DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Evelyn

Prjónuð peysa úr DROPS Delight með sólfjaðramynstri, gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL

DROPS 148-37
DROPS Design: Mynstur nr de-098
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
300-300-350-350-400-450 gr litur nr 06, bleikur/fjólublár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 40 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm og 16 l með gatamynstri eftir mynstri A.2 verði 10 cm á breiddina.
DROPS PRJÓNAR NR 3,5 – fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS SILFURTALA, NR 534: 4-4-4-4-5-5 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.
Mynstur A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð), sýnir allan neðri hluta peysunnar með sólfjaðramynstri, séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Neðri hluti peysunnar samanstendur af mörgum “sólfjöðrum” sem eru prjónaðar saman jafnóðum. Byrjað er neðst niðri á peysunni í þeirri röð sem sólfjaðrirnar eru númeraðar í mynstri – sjá A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð). Nýjar l eru alltaf prjónaðar upp frá réttu.

SÓLFJÖÐUR 1A:
Fitjið upp 61 l á hringprjóna nr 4 með Delight og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: Prjónið 2 l slétt saman, 9 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 6 l sl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, 3 l sl, 2 l slétt saman = 49 l.
UMFERÐ 4-7: Prjónið slétt.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 49 l.
UMFERÐ 9-10: Prjónið slétt.
UMFERÐ 11: Prjónið 2 l slétt saman, 7 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 4 l sl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, 3 l sl, 2 l slétt saman = 37 l.
UMFERÐ 12-15: Prjónið slétt.
UMFERÐ 16 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 37 l.
UMFERÐ 17-18: Prjónið slétt.
UMFERÐ 19: Prjónið 2 l slétt saman, 5 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 7 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 5 l sl, 2 l slétt saman = 29 l.
UMFERÐ 20-26: Prjónið slétt.
UMFERÐ 27: Prjónið 2 l slétt saman, 3 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 5 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 3 l sl, 2 l slétt saman = 21 l.
UMFERÐ 28-29: Prjónið slétt.
UMFERÐ 30 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 21 l.
UMFERÐ 31-34: Prjónið slétt.
UMFERÐ 35: Prjónið 2 l slétt saman, 7 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 7 l sl, 2 l slétt saman = 17 l.
UMFERÐ 36-42: Prjónið slétt.
UMFERÐ 43: Prjónið 2 l slétt saman, 5 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 5 l sl, 2 l slétt saman = 13 l.
UMFERÐ 44-48: Prjónið slétt.
UMFERÐ 49: Prjónið 2 l slétt saman, 3 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 3 l sl, 2 l slétt saman = 9 l.
UMFERÐ 50-54: Prjónið slétt.
UMFERÐ 55: Prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl, 2 l slétt saman = 5 l.
UMFERÐ 56-58: Prjónið slétt.
UMFERÐ 59: Prjónið 1 sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl = 3 l
UMFERÐ 60: Prjónið slétt.
UMFERÐ 61: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir = 1 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum l og festið.

Prjónið SÓLFJÖÐUR 2A, 3A o.s.frv í umf 1 alveg eins.

HÁLF SÓLFJÖÐUR Í VINSTRI HLIÐ Á FRAMSTYKKI – SÓLFJÖÐUR 1B:
Fitjið upp 31 l á prjóna og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: Prjónið 2 l slétt saman, 9 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 6 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 25 l.
UMFERÐ 4-7: Prjónið slétt.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 25 l.
UMFERÐ 9-10: Prjónið slétt.
UMFERÐ 11: Prjónið 2 l slétt saman, 7 l sl, * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 4 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 19 l.
UMFERÐ 12-15: Prjónið slétt.
UMFERÐ 16 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 19 l.
UMFERÐ 17-18: Prjónið slétt.
UMFERÐ 19: Prjónið 2 l slétt saman, 5 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 7 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 15 l.
UMFERÐ 20-26: Prjónið slétt.
UMFERÐ 27: Prjónið 2 l slétt saman, 3 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 5 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 11 l.
UMFERÐ 28-29: Prjónið slétt.
UMFERÐ 30 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 11 l.
UMFERÐ 31-34: Prjónið slétt.
UMFERÐ 35: Prjónið 2 l slétt saman, 7 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 9 l
UMFERÐ 36-42: Prjónið slétt.
UMFERÐ 43: Prjónið 2 l slétt saman, 5 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 7 l
UMFERÐ 44-48: Prjónið slétt.
UMFERÐ 49: Prjónið 2 l slétt saman, 3 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 5 l
UMFERÐ 50-54: Prjónið slétt.
UMFERÐ 55: Prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 3 l
UMFERÐ 56-60: Prjónið slétt
UMFERÐ 61: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir = 1 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum l og festið.

