Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu |
|
= brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu |
|
= sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið | |
= prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman |
|
= setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni | |
= táknið hefur 2 merkingar: Þegar prjónað er í hring: Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman. Þegar prjónað er fram og til baka: Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman frá röngu. |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Rippling Roses |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með köðlum og klukkuprjónsmynstri úr DROPS Air. Stærð S – XXXL.
DROPS 218-15 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur eins og áður (prjónamerkið situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp. Lykkjum er fækkað fyrir handveg, þar skiptist stykkið og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/hringprjón. Að lokum er prjónaður upp kantur í hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 178-186-202-230-246-282 lykkjur á hringprjón 5,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan mynstur þannig: A.1 yfir fyrstu 7-9-13-5-9-3 lykkjur, * A.2 (= 10 lykkjur), A.3 (= lykkjur) *, prjónið frá *-* 4-4-4-6-6-8 sinnum, A.2, prjónið A.1 yfir næstu 19-23-31-15-23-11 lykkjur, * A.2 (= 10 lykkjur), A.3 (= 5 lykkjur) *, prjónið *-* 4-4-4-6-6-8 sinnum, A.2, A.1 yfir síðustu 12-14-18-10-14-8 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur, þegar 2 fyrstu umferðir í A.1 og A.3 hefur verið prjónað, endurtakið A.1a og A.3a. Prjónið þar til stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm frá uppfitjunarkanti. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 84-88-96-110-118-136 lykkjur, fellið af næstu 5-5-5-5-5-5 lykkjur, prjónið næstu 84-88-96-110-118-136 lykkjur, fellið af síðustu 5-5-5-5-5-5 lykkjur. Héðan er nú framstykki og bakstykki prjónað hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 84-88-96-110-118-136 lykkjur. Haldið áfram með A.1, A.2 og A.3 eins og áður, en með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Setjið miðju 16-18-18-20-20-22 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli (passið uppá að lykkjur séu prjónaðar frá röngu áður en þær eru settar á þráð) og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af í byrjun á hverri umferð við háls þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 3 sinnum = 29-30-34-40-44-52 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm (= 19-20-21-22-23-24 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. BAKSTYKKI: = 84-88-96-110-118-136. Haldið áfram með A.1, A.2 og A.3 eins og áður, en með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Haldið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Setjið miðju 24-26-26-28-28-30 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli (passið uppá að lykkjurnar séu prjónaðar frá röngu áður en þær eru settar á þráð) og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju við háls = 29-30-34-40-44-52 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm (= 19-20-21-22-23-24 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. ERMI: Fitjið upp 50-52-54-56-58-60 lykkjur á sokkaprjóna 4,5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.4 yfir allar lykkjur. Þegar 2 fyrstu umferðir í A.4 hafa verið prjónaðar, endurtakið A.4a. Haldið áfram svona með mynstur þar til stykkið mælist 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6 lykkjur jafnt yfir = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 5,5. Prjónið 1 umferð með sléttum lykkjum. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm frá uppfitjunarkanti, byrjar úrtaukning mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 5½-5-4½-4-3½-3 cm millibili alls 8-9-10-10-11-12 sinnum = 60-64-68-70-74-78 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 53-52-51-49-48-45 cm. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 64 til 84 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þráðum) á stuttan hringprjón 4,5. Passið uppá að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 2. Prjónið A.4a yfir allar lykkjur, en í fyrstu umferð eru lykkjurnar prjónaðar sem teknar voru upp á milli þráða án uppsláttar, JAFNFRAMT er fækkað um1 lykkju í kaðli í A.2 frá þráðum með því að prjóna 3. og 4. lykkju í kaðli slétt saman. ATH! Passið uppá að A.4a passi við lykkjur sem settar voru á þráð, þannig að klukkuprjónslykkjurnar halda áfram upp í kanti í hálsi. Jafnið e.t.v. lykkjufjöldann út á milli þráða! Haldið svona áfram með mynstur þar til kantur í hálsmáli mælist 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. FRÁGANGUR: Brjótið kant í hálsmáli saman tvöfalt frá röngu og saumið affellingarkantinn að þar sem lykkjur voru prjónaðar upp í kanti í hálsmáli, þ.e.a.s. kantur í hálsmáli mælist ca 5cm. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju á framstykki/bakstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6921 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (6)
Agnieszka Janicka wrote:
Czy Zamykanie 5 oczek przy rozdzielaniu przodu i tylko, wychodzi na srodku wzoru A.1a?
10.08.2022 - 10:21DROPS Design answered:
Witaj Agnieszko, dokładnie tak jest. Miłej pracy!
10.08.2022 - 21:42Hanneke wrote:
Als ik naar de foto kijk zie ik langs de mouwaanzet slechts één patentsteek. Als ik dan ga rekenen kom ik op maximaal 74 steken uit ( 5x A2 + 4x A3 + aan weerszijde A4a). Dit klopt niet met de beschrijving. Dan zouden er met 84 steken op het voorpand nl 7 steken in patentsteek aan elke kant moeten zijn. Klopt de beschrijving dan wel?
13.11.2021 - 13:42Ursula wrote:
Ich stricke gerade an dem Model und weiss nicht wo ich die Laenge des Pullovers messen soll. Das Patentmuster ist um 2cm kuerzer als das Zopfmuster, wo messe ich die richtige Laenge? Vielen Dank im vorraus fuer Ihre Antwort, Ursula
07.05.2021 - 09:06DROPS Design answered:
Liebe Ursula, messen Sie von der Anschlagskante, dh die längere Länge. Viel Spaß beim stricken!
07.05.2021 - 12:49Kristina Silfver wrote:
Hej, Nu har jag stickat ett varv rätt och sen första varvet enligt mönstret (med en hel massa omslag , som ju blir en maska) därför består ju andra varvet av mönsterstickningen väldigt många fler maskor än vad första varvet gör. Eller hur? Så när det står "sticka A.1 över de sista 12 maskorna (eftersom jag stickar storlek small) så är det ju inte 12 maskor kvar utan 42 maskor. Vad gör jag för fel?
18.02.2021 - 16:53Susanne wrote:
Als geübte Strickerin,habe ich mich mit der Anleitung und dem Mustersatz A1 / A3 ziemlich schwer getan. Warum schreiben sie nicht gleich Vollpatent stricken. Die Anleitung ist sehr unverständlich obwohl sie einfach ist.
05.01.2021 - 20:27Evelyne wrote:
Dans les rangs pairs quand on tricote en rond, comment doit on tricoter la derniere maille de A3 avant de commencer A2? Si on termine par glisser une maille à l'envers, le fil est tiré devant le travail et ca ne parait pas tres joli. Merci de bien vouloir m'aider à tricoter ce joli pull.
28.08.2020 - 00:22DROPS Design answered:
Bonjour Evelyne, A.3 se tricote sur 5 mailles et la dernière maille est "1 jeté, glissez 1 m à l'env" - si vous devez tricotez ensuite une maille envers, veillez à ce que le fil forme bien un jeté au-dessus de la maille glissée avant de le remettre devant et tricoter votre maille envers. Si la dernière maille de A.3 vous paraît trop lâche, serrez davantage votre fil au moment de tricoter cette maille avant A.2. Vous pouvez vous entraîner sur un échantillon et laver votre échantillon, bien souvent les mailles se mettent ensuite en place après le premier lavage (qui peut servir de blocage). Bon tricot!
28.08.2020 - 08:20