DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Siri

Prjónaður bolero úr DROPS Big Delight í garðaprjóni, gatamynstri og stuttum umferðum. Stærð S - XXXL

DROPS 148-38
DROPS Design: Mynstur nr db-010
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - M/L - XL - XXL/ XXXL

Efni:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio
400-400-500-500 gr litur nr 01, rósargarður

DROPS PRJÓNAR NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 33 umf með garðaprjóni eða 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR 1:
UMFERÐ 1-13: Prjónið sl frá réttu, sl frá röngu.
UMFERÐ 14: Prjónið br frá röngu.
UMFERÐ 15: Prjónið 1 l sl, * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* og endið með 1 l sl.
UMFERÐ 16: Prjónið br frá röngu.
Endurtakið þessar 16 umf.

MYNSTUR 2 - SNÚNINGAR:
UMFERÐ 1: Prjónið sl frá réttu.
UMFERÐ 2: Prjónið br frá röngu.
UMFERÐ 3 : Prjónið 1 l sl, * 2 l slétt saman, sláið 1 siniuppá prjóninn *, endurtakið frá *-* og endið með 1 l sl.
UMFERÐ 4: Prjónið br frá röngu.
UMFERÐ 5: Prjónið sl frá réttu.
UMFERÐ 6: Prjónið sl frá röngu.
Prjónið styttri umf frá réttu þannig:
UMFERÐ 7-8: Prjónið sl yfir fyrstu 8-9-10-12 l, snúið við og prjónið sl til baka.
UMFERÐ 9-10: Prjónið sl yfir fyrstu 16-18-21-24 l, snúið við og prjónið sl til baka.
UMFERÐ 11-12: Prjónið sl yfir fyrstu 24-27-32-36 l, snúið við og prjónið sl til baka.
UMFERÐ 13-14: Prjónið sl yfir fyrstu 33-36-43-48 l, snúið við og prjónið sl til baka.
UMFERÐ 15-16: Prjónið sl yfir allar l, snúið við og prjónið sl til baka.
Endurtakið þessar 16 umf.

MÆLING:
Allar lengdir á kantstykki eru gerðar meðfram stystu hliðinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð í 3 stykkjum. Prjónuð eru 2 kantstykki sem eru prjónuð frá miðju að aftan á baki og upp að miðju að aftan við hnakka.
Þessi stykki eru saumuð saman í hring og saumuð síðan að bakstykki – sjá X.1.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 57-63-69-75 l á prjóna nr 5 með Big Delight. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 16 cm = 61-67-73-79 l. Þegar stykkið mælist 22-22-24-24 cm eru felldar af miðju 23-25-27-31 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 18-20-22-23 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 24-24-26-26 cm.

HÆGRA KANTSTYKKI:
Fitjið upp 39-41-43-46 l á prjóna nr 5 með Big Delight. Prjónið MYNSTUR-1. Þegar stykkið mælist 10 cm eru prjónaðar 2 l í fyrstu l frá réttu. Endurtakið útaukningu með 4-4-2-2 umf millibili 2-4-10-13 sinnum til viðbótar (alls 3-5-11-14 útaukningar) = 42-46-54-60 l. Þegar stykkið mælist 17-19-21-22 cm (passið uppá að næsta umf er umf 13 í MYNSTUR-1) prjónið eftir MYNSTUR-2 með byrjun frá réttu. Haldið áfram með MYNSTUR-2 og snúningar þar til stykkið mælist 29-32-35-37 cm – LESIÐ MÆLING, endið eftir heila mynstureiningu með snúningum. Prjónið nú yfir allar l og eftir MYNSTUR-1.
JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í stærð M/L – XL – XXL/XXXL (lykkjum er ekki fækkað í stærð S/M): Fellið af 1-1-1 l í byrjun umferðar með 4-2-2 umf millibili í hægri hlið (frá réttu) alls 2-6-10 sinnum = 42-44-48-50 l. Þegar stykkið mælist 45-48-51-53 cm fellið af síðustu 18-20-22-23 l á vinstri hlið fyrir öxl (fellt er af í byrjun umf frá röngu, prjónið út umf) = 24-24-26-27 l eftir fyrir hálsmáli. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Prjónið garðaprjón yfir allar l, JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir með byrjun frá réttu þannig: * Prjónið 2 umf fram og til baka yfir fyrstu 12-12-11-11 l, 2 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-*. Fellið af þegar kanturinn mælist 8-8-9-10 cm (mælt frá styttri hlið).