HÁLF SÓLFJÖÐUR Í HÆGRI HLIÐ Á FRAMSTYKKI – SÓLFJÖÐUR 2B:
Fitjið upp 31 l og prjónið eins og sólfjöður 1B nema spegilmynd (þ.e.a.s. í umf 3-11-19-27-35-43-49-55 og 61 er mynstrið lesið aftur á bak, byrjið með 2 l slétt saman og endið með að taka 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir – t.d. er umf 3 prjónuð þannig: Prjónið 2 l slétt saman, * 6 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l sl saman, steypið óprjónuðu l yfir *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið 9 l sl, takið 1 l eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 25 l.
Fyrsta röðin með sólfjöðrum hefur nú verið prjónuð.

SÓLFJÖÐUR 1C:
Prjónið upp 30 l meðfram vinstri kant á SÓLFJÖÐUR 2B (séð frá réttu) – þ.e.a.s. prjónið upp 1 l í hverri rönd í garðaprjóni og ca 1 l í hverri hálfri umf og prjónið síðan upp 31 l meðfram hægri kant á SÓLFJÖÐUR 1A (séð frá réttu) = 61 l á prjóni. Prjónið nú eins og SÓLFJÖÐUR 1A en frá umf 2 (þ.e.a.s. byrjið á sl frá röngu).

Prjónið SÓLFJÖÐUR 2C, 3C, 4C o.s.frv í röð 2 alveg eins – sjá staðsetningu í mynstri A.1 (munið eftir að velja mynstur fyrir þína stærð). Önnur röðin með sólfjöðrum hefur nú verið prjónuð.

Prjónið SÓLFJÖÐUR 1D, 2D, 3D o.s.frv í röð 3 alveg eins – sjá staðsetningu í mynstri A.1 en þegar prjónaðar eru upp l (dæmið útskýrir sólfjöður 1D) er það gert þannig: Prjónið upp 30 l meðfram vinstri kanti á SÓLFJÖÐUR 1C (séð frá réttu), prjónið upp 1 l efst í horni á SÓLFJÖÐUR 1A og prjónið að lokum upp 30 l meðfram hægri kanti á SÓLFJÖÐUR 2c (séð frá réttu) = 61 l á prjóni.

SÓLFJÖÐUR 1E:
Prjónið upp 30 l meðfram vinstri kanti (séð frá réttu) á síðustu sólfjöðrinni í röð 2, að auki er prjónuð upp 1 l í horni efst á SÓLFJÖÐUR 1B = 31 l á prjóni. Prjónið nú eins og SÓLFJÖÐUR 1B en frá umf 2 (þ.e.a.s. byrjið með sl frá röngu).

SÓLFJÖÐUR 2E:
Prjónið upp 1 l í horni efst á SÓLFJÖÐUR 2B, prjónið nú upp 30 l meðfram hægri kanti á SÓLFJÖÐUR 1C (séð frá réttu) = 31 l á prjóni. Prjónið nú eins og SÓLFJÖÐUR 2B en frá umf 2 (þ.e.a.s. byrjið með sl frá röngu).
Þriðja röðin með sólfjöðrum hefur nú verið prjónuð.

SÓLFJÖÐUR 1F:
Prjónið upp 30 l meðfram vinstri kanti á SÓLFJÖÐUR 2E (séð frá réttu, prjónið upp 1 l í horni efst á SÓLFJÖÐUR 1C og prjónið síðan upp 30 l meðfram hægri kanti á SÓLFJÖÐUR 1D (séð frá réttu) = 61 l á prjóni. Prjónið nú eins og SÓLFJÖÐUR 1A en frá umf 2 (þ.e.a.s. byrjið með sl frá röngu).

Prjónið SÓLFJÖÐUR 2F, 3F, 4F o.s.frv alveg eins – sjá staðsetningu í mynstri A.1.
Fjórða röðin með sólfjöðrum hefur nú verið prjónuð.

