DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9680.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Arendal

Peysa með köðlum og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Puna. Stærð S - XXXL.

DROPS 181-7
DROPS Design: Mynstur pu-018
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-700-750-800 g litur 15, norðursjór

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 eða 80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkjur og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9680.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1.
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1 þannig (= 8 nýjar lykkjur í hvert skipti sem aukið er út).
Prjónið fram að A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það á ekki að myndast gat.

ÚTAUKNING (á við um hliðar):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki í hlið. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það eiga ekki að myndast göt.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerk er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, frá miðju að aftan, ofan frá og niður.

PEYSA:
Fitjið upp 112-120-124-128-136-136 lykkjur á hringprjón 4 með Puna. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í fyrstu umferð er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 108-116-120-124-132-132 lykkjur. Prjónið síðan þannig: 11-12-13-15-16-18 lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum (= þessar 7 lykkjur verða 13 lykkjur), 18-20-20-18-20-16 lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 22-24-26-30-32-36 lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 18-20-20-18-20-16 lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og 11-12-13-15-16-18 lykkjur slétt = 132-140-144-148-156-156 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt, svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan þannig: Prjónið 4-5-6-8-9-11 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), A.1 (= 27 lykkjur), 4-6-6-4-6-2 lykkjur (= ermi), A.1, 8-10-12-16-18-22 lykkjur slétt (= framstykki), A.1, prjónið 4-6-6-4-6-2 lykkjur slétt (= ermi), A.1, 4-5-6-8-9-11 lykkjur slétt (= hálft bakstykki).

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ PRJÓNA!
Haldið áfram með þetta mynstur, jafnframt er aukið út hvoru megin við A.1 fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út í annarri hverri umferð 21-24-27-30-32-35 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir allar útaukningar eru 300-332-360-388-412-436 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður (án útaukninga) þar til stykkið mælist 22-24-26-29-30-33 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.

Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 45-49-53-58-63-68 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóni (= undir ermi), prjónið 90-98-106-116-126-136 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóni (= undir ermi) og prjónið þær 45-49-53-58-63-68 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 196-212-232-252-276-300 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp. Haldið áfram með A.1 yfir 20-20-20-20-22-22 lykkjur í mynstri sem eru eftir á framstykki/bakstykki, en í annarri hverri umferð er slegið 1 sinni uppá prjóninn á ytri hlið á hverju A.1 (= að miðju að framan og miðju að aftan) og prjónaðar eru 2 lykkjur slétt saman hvoru megin við prjónamerkin í hlið.
Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð. Lykkjufjöldinn er sá sami, en lykkjurnar í A.1 koma smá saman að fækka að hlið á peysu og það verða fleiri og fleiri lykkjur í sléttprjóni.
Þegar ekki nægilega margar lykkjur eru í A.1 til að mynda 6-lykkju kaðla eru þessar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni, JAFNFRAMT er fækkað um 3 lykkjur jafnt yfir hvern kaðal, ekki er lykkjum fækkað yfir köðlum með 2 lykkjum (munið eftir að auka út á ytri hlið á A.1 og fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerkin).
Þegar lykkjum hefur fækkað í A.1 eru 172-188-208-228-252-276 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 15-15-15-15-15-15 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið svona út með 5 cm millibili alls 4 sinnum = 188-204-224-244-268-292 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-34-34-34-34-34 cm er aukið út um 40-44-48-52-56-60 lykkjur jafnt yfir = 228-248-272-296-324-352 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Prjónið stroff í 2 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. Setjið 60-68-74-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stutta hringprjóna 4,5 og fitjið að auki upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur mitt undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur – stykkið er nú mælt héðan! Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2-2-2-2-2-4 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum með 3-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 12-15-18-19-20-21 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Þegar ermin mælist 38-36-35-33-32-30 cm er aukið út um 4-6-8-6-8-10 lykkjur jafnt yfir = 48-52-56-56-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar ermin mælist 43-41-40-38-37-35 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 13.04.2018
Leiðrétting:ÚTAUKNING (á við um hliðar):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki í hlið.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = Setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = Setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Arendal