VINSTRA KANTSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra kantstykki, nema spegilmynd: Stuttar umferðir eru prjónaðir (1. umf = ranga) þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið br frá röngu.
UMFERÐ 2: Prjónið 1 l sl, * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* og endið með 1 l sl.
UMFERÐ 3: Prjónið br frá röngu.
UMFERÐ 4: Prjónið sl frá réttu.
UMFERÐ 5: Prjónið sl frá röngu.
UMFERÐ 6: Prjónið sl frá réttu.
Prjónið styttri umf og garðaprjón þannig:
UMFERÐ 7-8: Prjóni sl yfir fyrstu 8-9-10-12 l, snúið við og prjóni sl til baka.
UMFERÐ 9-10: Prjónið sl yfir fyrstu 16-18-21-24 l, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 11-12: Prjónið sl yfir fyrstu 24-27-32-36 l, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 13-14: Prjónið sl yfir fyrstu 33-36-43-48 l, snúið við og prjónið til baka.
UMFERÐ 15-16: Prjónið sl yfir allar l, snúið við og prjónið sl til baka.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 40-40-44-48 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 5 með Big Delight. Prjónið garðaprjón í 3 cm, prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með 2,5 cm millibili 17-17-18-16 sinnum til viðbótar (alls 18-18-19-17 sinnum) = 76-76-82-82 l. Þegar stykkið mælist 54 cm í öllum stærðum er fellt af 3 l í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þar til ermin mælist 57 cm. Fellið nú af þær l sem eftir eru.

FRÁGANGUR:
Sjá mynsturteikningu X.1. Saumið saman kantstykki að neðan (E að E) og saumið saman við háls (D að D). Festið kantstykki við bakstykki með því að sauma saman axlarsauma (C að C) og kantstykki að neðri- og efri kant við bakstykki (G að G) og (F að F). Saumið saman sauma undri ermi innan við 1 kantlykkju og saumið ermar í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 14.06.2013
MYNSTUR 1:
UMFERÐ 15: Prjónið 1 l sl, * 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* og endið með 1 l sl.

Mynstur

diagram measurements
diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 148-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (42)

country flag IRÉNE BJÖRKEROTH wrote:

Fråga till mönstret Siri: under Mättips skriver ni att längdmått på kantstyckena görs "längs den kortaste sidan" . Den är ju böjd, ska jag låta måttbandet följa böjningen eller ska jag lägga en linjal rak från stickan ner till uppläggningskanten? Tack för svar.

05.02.2024 - 11:24

DROPS Design answered:

Hei Irene. Ville ha latt måttbandet följa böjningen. mvh DROPS Design

12.02.2024 - 13:59

country flag Esther Klijnsma wrote:

Extra clarification to my questions : it is the sewing together of parts E that i am struggling with, how to get that right in grafting stitch

23.05.2023 - 17:40

DROPS Design answered:

Dear Mrs Klijnsma, you can sew cast-on edges together using this technique; we also have another video showing 2 techniques on how to work garster stitch edges together; see it here. Happy assembly!

24.05.2023 - 08:12

country flag Esther wrote:

I've finished knitting and want to start sewing together. But i can't find any tutorial on how to sew together grafting stitches when it is the top or the bottom in this case: the only instruction videos are for kitchener (which are for stocking stitch, and leaves a big flat part in the middle if i do that) or for sewing together the side parts in grafting stitch, which is not the case here. Help would be appreciated, don't like how messy it ends up with what i've tried so far.

