DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Baby Business

Peysa fyrir börn með hringlaga berustykki og áferðamynstri, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS BabyMerino. Stærð fyrirburar til 2 ára.

DROPS Baby 33-19
DROPS Design: Mynstur bm-093-by
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

STÆRÐ: (<0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
(40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92)

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
(100) 100-100-150-150 (150) g litur 43, ljós sægrænn

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 60.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 60 cm fyrir kant í garðaprjóni.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 515: 5 stykki í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 68 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 4,8.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ekki er aukið út yfir kanta að framan.

ÚTAUKNING-2:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Í fyrsta skipti sem aukið er út er slegið 1 sinni uppá prjóninn í byrjun einingar í garðaprjóni. Í næsta skipti sem aukið er út er slegið 1 sinni uppá prjóninn í lok einingar í garðaprjóni. Haldið svona áfram með því að auka til skiptis út í byrjun og í lok einingar með garðaprjóni.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar stykkið er mátað). 1 hnappagat = Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir kanti í hálsmáli.
Fellið síðan af fyrir 4 næstu hnappagötum með ca (3) 4-4½ 5-5½-(6) cm millibili á eftir hverju hnappagati.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðu að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp (68) 72-78-82-84 (86) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 2,5 með Baby Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um (12) 17-17-19-20 (21) lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 og fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = (80) 89-95-101-104 (107) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja sléttprjón, * 2 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón *, prjónið frá *-* yfir næstu 69-78-84-90-93-96 lykkjur (= 23-26-28-30-31-32 sinnum), endið með 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm er aukið út um 1 lykkju í hverri einingu í garðaprjóni (ekki yfir kanta að framan), aukið svona út með (3) 3-3½ -3-3 (3½) cm millibili alls (3) 3-3-4-4 (4) sinnum – sjá ÚTAUKNING-2 = (149) 167-179-221-228 (235) lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Haldið áfram þar til stykkið mælist (9) 9-10-11-12 (13) cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu með mynstri eins og áður, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til (158) 182-198-214-226 (238) lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu með mynstri eins og áður.

Næsta umferð er prjónuð í sléttprjóni með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þannig: Prjónið (25) 28-31-33-35 (37) lykkjur (= framstykki), setjið næstu (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið (40) 46-52-56-60 (64) lykkjur (= bakstykki), setjið næstu (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp (4) 4-6-6-8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær (25) 28-31-33-35 (37) lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= (98) 110-126-134-146 (154) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist (7) 11-14-15-17 (19) cm frá skiptingu skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Skiptið til baka yfir á hringprjón 3. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca (20) 24-28-30-33 (36) cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið (34) 40-42-46-48 (50) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af (4) 4-6-6-8 (8) lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = (38) 44-48-52-56 (58) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í (4) 4-6-6-8 (8) lykkjur undir ermi og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með (3) 2-2-1½-1½ (1½) cm millibili alls (2) 4-6-7-9 (9) sinnum = (34) 36-36-38-38 (40) lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist (7) 11-14-15-18 (19) cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á sokkaprjóna 3 og fellið laust af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca (8) 12-15-16-19 (20) cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Baby Business

Elena, Brazil

Baby Business

Franmade, Italy

Baby Business

Franmade, Italy

Baby Business

Cindy, Sweden

b33-19 Baby business

Yuliya, Spain

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Christa Clemens wrote:

Bei diesem Modell soll in Größe 6/9 Monate nach den Zunahmen bei der Passe die Maschenzahl angepasst werden, von 221 Maschen auf 214 Maschen. Kann das sein? Bei den anderen Größen erhöht sich die Maschenzahl.

10.01.2024 - 18:54

DROPS Design answered:

Liebe Frau Clemens, ja genau so stimmt es, so erreicht man die gewünschten Maßen. Viel Spaß beim stricken !

11.01.2024 - 07:45

country flag Claudia Bostyn wrote:

Liebes Drops Team Ich stricke die Babyjacke in Größe 3 (also 1-3 Monate). Nach den Zunahmen an der Passe befinden sich in dieser Größe 179 Maschen auf der Nadel, die ich bis zu einer Länge von 9 cm weiter stricken soll. In der vorletzten Reihe der Passe soll man die Maschenzahl so "anpassen", dass sich danach 198 Maschen auf der Nadel befinden. Bedeutet dass, dass ich in der vorletzten Reihe gleichmäßig verteilt 19 Maschen zunehmen muss? Ich würde mich über eine Antwort freuen.

05.09.2023 - 19:00

DROPS Design answered:

Liebe Frau Bostyn, in Größe 3 stricken Sie die 179 Maschen der Passe bis die Arbeit 10 cm misst (9 cm nur in die 2 ersten Größen), dann ja genau soll man regelmäßig verteilt 19 Maschen zunehmen (nicht über die Blenden-Maschen zunehmen) - siehe diese Lektion. Viel Spaß beim stricken!

06.09.2023 - 08:59

country flag Johanna wrote:

Vielen Dank für die tollen Anleitungen. In der Passe heißt es: 2cm stricken, dann zunehmen, dann alle 3,5cm zunehmen. Muss ich also von den 2cm aus 3,5cm stricken (also bei Gr. 56/62 Zunahme bei 2cm, 5,5cm und 9cm), oder von den 2cm aus nur BIS 3,5cm (also Zunahme bei 2cm, 3,5cm und 7cm)?

