DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Little Brother Jacket

Prjónuð peysa fyrir börn með laskalínu og röndum úr DROPS Baby Merino. Stærð fyrirburar – 4 ára.

DROPS Baby 33-32
DROPS Design: Mynstur bm-107-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: (<0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
(40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
(100) 100-150-150-200 (200-200) g litur 43, ljós sægrænn
(50) 50-50-50-50 (50-50) g litur 37, ljós lavender

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm eða 60 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm eða 60 cm fyrir garðaprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Hringlaga (blár) NR 621: (5) 5-6-6-7 (7-8) st

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING (á við ermar):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= alls 2 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt.

LASKALÍNA (á við um peysu):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum svona við hvert prjónamerki (= 2 lykkjur færri við hvert prjónamerki og alls 8 lykkjur færri í umferð).

RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI, stærð (<0) 0/1 - 1/3 mánaða:
4 umferðir ljós sægrænn
2 umferðir ljós lavender
2 umferðir ljós sægrænn
2 umferðir ljós lavender
Prjónið með ljós sægrænn i 3-6-8 cm
2 umferðir ljós lavender
2 umferðir ljós sægrænn
2 umferðir ljós lavender

RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI, stærð 6/9 – 12/18 mánaða (2-3/4) ára:
4 umferðir ljós sægrænn
2 umferðir ljós lavender
4 umferðir ljós sægrænn
4 umferðir ljós lavender
2 umferðir ljós sægrænn
4 umferðir ljós lavender
Prjónið með ljós sægrænn i 5-6 (8-10) cm
4 umferðir ljós lavender
2 umferðir ljós sægrænn
2 umferðir ljós lavender

RENDUR ERMAR, stærð (<0) 0/1 - 1/3 mánaða:
3 umferðir ljós sægrænn
2 umferðir ljós lavender
2 umferðir ljós sægrænn
4 umferðir ljós lavender
Prjónið með ljós sægrænn i 2 ½-6-7½ cm
2 umferðir ljós lavender
2 umferðir ljós sægrænn
2 umferðir ljós lavender

RENDUR ERMAR, stærð 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára:
5 umferðir ljós sægrænn
2 umferðir ljós lavender
4 umferðir ljós sægrænn
4 umferðir ljós lavender
2 umferðir ljós sægrænn
4 umferðir ljós lavender
Prjónið með ljós sægrænn i 6- 8½ (11-15) cm
2 umferðir ljós lavender
2 umferðir ljós sægrænn
2 umferðir ljós lavender.