Nú er prjónaður aflíðandi kantur með hálfum hringjum sem réttir af línuna efst uppi – meðfram þessum kanti eru síðar prjónaðar upp l fyrir berustykki.

HÁLFUR HRINGUR Á MILLI SÓLFJAÐRA (SÓLFJÖÐUR 1G, 2G, 3G o.s.frv):
Prjónið upp frá réttu, 61 l meðfram kanti á milli 2 sólfjaðra – þ.e.a.s. prjónið upp 1 l í hverri rönd í garðaprjóni og ca 1 l í hverri hálfri umf + 1 l mitt á milli tveggja sólfjaðra í horni efst á sólfjöður frá umf undir.
Prjónið nú þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slét.
UMFERÐ 3. Prjónið slétt.
UMFERÐ 4: * Prjónið 3 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið með 1 l sl = 49l.
UMFERÐ 5: Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 49 l.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt.
UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 49 l.
UMFERÐ 8-14: Prjónið slétt.
UMFERÐ 15 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 49 l.
UMFERÐ 16-17: Prjónið slétt.
UMFERÐ 18: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið með 1 l sl = 25 l.
UMFERÐ 19-25: Prjónið slétt.
UMFERÐ 26: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið með 1 l sl = 13 l.
UMFERÐ 27: Prjónið slétt.
UMFERÐ 28: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið með 1 l sl = 7 l.
UMFERÐ 29: Prjónið slétt.
UMFERÐ 30: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið með 1 l sl = 4 l.
UMFERÐ 31: Prjónið slétt.
UMFERÐ 32: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 3 l slétt saman og steypið óprjónuðu l yfir = 1 l.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum l, herðið að og festið.

HÁLFUR HRINGUR YST Á VINSTRA Á FRAMSTYKKI – SÓLFJÖÐUR 1H:
Prjónið upp 30 l meðfram vinstri kanti (séð frá réttu) á síðustu sólfjöðrinni í röð 4, að auki er prjónuð upp 1 l í horni efst á SÓLFJÖÐUR 1E = 31 l á prjóni. Prjónið nú þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: Prjónið slétt.
UMFERÐ 4: * Prjónið 3 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið með 1 l sl = 25 l.
UMFERÐ 5: Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 25 l.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt.
UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 25 l.
UMFERÐ 8-14: Prjónið slétt.
UMFERÐ 15: (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* út umf = 25 l.
UMFERÐ 16-17: Prjónið slétt.
UMFERÐ 18: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið með 1 l sl = 13 l.
UMFERÐ 19-25: Prjónið slétt.
UMFERÐ 26: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið með 1 l sl = 7 l.
UMFERÐ 27-29: Prjónið slétt.
UMFERÐ 30: Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 þar til 1 l er eftir, endið með 1 l sl = 4 l.
UMFERÐ 31: Prjónið slétt.
UMFERÐ 32: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 3 l slétt saman og steypið óprjónuðu l yfir = 1 l.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum l og festið.

HÁLFUR HRINGUR YST Á HÆGRI HLIÐ Á FRAMSTYKKI – SÓLFJÖÐUR 2H:
Prjónið upp 1 l í horni efst á SÓLFJÖÐUR 2e, prjónið síðan upp 30 l meðfram hægri kanti á SÓLFJÖÐUR 1F (séð frá réttu) = 31 l á prjóni. Prjónið nú eins og SÓLFJÖÐUR 1H.

Fimmta og síðasta röndin með sólfjöður og hálfum hringjum hefur nú verið prjónuð.
Peysan mælist nú ca 93-93-111-111-130-130 cm meðfram beina kantinum efst og ca 38 cm frá neðri brún og upp þar sem hún er lengst.

