DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5280.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Blue Glass

Prjónuð peysa frá DROPS Paris. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-34
DROPS Design: Mynstur w-865
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
750-850-900-1000-1100-1200 g litur 102, spray blár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5280.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermi):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg, síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig til loka máls. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 180-198-210-228-252-276 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Paris.
Prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 2 cm, prjónið A.2 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 18-20-20-22-22-26 lykkjur jafnt yfir = 162-178-190-206-230-250 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 81-89-95-103-115-125 lykkjur (í hliðum á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.

Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 6-6-6-8-8-10 cm, prjónið næstu umferð þannig: 8-12-9-13-13-12 lykkjur sléttprjón, A.3A, A.3B er prjónað alls 4-4-5-5-6-7 sinnum, A.3C, sléttprjón út umferðina.
Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar stykkið mælist 34-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrir handvegi – stillið af að næsta umferð sé oddatala í mynsturteikningu og fellið af þannig: Byrjið 4-4-4-6-6-8 lykkjum á undan prjónamerki í byrjun á umferð, fellið af 8-8-8-12-12-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til eftir eru 4-4-4-6-6-8 lykkjur á undan næsta prjónamerki, fellið af 8-8-8-12-12-16 lykkjur fyrir handveg og prjónið sléttprjón út umferðina.
Setjið 73-81-87-91-103-109 lykkjur á framstykki á þráð eða hjálparprjón og prjónið bakstykkið eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
= 73-81-87-91-103-109 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 23-25-25-27-29-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð fyrir hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 21-24-27-28-33-36 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið þar til stykkið mælist 53-54-56-58-60-62 cm. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 73-81-87-91-103-109 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu).
Þegar A.3 hefur verið prjónað alls 4½ sinnum á hæðina – endið eftir 12. umferð í mynsturteikningu, prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 48-48-49-51-52-54 cm (ca 1-2-2-2-3-3 cm sléttprjón eftir áferðamynstur). Í næstu umferð eru miðju 19-21-21-23-25-25 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 21-24-27-28-33-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 53-54-56-58-60-62 cm. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 63-66-66-69-69-72 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 með DROPS Paris. Prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 6 cm, prjónið A.2 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 13-14-14-15-13-14 lykkjur jafnt yfir = 50-52-52-54-56-58 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.
Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 10-10-10-10-12-12 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6-5-4½-4-3-2½ cm millibili alls 7-8-9-9-10-11 sinnum = 64-68-70-72-76-80 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 49-48-48-45-43-41 cm. Setjið lykkjur á hringprjón 5 og prjónið sléttprjón fram og til baka frá miðju undir ermi, þar til ermin mælist 51-50-50-49-47-46 cm, þ.e.a.s. það er klauf ca 2-2-2-4-4-5 cm efst á ermi. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.
Saumið ermakúpu við handveg innan við ystu lykkju á framstykki/bakstykki. Síðan er klaufin efst á ermi saumuð við botninn á handvegi – sjá teikningu.

KANTUR Í HÁLSMÁLI.
Byrjið við öxl og prjónið upp frá réttu ca 81 til 99 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan og deilanlegt með 3) á stuttan hringprjón 4. Prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur í 4 cm. Fellið aðeins laust af.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, stingið hægri prjóni aftan frá á milli 2 lykkja á kaðlaprjóni og prjónið vinstri lykkju slétt, ekki lyfta lykkjunni af prjóni, prjónið hægri lykkju slétt þannig að þessi verði liggjandi á ská yfir hinar tvær lykkjurnar og lyftið báðum lykkjum af vinstri prjóni
symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Patty Walk wrote:

I do not like the look of the baggy cuff for the sleeve of this sweater. Could I cast on less stitches to make it not look so baggy? The number to cast on has to be divisible by three, correct?

15.12.2023 - 07:06

DROPS Design answered:

Dear Mrs Walk, correct, the number of stitches to cast on has to be divisible by 3, you can adjust that way to the desire circumference. Happy knitting!

15.12.2023 - 08:31

country flag Patty Walk wrote:

Good morning, On the body of the sweater it says to work A2 over all stitches. When A2 has been completed in height.......does this mean I do the 5 rows of A2 from the diagram once then continue on ? Thank you

29.10.2023 - 06:37

DROPS Design answered:

Dear Patty, when A.2 has been completed in height means that you have worked all 5 rounds of A.2. So, after the 5 round, on the next round, continue as indicated in the pattern. Happy knitting!

29.10.2023 - 20:08

country flag Dorthe Kolster wrote:

Forklaring på ændring af pindestørrelse under strikkefasthed er forkert- der er byttet rundt på større og mindre pinde….