RENDUR BERUSTYKKI (allar stærðir):
Prjónið með ljós sægrænn í (3) 3-4 4-4 (5-6) cm
2 umferðir ljós lavender
2 umferðir ljós sægrænn
2 umferðir ljós lavender
Prjónið með ljós sægrænn til loka.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Fram- og bakstykki er fyrst prjónað fram og til baka. Síðan eru ermar prjónaðar í hring á sokkaprjóna áður en fram- og bakstykki og ermar eru sett saman og prjónað er áfram fram og til baka.
Kantur að framan er prjónaður á og kantur í hálsmáli er prjónaður í lokin.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp (90) 102-118-126-138 (146-162) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki, þarna á að taka upp lykkjur fyrir kant að framan síðar) á hringprjóna 2,5 með litnum ljós sægrænn. Prjónið GARÐAPRJÓN yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist (2) 2-3-3-3 (4-4) cm. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið áfram í sléttprjóni og RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið á stykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (10) 13-16-17-18 (21-23) cm fellið af lykkjur fyrir handveg í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, (19) 22-25-27-30 (32-36) lykkjur sléttprjón (= hægra framstykki), fellið af næstu (6) 6-8-8-8 (8-8) lykkjur, prjónið (38) 44-50-54-60 (64-72) lykkjur sléttprjón (= bakstykki), fellið af næstu (6) 6-8-8-8 (8-8) lykkjur, prjónið (19) 22-25-27-30 (32-36) lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju garðaprjón (= vinstra framstykki) = (78) 90-102-110-122 (130-146) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring.
Fitjið upp (36) 36-36-36-40 (40-44) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með ljós sægrænn. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar garðaprjón mælist (2) 2-3-3-3 (4-4) cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 3, setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi) og prjónið sléttprjón og RENDUR ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með (2) 1½-1½-1-1 (1½-1½) cm millibili alls (3) 6-8-11-11 (13-14) sinnum = (42) 48-52-58-62 (66-72) lykkjur.
Þegar stykkið mælist (9½) 13-15½-17-19½ (23-27) cm, fellið af fyrstu og síðustu (3) 3-4-4-4 (4-4) lykkjur (= alls (6) 6-8-8-8 (8-8) lykkjur færri) = (36) 42-44-50-54 (58-64) lykkjur.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur eru felldar af fyrir handveg = (150) 174-190-210-230 (246-274) lykkjur. Stykkið er prjónað í sléttprjóni og RENDUR BERUSTYKKI – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í fyrstu umferð eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig, umferðin er prjónuð frá röngu: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, (22) 25-28-31-34 (36-40) lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki, (30) 36-38-42-46 (50-56) lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki, (44) 50-56-62-68 (72-80) lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki, (30) 36-38-42-46 (50-56) lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki og endið með (22) 25-28-31-34 (36-40) lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja garðaprjón. Prjónið (3) 0-0-0-0 (0-0) umferðir sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið á stykki.
Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir laskalínu hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá LASKALÍNA! Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu (= í annarri hverri umferð) alls (8) 11-12-14-16 (18-21) sinnum = (86) 86-94-98-102 (102-106) lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um (10) 10-10-14-14 (14-14) lykkjur jafnt yfir = (76) 76-84-84-88 (88-92) lykkjur.
Látið lykkjurnar hvíla á hringprjóninum, nú á að prjóna kant að framan á hvort framstykki, síðan á að prjóna kant í hálsmáli yfir þessar lykkjur.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Prjónið upp (42) 58-68-74-78 (88-98) lykkjur frá réttu innan við 1 kantlykkju garðaprjón mitt að framan á hringprjón 2,5 með litnum ljós sægrænn. Prjónið garðaprjón. Þegar kantur að framan mælist ca 2 cm, eru allar lykkjur felldar af, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið eins og vinstri kantur að framan, en fellið af fyrir (4) 4-5-5-6 (6-7) hnappagötum jafnt yfir þegar kantur að framan mælist ca 1 cm (það á að fella síðar af fyrir 1 hnappagati í kanti í hálsmáli þannig að fyrsta hnappagatið á kanti að framan er fellt af ca 3-4 cm niður frá hálsmáli. Gerið hnappagötin með ca 4-6 cm millibili. Setjið gjarna prjónamerki á undan hnappagati jafnt yfir kant að framan áður en þú prjónar umferðirnar með affellingu fyrir hnappagötum). 1 hnappagat = 2 lykkjur slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp 5 lykkjur í hvorn af köntum að framan í hvorri hlið á stykki innan við 1 lykkju með litnum ljós sægrænn og setjið allar lykkjur á hringprjón 2,5 = (86) 86-94-94-98 (98-102) lykkjur. Prjónið garðaprjón. Þegar kantur í hálsi mælist 1 cm, fellið af fyrir hnappagati með því að prjóna 3. og 4. lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá 1. umferð frá réttu. Fellið af þegar kantur í hálsmáli mælist 2 cm. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir hvorri ermi. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 33-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Rita Andreasen wrote:

I den mindste størrelse hvor man sætter ærmer til ryg og forstykker skriver i at der bliver 150 m Efter man har lukket af til ærmer er ryg og forstykker 78 m og hvert ærme er 30 m. Det får jeg samlet til 138 m. Hvordan passer resten af opskriften udfra dette ?

04.03.2024 - 11:46

DROPS Design answered:

Hej Rita, du skal have 36 masker til ærme i den mindste størrelse :)

07.03.2024 - 15:05

country flag Marie-Luise Brüggen wrote:

Hallo liebes Drops-Team, Wie bekomme ich die Ärmelmaschen auf die rumpfteilnadel ohne die strickteile zu überdehnen. Werden die entstehenden Lücken unter den Armen per Hand geschlossen (hierzu erfolgen keine Angaben), habe ich evtl. Beim zusammenführen von Rumpf- und Armteil einen Denkfehler ? Vielen Dank im voraus

22.02.2024 - 13:15

DROPS Design answered:

Liebe Frau Brüggen, in disem Video zeigen wir, wie man die Ärmel auf die gleiche Nadeln wie Rumpf strickt, die ersten Reihen sind oft etwas tricky aber nach einigen Reihen geht es besser, eventuell kann man die Magic loop Technik benutzen. Hier zeigen wir, wie man unter die Ärmel zusammennäht. Viel Spaß beim stricken!

22.02.2024 - 15:01

country flag Melanie wrote:

Hallo liebes Drops-Team, mir geht es um die angegebenen cm-Angaben: gelten die für die gesamte Arbeit oder nur für den Abschnitt, den man gestrickt hat? Ich bin z. B. beim Rumpfteil und habe auf die 3er-Nadel gewechselt. Gelten die 10 cm (ich stricke

16.06.2023 - 09:11

DROPS Design answered:

Liebe Melanie, die 10 cm (in 1. Grösse) beim Rumpfteil für die Verteilung werden ab der Anschlagskante gemessen - Viel Spaß beim stricken!

