DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9680.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Arendal Cardigan

Prjónuð peysa með köðlum og laskalínu úr DROPS Puna, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. S

DROPS 181-25
DROPS Design: Mynstur pu-019
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-700-750-800 g litur 15, norðursjór

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 eða 80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 4 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkjur og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA Bogalaga (hvít), NR 522: 6-6-6-7-7-7 st

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9680.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1.
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1 þannig (= 8 nýjar lykkjur í hvert skipti sem aukið er út).
Prjónið fram að A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, það á ekki að myndast gat.

ÚTAUKNING (á við um hliðar):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hlið. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, það á ekki að myndast gat.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerk er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið á kraga mælist 3 cm, fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu með ca 8 cm á milli hverra.
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (séð frá réttu), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 1 lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, frá miðju að framan, ofan frá og niður.

PEYSA:
Fitjið upp 120-128-132-136-144-144 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Puna. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT! Haldið áfram með stroff í 4 cm. Síðasta umferð er frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í fyrstu umferð er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir = 118-126-130-134-142-142 lykkjur. Prjónið síðan þannig – frá réttu: Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, 11-12-13-15-16-18 lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum (= þessar 7 lykkjur verða 13 lykkjur), 18-20-20-18-20-16 lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 22-24-26-30-32-36 lykkjur slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 18-20-20-18-20-16 slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 11-12-13-15-16-18 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón = 142-150-154-158-166-166 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið, svo að ekki myndist gat og kantar að framan eru prjónaðir slétt. Prjónið síðan frá réttu þannig: Prjónið 5 lykkjur garðaprjón (= kantlykkjur að framan), 4-5-6-8-9-11 lykkjur sléttprjón (= vinstra framstykki), A.1 (= 27 lykkjur), 4-6-6-4-6-2 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.1, 8-10-12-16-18-22 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), A.1, 4-6-6-4-6-2 lykkjur sléttprjón (= ermi), A.1, 4-5-6-8-9-11 lykkjur sléttprjón (= hægra framstykki) og endið með 5 kantlykkjum með garðaprjóni (= kantlykkjur að framan).

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ PRJÓNA!
Haldið áfram með þetta mynstur, jafnframt er aukið út hvoru megin við A.1 fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út í annarri hverri umferð (= í hverri umferð frá réttu) 21-24-27-30-32-35 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir allar útaukningar eru 310-342-370-398-422-446 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur eins og áður (án útaukninga) þar til stykkið mælist 22-24-26-29-30-33 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.

Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 50-54-58-63-68-73 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóni (= undir ermi), prjónið 90-98-106-116-126-136 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóni (= undir ermi) og prjónið þær 50-54-58-63-68-73 lykkjur sem eftir eru (= vinstra framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 206-222-242-262-286-310 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT. Haldið áfram með A.1 yfir 20-20-20-20-22-22 lykkjur í mynstri sem eru eftir á framstykki/bakstykki, en í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) er slegið 1 sinni uppá prjóninn á ytri hlið á hverju A.1 (= að miðju að framan og miðju að aftan) og prjónaðar eru 2 lykkjur slétt saman hvoru megin við prjónamerkin í hlið.
Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð. Lykkjufjöldinn er sá sami, en lykkjurnar í A.1 koma smá saman að fækka að hlið á peysu og það verða fleiri og fleiri lykkjur í sléttprjóni.
Þegar ekki nægilega margar lykkjur eru í A.1 til að mynda 6-lykkju kaðla eru þessar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni, JAFNFRAMT er fækkað um 3 lykkjur jafnt yfir hvern kaðal, ekki er lykkjum fækkað yfir köðlum með 2 lykkjum (munið eftir að auka út á ytri hlið á A.1 og fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerkin).
Þegar lykkjum hefur fækkað í A.1 eru 182-198-218-238-262-286 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjón og garðaprjón yfir lykkjur í kanti að framan. Nú eru 48-52-57-62-68-74 lykkjur á hvoru framstykki og það eru 86-94-104-114-126-138 lykkjur á bakstykki. Þegar stykkið mælist 15-15-15-15-15-15 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið svona út með 5 cm millibili alls 4 sinnum = 198-214-234-254-278-302 lykkjur. Þegar stykkið mælist 32-32-32-31-32-31 cm er prjónuð 1 umferð brugðið frá röngu og aukið er út um 42-46-50-54-58-62 lykkjur jafnt yfir (kantur að framan heldur áfram í garðaprjón og ekki er aukið út yfir þessar lykkjur) = 240-260-284-308-336-364 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: 5 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðnar *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón. Prjónið stroff í 2 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. Setjið 60-68-74-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stutta hringprjóna 4,5 og fitjið að auki upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur mitt undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur – stykkið er nú mælt héðan! Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2-2-2-2-2-4 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum með 3-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 12-15-18-19-20-21 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Þegar ermin mælist 38-36-35-33-32-30 cm er aukið út um 4-6-8-6-8-10 lykkjur jafnt yfir = 48-52-56-56-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar ermin mælist 43-41-40-38-37-35 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðiði frá réttu, slétt frá röngu
symbols = Setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = Setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

181-25 Arendal Cardigan

@swtrgrl, United States

Arendal Cardigan

Guilaine, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (45)

country flag Arlene Joffe wrote:

Could you please tell me what the tension/guage is for this pattern. i have checked and checked but cannot find it in the pattern instructions. thank you

17.01.2024 - 16:04

DROPS Design answered:

Hi Arlene, DROPS DOUBLE POINTED NEEDLES AND CIRCULAR NEEDLE (40 and 60 or 80 cm) SIZE 4.5 MM – or the size needed to get 20 stitches and 26 rows stocking stitch on 10 cm in width and 10 cm in height. DROPS DOUBLE POINTED NEEDLES AND CIRCULAR NEEDLE (60 or 80 cm) SIZE 4 MM for rib – or the size needed to get 21 stitches and 28 rows stocking stitch on 10 cm in width and 10 cm in height. Happy knitting!