29.06.2023 - 10:50

DROPS Design answered:

Liebe Johanna, in Gr 56/62 nehmen Sie bei 2 cm, bei 5,5 cm (2 + 3,5 cm) und bei 9,5 cm (5,5 + 3,5) zu. Viel Spaß beim stricken!

29.06.2023 - 12:56

country flag Kerstin Seiffge wrote:

Hallo liebes Team. Ich möchte das Jäckchen in Krausrippe am Rumpf und Armen weiter stricken. Muss ich dazu auch zusätzlich Maschen anschlagen oder reichen die Maschen nach Beendigung der Passe aus? Lg und vielen Dank.

02.12.2022 - 09:43

DROPS Design answered:

Liebe Frau Seiffge, je nach der Größe sollen Sie mal schauen, ob Sie genügend Maschen haben, oder ob Sie einige mehr brauchen, damit das Muster alle Maschen passt. Viel Spaß beim stricken!

02.12.2022 - 11:47

country flag Martina Mailänder wrote:

Besten Dank für die schnelle Antwort :-)

01.12.2022 - 21:50

country flag Martina Mailänder wrote:

Hallo liebes Team, ich habe schon einige Modelle gestrickt und kam beim öfteren Durchlesen auch klar mit den Beschreibungen. Doch hier hänge ich schon am Anfang der Passe: Die Hinreihe: Blende kraus rechts (5M), dann *2 M kraus rechts, 1 M glatt rechts* usw. Das bedeutet für mich, wieder eine Reihe rechts stricken und in der Rückreihe dann kraus rechts und linke Maschen. Oder habe ich da etwas falsch verstanden? Ich bin dankbar für jeden Tipp. Viele Grüße Martina

01.12.2022 - 15:16

DROPS Design answered:

Liebe Frau Mailänder, bei den Rückreihen stricken Sie die 2 Maschen kraus rechts als rechte Maschen und die glatt rechte Maschen stricken Sie links, so haben Sie: bei der Rückreihe: 5 M kraus rechts, 1 M links, 2 M rechts ... Viel Spaß beim stricken!

01.12.2022 - 17:30

country flag Linda Pontard wrote:

Bonjour, quand on fait c'est augmentations [augmenter ainsi (3) 3-3-4-4 (4) fois au total tous les (3) 3-3½ -3-3- (3½) cm - voir AUGMENTATIONS-2 = (149) 167-179-221-228 (235) mailles.] faut'il faire: 1 m.jersey,1 augmentation mousse,2 point mousse,1 augmentation mousse, 1 jersey . ou juste augmenter 1 maille après la maille jersey seulement. je vous remercie pour votre aide . merci

17.08.2022 - 14:52

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pontard, augmentez la 1ère fois ainsi *1 jeté, 2 m point mousse, 1 m jersey* (vous avez ainsi 3 m point mousse, 1 m jersey); la fois suivante augmentez ainsi: *3 m point mousse, 1 jeté, 1 m jersey* (vous avez ainsi, 4 m point mousse, 1 m jersey). Et continuez ainsi en augmentant alternativement au début et à la fin des sections en point mousse. Bon tricot!

18.08.2022 - 08:54

country flag Marie Gidlund wrote:

Är det tänkt att man på rätsidan enbart stickar räta maskor i denna beskrivning: 1 maska slätstickning, * 2 maskor rätstickning, 1 maska slätstickning *, sticka *-* över de nästa 69-78-84-90-93-96 maskorna (= 23-26-28-30-31-32 gånger), avsluta med 5 framkantsmaskor i rätstickning. Sedan på avigsidan gör man slätstickningen avig , alltså var 3:e maska avig? Eller ska det på rätsidan stickas var 3:e maska avig?

27.03.2022 - 12:13

DROPS Design answered:

Hej Marie. Ja det stämmer att du endast stickar räta maskor på rätsidan här. På avigsidan stickar du avigmaskor där det är slätstickning (dvs på var 3:e maska). Detta skapar det mönster du ser på bilden. Mvh DROPS Design

30.03.2022 - 09:23

country flag Kristine wrote:

Fejl i opskrift? Der mangler masker, når opskrift følges til str. 6 mdr. Her skal du afslutte bærestykket med at fjerne 7 masker, så du ender på 214, men når du så følger angivelserne for for- og bagstykke og ærmemasker, så mangler der altså 10 masker til sidste del af forstykket. Har I måske lavet en fejl ift. antal masker, der skal fordeles til de enkelte stykker?

12.03.2022 - 20:21

country flag Inge Sprunck wrote:

Hallo, ich stricke sehr gerne nach Ihren Anleitungen und verändere die Farben oder Größen nach Vorliebe und Bedarf. In die obige Anleitung hat sich aber leider ein Fehler unter " Zunahmetipp 2" eingeschlichen. Es heißt dort: ...abwechselnd am Anfang und am Ende des kraus rechten Bereichs abnehmen." Es muss aber heißen: zunehmen! Vielen Dank für Ihre tollen Anleitungen!

02.03.2022 - 17:42