DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4004.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Call It Spring Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Muskat með gatamynstri, sléttprjóni og hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 159-5
DROPS Design: Mynstur nr r-679
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
350-400-450-500-550-600 gr litur nr 40, kórall

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA: Blóm (rautt), NR 617: 8 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4004.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið fram að 2 l á undan prjónamerki: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l slétt, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 5, 11, 17, 23, 29, 35, 41 og 47 cm.
STÆRÐ M: 6, 13, 19, 25, 31, 37, 42 og 49 cm.
STÆRÐ L: 6, 12, 19, 25, 32, 38, 45 og 51 cm.
STÆRÐ XL: 6, 12, 19, 26, 33, 40, 47 og 53 cm.
STÆRÐ XXL: 6, 13, 20, 27, 34, 41, 48 og 55 cm.
STÆRÐ XXXL: 7, 15, 22, 29, 36, 43, 50 og 57 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

PEYSA:
Fitjið upp 221-235-249-277-305-333 l (meðtaldar kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjóna nr með Muskat. Prjónið umf GARÐAPRJÓN fram og til baka- sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú MYNSTUR frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni , A.1 (= 14 l í 1. umf) 15-16-17-19-21-23 sinnum á breidd, 1 l sléttprjón, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 191-203-215-239-263-287 l. ATH: 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið halda áfram til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Munið eftir HNAPPAGAT! Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er sett eitt prjónamerki í hvora hlið þannig: Setjið eitt prjónamerki eftir 50-53-56-62-68-74 l inn frá hvorri hlið á stykki fyrir framstykki. Nú eru 91-97-103-115-127-139 l fyrir bakstykki. Haldið áfram í sléttprjóni innan við kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 7 cm, fellið af 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 2-2½-4-2½-2-2½ cm millibili 6-5-3-5-6-5 sinnum til viðbótar = 163-179-199-215-235-263 l. Þegar stykkið mælist 24 cm, aukið út um 1 l hvoru megin við 2 prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu með 1-1-1½-2-2-2 cm millibili 7-6-5-4-6-6 sinnum til viðbótar = 195-207-223-235-263-291 l. Þegar stykkið mælist 35-37-38-40-41-43 cm, felli af fyrir handveg í næstu umf: Prjónið fyrstu 47-50-54-56-63-70 l, fellið af næstu 8-8-8-10-10-10 l fyrir handveg, prjónið næstu 85-91-99-103-117-131 l, fellið af næstu 8-8-8-10-10-10 l fyrir handveg, prjónið næstu 47-50-54-56-63-70 l = 179-191-207-215-243-271 l. Geymið stykkið og prjónið kant á ermum.

KANTUR Á ERMUM:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 62-64-65-71-74-76 l á hringprjóna nr 4 með Muskat. Prjónið 3 umf slétt fram og til baka (1. umf = ranga). Næsta umf er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 4-4-4-5-5-5 l, prjónið næstu 54-56-57-61-64-66 l slétt JAFNFRAMT er aukið út um 6-6-5-5-4-4 l jafnt yfir (aukið út með því að prjóna 2 l í 1 l), fellið af síðustu 4-4-4-5-5-5 l, klippið frá = 60-62-62-66-68-70 l. Geymið stykkið og prjónið annan kant á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn kanta á ermum á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 299-315-331-347-379-411 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu. Prjónið nú mynstur þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2 (18-19-20-21-23-25 sinnum) þar til 6 l eru eftir, 1 l sléttprjón, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATH: Sjá ör í mynstri A.2 og A.3 fyrir rétta stærð! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með A.3 yfir A.2 og A.4 yfir A.3. Nú eru 119-125-131-137-149-161 l í umf. Prjónið 2 umf garðaprjón, JAFNFRAMT er fækkað um 7-5-3-1-5-9 l jafnt yfir í 1. umf frá réttu = 112-120-128-136-144-152 l. Prjónið 2 umf garðaprjón til viðbótar og fellið síðan laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman kant á ermum kant í kant yst í lykkjubogann. Saumið saman op undir ermum. Saumið yst í lykkjubogann. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = byrjið hér eftir stærðum
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Guy-Anne Levesque wrote:

Can I change the language of the pattern to French?