23.05.2023 - 17:38

DROPS Design answered:

Hi Esther, Here is a link to a tutorial using grafting stitches for a seam. https://www.garnstudio.com/video.php?id=1737&lang=en Happy crafting!

24.05.2023 - 06:56

country flag Helle Andersen wrote:

Hej. Jeg vil rigtig gerne strikke denne lækre bolero. Men jeg vil gerne gøre den 10 cm længere bagpå, men kan desværre ikke gennemskue hvor det er jeg skal tillægge de 10 cm. Håber I kan hjælpe mig

28.12.2019 - 17:36

DROPS Design answered:

Hej Helle, da skal du eventuelt slå flere masker op i kanten, vi kan desværre ikke hjælpe dig med at regne den om. God fornøjelse!

31.01.2020 - 11:35

country flag Mona Ting wrote:

" AT THE SAME TIME dec as follows in size M/L- XL- XXL/XXXL (no dec in size S/M): 1-1-1 st at the beg of every 4th-2nd-2nd row in the right side (from RS) a total of 2-6-10 times = 42-44-48-50 sts. " Can you tell me which side is the right side?

10.11.2019 - 06:43

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ting, the right side of the piece is the side where you worked the very first row after casting on= the side where you started to work the first row in Pattern-1 and -2, and this is also the side where you increased earlier (increased started when piece measures 10 cm). Happy knitting!

11.11.2019 - 10:45

country flag Coraline wrote:

Merci . C’est la 1ere fois que je travaille cette laine et pour faire un noeud quand je change de pelote je n’arrive pas à appliquer les mêmes méthodes que pour les autres laines car celle ci se déchire en plein de fibres .. comment est ce que je peux changer de pelote avec une telle laine sans risque que tout se défasse ?

20.06.2019 - 19:20

DROPS Design answered:

Bonjour Coraline, il existe différentes techniques pour changer de pelote, comme par exemple: le joint russe, en joignant les deux extrémités , en faisant un double noeud, entre autres. Bon tricot!

21.06.2019 - 06:52

country flag Coraline wrote:

Merci . Est ce qu’il faudra tricoter un échantillon en jersey + un échantillon en point mousse ? Ou c’est l’un ou l’autre ? Merci beaucoup

20.06.2019 - 13:31

DROPS Design answered:

Bonjour Coraline, comme on donne les deux pour ce modèle, vous pouvez tricoter les 2, le nombre de mailles reste le même, mais le nombre de rangs sera différent. Bon tricot!

20.06.2019 - 14:15

country flag Coraline wrote:

Bonjour , si la taille S/M est trop grande pour moi est ce que je peux utiliser des aiguilles numéro 4 et respecter le modèle ensuite ? Merci beaucoup

19.06.2019 - 15:50

DROPS Design answered:

Bonjour Coraline, si vous n'avez pas l'échantillon et adaptez les aiguilles pour un échantillon différent, la texture risque également d'être différente, plus "dense" - demandez plutôt conseil à votre magasin (même par mail ou téléphone) pour adapter un modèle ou bien essayez de trouver un modèle plus facilement adaptable à votre taille. Bon tricot!

20.06.2019 - 08:25

Helen Ace wrote:

Hello, I have a ball of your yarn - Drops Big Delight 100% wool Colour 14 Dyelot 1115 - that I bought a couple of years ago. I would like to buy more of the yarn and knit this pattern. Do you still stock this wool and can I purchase it on-line? I have done some knitting in the past but not for some time - is this pattern suitable for a rusty and not very experienced knitter? Thank you for your help Helen Ace

13.10.2017 - 16:14

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ace, you will find here the list of DROPS retailer (change your country if necessary) where you can still get this yarn in this colour. Read thoroughly the pattern, and should you have any question, feel free to ask them here. For any individual assistance, your DROPS store will help you, even per mail or telephone. Happy knitting!

16.10.2017 - 08:58

country flag Isabelle wrote:

Merci pour votre réponse! Je vais faire cela

20.02.2016 - 13:48