17.01.2024 - 16:53

country flag Andrea wrote:

Ich habe die Jacke soweit fertig. Allerdings drehen sich die beiden Blenden mit den je 5 kraus rechts gestrickten Maschen auf die Innenseiten der Jacke. Was kann ich tun?

28.12.2022 - 22:33

DROPS Design answered:

Liebe Andrea, sorry für Spätantwort. Sie können die Jacke mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen, danach entfernen Sie die Stecknadeln, dann sollte sich der Rand nicht mehr rollen.

06.02.2023 - 15:46

country flag Elena D'Amato wrote:

Buonasera, ancora un altro chiarimento. Quando si devono diminuire le tre maglie? C'è scritto "ALLO STESSO TEMPO " diminuire 3 maglie su ogni treccia....grazie

22.03.2022 - 21:01

DROPS Design answered:

Buonasera Elena, deve lavorare le diminuzioni quando non c'è spazio per lavorare A.1. Buon lavoro!

24.03.2022 - 22:52

country flag Elena D'Amato wrote:

Buonasera, non ho capito come si devono diminuire 3 maglie su ogni treccia. Grazie

22.03.2022 - 20:57

DROPS Design answered:

Buonasera Elena, può utilizzare la tecnica che preferisce. Buon lavoro!

24.03.2022 - 22:52

country flag Manuela wrote:

Hallo liebes Drops Team. Habe den ersten Ärmel beendet und am Ende der Raglanlinie hat sich ein Beule gebildet. Was kann ich Tun?

05.05.2021 - 20:56

DROPS Design answered:

Liebe Manuela, per Ferndiagnose ist es etwas schwierig, einen Fehler zu erkennen. Diese Lektion zeigt, wie man einen Pullover von oben nach unten strickt und kann Ihnen helfen. Am besten zeigen Sie die Jacke in Ihrem Wollgeschäft - oder machen ein Foto von der Jacke und schicken das Ihrem Wollgeschäft, vielleicht kann man Ihnen dort mit Ihrem individuellen Stück weiterhelfen.

06.05.2021 - 07:52

country flag Hanne wrote:

Denne oppskriften ville vært svært mye enklere å lese om det fantes noen illustrasjoner/diagrammer. Det er fryktelig vanskelig å tolke ren tekst og finne frem til rett sted i teksten! Jeg er ikke ferdig med å felle bort A1 (har fortsatt 12 masker igjen i A1) men arbeidet måler allerede 14,5 cm fra ermet, og jeg skal snart begynne å legge ut 4 masker hver 5. cm 🤔 Hvordan??

03.03.2021 - 20:15

country flag Alberta Hapuku wrote:

Hello again. So far good. Now I'm at the separation part of the cardigan. Work 54 sts. that includes the 5st band?.

16.02.2021 - 10:03

DROPS Design answered:

Hi Alberta, Yes, this stitch count includes the band. Happy knitting!

17.02.2021 - 07:46

country flag Alberta Hapuku wrote:

Thank U for answering. It has been tried both ways. What I've done is cast on the bands and not included them into the actual pattern. After completing the ribbing with the decreases of 2 stitches bringing it down to 126 is accurate. From there it becomes complicated. . Right now i think I may have sought it out. I came out with with 160 stitches which includes the 2 bands of 5 stitches. So I'm going to work with that amount which should be OK. What do you think. Cheers Alberta

10.02.2021 - 10:32

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hapuku, work the 128 sts as follows: 5 sts in garter st, (K2, P2) x 29, K2, 5 sts in garter st (= 5 + 116+2+5=128 sts) - then work 1 ridge dec 2 sts = 126 sts. Work then these 126 sts follows: 5 sts garter st, K12, *1 YO, K1 * x 3, K1, * 1YO, K 1 *x 3, K20, *1YO, K1 * x 3, K1, * 1 YO, K1 * x3, K24, * 1 YO, K1 *x3, K1, * 1 YO, K1 *x3, K20, *1 YO, K1 *x3, K1, * 1 YO, K1 *x3, K 12, 5 sts garter stitch = 5+12+(6+1+6)+20+(6+1+6)+24+(6+1+6)+20+(6+1+6)+12+5= 150 sts. Hope this will help. Happy knitting!

10.02.2021 - 11:55

country flag Alberta Hapuku wrote:

Cast on 128 stitches ( including 5 band stitches in each side towards mid front). Is this band included in the 128 stitches. because I seem to have problems with the stitch count at the end of the ribbing. This is for Arendal cardigan Drops 181-25. Cheers

10.02.2021 - 01:50

DROPS Design answered:

Hi Alberta, Yes, both bands are included in the 128 stitches. Happy knitting!

10.02.2021 - 11:13

country flag Alberta Hapuku wrote:

In your pattern Drops 181-25. Arendal cardigan, it read cast on 128 stitches (including 5 band stitches in each side towards mid front). Are the band stitches included in the 128 stitches. Help.

10.02.2021 - 01:46

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hapuku, yes the 5 front band stitches each side are included in the 128 stitches, this means you don't have to cast on them extra. Happy knitting!

10.02.2021 - 07:06