Sarah wrote:
I like the look of this particular pattern but am allergic to yarns with wool content, do you do any non-wool content yarn which I could use instead?
07.01.2023 - 17:10DROPS Design answered:
Dear Sarah, you could use 2 threads of Safran or 1 thread of Paris, both 100% cotton yarns. Happy knitting!
07.01.2023 - 18:27Ans Van Dijck wrote:
Ik heb net een vraag gesteld over de omslag. Ik heb het exact hetzelfde gedaan maar dan klopt heel de stekenverhoudig niet. Ik moet dat in het patroon 5x herhalen maar dan kom ik op bijna 800 steken uit waar ik 288 steken moet hebben.
07.12.2021 - 19:27DROPS Design answered:
Dag Ans,
Daar waar een staand ovaaltje tussen de steken in het telpatroon staat maak je een omslag. De eerste keer dat je een omslag maakt in de telpatronen is dus op de derde naald, aan het begin van het telpatroon. Het telpatroon herhaalt zich steeds in de breedte, dus 1 omslag 3 steken, en dat steeds herhalen.
Kijk anders ook even bij vaak gestelde vragen over hoe je een telpatroon leest. Misschien helpt dat je verder.
09.12.2021 - 15:01Ans Van Dijck wrote:
Wat betekend bij het patroon 1 omslag tussen 2 steken?
07.12.2021 - 16:01DROPS Design answered:
Dag Ans,
Je breit dan 1 steek, maakt een omslag (dus de draad om de naald heen slaan), dan nog 1 steek breien. Er zit dan dus 1 omslag tussen 2 steken.
07.12.2021 - 16:47Sonya Noble wrote:
On the left hand side of my computer on your website only there is an icon with a shield and a check mark inside. when i go to print a pattern this icon is on the bottom of every page and obscures the print underneath. is there some way of getting ride of this icon when i am printing.
21.07.2021 - 02:56DROPS Design answered:
Dear Mrs Noble, we tried to reproduce what you say but we didn't get any shield, so we are not sure to understand what you mean here; maybe try another browser/support - you are welcome to ask your DROPS store to print the pattern for you if you cannot. Happy knitting!
21.07.2021 - 08:24FRANCA NONNIS wrote:
Buongiorno,la spiegazione dice: "Proseguire seguendo il diagramma A.1 (= 30-32-33-36-38-41= ripetizioni)" Ma come è possibile ripetere il diagramma per 32 volte su 96 maglie, se non vi sono indicati aumenti? dove sbaglio?. Al termine del diagramma dovrei avere 216 maglie ma come? Grazie se vorrete rispondere.
09.12.2020 - 23:18DROPS Design answered:
Buonasera Franca, i diagrammi si leggono dal basso verso l'alto, da destra a sinistra, per cui il diagramma A.3 inizia con 3 maglie e su 96 maglie si lavorano quindi 32 ripetizioni. Durante la lavorazione si aumentano 5 maglie per ogni ripetizione per un totale di 160 maglie: per cui 96+160=256 maglie. Buon lavoro!
10.12.2020 - 17:37Jo wrote:
The 2nd picture shows that the bottom hems are not joined, it is split like a tunic. The instructions say to increase a large number of stitches just before the rib, but do not say to split the work and work the bottom of the back and front separately. Can you confirm how the bottom should be finished please.
28.05.2020 - 00:09DROPS Design answered:
Dear Jo, if you like to get a split, you can divide the body and finish front and back piece separately approx. 7 cm before total length - the number of increases will have to be divided into both pieces. Happy knitting!
28.05.2020 - 09:14Shannon wrote:
Love it! Definately on my list.
05.07.2016 - 07:50Douwelina wrote:
Ook wel leuk
27.06.2016 - 16:45Marieke wrote:
Heel mooi, ik wacht op het patroon!
