DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Alpenglow

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli og axlarsæti. Stærð S - XXXL.

DROPS 218-12
DROPS Design: Mynstur z-913
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-350-350-400-450 g litur 9024, dökk blush
og noti:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-125-125-150-150-150 g litur 31, malva

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Marble NR 629: 6-6-7-7-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 91 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 81 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 19) = 4,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftri ca 4. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti og ermar):
AUKIÐ ÚT Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG:
Nýja lykkjan veður snúin til hægri.
Prjónið fram að prjónamerki, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann þegar aukið er út fyrir axlarsæti / brugðið í fremri lykkjubogann þegar aukið er út fyrir ermi, færið prjónamerki á hægri prjón.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Prjónið fram að prjónamerki, færið prjónamerkið yfir á hægri prjón, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja sem prjónaðar voru í umferðinn að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann þegar aukið er út fyrir axlarsæti / brugðið í aftari lykkjubogann þegar aukið er út fyrir ermi.

ÚTAUKNING-3 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá röngu!
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur brugðið (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerkið).
Í næstu umferð (rétta) prjónið uppsláttinn snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið 2 lykkjur brugðið (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur snúið brugðið saman (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka (þ.e.a.s. í skiptinguna á milli kants í hálsmáli og berustykki). Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca 9-9½-8-8½-7½-8 cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður.
Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermar.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón ofan frá og niður.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 91-93-95-101-105-111 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 9 cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 19-25-23-33-37-43 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 110-118-118-134-142-154 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og 5 ystu lykkjurnar í hvorri hlið eru prjónaðar slétt = kantar að framan).
Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Setjið 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert til án þess að prjóna lykkjurnar. Það á að nota þessi prjónamerki þegar lykkjum er aukið út fyrir axlarsæti og ermi og prjónamerkin verða að hafa annan lit en prjónamerki í hálsmáli til að skilja þau að frá hverju öðru.
Byrji mitt að framan, teljið 12-14-14-16-18-21 lykkjur (= framstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 36-36-36-40-40-40 lykkjur (= öxl), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 14-18-18-22-26-32 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 36-36-36-40-40-40 lykkjur (= öxl), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 12-14-14-16-18-21 lykkjur eftir á framstykki á eftir síðasta prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það er aukið út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum.