BERUSTYKKI:
Prjónið upp frá réttu 194-194-236-236-274-274 l á hringprjóna nr 4 með Delight, meðfram beina kantinum efst á sólfjaðrastykkinu – prjónið upp ca 1 l í hverja l (ef prjónaðar eru upp fleiri eða færri l en þetta, verður að fækka/fjölga að réttum lykkjufjölda í 1. umf frá röngu).
Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 26-10-34-14-30-6 l jafnt yfir = 168-184-202-222-244-268 l. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið alls 4-8-12-12-12-12 umf í garðaprjóni eftir sólfjaðrir (stykkið mælist nú ca 39-40-41-41-41-41 cm frá neðri kanti þar sem peysan er lengst). Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 38-44-48-52-58-64 l jafnt yfir = 130-140-154-170-186-204 l. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónamerki 33-35-39-43-47-51 l inn frá hvorri hlið (= 64-70-76-84-92-102 l á milli prjónamerkja á bakstykki).
Nú skiptist stykkið við bæði prjónamerkin og fram- og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 64-70-76-84-92-102 l.
LESIÐ ALLAN KAFNALL ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.2 (umf 1 = rétta) JAFNFRAMT í umf 1 er fitjuð upp 1 ný l í hvorri hlið (= kantlykkja fyrir saum) = 66-72-78-86-94-104 l (kantlykkjurnar eru prjónaðar í garðaprjóni). Í næstu umf frá réttu byrjar útaukning fyrir ermar og fitjaðar eru upp 2 nýjar l í lok næstu 2 umf. Endurtakið útaukningu með 2 l í lok hverrar umf í hvorri hlið 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 útaukningar í hvorri hlið), fitjið síðan upp 20-20-20-18-18-16 l í lok næstu 2 umf = 122-128-134-138-146-152 l. ATH: Útauknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Eftir síðustu útaukningu er haldið áfram með mynstur eins og áður en síðustu 5 l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur á ermum). Þegar stykkið mælist 24-25-26-28-30-32 cm frá prjónamerki við skiptingu eru l í byrjun hverrar umf í hvorri hlið settar á þráð fyrir aflíðandi öxl þannig: Setjið inn 5 l alls 3 sinnum á þráðinn á hvorri hlið (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn til þess að sleppa við að klippa þráðinn frá) og setjið að lokum 33-35-37-39-43-45 l á þráðinn 1 sinni í hvorri hlið – ATH: 1. l á vinstri prjón eftir að l hafa verið settar á þráð er tekin óprjónuð, herðið á þræði og prjónið áfram. Þetta er gert til þess að koma í veg fyrir stór göt í skiptingunum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 25-26-27-29-31-33 cm frá prjónamerki við skiptingu eru felldar af miðju 22-24-26-26-26-28 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 2 l í næstu umf frá hálsmáli. Þegar allar l hafa verið felldar af fyrir hálsmáli og settar á þráð fyrir aflíðandi öxl mælist stykkið ca 27-28-29-31-33-35 cm frá prjónamerki við skiptingu og upp að öxl þar sem stykkið er lengst og ca 66-68-70-72-74-76 cm frá neðri kanti þar sem stykkið er lengst.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 33-35-39-43-47-51 l.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið nú mynstur eftir A.2 (1. umf = rétta) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið JAFNFRAMT í 1. umf er fitjuð upp 1 ný l í lok umf í hlið (= kantlykkja fyrir saum) = 34-36-40-44-48-52 l. Í næstu umf frá réttu byrjar útaukning fyrir ermi og fitjaðar eru upp nýjar l í lok hverra umf frá réttu eins og á bakstykki = 62-64-68-70-74-76 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju við miðju að framan í garðaprjóni og 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hlið (= kantur á ermi). Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-26-28 cm frá prjónamerki við skiptingu (peysan mælist ca 60-62-64-65-67-69 cm frá neðri kanti þar sem peysan er lengst), setjið síðustu 6-6-8-8-8-8 l á þráð fyrir hálsmál (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn). Fellið nú af fyrir hálsmáli í hverri umf við miðju að framan þannig: 2 l 3 sinnum og 1 l 2 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 24-25-26-28-30-32 cm – stillið af eftir bakstykki, setjið l á þráð fyrir aflíðandi öxl frá hlið eins og á bakstykki. Þegar allar l hafa verið felldar af fyrir hálsmáli og settar á þráð mælist stykkið ca 27-28-29-31-33-35 frá prjónamerki við skiptingu og upp að öxl og ca 66-68-70-72-74-76 cm frá kanti að neðan þar sem stykkið er lengst.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd, þ.e.a.s. að 1. umf er prjónuð frá réttu en fitjið upp 1 nýja l í byrjun á 1. umf (í stað í lok 1. umf = kantlykkja fyrir saum) og fitjið upp nýja l fyrir ermi í lok hverrar umf frá röngu (í stað hverrar umf frá réttu).