27.06.2016 - 12:52
Gemstone |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal með hringlaga berustykki, norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 171-31 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði fastari þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í stærra númer á prjónum þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki): Fækkið l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið þannig: Byrjið 4 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 4 l sl (prjónamerkið er staðsett mitt á milli þessa 4 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki): Aukið út hvoru megin við fram- og bakstykki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki og sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l) og sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 108-112-116-120-124-128 l á hringprjóna nr 4,5 með litnum grár. Prjónið stroff (2 l sl, 2 l br). Prjónið 2 umf stroff með litnum grár, síðan er stroffið prjónað áfram með litnum ljós grár. Þegar stykkið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 5, prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 18-16-17-12-10-5 l jafnt yfir = 90-96-99-108-114-123 l. Prjónið síðan upphækkun aftan í hnakka þannig: Setjið 1 prjónamerki við miðju að framan (milli 2 miðju l í stærð S-M-XL-XXL, í miðju-l í stærð L og XXXL). Byrjið við miðju að aftan og prjónið upphækkun að aftan á hringprjóna nr 5 með litnum ljós grár þannig: Prjónið sl þar til eftir eru 10-10-12-12-14-16 l á undan prjónamerki að framan, snúið við og prjónið br þar til eftir eru 10-10-12-12-14-16 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið sl þar til eftir eru 20-20-22-22-24-26 l á undan prjónamerki að framan, snúið við og prjónið br þar til eftir eru 20-20-22-22-24-26 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið sl þar til eftir eru 30-30-32-32-34-36 l á undan prjónamerki, snúið við og prjónið br þar til eftir eru 30-30-32-32-34-36 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið sl til baka að miðju að aftan. Prjónið síðan eftir A.1 (30-32-33-36-38-41= mynstureiningar). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og LESIÐ LEIÐBEININGAR! Prjónið og aukið út eftir A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 240-256-264-288-304-328 l í umf og stykkið mælist ca 23-23-23-28-28-28 cm frá uppfitjunarkanti að framan. Haldið áfram með litnum grár. Prjónið 1 umf þar sem aukið er út um 0-0-4-4-0-4 l jafnt yfir = 240-256-268-292-304-332 l. Haldið áfram í sléttprjóni og litinn grár í 0-2-3-0-1-3 cm, stykkið mælist nú nu ca 23-25-26-28-29-31 cm frá miðju að framan. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 33-36-39-43-46-51 l (= hálft bakstykki), setjið næstu 54-56-56-60-60-64 l á þráð(= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar l, prjónið næstu 66-72-78-86-92-102 l (= framstykki), setjið næstu 54-56-56-60-60-64 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar l og prjónið síðustu 33-36-39-43-46-51 l (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-156-172-188-204-224 l. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar l sem fitjaðar voru upp. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan sléttprjón með litnum grár. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri), fækkið l með 3½.cm millibili alls 3 sinnum = 132-144-160-176-192-212 l. Þegar stykkið mælist 17 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki, LESIÐ ÚTAUKNING, aukið út með 5-5-5-4-4-4 cm millibili alls 4-4-4-5-5-5 sinnum = 148-160-176-196-212-232 l. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 35-35-36-36-37-37 cm, prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út um 36-40-44-48-52-60 l jafnt yfir = 184-200-220-244-264-292 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið stroff í 2 cm, 2 l br í 8 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. ERMI: Ermarnar eru prjónaðar í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. Setjið til baka þær 54-56-56-60-60-64 l af þræði á stutta hringprjóna nr 5 og prjónið upp 1 l í hverja l sem fitjuð var upp undir ermi = 60-62-64-68-70-74 l. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón með litnum grár. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki, fækkið l með 3-2½-2½-2-2-1½ cm millibili alls 10-11-12-12-13-15 sinnum = 40-40-40-44-44-44 l. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 33-32-32-31-31-30 cm, prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út um 12 l jafnt yfir = 52-52-52-56-56-56 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5. Haldið áfram með stroff (2 l sl, 2 l br) í 8 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Kallia wrote:
I made it in blue. It's fantastic!
03.01.2019 - 08:45