08.04.2024 - 19:16

DROPS Design answered:

Hi Guy-Anne Levesque, just above pattern instructions you will find drop-down menu where you can change the language. Happy knitting!

08.04.2024 - 20:57

country flag Christine Barholt wrote:

Måske er det bare mig, men hvorfor er ærmegabet så lille. Den sidder helt oppe under armen.\r\nOvervejer at pille op og lave hele bærestykket om .\r\nRigtig ærgerligt, da den ikke skal ende i skabet. Er ellers vildt glad for den .

02.05.2023 - 12:41

country flag Maria Del Rocio Paradá Mortales wrote:

Estoy atorada a nivel del inicio de las mangas. Estoy haciendo la talla mediana. Monto los 64 puntos en otras agujas, hago tres vueltas en derecho reduzco 4 puntos al i inicio y final y las íntegro para hacer el canesú?

02.04.2023 - 03:59

DROPS Design answered:

Hola María, sí, montas 64 puntos, trabajas 3 filas de derecho de ida y vuelta. En la siguiente fila, cierras 4 pts al inicio y al final de la fila y aumentas 6 pts. Dejar una cenefa en espera y trabajar la otra cenefa. Después, colocar ambas cenefas en la misma aguja que las partes del cuerpo, para trabajar el canesú todo junto.

02.04.2023 - 22:18

country flag Serap wrote:

Hallo. Ik ben bezig met dit patroon te breien in maat M. Als ik de markeerders plaat na 53 st en voor 53 aan de 2 kanten dan heb ik 91 st voor de achterpand en niet 97 st. Met vriendelijke groeten, Serap

09.02.2023 - 11:12

country flag Carina wrote:

Gracias, entonces doy por confirmado que sí me sirven las mangas que he tejido en redondo, no?

09.07.2022 - 19:10

DROPS Design answered:

Hola Carina, sí, siempre que hagas el ajuste indicado para la sisa.

09.07.2022 - 19:37

country flag Carina wrote:

Hola. He hecho las mangas más largas(3/4), pero las he hecho en redondo por inercia, tengo que deshacerlas y volverlas a hacer de ida y vuelta o me sirven estás que he hecho en redondo? Es que ahora no sé cómo ponerlas y que no se retuerza el cable, así es que no sé si es que no se pueden hacer en redondo cuando se trata de una chaqueta. Gracias

09.07.2022 - 02:32

DROPS Design answered:

Hola Carina, para unir la manga solo tienes que cerrar 8-10 pts en el centro bajo la manga antes de unir las mangas con el canesú. La forma de la manga se hace con el canesú.

09.07.2022 - 18:45

country flag Carina wrote:

Hola. Para hacer una elevación de cuello qué modelo puedo seguir? Gracias por su respuesta.

06.05.2022 - 18:10

DROPS Design answered:

Hola Carina, por ejemplo, podrías trabajar el 195-19. Este es un jersey de abajo arriba, hecho con el mismo grupo de lanas y con una elevación con un número de puntos similar al de este modelo.

08.05.2022 - 19:01

country flag AINA HELEN VANGEN wrote:

Ok. Det hadde vært bedre om det var som det var før , så slipper man å bla seg gjennom hele oppskrifta for å finne str. Jeg brukte Drops design alltid før, det gjør jeg ikke lenger pga dette.

24.05.2021 - 10:16

country flag Aina wrote:

Hvorfor står det ikke hvor store størrelsene er lenger?? Hvor stort er large f.eks

21.05.2021 - 16:48

DROPS Design answered:

Hej Aina. Längst ner på oppskriften har du en måleskiss där du ser alla mål i cm i alla storlekar. Mvh DROPS Design

24.05.2021 - 08:10

country flag Antonella wrote:

Salve, sto eseguendo questo modello. Vorrei sapere da dove devo misurare l'altezza del lavoro, se partendo dal bordo a maglia legaccio sui lati o dalle punte del motivo A1 che producono il bordino ondulato alla base del capo. Tra queste due misure infatti ci sono circa 2 cm di differenza in altezza. Grazie in anticipo.

10.09.2018 - 18:19

DROPS Design answered:

Buonasera Antonella. Deve misurare lungo il bordo a maglia legaccio sui lati. Buon lavoro!

10.09.2018 - 19:40