DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

New Land Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri, tvöföldum kanti í hálsmáli og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 232-10
DROPS Design: Mynstur vs-081
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-500-550-600 g litur 25, skógarbrúnn

DROPS TALA NR 629: 5-5-6-6-6-6 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið 2 síðustu lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli hefur verið prjónað til loka. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 10-10½-9-9-9½-9½ cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 131-131-131-159-159-165 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Belle.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 20-20-20-24-24-26 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir ystu 6 lykkjur í hvorri hlið) = 111-111-111-135-135-139 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka með 1 lykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 3 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni (uppábrot). Haldið áfram í sléttprjóni og með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 3 cm frá uppábroti.
Setjið 1 prjónamerki eftir 6 ystu lykkjur við miðju að framan. Prjónið berustykkið eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4.
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (byrjið við ör í þinni stærð), A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12-12-12-16-16-16 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2, A.3 (byrjið við ör í þinni stærð), A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12-12-12-16-16-16 lykkjur í sléttprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn A.2, A.4 (byrjið við ör í þinni stærð) og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Nú hefur verið aukið út fyrir laskalínu 1 sinni og það eru 119-119-119-143-143-147 lykkjur í umferð.
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu alveg eins í hverri umferð frá réttu, þ.e.a.s. á framstykki og bakstykki er aukið út fyrir laskalínu með uppslætti eins og útskýrt er í A.1, A.3 og A.4. Á ermum er aukið út fyrir lasklaínu með 1 uppslætti hvoru megin við lykkjur í sléttprjóni (uppslátturinn á ermum er prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar A.1, A.3 og A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina, hefur verið aukið út fyrir laskalínu alls 19-19-19-15-15-14 sinnum á hæðina og það eru 263-263-263-255-255-251 lykkjur í umferð.
Haldið áfram svona með mynstur (mynstrið endurtekur sig eins og útskýrt er í A.1, A.3 og A.4), útaukningar fyrir laskalínu heldur áfram þannig:
STÆRÐ S - M - L - XL:
Ermar, framstykki og bakstykki: aukið út alveg eins og áður 8-8-16-16 sinnum til viðbótar (alls 27-27-35-31 sinnum á hæðina).
STÆRÐ XXL - XXXL:
Framstykki/bakstykki: aukið út alveg eins og áður 24-32 sinnum til viðbótar (alls 39-46 sinnum á hæðina).
Ermar: aukið út alveg eins og áður í annarri hverri umferð 13-14 sinnum til viðbótar, síðan í 4. hverri umferð 6-9 sinnum (alls 34-37 sinnum á hæðina).

Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 327-327-391-383-427-471 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.5 í stað A.1, A.3 og A.4. Að auki skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. Lestu MYNSTUR og SKIPTING áður en þú prjónar áfram.

MYNSTUR:
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.5A, prjónið A.5B alls 2-2-3-3-4-5 sinnum, A.5C, A.2, 66-66-82-78-84-90 lykkjur sléttprjón, A.2, A.5D, prjónið A.5B alls 5-5-7-7-9-11 sinnum, A.5C, A.2, 66-66-82-78-84-90 lykkjur sléttprjón, A.2, A.5D, prjónið A.5B alls 2-2-3-3-4-5 sinnum, A.5E og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.

SKIPTING:
Þegar stykkið mælist ca 20-22-25-25-28-33 cm frá prjónamerkið við hálsmál (útaukningar fyrir laskalínu eiga nú að vera loknar og þú verður að hafa prjónað minnst 1 umferð mynstur eins og útskýrt er að ofan), skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 52-52-60-60-68-76 lykkjur eins og áður, setjið næstu 66-66-82-78-84-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-10-6-12-12-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 91-91-107-107-123-139 lykkjur eins og áður, setjið næstu 66-66-82-78-84-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-10-6-12-12-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 52-52-60-60-68-76 lykkjur eins og áður.
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Stykkið er nú mælt héðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 203-215-239-251-283-311 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 54-57-63-66-74-81 lykkjur inn frá hvorri hlið (það eru 95-101-113-119-135-149 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki – prjónamerkin sitja mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – þau eru notuð þegar auka á út.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður – þær 4-10-6-12-12-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6-6-6-6-6-5 cm millibili alls 3 sinnum = 215-227-251-263-295-323 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist ca 23-23-22-23-22-19 cm frá skiptingu, en stillið af að prjónaðar hafa verið minnst 5 umferðir sléttprjón eftir umferð með gati.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 54-56-62-66-74-80 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 269-283-313-329-369-403 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 66-66-82-78-84-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-10-6-12-12-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 70-76-88-90-96-100 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-10-6-12-12-10 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – það er notað þegar fækka á lykkjum.
Byrjið umferð við prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 3-3-2-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 4-4-2½-2-2-1 cm millibili alls 3-3-4-4-4-4 sinnum = 64-70-80-82-88-92 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 15-14-12-11-9-6 cm frá skiptingu. Nú á að prjóna tvöfaldan kant alveg eins og í hálsmáli.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-12-16-12-12-10 lykkjur jafnt yfir = 54-58-64-70-76-82 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið sléttprjón hringinn í 3 cm.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* í kringum ermi (uppábrot). Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 3 cm frá uppábroti. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og fellið aðeins laust af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori.
Brjótið inn kantinn neðst á ermum að röngu og saumið niður alveg eins.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (það eiga að myndast göt)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = sýnir 1 mynstureiningu á hæðina og hvernig götin eru staðsett yfir hvert annað
symbols = byrjið hér í þinni stærð
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Elizabeth Hayes wrote:

Thank you once again for your quick and helpful response. I really appreciate that you offer this service.

20.03.2024 - 21:29

country flag Elizabeth Hayes wrote:

In the yoke instructions, there is a yarn over before and after the stocking stitches. Are those yarn overs worked on the right side and on the wrong side or only on the right side?

20.03.2024 - 19:15

DROPS Design answered:

Dear Elizabeth, those yarnovers are done on the RS rows only. Happy Knitting!

20.03.2024 - 21:26

country flag Elizabeth Hayes wrote:

Thank you so much for your quick and helpful response. I didn't realize that "A.5" referred to the whole set of A.5 patterns.

18.03.2024 - 22:42

country flag Elizabeth Hayes wrote:

In the yoke section, last paragraph, second sentence, it says to work A.5. I see diagrams for A.5A through A.5E, but not for A.5. I'm making size small. Which diagram should I use?

18.03.2024 - 20:02

DROPS Design answered:

Dear Elizabeth, for exact explanation of how to knit the A.5 pattern, please see the next paragraph (the next to the one you are referring to) under the title PATTERN. It tells you in detail in what order should be the parts of the A.5 (A.5A-A.5E) knitted. Happy Knitting! (6 band stitches in garter stitch, A.5A, work A.5B 2-2-3-3-4-5 times in total, A.5C, A.2, 66-66-82-78-84-90 stitches in stocking stitch, A.2, A.5D, work A.5B 5-5-7-7-9-11 times in total, A.5C, A.2, 66-66-82-78-84-90 stitches in stocking stitch, A.2, A.5D, work A.5B 2-2-3-3-4-5 times in total, A.5E, and 6 band stitches in garter stitch. )

18.03.2024 - 20:26

country flag Heidi Flamsholt wrote:

Jeg er kun nået til bærestykket, og har strikket den 1. række efter diagram A1, 2, 3 og 4. Nu skal jeg så strikke fra vrang siden, og ifølge jeres forklaring, skal jeg strikke efter diagrammerne omvendt, altså først A4 osv.. Det stemmer så ikke med maskerne, idet jeg pludselig har for mange???Jeg har 119 masker efter den 1 række mønster.

18.08.2023 - 22:23

country flag Ann Vials wrote:

Where do I find the size guide for this pattern please?

14.05.2023 - 12:06

DROPS Design answered:

Dear Ann, this model is worked in sizes: S - M - L - XL - XXL - XXXL. Below the pattern instructions, you can find a measurement schematic which include the measurements in cm of different parts of the garment. For example, the measurements of the jacket's bust (multiply by 2 for the whole bust) is 45cm for the smallest size, 48 for size M, e.t.c. Check the following lesson for more information: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=24&cid=19. Happy knitting!

14.05.2023 - 17:43

country flag Amal wrote:

Thank you for the beautiful pattern. I made this in the beige and now I’m working on the pink one. I love the yarn but I’m having a difficult time maintaining tension. Do you have any tips on how to knit this without having so many uneven stitches? Thank you

24.06.2022 - 05:00

DROPS Design answered:

Dear Amal, you may try different kind of needles, either you work with wood or metal, this can influence the way you are working and the tension - but sometimes blocking/washing just help to smooth irregular stitches. Your yarn store might have even more ideas/advices to share with you. Happy knitting!

24.06.2022 - 08:58

country flag Ulrike wrote:

Ich würde das Modell "Sommerabend" nennen

16.01.2022 - 20:31