Callanda, Switzerland

Arendal

Zamotana, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (97)

country flag Marie wrote:

Can you please send 2 pattern for the cable or have many rows between the cable

17.01.2023 - 04:16

DROPS Design answered:

Dear Marie, there are 3 rows between each of the small cables over 2 sts (work these cables on every 4th row - symbols 5 + 6) - and the first large cables over 6 sts are worked on the 3rd row, then repeat these cables on every 8th row. Read more about diagrams here. Happy knitting!

17.01.2023 - 10:23

country flag Sandra Hofschildt wrote:

Wie nehmen Sie von 212 Ma am Rumpf 24 Ma ab, auf 188 Ma? Wie meinen Sie ab nehmen, wenn keine 6 Maschen mehr ein Zopfdarstellen, dann sticke ich wie oft die 3 Maschen zum abnehmen, auch in jeder 2. Runde? Können sie nicht ein Bild von der Seite abbilden das man es erkennen könnte ?

26.10.2022 - 01:45

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hofschildt, die 4 Diagramme beim Rumpfteil werden in die Seiten verschoben (mit Zu- bzw Abnahmen), aber wenn die Zöpfe die Seiten treffen, können Sie diese Zöpfe nicht mehr stricken, so nehmen Sie 3 Maschen in jedem Zopf (= 6 Maschen in jedem A.1) x 4 Rapporte in der Runde = 24 Maschen ingesamt bei der selben Runde (=212-24=188 Maschen); die Zu- und Abnahmen wie zuvor weiterstricken bis A.1 komplett abgenommen wurde. Viel Spaß beim stricken!

26.10.2022 - 08:09

country flag Sandra Hofschildt wrote:

Bin dabei die Ärmel abzuteilen, und bei Größe M, meinen 332Ma soll ich 49Ma vom halben Rückteil stricken, dann lande ich, im Zopfmuster Ma 20, ist das so gewollt?

30.09.2022 - 15:26

DROPS Design answered:

Liebe Frau Hofschildt, ja stimmt, die Zöpfe (bis 20. Masche) gehören zum Rumfpteil - sie werden beim Rumpfteil nach und nach abgenommen. Bei der Verteilung für die Ärmel legen Sie die letzten 7 Maschen A.1 + die 54 Maschen der Ärmel + die ersten 7 Maschen A.1 (= 68 Maschen). Viel Spaß beim stricken!

30.09.2022 - 16:07

country flag Tigresse wrote:

Bonsoir, est-ce possible d'avoir des explications plus claires s'il vous plaît pour la partie dos et devant? Je n'y comprends absolument rien et visiblement je ne suis pas la seule. J'ai défait et refait plusieurs fois, je suis décourager. Merci

04.06.2022 - 23:15

DROPS Design answered:

Bonjour Tigresse, peut-être pouvez-vous nous donner plus de détails sur ce que vous ne comprenez pas, ce sera ainsi plus simple de pouvoir vous aider, merci pour votre compréhension.

07.06.2022 - 08:20

country flag Jane Kuhl wrote:

When there are not enough stitched in A 1 to work 6 stitch cable, am I working the 3 decrease (24 in total) one per row?

30.05.2022 - 18:09

DROPS Design answered:

Dear Mrs Kuhl, correct, this decrease will happen on the same row, decrease 3 stitches in each of the cable in A.1 (2 repeats of A.1 under each sleeve = 4 cables under each sleeve). So that you decrease 24 sts in the cable (extra to the decreases/increases). Happy knitting!