FRÁGANGUR:
Setjið 48-50-52-54-58-60 l af þræði frá einu axlarstykki á hringprjóna nr 4 og prjónið þannig: Prjónið 1 umf slétt frá réttu – ATH: Til þess að koma í veg fyrir göt í skiptingunum þar sem l voru settar á þráð er þráðurinn tekinn upp á milli 2 l í skiptingunni og prjónað slétt saman með 1. l á vinstri prjóni. Fellið laust af allar l í næstu umf með sl frá röngu. Endurtakið eins á hinum axlarstykkjunum.
Saumið axlarsauma innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. Saumið erma- og hliðasauma í eitt innan við 1 kantlykkju.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 5 l á prjóna nr 3,5 með Delight.
Prjónið 1 umf slétt (= rétta) og snúið við. Næsta umf er prjónuð (frá röngu) þannig: Takið upp síðustu l í garðaprjóni efst við hálsmálið á vinstra framstykki (með rönguna að þér), prjónið fyrstu l á vinstri prjóni, steypið nýju l frá vinstra framstykki yfir þessa l og prjónið sl út umf, snúið við, prjónið 1 umf slétt yfir allar l, snúið við. Prjónið nú þannig: * Takið upp næstu l í garðaprjóni sem er síðust á vinstra framstykki (með rönguna að þér), prjónið fyrstu l á vinstri prjóni, steypið nýju l yfir þessa l og prjónið sl út umf, snúið við, prjónið 1 umf slétt yfir allar l, snúið við *, endurtakið þessar 2 umf frá *-* þar til prjónuð hefur verið upp 1 l í ca hverja l í garðaprjóni meðfram öllum framkantinum á peysunni.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið á sama hátt og vinstri kantur að framan með byrjun neðst á hægra framstykki (með rönguna að þér). Fellið að auki af fyrir 3-3-3-3-4-4 hnappagötum í hægri kanti að framan (fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í hálsmáli). Fellið af fyrir 1 hnappagat þannig: Prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið uppá prjóninn. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sólfjaðra og gatamynsturs, það efsta er staðsett ca 7-7-8-8-7-7 cm frá hálsmáli. Þau 1-1-1-1-2-2 hnappagöt sem eftir eru eru staðsett jafnt yfir á milli efsta og neðsta hnappagats.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu ca 94 til 116 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði að framan og prjónaðar eru einnig upp l yfir kant að framan) á hringprjóna nr 3,5 með Delight. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf í garðaprjóni er fellt af fyrir síðasta hnappagatinu yfir hinum hnappagötunum í hægri kanti að framan. Prjónið nú áfram þar til hálsmálið mælist ca 2 cm og fellið nú laust af með sl frá röngu. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 01.03.2013
HÁLF SÓLFJÖÐUR Á HÆGRI HLIÐ Á FRAMSTYKKI – SÓLFJÖÐUR 2B:
Fitjið upp 31 l og prjónið eins og sólfjöður 1B nema spegilmynd (þ.e.a.s. í umf 3-11-19-27-35-43-49-55 og 61 er mynstrið lesið aftur á bak...

Mynstur

symbols = br frá röngu
symbols = uppsláttur á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 148-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (83)

country flag Stephanie wrote:

Bonjour il est dit pour 'biaiser les épaules glisser 3 fois 5 m en attente et glisser 1 fois 33-35-37-39-43-45 m de chaque côté en attente' puis lors de l'assemblage, de 'Reprendre les 48-50-52-54-58-60 m d'une épaule ...' . quel est l’intérêt de 'diviser' la mise en attente si c'est pour reprendre au total les 48-50-52-54-58-60 m d'une épaule , pourquoi ne pas avoir mis directement 48-50-52-54-58-60 m en attente ?

20.03.2017 - 11:43

DROPS Design answered:

Bonjour Stéphanie, on forme le biais de l'épaule en tricotant des rangs raccourcis puis on tricote ensuite 1 rang endroit sur toutes les mailles et on rabat sur l'envers (cf assemblage), vous pouvez faire ceci à la fin de chaque épaule si vous ne voulez pas mettre les mailles en attente, au choix. Bon tricot!

20.03.2017 - 13:27

country flag Stephanie wrote:

Ok, mais si je regarde la suite, ces 37 m je suis sensé les mettre en attente pour biaiser les manches et donc il ne me reste plus de maille pour continuer mon epaule

01.03.2017 - 09:33

DROPS Design answered:

Bonjour Stéphanie, les 37 m en attente sont les mêmes que celles que vous avez pour le dos + les 3 x 5 m mises en attente = 52 m comme pour chaque épaule/manche du dos, ces 52 m de chaque épaule seront ensuite reprises l'une après l'autre, cf ASSEMBLAGE. Bon tricot!

