.
Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum = 13 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna, prjónamerkin eru sett í lykkjurnar og eiga að fylgja með í stykkinu. Setjið prjónamerkin í eftirfarandi lykkjur: 2. lykkju, 4. lykkju, 6. lykkju, 8. lykkju, 10. lykkju og 12. lykkju.

Prjónið nú og aukið út þannig:
Prjónið 1 umferð slétt og aukið út lykkjur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan hverri lykkju með prjónamerki = 6 uppslættir.
ATH! Prjóna á alla uppslættina slétt og þeir eiga að mynda göt.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu (án útaukninga) og 1 umferð slétt frá röngu = 19 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt og aukið út lykkjur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverja lykkju með prjónamerki = 6 uppslættir.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu (án útaukninga) og 1 umferð slétt frá röngu = 25 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt og aukið út lykkjur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan hverri lykkju með prjónamerki = 6 uppslættir.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu (án útaukninga) og 1 umferð slétt frá röngu = 31 lykkja.
Prjónið 1 umferð slétt og aukið út lykkjur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverri lykkju með prjónamerki = 6 uppslættir.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu (án útaukninga) og 1 umferð slétt frá röngu = 37 lykkjur.

Prjónið nú áfram með sömu útaukningu, en að auki á að prjóna stuttar umferðir. Þær eru prjónaðar þannig:
UMFERÐ 1 með stuttum umferðum (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur að fyrstu lykkju með prjónamerki í þessari umferð, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka frá röngu. Prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu þar sem auknar eru út lykkjur á undan/á eftir lykkjum með prjónamerki.
UMFERÐ 2 með stuttum umferðum (= ranga): Prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur að fyrstu lykkju með prjónamerki í þessari umferð, snúið og prjónið sléttar lykkjur til baka frá réttu. Prjónið síðan 1 umferð slétt frá röngu = alls 8 lykkjur fleiri í umferð 1-2.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið slétt.

Endurtakið síðan umferð 1-4 (aukið út til skiptis á undan og á eftir lykkjum með prjónamerki eins og áður) þar til stykkið mælist ca 35 cm (umferð 1-4 hefur verið prjónað alls 30 sinnum) og það eru 277 lykkjur í umferð.

Nú eru prjónaðar rendur með litnum natur og litnum ferskja þannig: * Skiptið yfir í litinn natur og prjónið umferð 1 og 2 (með stuttum umferðum). Skiptið yfir í litinn ferskja og prjónið umferð 3 og 4 *. Endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist ca 51 cm (umferð 1-4 eru prjónaðar með röndum alls 16 sinnum) og það eru 405 lykkjur í umferð.
Héðan er prjónað með litnum natur út stykkið.
Endurtakið umferð 1-2 1 sinni til viðbótar = 413 lykkjur í umferð.
Prjónið 2 umferðir með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þar sem í fyrstu umferð er aukið út um 10 lykkjur jafnt yfir þannig: Prjónið 22 lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 41 lykkja slétt *, endurtakið síðan frá *-* alls 9 sinnum og sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 22 lykkjur slétt. Prjónið 1 umferð slétt þar sem allir uppslættirnir eru prjónaðir snúnir slétt = 423 lykkjur (lykkjufjöldinn er deilanlegur með 22 + 5 lykkjur).

Prjónið nú áfram eftir mynsturteikningu A.1 með litnum natur í sléttprjóni (1. umferð = rétta): Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 4818 lykkjur (= 19 sinnum á breidd og eftir eru 3 lykkjur á prjóni), prjónið 1 lykkju sléttprjón og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið mynsturteikningu svona 1 sinni á hæðina. Stykkið mælist ca 63 cm og það eru 537 lykkjur í umferð.

AFFELLING:
Í næstu umferð frá réttu er fellt af með i-cord affellingu. Það er mikilvægt að fella laust af í kantinum svo að sjalið fái fallegt form og falli vel.
Notið gjarna grófari prjóna til að fella af með og passið uppá að prjóna lausar lykkjur.
Prjónið og fellið af þannig: * Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 næstu lykkjur eru prjónaðar snúnar slétt saman. Færið 3 lykkjur af hægri prjón til baka yfir á vinstri prjón (í sömu röð og þær eru) *, endurtakið frá *-* þar til allar lykkjur á vinstri prjón hafa verið felldar af og það eru 3 lykkjur á hægri prjóni.
Færið allar lykkjur yfir á vinstri prjón og fellið síðan þessar 3 lykkjur af slétt.
Klippið frá og saumið saman affellinguna frá síðustu 3 lykkjum svo að endinn á sjalinu verði fallegur. Festið lausa enda.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður brugðið í næstu umferð - það eiga að myndast göt
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunum yfir prjónuðu lykkjuna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 190-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Annedore wrote:

Hallo ihr lieben, danke auch von mir für die vielen kostenlosen Anleitungen. Ich hab das Tuch mit einer dünnen wolle gestrickt und es kleiner gemacht , sieht auch gut aus. Da kommt man mit 100g auch schon ziemlich weit.Die verkürzten Reihen sind ne gute Idee,allerdings finde ich, dass sich das Tuch so sehr ausdehnt und verzieht, mal sehen wie es sich nach dem dämpfen und spannen verhält

15.07.2019 - 09:05

country flag Lilou wrote:

Bonjour, il y a pas mal de modèles que j'aimerai bien faire, mais qui me rebute, soit parce que les explications et/ou diagrammes sont trop compliqués. De plus, beaucoup trop de modèles avec aiguilles doubles pointes!!! en fait, beaucoup trop de modèles, pour tricoteuses averties. Dommage!.