31.05.2022 - 08:33

country flag Martina Wietschke wrote:

Hallo Drops-Team, Kann ich den Zopf bei diesem Modell auch bis zum Ende des Pullovers durchstricken? Vielen Dank für eure schnellen Antworten

13.11.2021 - 10:37

DROPS Design answered:

Liebe Frau Wietschke, leider können wir nicht jeder Anleitung nach jeder Anfrange anpassen aber sicher können Sie die Anleitung je nach Ihrer Wunsch/Lust anpassen - sollen Sie individuelle Hilfen brauchen dann wenden Sie sich bitte an Ihrem DROPS Laden, dort hilft man Ihnen gerne - auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!

15.11.2021 - 07:35

country flag Irene Fremme wrote:

Jeg strikker modellen i XL. Jeg har strikket 29 cm fra oppleggskanten midt foran og ned, og har totalt 388 masker på rundpinnen,. Oppskriften sier at jeg skal strikke 58 masker (= halve bakstykket) før jeg starter å sette 78 masker på tråd(=erme) Jeg har 76 masker på for/bakstykke, og 64 masker på ermene. Hvis jeg strikker 58 masker som forslått, så sitter jeg igjen med 7 masker som hører til A1. Skal disse på tråden for ermet?

25.10.2021 - 13:24

DROPS Design answered:

Hej igen, ja det stemmer, du skal dele op som vi beskriver i opskriften for din størrelse :)

25.10.2021 - 15:52

country flag Irene Fremme wrote:

Jeg strikker str. XL. Etter 30 omganger med økning så skal totalt antall masker være 388. Deretter skal vi strikke videre uten å øke til lengden er 29 cm fra oppleggskanten midt foran. Vil ikke det resultere i at kanten som går nedover ved siden av A1, som nå er skrå, starte å gå loddrett nedover i stedet? Er det rktig?

25.10.2021 - 13:16

country flag Irene Fremme wrote:

Hei Jeg strikker for genser for første gang, og jeg har valgt denne modellen i størrelse XL. Jeg har noen spørsmål. Jeg har nå strikket 30 omganger med økninger og antallet masker skal nå være opp i 388 masker totalt. Jeg har 385m. 75 masker foran og bak og 63m på ene armen og 64 masker på den andre armen. Så jeg må legge til 3 masker på riktig sted. Hvor mange masker skal det være på for og bakstykke og på armene etter 30 omganger med økning?

25.10.2021 - 13:07

DROPS Design answered:

Det lyder til at det er på ærmerne du manger de 3 masker. Hvis du tager dem ud samtidig som du strikker: Neste omgang strikkes slik: Strikk 58 (= halve bakstykket), sett de neste 78 maskene på 1 tråd (= erme), legg opp 10 nye masker på pinnen (= under ermet), strikk 116 masker (= forstykke), sett de neste 78 maskene på 1 tråd (= erme), legg opp 10 nye masker på pinnen (= under ermet) og strikk de resterende 58 maskene (= halve bakstykket).

25.10.2021 - 15:11

country flag Bärbel wrote:

Liebes drops-Team, erst einmal herzlichen Dank für all die tollen Anleitungen, nach denen ich gerne stricke. Dann eine Frage: Ich habe die Ärmel abgetrennt, das erste Mal zu- und abgenommen beim Rumpfteil. Wann muss ich gleichzeitig die 3 Maschen in jedem Zopf abnehmen und erfolgt dies nur ein- oder mehrmals? Wenn ich in jeweils 6 Maschen Zopf 3 Maschen abnehme, habe ichbezogen in einer Reihe 12 Maschen weniger!. Danke für Ihre Antwort.

11.08.2021 - 09:46

DROPS Design answered:

Liebe Bärbel, diese 3 Maschen nehmen Sie in den Zöpfen ab, wenn es (wegen den beidseitigen Abnahmen) nicht mehr genügend Maschen für diese Zöpfen übrig sind; (für Zöpfen braucht man mehr Maschen als für Glattrechts, deshalb muss man hier abnehmen). Viel Spaß beim stricken!

11.08.2021 - 13:37