01.03.2017 - 10:06

country flag Stéphanie wrote:

Bonjour, Je fait actuellement le devant droit du gilet. Après les augmentations j'ai bien mes 68 m ( L). A 23 cm je dois glisser 8m en attente (Reste 60m). Ensuite je dois rabattre pour l'encolure 3 fois 2m et 2 fois 1m. Faut-il faire ça à chaque rang, ou le premier rang 2 m puis le rang suivant 2 m etc. De plus faut-il biaiser les épaules comme le dos c'est à dire 3 * 5 mailles + 37 m, ça ne fait plus beaucoup de m arrivé en haut de l'épaule . Merci pour les infos.

28.02.2017 - 20:20

DROPS Design answered:

Bonjour Stéphanie, vous avez 68 m, mettez 8 m en attente pour l'encolure et rabattez pour l'encolure (3 x 2 m + 2 x 1 m = 8 m), il reste 52 m. Pour l'épaule, mettez en attente 3 x 5 m = 15 m. Il reste 52-15 = 37 m pour l'épaule.

01.03.2017 - 08:38

country flag Stéphanie wrote:

Bonjour, il est écrit "Tricoter maintenant une bordure de finitions composée de demi-cercles pour que cette bordure soit droite – on relève ensuite les mailles de l'empiècement le long de cette bordure." Est-il possible d'avoir plus d'infos ou peut-être une video de cette bordure de finitions composée de demi-cercles ? Merci.

01.12.2016 - 12:08

DROPS Design answered:

Bonjour Stéphanie, ces demi-cercles sont décrits juste en dessous cette phrase soit pour les demi-cercles 1G,2G,3G, etc + demi-cercle 1H + 2 H. Suivez bien les explications écrites en même temps que la position de chacun de ces demi-cercles sur le schéma. Bon tricot!

01.12.2016 - 13:09

country flag Sylvia Karlsson wrote:

Fråga. Jag förstår inte hur jag skall sticka ihop solfjädrarna visa hu jag skall göra Tack

28.01.2016 - 09:23

DROPS Design answered:

Hej Sylvia, Jo det gør du ved at følge VIFTE 1C. God fornøjelse!

09.03.2016 - 15:37

country flag Angelica wrote:

Jag fattar inte. Ska jag bara lägga upp 5 maskor på framst? Det blir ju jättekonstigt. 5 maskor på 21cm? Är det något som är fel?

04.04.2014 - 12:41

DROPS Design answered:

Hur långt har du kommit i beskrivningen? Det är bara på kanten du stickar på till sist, att du skall lägga upp 5 m, som du stickar ihop med framst.

08.04.2014 - 09:51

country flag Angelica wrote:

Jag fattar inte. Ska jag bara lägga upp 5 maskor på framst? Det blir ju jättekonstigt. 5 maskor på 21cm? Är det något som är fel?

04.04.2014 - 12:40

DROPS Design answered:

Hej Angelica. Dette er et ret langt mönster, saa kan du sige hvor du praecis er i mönstret, saa skal jeg pröve at hjaelpe dig videre. Tak ;-)

08.04.2014 - 13:17

Roz wrote:

زیباوجالب: اماسخت برای بافتن

10.04.2013 - 08:03

country flag Ilvajoh wrote:

Dank je wel, weer wat geleerd!

15.03.2013 - 10:42

country flag Ilvajoh wrote:

Hallo, een vraagje over de schoudernaad: "zet 5 steken op een hulpnaald doe dit 3 keer maar brei de steken eerst om de draad niet te hoeven knippen zet daarna 35 steken op een hulpnaald dan afkanten voor de hals" waarom kan ik de 50 steken niet in een keer op een hulpnaald zetten nadat ik ze heb gebreid??? Alvast bedankt.

12.03.2013 - 10:28

DROPS Design answered:

Omdat u zo een schuine schouder/mouw krijgt. U zet 5 st op een hulpdraad, breit heen en weer, zet weer 5 st op een hulpdraad, breit heen en weer... enz. Zo wordt de zijkant minder hoog.

15.03.2013 - 09:19