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Lestu allan kaflann áður en þú prjónar!
Stykkið er prjónað í sléttprjóni á bakstykki og framstykki með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og A.1 yfir 36-36-36-40-40-40 lykkjur á hvorri öxl (þ.e.a.s. á milli 1. og 2. prjónamerkis og á milli 3. og 4. prjónamerkis) – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út um 1 lykkju á UNDAN 1. og 3. prjónamerki (þ.e.a.s. á undan A.1) og aukið út um 1 lykkju á EFTIR 2. og 4. prjónamerki (þ.e.a.s. á eftir A.1) – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Munið eftir að nú á bara á auka út á bakstykki og framstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami.
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út á sama hátt í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) alls 18-20-22-24-26-28 sinnum = 182-198-206-230-246-266 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 8-9-10-11-12-13 cm frá prjónamerki við háls. Aukið síðan út lykkjur fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING Á ERMUM:
Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu fyrir axlarsæti þannig að þau sitji hvoru megin við miðju 18-18-18-22-22-22 lykkjur í A.1 á hvorri öxl – sjá A.1.
Haldið áfram í sléttprjóni, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og A.1 á milli 1. og 2. prjónamerkis og á milli 3. og 4. prjónamerkis.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út fyrir ermar þannig:
Aukið út um 1 lykkju á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á UNDAN 2. og 4. prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri). Munið eftir a nú er bara aukið út á ermum og A.1 fjölgar, en lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki verður sá sami.
Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 16-18-20-20-20-22 sinnum = 246-270-286-310-326-354 lykkjur.
Stykkið mælist ca 15-16-18-18-18-20 cm frá þar sem útaukning fyrir ermar byrjaði.
Prjónið áfram eins og áður, en án útaukningar þar til stykkið mælist 15-17-18-19-19-20 cm frá þar sem útaukning fyrir ermar byrjaði. Stykkið mælist nú ca 23-26-28-30-31-33 cm frá prjónamerki við háls.
Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 39-43-45-49-53-58 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 50-54-58-62-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 68-76-80-88-96-106 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 50-54-58-62-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 39-43-45-49-53-58 lykkjur eins og áður (= framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 158-174-186-206-226-246 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 42-46-49-54-59-64 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 74-82-88-98-108-118 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki.
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu – það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan.
Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-3 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 3 sinnum á hæðina = 170-186-198-218-238-258 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 23-22-22-21-22-22 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 35-37-39-43-47-51 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING-1 = 205-223-237-261-285-309 lykkjur. ATH: Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjónast, dragi stykkið saman.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 50-54-58-62-62-66 lykkjur frá öðrum þræðinum í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-60-66-72-74-78 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið brugðið hringinn.
Þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-2-2-2-2 cm millibili alls 3-4-6-7-7-7 sinnum á hæðina = 50-52-54-58-60-64 lykkjur eftir.
Prjónið síðan án úrtöku þar til ermin mælist 37-35-33-32-32-30 cm frá skiptingu.
Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu.
Prjónið 2 umferðir slétt og aukið jafnframt út um 10-10-10-12-12-12 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 60-62-64-70-72-76 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 40-38-36-35-35-33 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið stroffið inn efst í hálsmáli tvöfalt að röngu á stykki. Saumið stroffið niður, en til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði of stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið (það eiga að myndast göt)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = prjónstefna
symbols = ör merkir hvar á að setja prjónamerki sem merkir útaukningu á ermi - þessi merki eru sett eftir að útaukning fyrir axlarsæti hefur verið gerð til loka
symbols = útaukning fyrir axlarsæti
symbols = útaukning fyrir ermar
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Gertrud Stiefler wrote:

Hej, farven i mønstret er #9024 og hedder mørk blush, men farven #9024 blandt nøglerne hedder gammelrosa. Hvilket skal det være? Venlig hilsen, Gertrud

24.11.2020 - 13:04

DROPS Design answered:

Hei Gjertrud. Fargen heter mørk blush og har fargenr. 9024. Det hender at fargenavn forandrer seg over tid, men fargenr skal alltid være det samme. mvh DROPS design

24.11.2020 - 13:34

country flag Dorothee Pühs wrote:

Hallo liebes Team, ich würde dieses Modell gerne mit doppeltem Faden stricken, damit es dicker und währmer ist, das die ältere Dame für die es ist kaum Eigenwährme produziert. wieviel Garn würde ich für Größe 42-44 gebrauchen. Ich bedanke mich im Voraus für ihre Antwort. DorotheePühs

15.11.2020 - 18:32

DROPS Design answered:

Liebe Frau Pühs, benutzen Sie unseren Garnumrechner um die unterschiedlichen Alternative zu Alpaca und Kid-Silk zu finden - hier lesen Sie mehr über Garnalternative - Ihr DROPS Laden wird Ihnen (auch telefonisch oder per E-Mail) damit gerne weiterhelfen, die beste Alternative zu finden. Viel Spaß beim stricken!

16.11.2020 - 09:13

country flag MJ wrote:

FOUND A CORRECTION TO MAKE. On the BODY, the pattern says: "Work until piece measures 23-22-22-21-22-22 cm = 9”-8 3/4”-8 3/4”-8 1/4”-8 3/4”-8 3/4” from division. Approx. 3 cm = 1 178” 3 cm is 1.18"

10.11.2020 - 19:12

DROPS Design answered:

Dear MJ, thanks for your feedback, pattern will be edited. Happy knitting!

11.11.2020 - 08:36

country flag Ann Lindén wrote:

Såå vacker! Härlig färg som visas här och lite utmaning med det fina mönstret

23.10.2020 - 12:35