27.06.2023 - 08:59

country flag Noa wrote:

Hello can i use drops nepal?

25.02.2023 - 02:55

DROPS Design answered:

Hi, yes, DROPS Nepal will work very good with this pattern. Happy knitting!

25.02.2023 - 10:41

country flag Sylvie Lachance wrote:

Diagramme A.3A, au premier rang: est ce qu'il existe une vidéo pour expliquer quoi faire avec les 3 mailles en torsade? Aussi, je dois vraiment laisser tomber 2 mailles de l'aiguille dans ma main gauche? Comment puis-je garder un motif à 10 mailles de cette façon, en laissant tomber 2 m? Ça va faire des trous?

13.10.2022 - 00:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lachance, au 1er rang de A.3 vous allez tricoter les 2 dernières m de A.3A avec la 1ère de A.3B, les 2 dernières de A.3B avec la 1ère m du A.3B suivant/de A.3C; mettez 2 m sur l'aiguille auxiliaire devant l'ouvrage, tricotez 1 maille endroit, tricotez ensuite les mailles de l'aiguille à torsades en commençant par la 2ème puis la 1ère - comme dans cette vidéo, 2ème torsade au time code 1:03. Bon tricot!

13.10.2022 - 09:22

country flag Mark Cameron wrote:

Can someone tell me why the sleeves are transferred from DPN to circular? I don't understand the sleeve cap instruction. Why can't it just continue on DPNs?

22.09.2022 - 13:21

DROPS Design answered:

Dear Mrs Cameron, the sleeve cap is worked back and forth reason why stitches are transfered from DPN to circular needle, but you can also keep them on the DPN and continue back and forth - this video might help you; we show there how to work the sleeve cap on DPN in the round then how to sew sleeve onto armhole. Happy knitting!

23.09.2022 - 07:59

country flag Claudia Wächtler wrote:

Hallo liebes Drops Team Ich möchte mich ganz lieb bei Euch bedanken.Ihr habt mir immer geholfen wenn ich nicht weiter wußte.Bin sehr froh darüber.Kaufe seit Jahren Wolle von Drops und sehr zufrieden. Liebe Grüße Claudia

24.06.2022 - 10:38

country flag Claudia wrote:

Hallo Wie ist das gemeint 4Maschen vor dem Markierungsfaden.Ich habe das Vorderteil ,die erste Masche bis zur 81 Masche die letzte.Das sind die Maschen mit Diagramm.Da die 4Maschen abketten.Das Rückenteil sind nur rechte Maschen .Danke für eure Hilfe\r\n\r\nClaudia

24.06.2022 - 07:25

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, die letzte gerade Reihe in Diagram stricken Sie bis 4 Maschen vor der Rundebeginn übrig sind, dann ketten Sie Maschen für die Armausschnitte so ab: die 4 M vor der Markierung (= die 4 letzten Maschen der Runde) + die 4 ersten Maschen nach der Markierung, dann stricken Sie wie zuvor bis 4 Maschen vor der nächsten Markierung übrig sind, und ketten die nächsten 8 Maschen für den 2. Armausschnitt ab, und dann bis zur Ende der Runde stricken. Viel Spaß beim stricken!

24.06.2022 - 09:05

country flag Claudia wrote:

Hallo Habe eine Frage an Sie.Ich kenne normales Zopfmuster zu Stricken aber das verstehe ich garnicht.Können Sie mir bitte ganz einfach erklären wie den Zopf mit 3Maschen Stricken soll.2Maschen auf eine Zopfnadel vor die Arbeit legen,1Masche rechts die rechte Nadel von hinten zwischen die 2Maschen auf der Zopfnadel stechen u.s.w.Ich verstehe dies nicht so richtig

10.05.2022 - 23:23

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, dieses Zopf stricken Sie so, daß die erste dieser 3 Maschen wird am Ende gestrickt und liegt vor den 2 anderen: die 2 M legen Sie auf die Zopfnadel vor die Arbeit, stricken Sie die nächste Masche rechts, dann stricken Sie die 2 Maschen auf der Zopfnadel aber zuerst die 2. dann die 1. wie man die 2 Maschen in diesem Video (time code 0:38) strickt. Viel Spaß beim stricken!

11.05.2022 - 08:33

country flag Willy wrote:

Plaats 2 steken op een kabelnaald en houd deze voor het werk, 1 recht, voeg de rechter naald vanaf de achterkant in tussen de 2 steken op de kabelnaald en brei de linker steek, laat de steek niet van de naald af glijden, brei dan de rechter steek zodat hij diagonaal over de andere 2 steken ligt en laat beide steken van de linker naald af glijden Kunt u dit beter uitleggen?

08.05.2022 - 19:31