16.06.2023 - 11:24

country flag Olivia Mack wrote:

Hallo ich habe die Ärmel beim Rumpfteil dabei. Muss ich zuerst die Streifen Passe stricken und dann erst die Raglanabnahmen machen oder muss ich schon während der Streifen Passe die Abnahmen vornehmen?\r\nVielen Dank

17.04.2023 - 21:54

DROPS Design answered:

Liebe Frau Mack, die Raglanabnahmen stricken Sie gleichzeitig, dh während die Streifen. Viel Spaß beim stricken!

18.04.2023 - 10:11

country flag Pamela wrote:

I am unclear on how to pick up the button band edge. It says " inside edge stitch"? What stitch should be picked up? Is it the stocking stitch or the garter stitch? Thank you for any help.

19.07.2022 - 12:01

DROPS Design answered:

Dear Pamela, see this video tutorial - hopefully it would be helpful for you. Happy knitting!

22.07.2022 - 19:06

country flag Louise Holme wrote:

På bærestykket, skal man tage ind totalt 12 gange i str. 0-3 mdr, men du tager 8 masker ind ved raglan på hver retpind, og det skal give 94 masker, men 12x8 giver altså 96 masker, enten læser jeg det forkert eller så har i været lidt for hurtige i matematikken 😂 men ellers en super nem og dejligt opskrift at sidde og lave

28.12.2021 - 18:00

country flag Monica wrote:

Jättefin tröja och har kommit så långt att jag ska sätta fast ärmarna på rundstickan där fram och bakstycke sitter. Det går inte. Det blir ju alldeles för trångt. Ärmarna är stickade runt med strumpstickor. Hur får man dit dem på rundstickan. Har provat allt.

18.11.2021 - 16:54

DROPS Design answered:

Hej Monica. Det kan bli lite trångt de första varven efter man har satt ihop det. Du kan ev. använda en extra rundsticka eller magic loop tekniken för att underlätta. Mvh DROPS Design

19.11.2021 - 09:31

country flag Lilly wrote:

Hallo, bei der Halsblende sollen je 5 Maschen aus jeder Blende "...innerhalb 1 hellseegrünen Masche...."aufgefasst werden. Soll ich aus 1 (einer) Masche 5 auffassen oder was ist mit "1" gemeint und wie wird es gemacht. Oder werden einfach nur 5 Maschen aus jeder Blende aufgenommen und mit den anderen verbunden? Vielen Dank schon mal für die Antwort!

25.10.2021 - 21:22

DROPS Design answered:

Liebe Lilly, Ihre letzte Vermutung stimmt: Sie fassen aus dem oberen Rand der vorderen Blenden pro Blende gleichmäßig verteilt 5 Maschen auf (also NICHT aus einer Masche 5 Maschen auffassen), dazwischen stricken Sie die stillgelegten Maschen wieder auf die Nadel. So wird die Halsblende dann um den ganzen oberen Rand angestrickt. Viel Spaß beim Weiterstricken!

26.10.2021 - 12:08

country flag Lilly wrote:

Hallo, ich bin gerade bei den Ärmeln nach dem Bündchen , wie wird der Markierer des Rundenanfangs gesetzt? Bei der Zunahme wird bis eine Masche vor dem Markierer gestrickt, ein Umschlag, dann 2 Maschen stricken, wobei der Markierer in der Mitte der beiden gestrickten Maschen liegt. Der Markierer sitzt auf der ersten Nadel des Nadelspiels, eine Masche vor dem Markierer wäre die letzte Masche der Runde davor, auf der letzten Nadel des Nadelspiels. Oder wird der Markierer nach Masche 2 gesetzt?

11.10.2021 - 19:08

DROPS Design answered:

Liebe Lilly, der Markierer soll zwischen der letzten Maschen und der ersten Maschen eingesetzt werden (nicht in einer Masche), so nehmen Sie zu: stricken Sie bis 1 M vor der Markierer/der Ende der Runde übrig ist, 1 Umschlag, 2 Maschen stricken (= die letzte Masche der Runde + die erste Masche der Runde), 1 Umschlag. Kann das helfen? Viel Spaß beim stricken!

12.10.2021 - 08:31

country flag Lise Engebretsen wrote:

👍🏻Nå går jeg over til en tykkere pinne, så klarer jeg det nok til sist 😊 øve, øve, jevnt og trutt og tappert, det er tingen . Takk for svar 💞

23.09.2021 - 18:00