02.06.2019 - 09:14

DROPS Design answered:

Bonjour Lilou, pensez à consulter notre FAQ et notre rubrique Astuces & Aide, vous y trouverez notamment comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!

03.06.2019 - 10:55

country flag Laurence wrote:

Bonjour, pouvez vous m’expliquer comment on fait suivre le fil marqueur d’un rang à l’autre quand il se trouve dans la maille et non entre 2 mailles. Franchement je n’y arrive pas et je n’ai pas trouver de vidéo. Merci par avance.

01.06.2019 - 23:55

DROPS Design answered:

Bonjour Laurence, vous pouvez utiliser des marqueurs que vous pourrez accrocher sur chacune des mailles indiquées, ou bien mettre un fil marqueur avant (sur l'endroit) la maille concernée. Bon tricot!

04.06.2019 - 08:40

country flag Amélie wrote:

Et oui encore moi ! Une question le diagramme il se tricote de bas en haut ? Soit de 22 à 28 ?? Parce que sinon je comprend pas 😕

25.04.2019 - 21:03

DROPS Design answered:

Bonjour Amélie, tout à fait, les diagrammes se lisent toujours (sauf indication contraire explicite) de bas en haut: on commence ici par 22 m et on aura 28 m quand A.1 sera terminé. plus d'infos ici sur les diagrammes. Bon tricot!

26.04.2019 - 08:48

country flag Amélie wrote:

D’accord j’ai fais. Et les rangs raccourcis je les fais quand ?

18.03.2019 - 14:52

DROPS Design answered:

Bonjour Amélie, quand vous avez vos 37 m, vous répétez les 4 rangs en augmentant au rang 1 à 2 m du bord, puis au rang suivant sur toutes les mailles à chaque marqueur - au rang 2, vous augmentez à 2 m du bord, puis vous tricotez 2 rangs sur toutes les mailles (rangs 3 et 4). Bon tricot!

19.03.2019 - 09:16

country flag Amélie wrote:

J’ai rien compris je n’arrive pas à commencer. J’ai mes 13 mailles avec un marqueur que le 2,4,6,8,10 et 12 eme maille. Je suis à l’endroit je devrait donc tricoter deux mailles faire un jeter et tricoter jusqu’à la première maille avec un fil marqueur. Sauf que là je suis au début donc je ne peux pas tricoter deux mailles puisque j’ai tout de suite un fil marqueur 🤔🙃 je suis perdue. Puis-je avoir de l’aide s’il vous plaît.

18.03.2019 - 12:41

DROPS Design answered:

Bonjour Amélie, votre 1er marqueur est dans la 2ème maille, vous tricotez donc 1 rang endroit en augmentant 1 m avant chacune des mailles avec un marqueur: 1 m end, 1 jeté, 1 m end (1er marqueur), 2 m end, 1 jeté, 1 m end (2ème marqueur) et ainsi de suite. Bon tricot!

18.03.2019 - 14:02

country flag Helga wrote:

Ich habe das Tuch gerade originalgetreu nachgestrickt, bin aber mit der angegebenen Wollmenge überhaupt nicht hingekommen. Ich habe von beiden Farben jeweils knapp 150 g verbraucht. Im Netz kann man nachlesen, dass das auch schon anderen Strickerinnen passiert ist. Abgesehen davon: Vielen Dank für die vielen kostenlosen Muster, ich habe schon etliches nachgestrickt, bisher ohne Probleme.

05.11.2018 - 19:37

country flag Anne Birthe Olsen wrote:

Kan det være rigtigt, at de to yderste sider bliver bredere end de stykker mellem de 6 midterste udtagninger? (Der er jo 8 udtagninger til 7 "mellemstykker")

04.11.2018 - 21:52

DROPS Design answered:

Hej Anne Birthe, ja når du strikker vendepinde tager du også ud i siden, så de yderste stykker bliver bredere. God fornøjelse!

08.11.2018 - 08:42

country flag Camilla wrote:

Hei. Jeg lurer på om det er riktig at jeg skal strikke rett fra vrangen når det står strikk 1 pinne rett fra vrangen?

29.09.2018 - 20:08

DROPS Design answered:

Hei Camilla. Ja, det stemmer at du skal strikke rett fra vrangen når det står det. Om du strikker rett fra retten og rett fra vrangen vil du få rillemønster, og det er riktig at du skal ha rillemønster på dette sjalet. God fornøyelse

01.10.2018 - 11:20

country flag Lizandra wrote:

Olá. Sou brasileira e amo seus modelos. Tenho uma dúvida em relação às carreiras encurtadas. A laçada é antes ou depois do fio marcador?

25.08.2018 - 02:40

DROPS Design answered:

Olá, A laçada é feita depois do fio marcador. Bom tricô!

27.08.2018 - 11:29